Morgunblaðið - 04.05.1978, Side 2

Morgunblaðið - 04.05.1978, Side 2
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MAI 1978 k v \ > I i l ; ► » \ k- r I t ► t t r I Myndin var tekin á einum fundi Félags áhugamanna um harmonikkuleik og sama er aö segja um meöfylgjandi myndir. Ljósmyndir Mbl. Árni Johnsen. „IVikkuna til vegs og virðingar” Lífsgleði hefur ávallt verið fylginautur harmonikkunnar og menn segja gjarnan „nikkan er með“ í sama tón og talað er um fylgd góðra og skemmtilegra vina. Samt er það kynlegt að harmonikkan hefur á margan hátt orðið útundan í annars blómlegu tónlistarlifi á íslandi. Ilún hefur ekki fallið inn í ákveðna yfirborðskennda til- finningu sem er f tónmenntakerfi landsins og það hefur ríkt andvaraleysi í þeirri sjálfsögðu þróun að rækta möguleikana í kring um harmonikkuna. Illjóð- færi sem eru hvorki háð stund né stað óg hægt er að grípa til við alls kyns kringumstæður, hljóta að skipta máli fyrir i’slenzka þjóð og nú er búið að stofna félag áhugamanita um harmonikkuleik í Reykjavfk með mikilli þátttöku félagsmanna og áhuga í því starfi að efla veg og virðingu harmonikkunnar. Siðan f haust eru félagar í Reykjavík farnir að nálgast 100 og fjölmargir úti á landsbyggðinni hafa haft sam- band vegna hugmynda um að stofna sambærileg félög í sínum heimabyggðum. Þá hefur einnig komið i' ljós að fjölmargir luma á harmonikkum af ýmsum gerðum og má þar sérstaklega nefna gömlu einföldu nikkurnar sem í gcgnum árin hafa vakið mörg blikin í auga. Við röbbuðum við Bjarna Marteinsson arkitekt, formann Félags áhugamanna um harmonikkuleik. og inntum frétta af starfi og tilgangi félagsins. „Þetta hófst með því að nokkrir nemendur úr Almenna músik- skólanum komu saman til að ræða málið og aðalhvatamaðurinn að stofnun félagsins var Karl Jóna- tansson harmonikkuleikari sem nú stjórnar Tónlistarskólanum á Raufarhöfn. Stofnfundarnefnd var skipuð og skömmu síðar s.l. haust var haldinn stofnfundur þar sem 20 áhugamenn mættu og félagið hlaut fyrrgreint nafn. Auk mín voru kjörnir í stjórn þeir Guðmundur Guðmundsson, Elsa Kristjánsdóttir, Karl Jónatansson og Guðmar Hauksson. Helztu markmið félagsins eru að reyna að fá flesta harmonikku- áhugamenn í félagið, efla og kynna félagsmenn innbyrðis og í krafti sameiningar að reyna að ýta undir almennan áhuga á harmonikkunni. Síðan er hug- myndin að koma á fót plötu- og nótnasafni félagsins og mjög hefur komið til umræðu innan félagsins afstaða yfirvalda til harmonikku- kennslu þar sem hún hefur að mestu verið útilokuð og ekkert gert til þess að rétta hennar hlut í þeim málum. í stuttu máli hefur harmonikkan orðið útundan í kerfinu og við erum ekki að kenna kerfinu um það fremur en öðrum eða okkur sjálfum, það hefur einfaldlega ríkt algjört andvara- leysi almennt í þessu, en okkar markmið er að vinna að því að bæta úr. Með þessari félagsstofnun hefur vaknað geysimikill áhugi og menn eru almennt að dusta rykið af nikkum sínum og ýmsir sem áður spiluðu ekki eru að leita hófana um kennslu. Félagar eru nú yfir 80 talsins og raddir hafa heyrst víöa utan af landsbyggðinni um að stofna deildir í tengslum við félagið í Reykjavík og stefna að því að vinna saman að þessum málum. Félagsmenn í Reykjavík koma saman mánaðarlega á sunnudögum í Edduhúsinu, en við höfum auglýst fundina í aug- listaspranq Eftlr Árna Johnsen lýsingum yfir fundahöld í Morgun- blaðinu. Á þessum fundum kemur fólk með hljóðfærin og kynnist inn- byrðis og þetta er ekki aðeins fyrir fagmenn, fólk á öllum aldri og öllum stigúm kunnáttu á hljóðfær- ið hittist þarna og sumir félags- manna hafa jafnvel aldrei brugðið hljóðfærinu á öxl sér. Það má segja að þarna taki saman lagið bæði atvinnumenn og áhugamenn og þarna fær fólk tækifæri til þess að spila fyrir aðra og það er mikils virði því það er mjög góð æfing og skapar öryggi í hljóðfæraleiknum. Ætlunin er að reyna að fjár- magna félagið með skemmtana- haldi og hefur ein slík skemmtun farið fram við góðar undirtektir. Þá má nefna að félagið mun taka þátt í þætti í sjónvarpinu innan . tíðar. Það hefur greinilega komið í ljós að það eru margir sem luma á kunnáttu á harmonikku, fólk á öllum aldri og úr öllum stéttum og eru konur þar engir eftirbátar þótt minna hafi ef til vill borið á þeim út á við, en vonir standa til að fleiri láti sjá sig meðal félags- manna. Ég vil um leið hvetja landsbyggðarmenn til þess að drífa upp félög hjá sér úti og þá er góður grundvöllur kominn til þess að skiptast á heimsóknum og upplýsingum. Vert er einnig að geta þess að áhugi fólks fyrir litlu nikkunum er mjög vaxandi og ég hvet þá gamalreyndari til að láta sjá sig, taka lagið og gefa ráð. Eitt vandamálið sem við er að glíma er það hve harmonikku- kennarar eru sárafáir og við munum m.a. stefna að því að reyna að fá harmonikkukennslu inn í tónlistarskólana með alhliða tón- listarnámi og það þarf að leggja mikla áherzlu á að fá góða kennara því allt eru þetta skilyrði þess að árangurs sé að vænta. Þá höfum við einnig hug á að leita eftir samvinnu við útvarpið og þegar er kominn vísir að harmonikkuhljómsveit. Við þekkjum þá miklu möguleika sem nikkan gefur og viljum stuðla að því að þeir fái að njóta sín og auðvitað sérstaklega að fólk geti notið nikkunnar." Á blaðamannafundi hjá félaginu fyrir skömmu kom það fram í erindi um harmonikkuna og sögu hennar hjá Högna Jónssyni að uppruna nikkunnar má rekja allt aftur til kínverska hljóðfærisins Cheng, sem þekkt er allar götur frá því um 4000 f. Krist. Giskað er á að Cheng hafi borist með landkönnuðinum Vasco da Gama til Evrópu. En það sem nokkurn veginn er vitað með vissu er að Vínarbúinn Demian fann upp hljóðfæri sem hann nefndi „Akk odeon" árið 1829. Reyndar segjast Rússar hafa smíðað slíkt hljóðfæri miklu fyrr, eða á síðustu áratugum 18. aldar og kölluðu „Garmonica". Þessi hljóðfæri virðast hafa líkst konsertínu, sem hér á landi er óþekkt, nema hvað Hjálpræðis- herinn hefur oft haft henni á að skipa. Fyrst er vitað um pianónótur á harmónikku er frakkinn Bouton í París smíðaði. Það var 1852, en árið 1860 er vitað um þriggja Rætt við Bjarna Marteinsson arkitekt og formann Félags áhngamanna nm harmonikknleik

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.