Morgunblaðið - 15.01.1978, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. JANUAR 1978 3
— Dýraríki
íslands
Framhald af bls. 33.
kunnað að meta hann né heldur
það, sem hann hefði unnið landi
og þjóð.
A áttræðisafmæli Gröndals fóru
stúdentar blysför að litla húsinu
við Vesturgötu tif að heiðra skáld-
ið. Gröndal var þá orðinn mjög
óstyrkur á taugum, vaknaði upp
undir fimm sinnum yfir nóttina
til að fá sér í pipu, en á daginn sat
hann i stól fótfúinn og gat sig
sáralítið hreyft. Skrift hans var
þó með sama glæsibrag og áður,
er hann tók sér penna i hönd.
Þennan dag staulaðist gamli mað-
urinn til dyra til að taka hyllingu
stúdenta, en sagt er, að hann hafi
tautað um leið: „Kom að því, að
þeir fóru að meta mig, bölvaðir."
Ekki veit ég, hvort þessi saga er
sönn, en hún lýsir vel stöðu Grön-
dals i bæjarlífinu. Hvað hefði
hann sagt um það, sem nú er um
hann ritað?
Myndabók Gröndals er kjör-
gripur, hvernig sem á hana er
litið, og man ég ekki eftir að hafa
séð betri islenska bókagerð, og
undanskil ég þar enga þá lista-
verkabók, sem gefin hefur verið
út hér á landi. Hafi þeir þökk,
sem unnið hafa að þessari útgáfu.
Við prentun hennar hefur ekkert
verið til sparað, hvorki gull né
silfur og listilega vel frá öllu
gengið. Grafík h.f. mun eiga mest-
an heiður af því verki, en svo að
engum sé mismunað í þessum lin-
um, vil ég að síðustu halda þvi
fram, að hvert handtak hafi verið
svo vandað við gerð þessarar bók-
ar, að það listaverk hafi verið með
henni skapað, sem Islendingar
geta verið hreyknir af.
Valtýr Pétursson.
— Ritgerðar-
samkeppni
Framhald af bls. 36.
ákveðið að fækka þeim ef
ástæða þykir til.
Skilafrestur er til 1. maí
og skal merkja ritgerðirn-
ar með dulnefni, en rétt
nafn fylgja i lokuðu um-
slagi. Skal skila þeim til
Samvinnunnar, - Suður-
landsbraut 32, en helztu
verðlaunaritgerðirnar
munu birtast í tímaritinu.
Lengd þeirra skal vera
1000 — 3000 orð eða 4 — 12
vélritaðar síður. Nánari
upplýsingar er að fá hjá
Fræðsludeild Sambands-
ins.
VIRKNI
auglýsir
Veggfóður 15—85% afsláttur
Veggdúkur. Somvil 20% afsláttur
Kontakt pappír 20% afsláttur
Gólfdúkur 10% afsláttur
Málning 10% afsláttur
Ýmis lökk 40% afsláttur
4
Byggingavöruverzlunin
VIRKNI h.f
hefst á
mánudaginn — 16. jan.
Opið til kl. 10 á föstudögum
og til hádegis á laugardögum.
. Ármúla 38, sími 85466 og 85471
Kappræðufundur
Heimdallur, samtök ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík
og Æskulýðsnefnd Alþýðubandalagsins boða til
kappræðufundar í Sigtúni v/Suðurlandsbraut,
MÁNUDAGINN 16. JANÚAR KL. 20. 30
Umræðuefnið er:
Einkarekstur — Sósíalismi
Ræðumenn Heimdallar eru:
Brynjólfur Bjarnason rekstrar-
hagfræðingur.
Davíð Oddsson borgarfulltrúi og
Friðrik Sophusson framkvæmdastjóri
Ræðumenn Æskulýðsnefndar Al-
þýðubandalagsins eru:
Sigurður Magnússon rafvélavirki,
Sigurður G. Tómasson kennari og
Svavar Gestsson ritstjóri.
Fundarstjórar: Jónas Sigurðsson af hálfu Æskulýðsnefndar Alþýðubanda-
lagsins og Kjartan Gunnarsson af hálfu Heimdallar.
HÚSIÐ 0PNAÐ KL. 20.00
Sigur5ur G
Svavar