Morgunblaðið - 22.10.1977, Side 34

Morgunblaðið - 22.10.1977, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1977 Árný Sigurðardóttir frá Suðurgarði, Vest- mannaegjum -Minning í veröld Ofanbyggjara í Vest- mannaeyjum er Nýja í Suður- garði kapituli íít af fyrir sig. Hún kom í Svaðkot snemma á fyrsta ári, flutti síðan með áum minum þaðan i nýbýlið Suðurgarð og þar hefur Nýja verið þar til hún hvarf á vit feðra sinna s.l. laugardag. Nýja var með lágvaxnari Islend- ingum, en hjartalag hennar og tryggð var ekki bundið neinni landhelgi. Nýja fóstraði mörg úr hópi okkar frændsystkina, með blíðu en festu á fyrstu árum, með nokkrum erfiðleikum á unglings- árunum, en vakti okkur virðingu þegar sköli hversdagsbaráttunnar tók við. Nýja var ávallt skemmti- leg þótt stundum væri hún eiiítið stygg við okkur krakkana ef við vorum með einhverjar þreytandi hundakúnstir. Hún muldi aldrei moðið í afstöðu sinni, þar var allt á hreinu þótt ekki þyrfti mörg orð. Hún var glöð með glöðum, harm sinn bar hún í hljóði, einnig lífstíðar und við sonarmissi. Nýja stuðlaði að kjarabót þessa heims, kenndi okkur jákvæða af- stöðu á sinn sérkennilega hátt og ruglaði aldrei saman hlutum og mönnum. Ef einhver fallegur hlutur brotnaði, þá sagði Nýja oft: „Það var ágætt að hann brotn- t Móðursystir okkar KRISTÍN GÍSLADÓTTIR Hvassafelli. Norðurárdal, andaðist í sjúkrahúsi Akraness 1 9 október Snorri Þorsteinsson. Gisli Þorsteinsson. t BJÖRGVIN VIGFÚSSON frá Dalvik lést að Hrafnistu 18 október s I Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 25. október kl. 1 3 30 F.h aðstandenda Sigurður Ármannsson. t Faðir okkar og stjúpfaðir. FINNBOGI SIGURÐSSON. andaðist að sjúkraskýlinu á Bolungarvik þann 1 5. okt Jarðarförin fer fram að Hólskirkju, Bolungarvik, laugardaginn 22. okt Bömin. Eiginmaður minn. + EINAR EINARSSON, frá Merki. StaSarhverfi. verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju í dag, laugardaginn 22 október kl. 14 Fyrir hönd aðstandenda Jóhanna Ákadóttir. t Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginmanns mins, föður okkar, tengdaföður. afa og langafa JÓNASARÞJÓÐBJÖRNSSONAR Elisabet Kristófersdóttir börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. t Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður minnar og systur HULDU M. INDRIÐADÓTTUR, Kleppsvegi 40. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki og læknum á deild 4 C á Landspítalanum Bryndis Kvaran og systkini hinnar látnu. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eiginkonu mínnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, MAGNÚSÍNU S. BÖÐVARSDÓTTUR, frá Sámstöðum. Guð blessi ykkur öll Jón Jósepsson Eyjólfur Jónsson Ólöf Sigurðardóttir Sigurður Jónsson Karen Guðlaugsdóttir Guðbjörg Jónsdóttir Kristján Bergjónsson barnabörn og bamabarnabörn. aði, þetta var hundljótt hvort eð var,“ og meinti það svo sannar- lega. Eða þegar hún rauk fram í dyr í Suðurgarði, gáði til veðurs með mikilúð i svipnum, vatt sér síðan inn í eldhús og sagði: „Ja, ég er illa svikin ef hann verður ekki á suðaustan á morgun, eða einhverri annarri átt.“ Nýja var hnyttin, sjaldgæf út- gáfa af manneskjulegu hljóðfæri sem gaf sinn tón og rímaði á móti öðrum. Okkur sem fylgdum Nýju um áratuga skeið fannst hún aldrei breytast, sígild i hljóðlátri veröld sinni sem á ekkert skylt við skúrskhátt frægðar og frama. Nýja var í stórum hópi kjarnbezta og traustasta fólksins í landinu, sem minnst ber á í þjóðmála- skvaldrinu. Hún fór aldrei út fyr- ir verksvið sitt, orðið verkfail var ekki til í hennar máli, en hún lifði samkvæm sjálfri sér. Hennar ver- öld var hennar fólk, hlaðið og húsin í Suðurgarði með tengslum til ýmissa átta enda fylgdist hún vel með þvi sem var að gerast. Hún hélt sínu striki og miklaði aldrei fyrir sér hlutina. Þegar Nýja var um tvítugt fékk hún staurfót vegna sjúkdóms, en hún fór sinna ferða fyrir þvi fremur en margir aðrir. Þá hún heimsótti Reykjavík ferðaðist hún aldrei með strætó, kunni ekki við þá. Hún gekk á milli bæjarhluta til þess að heimsækja vini sína og fór ótrúlega hratt yfir. 1 tryggð henn- ar bjuggu engar fjarlægðir. Við peyjarnir sem ólumst upp saman fyrir ofan hraun espuðum stundum Nýju og aðra aðstand- endur okkar með prakkaraskap og þá þótti okkur fyndið að geta hlaupið hana af okkur. En við hlupum ekki af okkur vináttu hennar og virðingu, þar stóð hún með pálmann í höndunum, við með skömmina. Undarlegt þótti mér þegar ég fyrst sá Nýju dansa á gamal- mennaskemmtun heima i Eyjum. Þá var ég 15 ára gamall og mér hafði aldrei dottið í hug að Nýja gæti dansað með staurfótinn sinn. En hún dansaði alla dansa óað- finnanlega og sérfræðingur var hún í vaisi. Hún dansaði í huldu- konustíl, sporlétt eins og blærinn. Þá glampaði á dökku auga. Fylgd Nýju í gegnum tíðina var mikill fengur, þar var ekki tjald- að til einnar nætur, hún stækkaði hugsun okkar með einföldum lífs- stíl sinum. Heima í Suðurgarði undi hún bezt, þar var vettvangur dagsins, þar gat hún látið þvottinn Ijóða við vestanáttina, þar gat hún gengið til úti- og inniverka á sín- um heimavelli og þar naut orðstíll hennar sin. „Það þýðir ekkert að vera að steikja þessar kleinur, þetta er hvort eð er allt borðað," sagði hún stundum snögg upp á lagið við okkur peyjana þegar við sátum við kleinudallana með skarpheitu lostætinu eða þegar leifar voru af matnum og Nýja vildi láta klára: „Æ, greyin min, borðið þið þetta, það fer hvort eð er i hænsnin." Nýja vann störf sín, en skákaði engum. í kringum slíka er ljúft mannlíf og gott að vera. Arni Johnsen. 1 dag verður til moldar borin frá Landakirkju í Vestmannaeyj- um mætur þegn er í lífi sínu fyllti líf samferðafólks síns birtu og yl með óeigingjörnu og fórnfúsu lífsstarfi sínu. Hér fór um persóna, er aldrei hnaut um þröskulda kynslóðabila. Einstakir hæfileikar hennar til að samlaga fortið og nútíð með sín- um sérstaka hætti, settu mörk á okkur er urðu þeirra gæju aðnjót- andi að fá að kynnast henni og eiga samleið með henni. Arný Sigurðardóttir var fædd í Vestmannaeyjum 23. desember 1904 og lést að heimili sínu, Suð- urgarði, hinn 15. október s.l.Por- eldrar Arnýjar voru Sigurður Sig- urðsson frá Götu í Vm og Gyðríð- ur Stefánsdóttir frá Manndal. 20 vikna gömul var Arný tekin í fóst- ur á heimili móðurforeldra minna, Jóns Guðmundssonar og Ingibjargar Jónsdóttur, er bjuggu að Svaðkoti er síðar hér Suður- garður. Óslitið frá fyrstu dögum hennar Hallveig Jónsdótt- ir Ijósmóðir-Kveðja Fædd 9. október 1921. Dáin 12. október 1977. Hvenærsem kalliö kemur kaupirsig enginn frí Þar læt eg nótt sem nemur neitt skal ei kvida því. H. P. Ennþá höfum við verið minnt á hin sígildu orð skáldsins er burt var héðan kölluð Hallveig Jóns- dóttir Ijósmóðir. Hún andaðist á Landakotsspítala þ. 12. þ., eftir fimm mánaða stranga legu. Hallveig var fædd i Ólafsvik 9. okt. 1921. Foreldrar hennar voru hjónin Lára Helgadóttir og Jón Þorbergur Jóhannesson, var hún þriðja barn þeirra hjóna. Á þeim timum var sjálfsagður hlutur að börn færu :ð vinna strax og tök voru á. Níu ára gömul var Hall- veig ráðin barnfóstra til þeirra hjóna Láru Bjarnadóttur og Jóns Gislasonar, en hann var pósthús- stjóri þar á staðnum. Það kom snemma i ljós hvað i þessari litlu stúlku bjó. Fór henni barnfóstru- starfið svo vel úr hendi, að þarna var hún sumar eftir sumar. Börn- in hændust að henni, og var hún þarna eins og stóra systir. Eftir fermingu vann hún svo áfram hjá þessum sömu hjónum i Hjarðarholti, við öll þau störf er vinna þarf á stóru heimili, en þar var alltaf margt um manninn og gestkvæmt mjög. Þarna vandist hún myndarskap til allra verka, fór orð af dugnaði hennar og kunnu húsbændur hennar vel að rpeta afköst hennar. Þannig Iiði hin björtu bernskuár við leik og störf i þeirri Ólafsvík sem þá var. Þegar Hallveig var 15 ára göm- ul mætir henni mikil reynsla. Þann 9. ágúst 1936 ferst bróðir hennar, Jóhannes, með síldar- bátnum Erni frá Siglufirði, ásamt 4 öðrum ungum og vöskum mönn- um frá Ólafsvík. Þarna var stórt og vandfyllt skarð höggvið í lítið þorp. Atti þvi margt heimili um sárt að binda. Og enn hélt maðurinn með ljáinn áfram að höggva í fjöl- skyldu Hallveigar. 30. ágúst 1936 andaðist faðir hennar Jón Þor- bergur Jóhannesson. Nú fór að þyngjast róðurinn hjá þeim er eftir stóðu. Lára, móðir þeirra, sýndi þá hver hetja hún var. Hélt hún áfram búskap i litla húsinu þeirra. Björg, yngsta systirin, var aðeins eins árs. Af fremsta megni stóðu þær systur Helga og Hallveig með móður sinni og litlu systurinni á þessum erfiðu raunatímum. Það var ekki létt hlutskipti að vera ekkja með lítið barn á þeim árum. Þá voru engir styrkir eða bætur. Aðeins vinna hörðum höndum. Það gerði Lára. Hún var kona sem ávallt gerði fyrst kröfur til sjálfr^ ar sín. Öll störf sín vann hún af trú og dyggð. Þessir góðu og traustu eiginleikar voru Hall- á heimili móðurforeldra minna hefir hún fylgt heimilinu ættlið eftir ættlið og innt af hendi sitt fórnfúsa og óeigingjarna starf og með sinum einstaka hætti þess veitanda, er lætur þiggjandann skynja veitta aðstoð sem sjálf- sagðan hlut og næstum ekki þakk- ar verðan. Þannig koma mér fyrir sjónir öll störf Arnýjar. Nánast aldrei var hún ávörpuð með skírnarnafni. Gælunafnið Nýja festist við hana í vitund okk- ar bæði sem barna, unglinga og fullorðins fólks. Það voru árblik- ur í ávarpinu Nýja um þetta jóla- barn. Það fór líka saman að líkam- legt atgjörfi hennar, en hún var smá vexti, veitti engum vanmeta- kennd á barnsárunum. Viðmót hennar, óeigingjörn fórnfýsi og elska til okkar ungra sem aldinna mótaði þann persónugerving er varð ratljós á vegi til betra lífs. Þegar þjónustu við móðurfor- eldra mina þraut við fráfall þeirra hélt hún ótrauð áfram af sömu skyldurækni og árvekni. Nú við heimili foreldra minna, siðar heimili systur minnar. Þannig varð allt líf hennar þjónusta gegnum fjóra ættliði. Afi og amma, p'abbi og mamma, systur og bræður, börn og barnabörn. Enginn var settur öðrum hærra. Öll nutum við jafns, ung sem ald- in. Bjartan geisla bar á lif Nýju er henni fæddist lítill drengur hinn 5. september 1934. Drengurinn var skirður Jóngeir Ingvi Magn- ússon. Með honum hafði og mér bæst tryggur vinur, er varð mér sem bróðir. Drengurinn hafði erft alla kosti móðurinnar. Hæfileikar hans til náms og starfs voru ótvi- ræðir. Hér virtist lífið þvi blasa við. Því fremur var mikil blika á lofti og harmaský grúfði yfir hinn 30. janúar 1953 er Ingvi féll af bilpalli og Iést nær samstundis við dyr þeirrar sömu kirkju og móðir hans er í dag borin frá til hinstu hvíldar. Jafnvel svo tregafull lífs- reynsla, sem lát einkasonar í blóma lífsins, samhliða miklum veikindum Arnýjar, sem nær alla ævi hafði þjáðst af liðagigt er leiddi til staurfótar á hægra fæti hennar megnuðu ekki að svipta okkur hin, sem eftir lifðum, þeim kærleika, er við ávallt höfðum verið aðnjótandi og er mér nær að halda að enn hafi 'aukið á um ástúð og umhyggju fyrir okkur hinum. Hér sem áður var borinn eiginn harmur, án þess að flytja hann yfir til annarra. Slík var skaphöfn hennar. veigu í blóð bornir, og um margt voru þær likar, fundu fyrst og fremst gleði i aó fórna kröftum sinum fyrir aöra. Ekki leið langur tími unz dauð- inn kvaddi dyra í Hjarðarholti. Vigdís, móðir húsfreyju, var öll. Hún hafði verið á undanförnum árum sem góð amma Hallveigar. Nú þótti þeim er til þekktu sem mælirinn væri fullur, að þvi leyti er til Hallveigar litlu kom. En þar sannaðist að Guð leggur ekki meira á manninn en hann getur borið. Þó Hallveig ynni áfram íHjarð- arholti hugsaði hún um móður sina, og vann hjá henni öllum stundum. Þannig liðu árin og unga stúlkan þroskaóist og óx í mótlætinu. Veturinn 1942>—43 fór Hallveig í húsmæðraskólann á Isafirði. Kom þaðan með góðum vitnis- burði. Eftir það fór hún að vinna að saumum fyrir fólk í þorpinu. Arið 1945—46 nemur hún ljós- mæðrafræði við Ljósmæðraskóla Islands, en til þess var hún kjörin fyrir Ölafsvík, Hellissand og Fróðárhrepp. Frá ljósmæðranáminu kemur hún heim til Ólafsvíkur haustið 1946, og tekur þar á móti fyrsta barninu þ. 5. nóv. A þeim árum, er Hallveig byrj- aði starf sitt, var erfitt að vera ljósmóðir úti á landi. Allar konur fæddu þá heima við misjöfn skil- yrði, eins og gengur — nema eitt- hvað afbrigðilegt væri um ' að ræða — var þá samkvæmt læknis- ráði sent til Reykjavíkur. Slæmar voru samgöngur, t.d. varð að sæta sjávarföllum undir Ólafsvíkurenni, er komast þurfti út á Hellissand.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.