Morgunblaðið - 12.04.1978, Qupperneq 1
32 SÍÐUR
74. tbl. 65. árg.
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Skattar í Bretlandi
lækkaðir um 2,5 mill-
jarða sterlingspimda
London. 11. apríl. AP. Reuter.
BREZKI fjármálaráðherrann.
Denis Healy, tilkynnti í dag að
stjórn Verkamannaflokksins
hygðist biása auknu lífi í efna-
hagslíf landsins með því'að lækka
tekjuskatta og veita þannig
auknu fjármagni um hagkerfið.
Ilealy gerði grein fyrir þessu
þegar hann lagði fjárlagafrum-
varp fjárhagsársins, sem hófst 1.
apríl 8.I., fyrir neðri málstofu
brezka þingsins.
í tillögum Healys er gert ráð fyrir
því að tekjumörk skattþrepa verði
hækkuð en sjálfar álagningar-
prósenturnar látnar átanda
óbreyttar. Lægsta skattprósenta í
Bretlandi er nú 34% en hin hæsta
83%. Þessar háu álangingarpró-
sentur hafa sætt vaxandi gagnrýni
í landinu og eru taldar letja menn
við vinnu og hamla gegn aukningu
framleiðslu.
Auk lækkunar skatta er í
tillögum Healys gert ráð fyrir
nokkuð auknum tryggingagreiðsl-
um, einkanlega til eftirlaunafólks
og stórra fjölskyldna. Einnig er
gert ráð fyrir að lítils háttar verði
stutt við bakið á smáfyrirtækjum.
í heild sinni eru þessar aðgerðir
taldar fremur vægar og bera þess
merki, að stjórnin leggi enn mikla
áherzlu á baráttuna gegn verð-
bólgu, enda varaði Healy við of
miklum launahækkunum á næstu
mánuðum.
Healy tilkynnti einnig að Bretar
hygðust greiða fyrirfram stærri
hluta af láni sínu hjá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum en áður hafði
verið ákveðið og sömuleiðis eitt-
hvað af almennum markaðslánum.
Israelsher
byrjar brott-
flutning frá
Suður-Líbanon
Beirut, 11. apríl ÁP, Reuter.
ÞÚSUNDIR flóttamanna héldu
í dag til heimkynna sinna í
Suður-Líbanon á sama tíma og
ísraelsmenn hófu brottflutn-
inga herja sinna frá svæði því
sem þeir hertóku í innrásinni í
S-Líbanon í marz." Norskir
gæzluliðar í gæzlusveitum
Sameinuðu þjóðanna tóku við
bækistöðvum Israelsmanna er
þeir hörfuðu frá Litani-ánni
nokkra kílómetra í átt til eigin
landamæra. Ekki er um að
ræða algjöran brottflutning
ísraelska hersins frá S-Líbanon
og ísraelsmenn hafa þennan
Framhald á bís. 18
ítalski fangavörðurinn Lorenzo Cotugno liggjandi í blóði sínu fyrir framan heimili sitt í Torino í gær.
Hann var drepinn af pólitískum öfgamönnum.
Fangavördur í
Torino myrtur
Carter hvetur til
hertra adgerda
gégn verðbólgu
Washington, 11. apríl. AP.
Reuter.
CARTER Bandaríkjaforseti sagði
í dag í ræðu, að stjórn sín væri
ákveðin í að beita sér af alefli
gegn verðbólgunni, sem nú væri
að skjóta varanlcgum rótum i
handarísku efnahagsh'fi, og sagð-
ist hann í því skyni m.a. mundu
beita neitunarvaldi sínu gegn
öllum fjárveitingum þingsins sem
færu fram úr fjárhagsáætlun
hans eða ykju hallann á fjárlög-
um.
Forsetinn lagði einnig mikla
áherzlu á nauðsyn þess að Banda-
ríkin minnkuðu olíuinnflutning
sinn sem nú kostaði um 45
milljarða dollara árlega í stað
tveggja milljarða fyrir tíu árum.
Bandaríkin flytja nú inn um
helming allrar þeirrar olíu sem
notuð er í landinu. Sagði forsetinn
Framhald á bls. 18
Torino, 11. apríl. Reuter. AP.
FANGAVÖRÐUR í Torino var í
dag skotinn til hana á tröppum
heimilis síns. Fangavörðurinn,
Lorenzo Cotugno, vann í Nuove-
fangelsinu, en þar eru hryðju-
verkamennirnir 15 úr samtökun-
um „Rauða herdeildin" hafðir í
haldi.
Tveir karlmenn og kona réðust
á Cotugno úr Iaunsátri fyrir utan
heimili hans, en honum tókst að
svara skothríðinni með eigin
vopni áður en hann lézt og særa
alvarlega einn árásarmannanna.
Hinir komust undan og höfðu
hinn særða með sér en losuðu sig
síðan við hann við dyr slysavarð-
stofu í borginni.
Hinn særði, Cristofer Bianconi,
sem er allkunnur fyrir öfgafullar
vinstrisinnaðar skoðanir sagði
læknum að hann liti á sig sem
stríðsfanga sem hefði særzt í
orrustu.
Ekki liggur ljóst fyrir hvort
Rauða herdeildin var hér á ferð-
inni því enginn aðili hefur enn
játað á sig ódæðið. Cotugno
fangavörður hafði áður lifað af
banatilræði þegar bíll hans var
sprengdur í loft upp.
Árásin í dag kom í kjölfar
árásar í gærkvöldi á kvensjúk-
dómalækni einn í Torino, eit inn
á Iækningastofu hans ruddust þrír
menn og ein kona og skutu hann
í fætur og axlir fyrir að hafa
neitað vanfærri konu í félagi við
þau um fóstureyðingu.
Ekkert heyrðist í dag frá Aldo
Moro eða þeim sem hafa hann í
haldi en réttarhöldunum yfir
Framhald á bls. 18
Nýir ráðherr-
ar í Rhódesíu
Owen og Vance til Salisbury
Salisbury, 11. apríl,
Reuter, AP.
Bráðabirgðastjórnin í Rhódes-
íu tilnefndi í dag níu blökkumenn
til setu í stjórninni sem aðstoðar-
Shevchenko fer huldu
höfði og viil ekki heim
New York, 11. apríl. AP.
HÁTTSETTASTI sovézki ríkis-
borgarinn, sem hefur starfað
hjá Sameinuðu þjóðunum,
Arkady N. Shevchenko, fer
huldu höfði og Kurt Waldheim,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna. sagði í dag að „svo
mikið væri vist að hann vildi
ekki snúa aftur til Sovétríkj-
anna“.
Fréttir benda til þess, að
Shevchenko ætli að biðja um
hæli sem pólitískur flóttamað-
ur í Bandaríkjunum en Wald-
heim sagði í Irlandi þar sem
hann var í opinberri heimsókn,
að hann vissi ekki hvort Rúss-
inn ætlaði að biðja um hæli.
I Moskvu sakaði kona, sem
kvaðst vera eiginkona
Shevchenkos, bandarísk yfirvöld
í dag um „grófa ögrun“, hélt því
fram að maður hennar hefði
aldrei ætlað sér að vera um
kyrrt í Bandaríkjunum og sagði
að Bandaríkjamenn hlytu að
halda honum nauðugum.
Sovézkur talsmaður sagði í
dag, að sendinefnd Sovétríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum
ætlaði að fara þess á leit að
Shevchenko yrði vikið úr starfi
sínu hjá samtökunum og kvaðst
gera ráð fyrir því að það yrði
gert. Lögfræðingur
Shevchenkos, Ernest A. Gross,
var á öðru máli þar sem slíkt
Arkady N. Shevchenko.
bryti í bága við stofnskrá SÞ er
bannaði framkvæmdastjóra SÞ
að taka við fyrirmælum frá
nokkurri ríkisstjórn.
í Washington ræddi Cyrus
Vance utanríkisrá-ðherra í dag
við sovézka sendiherrann,
Anatoly Dobrynin, og
Shevchenko-málið mun hafa
borið á góma. Talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins
sagði að bandarísk yfirvöld
hefðu enga tilraun gert til að
hafa áhrif á Shevchenko, að
Gross, lögfræðingur hans, hefði
sett sig í samband við ráðuneyt-
ið og sagt að Rússinn ætlaði
ekki að snúa aftur til Sovétríkj-
Framhald á bls. 18
ráðherrar stjórnarnefndarinnar.
sem í sitja leiðtogarnir fjórir sem
undirrituðu samkomulag um
stjórn svartra manna í landinu
fyrir fimm vikum.
Hver blökkumannaleiðtogi í
stjórnarnefndinni tilnefndi þrjá
menn og eiga hinir nýju ráðherr-
ar blökkumanna að dcila völdum
með hvítum mönnum tilnefndum
af Ian Smith forsætisráðherra
þar til svartir menn taka alveg
völdin í sínar hendur fyrir næstu
áramót.
Tilkynnt hefur verið að utanrík-
isráðherrar Bretlands og Banda-
ríkjanna muni á mánudag koma til
Salisbury til að reyna að fá
leiðtoga bráðabirgðastjórnarinnar
til að taka þátt í ráðstefnu allra
aðila að Rhódesíudeilunni. Bráða-
birgðastjórnin hefur hafnað þátt-
töku í slíkum fundi en segist vera
reiðubúin til að ræða við utanrík-
isráðherrana Vance og Owen um
hugsanlegar breytingar á sam-
komulaginu sem gert var í Salis-
bury í marz. Vance og Owen munu
halda til Dar-es-Salaam í Tanz-
aníu áður en þeir halda til
Salisbury og eiga viðræður við
leiðtoga skæruliðahreyfinganna
tveggja sem enn heyja hernað og
hafnað hafa allri aðild að Salis-
burysamkomulaginu.