Morgunblaðið - 15.01.1978, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNÚDAGUR 15. JÁNUAR 1978
47
Fordæmi um
kommúnista
í stjórn
NATO-ríkis
— segir The Guardian og bendir á Island
Lundúnum — Róm —
14. janúar — Reuter.
VIÐBRÖGÐ við yfirlýsingu
Bandaríkjastjórnar f gær þar
sem varað er við áhrifum
kommúnista og aðild þeirra að
rfkisstjórn á Italfu hafa orðið
með misjöfnum hætti. Hið
óháða brezka blað, The Guard-
ian, fjallar um málið í forystu-
grein og telur vfirlýsinguna
óviðeigandi afskiptasemi. 1
greininni er bent á að fordæmi
sé fyrir setu kommúnista f rfk-
isstjórnum aðildarrfkja At-
lantshafsbandalagsins, og er í
því sambandi bent á Island.
„Island, sem er aðili að At-
lantshafsbandalaginu og þar
sem eina mikilvægustu herstöð
bandalagsins er að finna,“ segir
The Guardian, „hefur haft
kjörna ráðherra úr röðum
kommúnista. Samt gerðist ekk-
ert skelfilegt, hvorki með tilliti
til Keflavíkurstöðvarinnar eða
bandalagsins i heild. Að sjálf-
sögðu er full ástæða til að vera
að verði og jafnvel að óttast það
sem er að gerast á Italíu um
þessar mundir, en Carter for-
seta hefur láðst að geta slíkra
ástæðna." Blaðið telur það bera
vott um óheiðarleika að lofa
lýðræðið alla jafna en snúa svo
við blaðinu þegar kosningaúr-
slit séu andstæð hagsmunum
Bandaríkjanna.
The Daily Telegraph, sem
einnig fjallar um málið i for-
-ystugrein, er á öndverðri skoð-
un, og telur yfirlýsingu Banda-
ríkjastjórnar vera ferskan and-
blæ og ánægjulega breytingu á
þeirri stefnu stjórnar Carters
hingað til að viðhafa helzt ekki
orð, sem kunni að styggja svo-
kölluð frjálslynd öfl.
Spánski kommúnistaflokkur-
inn hefur mótmælt harðlegayf-
irlýsingu Carter-stjórnarinnar
og telur hana frekiega íhiutun í
innanríkismál á Italíu.
Allt bendir til þess að viðræð-
ur Andreottis við leiðtoga
stjórnmálaflokka i dag í þvi
skyni að fá þá til að styðja
stjórn hans verði gagnslausar,
og muni Andreotti biðjast
lausnar á mánudaginn. Þá er
talið að Leone forseti biðji
hann um að reyna myndun
nýrrar stjórnar, en mistakist
það eins og allar horfur eru á,
er gert ráð fyrir því að forset-
inn rjúfi þing og boði til nýrra
kosninga.
Brezkum
lögmanni
neitað
að verja
Shcharansky
Moskvu 14. jan. Reuter.
BREZKUR lögfræðingur, Misa-
dore Fisch, skýrði frá því í dag að
sovézk stjórnvöld hefðu hafnað
tilmælum hans um að fá að verja
andófsmanninn Anatoli Shchar-
ansky í væntanlegum réttarhöld-
um. Fisch sagðist hafa farið með
móður Shcharanskys til Leforto-
vofangelsis þar sem fanginn situr
og einnig hefðu þau farið á skrif-
stofu aðalsaksóknara Moskvu-
borgar. A báðum stöðum var þeim
sagt að eingöngu sovézkur lög-
fræðingur, sem hefði traust KBG-
öryggislögreglunnar, myndi fá að
annast vörn Shcharanskys. Hann
hefur setið í fangelsi frá þvi í
marz og er ákæran á hendur hon-
um landráð að sögn stjórnvalda.
Hann var einn af helztu meðlim-
um Helsinki-hópsins svonefnda.
Leiðrétting
I GREIN Braga Kristjónssonar,
sem birtist i Morgunblaðinu sl.
fimmtudag, slæddist meinleg
prentvilla. Þar stendur: Bæjar-
yfirvöld rannsaka þá aðila
o.sv.frv. en átti að standa: Bær
yfirvöld rannsaka þá aðilja...
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Ég er háskólastúdent. Mig langar til að verða sann-
kristinn maður, en mig vantar kraft til að ganga veginn.
Hvernig get ég orðið sterkur, áhrifamikill, kristinn
maður?
Annar ungur maður, sem eins var ástatt um, sagði:
„Trú mín var eins og vafningsviður á háskólabygg-
ingunum. En þegar veggirnir falla. fellur vafnings-
viðurinn líka“.
Þeir eru margir á meðal okkar, sem eiga „trú
annarra“. Þeir hafa tekið hana að erfð frá fjölskyld-
um sínum, en hafa í rauninni ekki veitt Kristi
viðtöku sjálfir. Þeir þekkja kjarna kristindómsins.
en hafa aldrei höndlað hann.
Fyrst áttu að ganga úr skugga um. hvort þú hefur í
raun og veru mætt Kristi. Jesús sagði við Filippus:
„Svo langa stund hef ég með yður verið, og þú,
Filippus, þekkir mig ekki?“ (Jóh. 14.6). Gjörðu
iðrun og veittu Kristi viðtöku.
Því næst skaltu koma skipulagi á hinar hljóðu
helgistundir þínar. Ég get alls ekki hugsaö mér að
byrja neinn dag án þess að eiga stund við lestur
ritningarinnar og í samfélagi við yfirboðara minn,
ekki fremur en ég legði til orustu án fyrirmæla.
1 þriðja lagi skaltu láta trú þína í ljós. Stundum
köllum við þetta að vitna. Heiminn hungrar í andleg-
an veruleika. Vertu djarfur og gerðu aðra hluttak-
andi í trú þinni. Og vertu svo að sjálfsögðu í söfnuði,
sem veitir trú þinni næringu.
Akureyri:
Ruddagarri
og loðnuflot-
inn í Höfn
SUÐVESTAN garri með rudda-
veðri var á Akureyri um hádegis-
bil í gær og því héldu fáir loðnu-
bátar frá landi. Nokkrir ætluðu
að halda sjó úti í firðinum, en
utan fjarðar voru 9 vindstig og
haugasjór. Nokkrir tugir loðnu-
veiðibáta voru því áfram í höfn á
Akureyri í gær.
— Líbanon
Framhald af bls. 1
fimm milljarða dollara aðstoð til
að hjálpa Arabalöndum við að
láta Palestínumenn fá fasta ból-
festu í viðkomandi löndum. Á
Vance að hafa sett þetta tilboð
fram í desemberferð sinni um
Miðausturlönd. Elias Sarkis, for-
seti Líbanons, sagði nýlega að
Líbanir myndu aldrei sætta sig
við að Palestínumenn tækju sér
bólfestu á svo mikið sem lófastór-
um bletti á líbönsku landi. 1
Libanon búa um 400.000
Palestinumenn, en það er þó mjög
gegn vilja stjórnarinnar í Beirut.
I fregnum frá Beirut í morgun
sagði ennfremur, að sprengja
hefði lagt f rúst skrifstofur dag-
blaðs sem styður mjög eindregið
Líbýu og málflutning Gaddafis.
Einn blaðamaður lézt. Þetta var
önnur atlagan að fjölmiðli í
Beirut á sólarhring en í hinni
fyrri varð hvorki umtalsvert
eignatjón né slys á mönnum.
— Hubert
Framhald af bls. 1
einkaþotu sína tii Minnesota
til þess að flytja lík
Humphreys til Washington.
Humphrey fór með sömu þotu
til Washington í október til að
hefja aftur störf í þinginu
þrátt fyrir veikindin.
Carter sagði í yfirlýsingu að
fágætt væri að bandariska
þjóðin væri þeirrar gæfu
aðnjótandi að hafa á meðal sín
jafnmerka og framsýna menn
og Humphrey var.
Walter Mondale varaforseti,
skjólstæðingur Humphreys frá
Minnesota, sagði að Humphrey
vildi að menn „minntust hans
með gleði en ekki sorg.“
Fjöldi aðdáenda Humphreys
hringdu til skrifstofu hans í
Washington til að votta sam-
starfsmönnum hans samúð
sína.
— Fjármálaráðu-
neytið
Framhald af bls. 2
Þessi áætlun miðar við
framleiðslu á 12500 —
15000 tonnum af steypu-
styrktarjárni en það er
markaðurinn í landinu yfir
árið.
Hráefnið í þessari verk-
smiðju yrði að mestu brota-
járn sem til fellur á íslandi
en einnig önnur hjálpar-
efni, m.a. efni sem Járn-
blendiverksmiðjan kemur
til með að framleiða.
Reiknað er með 60 manna
starfsliði í stálbræðsl-
unni.“
— Færð á
vegum . . .
Framhald af bls. 48
dalsheiði voru t.d. orðnar ófærar
þótt þar hefði verið rutt morgun-
inn áður en fært var í kringum
Isafjörð og milli Þingeyrar og
Flateyrar.
— Kekkonen
Framhald af bls. 1
viðalsins spurður að því hverju
hann myndi svara ef hann væri
beðinn að gefa kost á sér eftir
sex ár eða þegar næstu forseta-
kosningar eru áætlaðar. „Ég
teldi að sá maður sem bæri
fram slíka spurhingu hefði
mikla kímnigáfu,“ svaraði
Kekkonen og brosti út að eyr-
um.
Enda þótt ekki sé spáð mikilli
kjörsókn er talið að Kekkonen
muni fá um 90% greiddra at-
kvæða og hinir fjórir frambjóð-
endurir varla meira en 10%.
Þeir sem gagnrýna Kekkonen
segja að hann hafi hneigzt ein-
um of langt til samvinnu við
Sovétríkin og sett hálfgerðan
vinstristimpil á Finnland og
óbreytt ástand kynni að stefna
lýðræði og fullveldi landsins í
voða. Stuðningsmenn hans líta
svo á, að hann hafi með aðdáun-
arverðum klókindum stutt að
varðveizlu sjálfstæðis og full-
veldis Finnlands, sem væri eng-
inn hægðarleikur með Sovét-
rikin sem næsta nágranna.
— Vance
Framhald af bls. 1
Vance skömmu fyrir brottförina
til tsraels, að hann styddi heils-
hugar þá skoðun Carters Banda-
ríkjaforseta, að tsraelar yrðu að
viðurkenna „lögmætan rétt
Palestínumanna".
Vance sagði að friðarsamningur
yrði að byggjast á eðlilegum sam-
skiptum aðilanna og hann sagði
að ísraelar yrðu að hverfa frá
landsvæðum sem þeir tóku á sitt
vald í sex daga stríðinu og sam-
komulag yrði að gera um örygg og
viðurkennd landamæri í sam-
ræmi við ályktanir Sameinuðu
þjóðanna. Aftur á móti hafði hátt-
settur bandarískur embættis-
maður sagt blaðamönnum að
tsraelar myndu ekki verða beðnir
um að hverfa af vesturbakkanum
og þeir yrðu ekki beittir neinum
þvingunum til að fallast á að kom-
ið yrði á riki Palestínumanna,
enda sé af öllu ljóst að ísraelar
myndu aldrei samþykkja slíkt.
Bandaríkjastjórn mun vænta
þess að viðræður stjórnmála-
nefndarinnar í Jerúsalem muni
að minnsta kosti leiða til þess að
einhvers konar samkomulag náist
sem skilji dyrnar eftir opnar, en
bæði Egyptar og israelar hafa lýst
því yfir að nú megi ekki mikið út
af bera til að samningaviðræður
ríkjanna fari út um þúfur.
— Jarðskjálftar
Framhald af bls. 1
innar vegna grjóthruns á flugvöll-
inn.
I Tókíó urðu engar verulegar
skemmdir en skjálftarnir fundust
þar margir og hús hristust, hús-
gögn færðust úr stað og truflun
varð á samgöngum.
Um hríð var talin hætta á flóð-
bylgju við strönd Tókíó, Yoko-
hama og Yososuka en hún var
liðin hjá siðdegis að því er talið
var.
Snædrottningin sýnd hjá
Leikfélagi Akureyrar
FYRSTA frumsýnig hjá Leik-
félagi Akureyrar var barnaleik-
ritið Snædrottningin eftir E.
Schwarz, byggt á ævintýri H.C.
Andersen. Þýðinguna gerðu Jór-
unn Sigurðardóttir og Þórunn
Sigríður Þorgrímsdóttir, sem
einnig teiknar leikmynd og bún-
inga, en Þórunn Sigurðardóttir er
leikstjóri. Leikhljóð og tónlist er
eftir Gunnar Reyni Sveinsson, en
þau unnu öll að sýningu á verk-
inu hjá Leikfélagi Kópavogs.
Helztu hlutverk eru sögumaður
og verzlunarfulltrúi, sem þeir
Gestur E. Jónasson og Þórir
Steingrímsson leika, ömmuna
leikur Kristjana Jónsdóttir, og
Snædrottninguna leikur Þórey
Aðalsteinstíóttir. Þá taka gagn-
fræðaskólanemendur einnig þátt
í sýningunni með stórum hlut-
verkum. 1 frétt frá Leikfélagi
Akureyrar segir að leikrit þetta
hafi verið fyrsta barnaleikrit er
Þjóðleikhúsið sýndi fyrir nærri
þremur áratugum.
Næsta verkefni Leikfélags
Akureyrar er leikritið Alfa Beta
eftir Whitehead i þýðingu Krist-
rúnar Eymundsdóttur. Leikstjóri
er Brynja Benediktsdóttir og með
aðalhlutverk fara Sigúrveig Jóns-
dóttir og Erlingur Gíslason. Leik-
myndateiknari er Þráinn Karls-
son. Einnig er tilbúin leiksýning
fyrir börn og fullorðna „I galdra-
landi“, eftir Baldur Georgs í leik-
stjórn Erlings Gíslasonar og
verður farið með það verk í leik-
för um Norðurland er samgöngur
verða greiðari.
Hér cru þátttakendur f sýningu Leikfélags Akurevrar á Snædrottningunni. en myndin er tekin f
brekkunni ofan við lcikhúsið á Akureyri.