Morgunblaðið - 22.10.1977, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1977
23
Nýjar fréttamyndir
Vegna verkfallsins hafa erlend blöð og fréttamyndir ekki borizt Morgunblaðinu,
utan einu sinni. t gærkveldi, föstudag, fékkst sending mynda og blaða að utan og hér
ásíðunni eru nokkrar myndir af nýjustu atburðum úti í heimi.
Helmut Schmidt, kanslari Vestur-Þýzkalands þrýstir hönd Gaby Dill-
mann, flugfreyju, Lufthandavélarinnar, eftir að hún hafði verið sæmd
heiðursmerki í Bonn í gær, fimmtudag. Gaby Dillmann særðist i
atlögunni, þegar gíslarnir voru frelsaðir, en ekki alvarlega.
Pierre Elliott Trudeau, forsætisráðherra Kanada virðist hér biðja
Elísabetu Bretadrottningu að ljá sér pláss undir regnhlífinni meðan
yfir stðð kirkjuleg athöfn í Ottawa á sunnudag. Var athöfnin haldin
utandyra og skall á rigning á meðan. Drottningin er í opinberri
heimsókn í Kanada og hefur hvarvetna fengið hinar ágætustu mót-
tökur.
Mynd þessi var birt í gær, fimmtudag, en tekið fram að þar sem hún væri gerð eftir 16 mm
sjónvarpsfilmu væru gæði hennar ekki upp á það hezta. Sjá má samningamann Vestur-Þjóðverja, Hans
Jiirgen Wischnewski (til vinstri) tala við Júrgen Vietor, aðstoðarflugmann á Lufthansavélinni, eftir að
gíslunum hafði verið bjargað.
Myndin var tekin á flugvellinum í Frankfurt á þriðjudaginn en þá
komu flestir gíslanna frá Mogadishu heim til Þýzkalands.
Fréttin um sjálfsmorð hryðjuverkamannanna þriggja í Stammheimfangelsinu hefur verið eitt helzta
efni blaða undanfarna daga (sjá frétt á forsíðu). Hér sjást tveir þeirra. þau Andreas Baader og Gudrun
Ensslin, og var myndin tekin í réttarhöldum yfir þeim fyrir níu árum. Eins og aikunna er kröfðust bæði
mannræningjar Schleyers og flugræningjarnir sem voru yfirbugaðir á flugvellinum í Mogadishu að þau
yrðu látin laus. Klukkustundu eftir að Lufthansagíslunum hafði verið bjargað fundust þau látin og
hendir til að þau hafi framið sjálfsmorð.
Synir Bing Crosbys bera hér kistu föður síns að legstað hans í Los Angeles fyrr í þessari viku. Synir
Crosbys á myndinni eru: annar frá vinstri: Nathaniel, Harry, Dennis, Lindsay og Philip.