Morgunblaðið - 12.04.1978, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1978
13
Oskar Borg lög-
frœðingur - Muuúng
Fæddur 10. desember 1896.
Dáinn 6. aprfl 1978.
Nokkur minningarorð
Það er hlutskipti okkar, sem
komnir eru á efri ár að sjá á bak
mörgum góðum vinum og kunn-
ingjum, mörgum sem mikill sökn-
uður og sjónarsviptir er að. Þetta
verður ekki umflúið, og er bótin sú
ein, að minningarnar lifa um góða
drengi og mikilhæfa menn.
í hóp horfinna vina minna hefur
nú bæst góðvinur minn Óskar
Borg lögfræðingur, sem andaðist
að heimili sínu Laufásvegi 5 í
Reykjavík 6. þessa mánaðar.
Óskar Borg er fæddur í Reykja-
vík 10. des. 1896. Hann var sonur
hinna mikilhæfu og þjóðkunnu
hjóna Borgþórs Jósefssonar
verslunarmanns og síðan um langt
skeið bæjargjaldkera í Reykjavík
og Stefaníu Guðmundsdóttur leik-
konu. Bjuggu þau á nokkrum
stöðum í Reykjavík áður en þau
fluttu heimili sitt 1913 að Laufás-
vegi 5, en þar bjuggu þau síðan til
dauðadags og börn þeirra eftir
þeirra dag.
Óskar ólst upp á heimili foreldra
sinna ásamt fimm systkinum
sínum, er upp komust, en þau voru
leikkonurnar Emilía, An.na og
Þóra, Áslaug ljósmyndari og Geir
framkvæmdastjóri. Þau tóku upp
ættarnafnið Borg 1917. Látnar eru
nú þær Anna og Áslaug.
Óskar lauk stúdentsprófi við
Menntaskólann í Reykjavík vorið
1917. Árin 1917—1919 lagði hann
stund á hagfræði við háskólann í
Kaupmannahöfn. Mun hann á
þessum árum hafa varið miklum
tíma til að kynnast leiklist og
fleiri listgreinum, enda talið að
hann hafi þá haft mikinn áhuga á
að nema listasögu, en í þeirri grein
varð hann mjög fróður.
Árin 1920—1921 fór Óskar
ásamt móður sinni og systrum
sínum Emilíu og Önnu í leikför um
byggðir íslendinga í Vesturheimi.
Þau komu heim úr för þessari í
október 1921. Hóf Óskar þá nám í
lagadeild Háskóla Islands.
Móðir hans var þá leiðbeinandi
hjá Leikfélagi Reykjavíkur, auk
þess að hún var sem fyrr einn aðal
leikari þess og formaður síðustu
árin, sem hún lifði, en hún
andaðist í ársbyrjun 1926.
Eftir að Óskar kom heim úr
leikförinni til Vesturheims og þar
til móðir hans andaðist, lék hann
í mörgum leikritum hjá Leikfélagi
Reykjavíkur og var auk þess
aðalaðstoðarmaður móður sinnar
við hennar mikla starf fyrir
leikhúsið og leiklistina á þessum
árum. Varði hann til þessa miklum
tíma. Lögfræðiprófi lauk Óskar 18.
júní 1929 með góðri II. einkunn.
Að loknu prófi gerðist Óskar
starfsmaður við Útvegsbanka ís-
lands á ísafirði og stundaði
jafnframt lögfræðistörf. Árið 1933
hætti hann daglegum störfum í
bankanum og gegndi eftir það
málflutnings- og lögfræðistörfum
á ísafirði, þar til hann fluttist
aftur til Reykjavíkur síðla árs
1942. Á þessum árum var hann oft
skipaður setudómari á ísafirði.
Hann varð héraðsdómslögmaður
1941.
Eftir að Óskar kom aftur til
Reykjavíkur, stundaði hann ýms
lögfræðistörf. Árið 1944 varð hann
framkvæmdastjóri Dieseltogara
h.f., en ráðst 1952 til Reykjavíkur-
borgar sem lögfræðingur félags-
málastofnunar borgarinnar. Vann
hann þar einkum að framfærslu-
og sveitfestismálum og öðlaðist
mikla reynslu og þekkingu á því
sviði. Óskar hefði, samkvæmt
almennum reglum, átt að láta af
störfum hjá borginni er hann var
sjötugur, en sökum sérfræðiþekk-
ingar í framangreindum efnum
þótti þá nauðsynlegt, að hann
héldi áfram störfum sínum og
vann hann hjá borginni sex árum
lengur.
Oskar vann lögfræðistörf sín,
sem önnur störf, af mikilli vand-
virkni. í málflutningi — einkum
munnlegum málflutningi — naut
sín vel góð geind hans og skilning-
ur á skipulegri og réttri framsetn-
ingu. Var oft mjög auðvelt að
leggja dóm á mál eftir að hafa
hlýtt á málflutning hans.
Hinn 23. júní 1930 steig Óskar
Borg mesta heillaspor sitt, en
þann dag gekk hann að eiga
Elísabetu Flygenring dóttur
Ágústar Flygenring útgerðar-
manns og alþingismanns í Hafnar-
firði og konu hans Þórunnar
Stefánsdóttur.
Frú Elísabet er ágætlega
menntuð fríðleikskona og fágæt að
mannkostum. Hefur hún verið
Óskari mikil heilladís og ástir
miklar með þeim hjónum.
Börn þeirra eru:
1. Ragnar Borg viðskiptafræðing-
ur, framkvæmdastjóri hjá G.
Helgason og Melsted h/f í Reykja-
vík kvæntur Ingigerði Þórönnu
Melsted. Þau eiga 4 börn, Önnu
Elísabetu, Elínu, Óskar og Pál.
2. Anna Borg áður verzlunarstjóri
hjá tiskuverzluninni Guðrúnu h/f
og síðar um tíma starfsmaður hjá
Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík.
Hún var gift Stefáni Kristjánssyni
byggingameistar á Selfossi, sem er
nú látinn.
Óskar Borg bar mikil einkenni
foreldra sinna og æskuheimilis.
Eins og kunnugt er var frú
Stefanía móðir hans dáðasta
leikkona landsins í áratugi. Borg-
þór faðir hans var einnig leikari.
Bæði voru þau hjón meðal 19
stofnenda Leikfélags Reykjavíkur
1897 og meðal ötulustu og áhuga-
sömustu forvígismanna leiklistar
á Islandi. Voru þau um þetta sem
um annað mjög samhent.
I minningargrein um frú Stefan-
íu í Morgunblaðinu segir Valtýr
Stefánsson m.a. um hana: „Fædd
og uppalin í islenskum smábæ og
enda þótt hún væri hér búsett alla
æfi var engu líkara en hún væri
komin beina leið úr hámenningu
erlendra stórborga."
í anda slíkrar menningar var
heimilið mótað. Á heimilinu ríkti
sérstakur menningarbragur og
kurteisi og samband foreldra og
barna og milli barnanna innbyrðis
var afburða gott.
Hæst bar áhugann fyrir leiklist-
inni og um leið umhyggjuna fyrir
hinu unga Leikfélagi Reykjavíkur,
sem þá átti oft í miklum erfið-
leikum. í minningargrein sinni
segir Valtýr Stefánsson m.a. um
þetta og með vissu réttilega.
„Þegar starfsemi félagsins barst í
tal talaði frú Stefánía eins og
umhyggjusöm móðir, er leggur
fram sína síðustu krafta með ljúfu
geði fyrir barn sitt, sem hún óskar
bjartrar framtíðar". Þannig var
hugsað og unnið, en í hinu mikla
starfi frú Stefániu fyrir leiklistina
voru þeir feðgar Borgþór og Óskar
hennar styrkustu aðstoðarmenn.
Elstu systurnar þrjár Emilía,
Anna og Þóra urðu og allar
þekktar og dáðar leikkonur og elsi
sonurinn Óskar var um skeið
mikill og þekktur leikari. Óskar
var eldri en systurnar og lærðu
þær margt af honum eins og Anna
Borg segir skemmtilega frá í
endurminningum sínum.
Eg er ekki dómbær um leiklist,
en sum hlutverkin sem ég sá Óskar
leika eru mér ógleymanleg og í
minni vitund meðal þess áhrifa-
mesta sem ég hef séð á leiksviði.
Hef ég því ávalt talið, að það hafi
verið íslenskri leiklist ærinn skaði,
að Óskar skyldi ekki halda lengur
áfram á leiksviðinu.
Eftir lát frú Stefaníu snéri
Óskar sér fyrir alvöru að námi
sínu og síðan lífsstarfi og mun lítt
eða ekki hafa leikið eftir það. Bar
hann og móðir hans mikla
virðingu fyrir leiklistinni og mun
hafa talið lítt við hæfi að fást við
leiklist án þess að geta beitt við
það kröftum sínum óskertum.
Á Isafjarðarárum sínum var
hann nokkrum sinnum leiðbein-
andi eða leikstjóri. Fyrir þrábeiðni
Önnu systur sinnar var hann
Framhald á bls. 22
t
Innilega þökkum viö öllum þeim er auösýndu okkur samúö og vlnarhug viö
hiö sviplega slys er elsku drengirnir okkar
SÆVAR LÁRUS ASGEIRSSON
Ofl
HÓLMSTEINN BJARNI ÞÓRARINSSON
fórust í snjóflóöi 26. marz s.l.
Sérstakar þakkir færum viö Bandalagi íslenzkra skáta, björgunarsvelt
Slysavarnafélagsins í Neskaupstaö, skátum á Austurlandi og íþróttafélaginu
Þrótti í Neskaupstaö.
Guö blessi ykkur öll og starfsemi ykkar.
Asgeir Lárusson Unnur Bjarnadóttir
Þórarinn Sveinsson Hulda Bjarnadóttir
og systkini hinna látnu.
ÞÚ ERT í ÖRUGGUM HÖNDUM HJÁ OKKUR
CHRYSLER
ör O
(HKVSLKH Plymoutfi
SIMCA | Oadgo
Suðurlandsbraut 10 (gamla sjálfsþjónustan). Simi 83330 - 83454.
ÞEGAR ÞU SELUR EÐA KAUPIR ÞER
NÝJAN EÐA NOTAÐAN BÍL.
Viö bjóöum upp á einhvern glæsilegasta bílasal borgarinnar, sem liggur
I þjóöbraut. Skoðið úrvalið af notuðum bilum og látið okkur selja gamla
bilinn fyrir þig. Þú getur hreinsað bílinn þinn inni hjá okkur þér að
kostnaðarlausu. Getum bætt við bílum á söluskrá.