Morgunblaðið - 15.01.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JANUAR 1978
7
Guðspjall þessa sunnu-
dags, sem segir frá því er
Jesús og móðir hans eru boð-
in til brúpkaups í Kana, leiðir
hug okkar að heimilinu í dag.
Um það er vert að hugsa
því að hvergi eru mönnum
fremur spunnin örlög en þar
til hamingju eða hamingju-
leysis. Þar hefur gæfan átt
sæti, en þar hefur henni
einnig oft verið búin gröf. í
heimilinu hafa dýrustu
draumar manna rætzt, en
dýrustu vonir þeirra sumar
dáið. Sólarbros hafa fleiri
sézt í heimilinu en á nokkur-
um öðrum stað, en þar hafa
líka fleiri tár fallið
Sú saga er orðin gömul. í
snauðum hellisskúta áttu
menn fyrir örófi alda sina
hamingju, og þar báru þeir
einnig sinn harm. I gömlum
torfbæjum gerðist þessi saga
með feðrum og mæðrum
með undralikum hætti og
hún gerist i nýtízkuheimilum
i dag.
í einum helgra texta þessa
sunnudags er bent á máttar-
viði hins gæfusama heimilis.
Þar er m.a. minnt á ástúðina
og nauðsyn Ijúflyndis í dag-
legum samskiptum heimilis-
fólksins, Ijúflyndis sem
mörgum veitist erfiðlega að
tjá í daglegri umgengni.
Hvað veldur? Misjöfn gerð
manna? Sumum ereðlilegt
að tjá ástúð sina með þeim
orðaflaumi.
mátt bæta, — hefði mátt en
aldrei varð. Því er þörf sú
áminning um ástúð og Ijúf-
lyndi, sem einn af höfundum
Nýja testam leggur þunga
áherslu á. Sjálfur gerðist
hann heimilislaus boðberi
hinnar kornungu kristni.
Lund hans var stórbrotin,
skapið var mikið og barnslegt
um leið, því hefur hann,
stundum einmana á ferðum,
föðurlandslaus, saknað þeirr-
ar heimilishamingju, sem
hann hafði fórnað á altari
sinnarstóru hugsjónar. Trú-
legt er, að það sé einmitt sá
söknuður, sem kyndireldinn
i sálu hans þegar hann brýnir
þá, sem orð hans eiga að
lesa, til þess að fela ekki
ástúðina, sem í hjartanu býr,
undir einhverju heimskulegu
mikilmennsku-yfirvarpi í stað
þess að láta hana streyma til
þeirra sem samferðamenn
eru á veginum, eða í heimil-
inu.
Þessi sannindi hafa margir
túlkað, en hafa aðrir gert það
betur en Einar Bened. gerir í
Ijóðinu um gáfaða óláns-
manninn Starkað:
Eitt bros getur dimmu
dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig
heillar skálar.
Þel getur snúizt við
Heimiliö
að útaf flóir, aðrir temja sér
þann hátt, að láta sjaldan
eða aldrei falla orð um það,
sem vekur aðdáun, yl eða
ástúð í hjarta þeirra. Þessar
mannsálir gera heimilin fá-
tæklegri, snauðari, kuldalegri
af því að þær gæta ekki þess,
hve geisimikils virði það er
daglegu lífi i heimilinu að
gefa útrás í látlausu orði eða
einfaldri athöfn þeirri ástúð,
sem i hverju einasta manns-
hjarta i einhverjum mæli býr.
Að vanrækja þá tjáningu í
athöfn eða orði hefur oft
kostað heimilisböl, sem
aldrei varð bætt en hefði
atorð eitt,
aðgát skal höfð i nærveru
sálar
Svo oft leyndist strengur
í brjósti, sem brast
við biturt andsvar, gefið
án saka.
Hve iðrar margt líf eitt
augnakast,
sem aldrei verður tekið
til baka
Hvílík predikun! Hvilík
áminning! Eins og einn dropi
breytir víni barmafullrar skál-
ar, svo getur þú með einu
brosi breytt köldu húsi i
heimili Skammt nær þín
sjón inn i hugarheim þeirra,
sem með þér i heimili búa:
Lifandi mannssálir, sem ým-
ist óma gleðilag af orsökum,
sem þér eru ekki kunnar, eða
sorgarsöngva, eins og harpa
Heimis konungs. Menn
heyrðu hana gráta en vissu
ekki hvað harpan geymdi og
þá ekki, hversvegna hún
grét
Likt er hjarta mannsins
hörpu Heimis konungs, það
geymir líf og leyndardóma
svo mikla, að ævinlangt get-
ur þú búið í nábýli eða jafn-
vel sambýli við aðra, án þess
að hafa nokkra verulega vitn-
eskju um, hvað innst i huga
þeirra býr. Daglega sérð þú
nágranna þinn, — nei, þú
sérð umbúðirnar um mann-
inn, en manninn sjálfan ekki.
Því er það ekki ævinlega þin
sök, heldur vegna skorts á
trúnaði á báðar hliðar, að svo
getur farið, sem i Ijóðinu um
Starkað segir:
Svo oft leyndist strengur
í brjósti, sem brast
við biturt andsvar, gefið
án saka.
Hve iðrar margt líf eitt
augnakast,
sem aldrei verður tekið
til baka.
Hvað er ólán? Um það skal
varlega dæma Lærðir þú
ekki m.a. það af sjónvarps-
leiknum um dönsku fiski-
mennina? Átti nokkurt af
blessuðu „trúaða" fólkinu,
sem lifði og hrærðist í danska
heimatrúboðinu, sem af mik-
illi orku og alvöru var lengi
boðað hér — var og er enn
— átti nokkurt af því fólki
við leikslokin lári og lifsgæfu
á við ungu stúlkuna, sem
hafði „hrasað" og beið bros-
andi, sæl með barnið sitt í
faðminum meðan unnustinn,
syndaselurinn í augum hinna
„góðu guðsbarna", sigldi að
landi þöndum seglum til
fundar við hana og framtíð-
ina?
Hvað er lán? Hvar er gæfa
þin mest? Við ættum að
hugsa um það i dag meðan
meginguðspjall þessa sunnu-
dags bregður upp fyrir okkur
mynd af brúðkaupsgleði
ungu hjónanna í Kana.
Svipmyndir
á svipstundu
Svipmyndir í hvert skírteini
Svipmyndir sf.
Hverfisgötu 18 ■ Gegnt Þjóóleikhúsinu
^rðaverzlun í Grímsbæ«■
Útsala
Heklugarn — prjónagarn
— flosmyndir.
Úrval af hannyrðavörum.
Sími 86922.
smyrnateppi
ÚrvaliðfTft
Umboð fyrir nmcrískar, enskar og
japanskar bifreiöir. Allt sama staö
er hjá Agli
Concord nýr lúxusbíll frá American Motors
258 c u., 6 strokka vél, sjálfskipting, vélknúið
stýri og hemlar. Búnaður allur ámóta og í
dýrustu bílum.
amCONCORD
Ótrúlega lágt verð, en staðreynd samt sem áður.
Allt á sama Staö Laugavegi 118- Simar 22240 og 15700
EGILL VILHJÁLMSSON HF
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU