Morgunblaðið - 15.01.1978, Side 22

Morgunblaðið - 15.01.1978, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JANUAR 1978 411TA41M „Gorgias eftir Platón, ádeila hins djúpsæja gríska heimspekings á lýðræði, kemur út á íslenzku þegar gallar lýðræðisskipulags íslendinga blasa við". eftir Hannes Gissurarson Hæfilegur útgáfutími ádeilu Hið íslenzka bókmenntafélag valdi hæfilegan tíma til útgáfu sinnar á bók- inni Gorgíasi eftir Platón i íslenzkun Eyjólfs Kjalars Emilssonar. Þessi ádeila hins djúpsæja gríska heimspekings á lýðræði kemur út, þegar gallar lýðræðis- skipulags Islendinga blasa við. Flestir ráðamenn eru ráðalausir gegn hags- munasamtökunum, en völd forráða-' manna slíkra samtaka hafa farið langt fram úr ábyrgð þeirra. Lýðskrumarar hrósa víða sigri. Almenningsálitið er átrúnaðargoð þeirra, það er talið óskeik- ult. Fjármagnshungur landsmanna er reynt að seðja með verðbólguseðlum, en út úr þeim stendur spillingarspýjan vegna þessarar fæðu — bæði upp- ljóstrunarmanna og afbrotamanna: fjöl- miðlungarnir selja harmsögur annarra manna, ávirðingar þeirra og yfirsjónir, fjársvikararnir láta sómann falan. Þeir menn fyrirfinnast, sem hafa gefizt upp á að reka sjálfstæðan þjóðarbúskap á Is- landi, vilja leysa vanda hans með því að hætta honum, kasta sér í fang Banda- ríkjamanna eða Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins. Þingkosningar nálgast, háværir áróðursmenn reyna að breyta fjölda- menningu sjónvarpsaldar og síðdegis- blaða í fjöldavitfirringu. Er lýðræði þess virði, að fyrir það sé þessu fórnað? Er það skrílræði? Platón hafnaði lýðræði, en með því að hann var ólíkur mörgum mönnum öðrum, færði hann rök fyrir mælikvarðinn í stjórnmálum, að sann- færingin skipti engu máli, sannleikur- inn öllu, og að sannleikurinn sé óháður fjöldafylgi. Platón gagnrýnir mælsku- mennina fyrir að skjalla lýðinn, fyrir að telja hann handhafa sannleikans, láta undan honum í öllu, en bæta hann ekki og aga. Athyglisverðasti samræðunautur Sókratesar í Gorglasi er Kallíkles. Hann er talsmaður valdsins, mátturinn er eini rétturinn, telur siðferði og réttvísi til- búning undirmálsmanna. Allt er leyfi- legt „hinum sterka manni“ að mati Kallíklesar, hann lætur sig siðferði engu varða, það er fyrir „hina veiku". Kallíkles boðar harðstjórn höfðatölunn- ar. Rök Sókratesar (eða Platóns) gegn honum eru einkum þau, að réttvísin sé mönnunum sjálfum í hag á sama hátt og heilbrigði líkamans sé þeim i hag, þeir séu sálsjúkir, ef þeir fari ekki siðferði- lega að öðrum mönnum, réttvisin sé í rauninni heilbrigði sálarinnar, heim- spekingurinn sé verndari og læknir sálarinnar og þess vegna réttur stjórn- andi ríkisins. Platón telur lýðræði aga- laust meirihlutaræði. Stefna hans er af öllum þessum sökum sú, að völdin beri að taka af meiri hlutanum og fá þau heimspekingunum, að meirihlutaræðinu beri að breyta í spekingaræði. Hvað er að segja við henni? Lýsing Platóns á lýðræði er raunsönn. Hann kallar það atferði margra stjórnmálamanna að elta almenningsálitið „flaður“, en nútíma- menn kalla það „lýðskrum". Hann gagn- rýnir með gildum rökum þá skoðun á hlutverki ríkisins, að það sé til þess að sinna öllum kröfum borgaranna, en hún ur eigi eitt brotið. t þriðja lagi erþað skoðun frjálslyndra nútimamanna (sem verður ekki að sjálfsögðu rökstudd vís- indalega), að allir einstaklingarnir séu jafngildir sem menn, allir hafi sama réttinn til þess að velja og hafna sjálfir um verðmæti lífsins, lifa lífinu eins og þeir kjósa. Vitsmunalegir yfirburðir auka ekki stjórnmálaleg réttindi þeirra, sem hafa þá fram yfir aðra menn, heldur siðferðilegar skyldur þeirra. En hvers vegna tekur Platón spekingaræði, sem er bæði óframkvæmanlegt og órettlætan- legt, fram yfir lýðræði? Hvað veldur röngu læknisráði Platóns? Umfram allt hóphyggja hans. Aðferð hans er röng og úrræðin því lika. Hann hafnar ein- staklingshyggjunni og réttarstefnunni i stjórnmálum, sem henni er samfara, tel- ur hópinn réttan aðila að stjórnmálum, en ekki einstaklingana. Hann lifir ít heimi hugtakanna, en ekki mannanna. Og margir menntamenn hafa fetað í fót- spor Platóns, svikið lifandi mennina vegna ástar sinnar á dauðum hugtökúm, byltingum, stéttum, þjóðum og söfnuð- um. Á ríkið að sinna öllum kröfum borgaranna eða bæta þá? Athugum nánar aðfinnslu Platóns. Hann telur það lýðræði, að ríkinu sé ætlað að verða við öllum óskum borgar- anna, stjórnmálamennirnir stingi þeim sætindum í munn borgaranna, sem lýðskrumið sé, láti allt eftir þeim. Platón segir, að það sé einungis til ófarnaðar, borgararnir (sem hann hefði vafalaust kallað ,,þegna“) verði sjúkir í sálum sínum. Aðfinnsla hans er f rauninni sú, að lýðræði geri borgarana verri, en gott stjórnskipulag eigi að gera þá betri. Þess vegna hafnar hann lýðræði og kýs spek- ingaræði. Vitringurinn í valdastól gefur borgurunum ekki sætindi, heldur sálar- lyf. (Og vísindalegu fyrirmyndarskipu- lagi hans lýsir Platón í mestu bók sinni, Rfkinu.) Hver er forsenda þessarar skoðunar? Hún er sú, að borgararnir séu börn, sem ala verðu upp af fullorðnum mönnum — heimspekingum. Nú á dög- um eru tveir eða þrír hópar einstaklinga, sem njóta ekki borgaralegra réttinda, börn, fávitar og vitfirringar. (Auk þeirra voru til forna réttindalausar kon- ur, þrælar og menn af útlendum ættum.) Skoðun Platóns er í rauninni sú, að þorri borgaranna sé í einhverjum þessum hóp- ’ um, hugsa verði fyrir þá og um þá, heimspekingarnir einir geti stjórnað. Þeir, sem bregða út af lífsháttum þeim, sem heimspekingarnir telja rétta, eru að mati Platóns sáisjúkir. Er þessi kenning Platóns ekki ógnvænleg? Eru gúlag- eyjarnar og geðveikrahælin ekki í sjón- máli hennar? Platón hleypur úr einum Mismunandi markmið einstaklinganna Komið er að kjarna málsins: Draumur heimspekinga um vísindalegt fyrir- myndarskipulag samhæfingar, ríki „skaplegrar setningar" eins og Sókrates orðar það í Gorgfasi, verður óhjákvæmi- lega að martröð airæðisskipulagsins, kúgunar og ofbeldis. Vísindin eða heim- spekin geta ekki leyst vanda lífsins fyrir mennina, skorið úr þvi, hvað sé gott og hvað illt. Þeir verða að skera úr því sjálfir. I staðreyndir náttúrunnar, við- fangsefni vísindanna, er ekki hægt að sækja rök fyrir verðmætum lífsins. Þess vegna er spekingaræði Platóns jafnórök- rétt og sérfræðingaræðið, sem marga stjórnlynda nútímamenn dreymir um. Af þessum framangreinda eðlismun á vali manna um verðmæti og gefnum staðreyndum náttúrunnar leiðir ekki geðþóttakenning í siðferðilegum efnum, valdskenning Kallíklesar, heldur virðing manna fyrir vali annarra, frjálslyndi eða umburðarlyndi. Til er að minu viti einn og algildur mælikvarði siðferðis og sið- gæðis, sem menn geta fundið með skyn- ■ semi sinni, en þeim er ekki leyfilegt að nota ríkisvaldið til þess að neyða aðra undir hann. Þeir geta ráðlagt öðrum mönnum en ekki skipulagt þá. Platón líkir rikinu við lífveru og réttvfsinni við heilbrígði hennar, og sumir spekingar telja hægt að hrekja eðlismun verðmæta- vals og staðreynda með slíkri samlíkingu (menn velji t.d. ekki um það, hvort þeir séu með botnlangabólgu og uppskurður (róttæklingabylting?) því nauðsynlegur eða ekki). En rangt er að líkja ríkinu við slíka lífveru, því að það er stofnun ólíkra ADEILA PLATONS Á LYÐRÆÐI máli sínu. Ég ætla í þessari grein að gera þau rök hans gegn lýðræði, sem komið er orðum að í Gorgíasi, að umtalsefrii, en ekki að fella dóm um útgáfu Bókmennta- félagsins. Það bíður betri tíma. Sumt, sem hann sagði um lýðræði Grikkja fyrir 2400 árum, á einnig við lýðræði Islend- inga. Það er einkenni mikillar heim- speki, að hún fyrnist ekki, hugsunin er ekki tímabundin, þótt frjálslyndir nú- tímamenn séu ekki sammála Platóni um margt. Ég er mjög ósammála honum um flest, get tekið undir fræga gagnrýni heimskepingsins Karls Poppers í bók- inni Opnu skipulagi og óvinum þess (The Open Society and Its Enemies) og stjórnmálamannsins Richards Cross- mans (sem samdi reyndar dagbókina frægu, sem verið er að birta i Bretlandi) f bókinni Nútímamanninum Platóni (Plato today) á stjórnmálakenningu og stéfnu Platóns. Sannfæringin og sannleikurinn Gorgías er ems og flestar aðrar bækur Platóns rituð sem samræða kennara hans, Sókratesar, og annarra áhuga- manna um heimspeki. Umræðuefnið er í upphafi mælskulistin (sem stjórnmála- menn notuðu eina á öld hins talaða orðs), en það breytist í tengsl stjórnmála og siðferðis. Skoðun Sókratesar (eða) Platóns) ersú,að árangur áróðursmanna. sannfæringarmáttur þeirra, sé ekki rétti hefur valdið mörgum vandanum. Og hann gerir réttan greinarmun á gildi skoðunar og vinsældum hennar, „sann- yrði sverða" hæfa ekki manninum. En Platón er allt of einsýnn (eins og vonlegt er, því að hann lifði upplausnina í Grikk- landi að loknu blómaskeiði lýðræðis á fimmtu öldinnif.Kr.).Ogskýringhans á lýðræði er-að mínu viti röng, þótt lýsing- in sé raunsönn. Nota má líkingar hans sjálfs: Hann lýsir sjúkdómnum ágæt- lega, en sjúkdómsgreining hans er röng og læknisráðin vafasöm. Hóphyggja Platóns Til þess eru þrjár ástæður, að læknis- ráð Platóns, að breyta. lýðræði í spek- ingaræði, er einungis til hins verra. I fyrsta lagi er óhægt að velja heimspek- ingana, skilgreina hópinn. A hann að vera erfðaðall? Platón telur skólakerfið tæki til þess að velja þessa valdhafa, en sú almenna og óframkvæmanlega kenn- ing hefur orðið til ómældrar bölvunar. 1 öðru lagi er sannleikur lifsins ekki frek- ar niður kominn hjá hejmspekingunum en meiri hlutanum. Enginn einn hópur situr inni með sannleikann, skilninginn á siðferði eða réttvísi. Allir hópar eru hugtök. Sannleikurinn er niður kominn hjá öllum einstaklingunum, lifandi mönnum. A skáldamáli má taka svo til orða, að sannleikur lífsins sé í brotum (misstórum að vísu) og hver einstakling- öfgunum í aðrar. Hann hafnar með rétt- um rökum þeirri skoðun, að ríkið eigi að sinna öllum kröfum borgaranna. Hann hefur hina skoðunina, sem er engu betri, að ríkið eigi að bæta borgarana. (Sósíal- istar eða skipulagshyggjumenn nútim- ans hafa báðar þessar öfgaskoðanir á æskilegu hlutverki ríkisins.) Hvort tveggja hlutverkið krefst næstum því ótakmarkaðs valds rfkisins (vald ríkisins er einungis vald þeirra hópa, sem ráða ríkinu). Það krefst miðstjórnarkerfis, og reynslan hefur sýnt, að kúgunin er óhjá- kvæmileg i slíku kerfi. „Allt vald spillir valdsmönnunum, og algert vald spillir þeim algerlega," sagði Acton lávarður. Frjálslyndir menn hafna báðum þessum skoðunum, telja mannbætur hlutverk mannanna sjálfra, einstaklingarnir einir geta kosið um verðmæti lífsins. Það er ekki á valdi ríkisins að breyta mönnún- um. Ríkið á að láta borgarana afskipa- lausa að mestu, einungis að vernda þá hvern fyrir öðrum og sinna þeirri um- ferðarstjórn, sem er nauðsynleg, þegar þeir fara sínar leiðir að sínum markmið- um. Ríkið á að láta borgarana afskipta- borgarana, en þeir eru ekki til fyrir ríkið. Og heimspekingar eiga sömu hags- muna að gæta af vernd gegn valdinu og aðrir. Hvor sat á sakborningabekk í Moskvuréttarhöldunum 1938, heimspek- ingurinn Búkharin eða miðstjórnarmað- urinn Stalín? einstaklinga með mörg mismunandi markmið, sem rekast á (og lýðræði er umfram allt aðferð til þess, að óhjá- kvæmilegir árekstrarnir séu friðsamleg- ir). En lífvera er heild samhæfðra líf- færa, sem hafa einungis eitt markmið, að veran haldi lífi. Maðurinn er ekki fruma í líkama eins og Platón heldur eða tannhjól í vel eins og sumir nútfmamenn halda. Hann er einstaklingur, jafngildur öllum öðrum einstaklingum. Réttur hans er einnig réttur til að hafa rangt fyrir sér að áliti spekinganna — komi það ekki niður á öðrum einstaklingum. Lýð- ræði er ekki meirihlutaræði, lýðræðis- stefna er ekki trúin á meiri hlutann sem handhafa sannleikans. Rétta skýringin á lýðræði er frjálsræði, lýðræðisstefna er trúin á mennina sjálfa, sjálfsákvörðun- arrétt þeirra, lágmark’ allra ríkisaf- skipta. Allar þessar hugsjónir voru til með Grikkjum hinum fornu. Platón er í rauninni samtimamaður okkar: hann tal- ar nú á dögum um „víðtækan áætlunar- búskap", „skynsamlega skipulagningu" og „aukið vald sérfræðinga". Hann er fjandmaður þeirrar mannúðarstefnu og lýðræðisstefnu, sem ég hef farið nokkr- um fátæ.klegum orðum um, þess meðal- vegs, sem fara má á milli öfganna, geð- iþóttatrúar annars vegar, skynsemis- og agatrúar hins vegar, meirihlutaræðis og spekingaræðis. En af honum má margt læra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.