Morgunblaðið - 15.01.1978, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JANUAR 1978
23
— Madame
Nenet
Framhald af bls. 17
að fullkomnum tannlæknastól.
Hún hefur sýnilega mikið með
fjármál klúbbsins að gera, enda
varaforseti Bangkok-banka,
einsog fyrr er sagt.
Þetta lið ók nú allt norður frá
höfuðborginni í býtið um morgun-
inn, því leiðin var löng og jafnvel
tafsamt að finna hana. En á
áfangastað, í barnaskóla héraðs-
ins, beið mannfjöldi mikill. Sumir
komið hjólandi með gamalmenni
á bögglaberanum. Fólkið hafði
farið að streyma að snemma
morguns til að ná til læknis.
Þarna var margt hrörlegt gamal-
mennið og konur með börn. En
skipulagið var mjög gott, enda
stjórnendur komnir í þjálfun í
svona ferðum.
Konuknar röðuðu sér strax við
borð á veröndinni til móttöku og
skráningar sjúklinga, sem siðan
fóru inn í stóran sal, þar sem
læknarnir 16 sátu við borð og
tóku á móti þeim. Þeir höfðu að-
stöðu til að fara með þá bak við
tjald, þar sem legubekkir voru, ef
þeir vildu skoða einhvern nánar.
Eftir viðtalið við læknana komu
flestir með lyfseðla inn í „apótek-
ið“, þar sem hjúkrunarkonurnar
aðstoðuðu þá og afgreiddu lyfin.
Eða þá þeir fengu fyrirmæli um
nákvæmari rannsókn á sjúkra-
húsi eða sagt að fara til borgar-
innar til frekari lækninga.
Ég fylgdist með læknisskoðun-
inni um stund. Þarna kom t.d.
kona með stælta tvíbura í skoðun
og farlama móðir hennar með
augnsjúkdóm. Ein konan þorði
t.d. ekki að láta taka blóðþrýsting-
inn, fyrr en læknirinn var búinn
að sýna henni á næsta lækni
hversu hættulaust það væri að fá
þessi „viðsjárverðu" tæki á hand-
legginn.
Nokkrar kvennanna útdeildu
leiðbeiningarbæklingi með mynd-
um um hreinlæti og hollustu-
hætti. Þær afhentu líka sápur,
tannbursta og tannkrem og sýndu
hvernig það væri notað. Og öll
skólabörnin fengu slíkar leiðbein-
ingar. Loks var fólkinu, sem beðið
hafði þarna í sólinni lengi, gefinn
matarpakki og kælt vatn. Þannig
var tekið á móti yfir 900 sjúkling-
um þennan dag. Og þarna var
unnið kappsamlega i hitanum
langt fram á kvöld.
A leiðinni til borgarinnar ók
Madame Nenet með okkur í’bíl
þeirra hjóna. Og þrátt fyrir anna-
saman dag, var hún að hugsa um
farþegana og lét m.a. stanza til að
kaupa kókoshnetur til að svala
þorstanum. Og þrátt fyrir undir-
búning undir brúðkaupsveizluna
á þriðjudeginum, var hún enn að
hringja á mánudaginn og athuga
hvort hún gæti samt ekki gert
eitthvað fyrir okkur. Þetta var
einstök gestrisni.
Sumir mundu eflaust segja að
hún hafi efni á því. Það er rétt.
En hún hafði ekki efni á þeim
tima og þeirri umhyggju, sem hún
veitti alókunnugu fólki úr landi
sem hún hafði ekki einu sinni
heyrt talað um.
Hún hafði annað á sinni könnu
og til þess var ekki ætlazt. En
Madame Nenet verður alltaf mjög
sérstæð og eftirminnileg kona.
— E.Pá.
Utsala Utsala
Mikil verðlækkun.
Glugginn Laugavegi 49
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
Vörubílaeigendur athugiö!
Við smíðum álpalla á allar
gerðir vörubíla.
Hentugir til allskonar flutninga.
Hagstætt verð.
Önnumst einnig allar
viðgerðir og nýsmíði.
Málmtækni s/f Vagnhöfða 29. Símar 83045 og 83705
4 HJÓLA DRIF
QUATRATRACK
4 CYL. 86 HA
HÁTTOG LÁGT DRIF
16" FELGUR
ÞRIGGJA DYRA
Til afgreiðslu frá verksm. í febrúar.
Pöntunum veitt móttaka
Áætlað verð 2.4 millj.
Bifreiðar & Landbtinaðarvélar hi.
Siitliirliinclshriiiil 1J - lle> kjiix ik - Simi illlliiMI