Morgunblaðið - 22.10.1977, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. OKTÖBER 1977
43
HALDIÐIHORFINU
FRUMVARP (il fjárlasa hefur
verið lagt fram á Alþingi os
heildarupphædin nemur litlum
124 milljorðum króna! Þetta er
mikil fjárhæð á íslenskan
mælikvarða og það eru ótrúlega
fá ár síðan fjárlög islenska
ríkisins voru tíu sinnum lægri.
En þetta er þróunin og virðist
erfitt að sporna við því.
Þeir sem leggja fram krafta
slna fyrir Islenska iþrótta-
hreyfingu biðu spenntir eftir
því hver sú upphæð yrði, sein
Iþróttasambandi tslands og um
leið ölium sérsamböndunum,
15 að tölu, væri ætluð á kom-
andi ári. Vonbrigðin urðu
mikil, þegar í Ijós kom, að fjár-
hæðin var 42,7 milljónir, en til
þess að halda I horfinu hefði
upphæðin orðið að nema a.m.k.
50 milljónum. Hér er því um
raunverulega lækkun að ræða.
I.ágmark hefði verið 70 til 80
milljónir. Forystumenn
Iþróttamála eru undrandi á
þessu skilningsleysi. Þeim
hefur fundist gæta jákvæðari
undirtekta af hálfu stjórnvalda
á yfirstandandi ári en áður,
enda hcfur íþróttafólk sýnt
það, að þeim fjármunum er vel
varið, sem veitt er til íþrótta.
Iþróttastarfið hér á landi er
orðið geysiimfangsmikið. Fyrst
og fremst þarf að veita hinum
mikla fjölda, sem iðkar iþrótt-
ir, verkefni og kennslu, sem
stöðugt verður fjárfrekara, þó
að sjálfboðavinna sé mikil.
Hins vegar eru það ávallt ein-
hverjir sem skara frain úr og á
þessu ári hafa ýmsir einstakl-
ingar og flokkar unnið alkunn
afrek, sem óþarfi er að tfunda á
þessum vettvangi. Hér er um
meiri og betri landkynningu að
ræða en menn gera sér almennt
grein fyrir. Auk þess stuðla góð
íþróttaafrek að auknum
iþróttaáhuga ungs fólks, sem
aftur leiðir af sér betri og dug-
meiri þjóðfélagsþegna. Því
miður leiðast alltof margír
efnilegir unglingar út I óreglu
og annað þaðan af verra, en
slfkt heyrir tíl algerra undan-
tekninga hjá þeim, sem leggja
stund á íþróttir. Þær veita
ánægju og þroska unga fólkið
og býr það betur undir hina
flóknu og erfiðu Iffsbaráttu.
Öm Bðsson:
lþróttaforystan f landinu trú-
ir þvi ekki fyrr en i fulla hnef-
ana, að þessi upphæð verði ekki
hækkuð áður en lýkur. Vissu-
lega er f mörg horn að lita hjá
rikisvaldinu, en hlutur félags-
málahliðar fþróttanna er van-
metinn, ekki síst þegar við ber-
um okkur saman við nágranna-
löndin. Það er ekki nög fyrir
iþróttahreyfinguna, að fluttar
séu fagrar ræður, þegar vel
gengur og fagnað heimkomu ís-
lenskra afreksmanna eftir
sigra á eriendum vettvangí. Við
verðum I sameiningu að veita
okkar glæsilega æskufólki
tækifæri tíl að vinna ennþá
betri afrek á næstu árum.
Undirbúningur fyr'ir Olvmpíu-
leikana i Moskvu 1980 er nú i
fullum gangi hjáöllum þjóðum^
STARFSFOLKIÐ A
ENGA SÖK Á ÞVÍ
ER ÚRSKEIÐIS FER
- segir framkvæmdastjóri Laugardalshallarinnar
VEGNA utanfarar meist-
araflokks FH gat ekkert
ordið af leik Víkings og FH
í 1. deild Islandsmótsins í
handknattleik á . fimmtu-
dagskvöldið. Það var ekki
vitað fyrr en um hádegi á
fimmtudag að leikurinn
gæti ekki farið fram, svo
seint að ekki var möguleiki
á því að koma því í blöðin,
en um tilkynningar í út-
varpi er ekki að ræða eins
og allir vita.
Fjöldi áhorfenda mætti í Laug-
ardalshöllina um kvöldið og voru
þeir fyrst og fremst komnir til
þess að'sjá fyrrnefndan leik. Þeg-
ar áhorfendur fengu að vita að
leikurinn færi ekki fram, kvört-
uðu margir yfir þvi við starfsfóik
hússins og einnig yfir háu miða-
verði. Slíkt hefur gerst nokkrum
sinnum áður og af þessu gefna
tilefni hefur Gunnar Guðmanns-
son, framkvæmdastjóri Laugar-
dalshallar, beðið Mbl. að koma því
á framfæri að niðurröðun leikja
og önnur framkvæmd við hand-
knattleiksmót, þar á meðal
ákvörðun um miðaverð, sé starfs-
fólki Laugardalshallar óviðkom-
andi og því tilgangslaust fyrir
áhorfendur að láta reiði sína
bitna á starfsfólkinu f eitthvað
fer úrskeiðis, heldur beri að snúa
sér til leigutaka hverju sinni.
ísland
tSLENDINGAR leika í riðli með
Norðmönnum og Dönum í Norð-
urlandaniótinu í handknattleik
sem fram fer hérlendis dagana
27. október til 30. október n.k. I
hinum riðlinum lcika svo Sviar,
Finnar og Fære.vingar. Sigurveg-
arnir i riðlunum lcika svo sín á
milli um Norðurlandameistaratit-
ilinn, liðin sem verða í öðru sæti
KK-ingurinn sem þarna er kominn í golt færi undir IR körfunni bætir tveimur stigum i safnið fyrir félag
sitt.
STÆRSTISIGUR KR
YFIR ÍR FRÁ UPPHAFI
SÚ var tíðin að leikir KR og tR
voru slagur risanna í Islenzkum
körfuknattleik. Það var þó ekki
að sjá að svo væri í leik liðanna í
fyrrakvöld í Reykjavíkurmótinu.
iR-ingar voru sem börn í höndum
KR-inga og virðist sem IR stór-
veldið sé hrunið til grunna.
Jafnræði var með liðunum
fyrstu 5 mínúturnar, en siðan
ekki söguna meir. KR-ingar press-
uðu leikmenn ÍR mjög stift og
hirtu boltann hvað eftir annað af
þeim og fyrr en varði var munur-
inn orðinn 20 stig. Liði KR var
skipt inn á jafnt og þétt, án þess
að hraðinn dytti niður, og var
staðan 57—29 KR í hag, er flautað
var til leikhlés. í seinni hálfleik
var sama uppi á teningnum.
Munurinn jókst stöðugt, en loka-
tölur urðu 113—62.
Lið KR er í miklum ham þessa
dagana og því ekki árennilegt.
Bestan leik gegn IR átti Jón
Sigurðsson, en þessi snjalli leik-
maður virðist geta gert það sem
hann vill við boltann, án þess að
nokkur fái við þvi gert. Þá voru
þeir Andrew Piazza, Einar Boila-
son og Kolbeinn Pálsson einnig
góðir, en aðrir leikmenn stóðu
þeim lítt að baki í þessum leik.
Stig KR skoruðu: Piazza 28, Jón
Sig. 20, Einar 16 og Kolbeinn 15.
iR-ingar eiga ekki sjö dagana
sæla um þessar mundir og súpa
nú seyðið af því að hafa vanrækt
yngri flokkana. Sá leikmaður sem
stóð upp úr meðalmennskunni
var Erlendur Markússon. Hann
skoraði 16 stig og hélt spili þeirra
gangandi eins og hægt var.
Sigurður Gislason lék nú eftur
með IR, en árin eru farin að segja
til sín og þessi gamla kempa náði
sér aldrei á strik. Stig IR skoruðu:
Eiiendur 16, Sigurður V.
Halldórsson 12 og Stefán Kristins-
son 10.
A undan leik KR og IR léku IS
og KR í meistara-flokki kvenna og
gátu stúdentakonur tryggt sér sig-
ur í Reykjavikurmótinu með sigri
í þessum leik. IS náði forystu til
að byrja með, en KR-stúlkurnar
jöfnuðu leikinn. Staðan í hálfleik
var 19—14 IS í vil. Seinni hálf-
leikur var mjög jafn og spennandi
og skiptust liðin á um að hafa
forystu. Það var ekki fyrr en á
siðustu sekúndum leiksins að KR
náði fjögurra stiga forystu, sem
dugði til sigurs, 45—41.
GG.
Staðan í Reykjavíkurmótinu
og stigahæstu menn
KR 4 4 0 360:269 8 stig
IS 4 3 1 363:288 6 stig
Valur 4 3 1 299:268 6 stig
Fram 5 2 3 398:413 4 stig
Armann 4 1 3 309:330 2 stig
ÍR 5 0 5 297:458 0 stig
Stigahæstu menn: stig
Símon Olafsson Armanni 109
Erlendur Markússon lR 102
Riek Hoekenos Val 99
Andrew Piazza KR 91
Þorvaldur Geirsson Fram 85
Dirk Dunbar IS 77
Mike Wood Ármanni 75
Atli Arason Ármanni 70
Vftahittni:
Riek Hoekenos Val 8: 7 87,5%
Jón Sigurðsson KR 5:4 80,0%
Einar Bollason KR 23:18 78,3%
Mike Wood Arm. 31:24 77,4%
Dirk Dunbar IS 20:15 75,0%
Ingi Stefánss. IS 12:9 75,0%
Steinn Sveinss. ÍS 19:14 73,7%
Andrew Piazza KR 18:13 72,2%
Til þess að koma til greina í
sambandi víð verðlaun fyrir
vítahutni verður leikmaður að
ná því að komast 10 sinnum á
vítapunktinn, þannig að t.d.
Rick Hockenos, Jón Sigurðsson
og Ingi Stefánsson verða að ná
mun fleiri vítaskotum til þess
að eiga möguleika ' verðlaun-
um.
URSLITALEIKIRI
KÖRFUKNATTLBKNUM
1 DAG eru síðustu leikir meist-
araflokks kvenna og karla i
Reykjavíkurmótinu í körfu-
knattleik á dagskrá. Leika
klukkan 13.00 í Hagaskólanum
KR og IS. KR-ingar eru enn
ósigraðir og tryggja sér titilinn
með sigri í dag. Stúdentar eru
ekki tilbúnir að samþykkja KR-
inga sem Reykjavíkurmeistara,
en sigri þeir í dag verða þrjú
lið efst og jöfn, KR, IS og Val-
ur. Verður vafalaust jafn og
spennandi leikur milli liðanna,
sem svo oft áður.
Að leik KR og IS loknum, eða
um klukkan 15.30, leika KR og
IR í meistaraflokki kvenna.
Sigri KR, tryggja stúlkurnar
sér þar með Reykjavíkurmeist-
aratitilinn, en sigri IR verða
KR, IR og tS öll jöfn að stigum.
GG .
I
leika um þriðja sætið í mótinu og
liðin sem verða í þriðja sæti í
riðlunum leika um fimmta sætiö.
Telja verður Svía örugga sigur-
vegara í A-riðlinum, en hins veg-
ar má búast við geysilegri haráttu
í B-riðlinum, en þar ættu Iiðin
þrjú að hafa nokkurn veginn
jafna möguleika.
Tímasetning leikja Norður-
landamótsins hefur verið ákveðin
þannig:
Fimmtudagur 27. október:
Kl. 20.00: Færevjar — Finnland
Kl. 21.15:
Noregur — Island
Föstudagur 28. október:
Kl. 20.00: Sviþjóð — Færyejar
Kl. 21.15: Danmörk — Ni/regur
Laugardagur 29. október:
Kl. 14.00: Finnland —Svíþjóð
Kl. 16.00: Island — Danmörk
Sunnudagur 30. október
Kl. 10.30: Leikið um 5. sætið
KI. 16.00: Leikið um 3. sætið
Kl. 17.30: Leikið um 1. sætið
Allir leikirnir fara fram í Laug-
ardalshöllinni nema leikur Finna
og Svía sem fram mun fara á
Akranesí.