Morgunblaðið - 04.05.1978, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 04.05.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1978 61 Hugsið ykkur persónutölvu framtíðarinnar. Hún mun vita allt um einstaklinginn, og miklu meira en hann veit sjálfur! Vér Odda- verjar urðum varkár í andlitinu og mótmælatuldur leið um salinn. Og þá kviknar spurningin: Lumar almenningur á ólöglegu einkalífi? Heldur hýrnaði yfir mann- skapnum þegar formælandinn doktor Oddur Benediktsson gat um tilkomu skólatölvunnar og hennar óendanlegu möguleikum. Að hugsa sér, þá getum við, tossarnir, sem aldrei höfum þorað að læra á bókina af ótta við að missa pláss frá nýjum og ónotuðum hugsana- straumum, bara lætt lúkunni í rassvasann eins og prófdómarar og dorgað upp minnisparta við öllu milli himins og jarðar. Sem sagt, lærði' skólinn getur senn hvað líður farið að endurhæfa sig í saltfiskþurrkun! Frábært, eins og sjónvarps-Palli myndi orða það. Þá vil ég víkja að alvarlegri tíðindum. Þær fréttir hafa borizt frá Danmörku að sú mæta kona Birgitta Hövrings, sem fyrir nokkrum árum stofnaði bókaút- gáfu og einvörðungu var helguð islenzkum rithöfundum, sé látin. Maður skrifar víst aldrei meir. Þetta voru engar hasarbækur, sem útgáfan var búin að gefa út eftir okkur fáeina Islendinga og Þorstein Stefánsson rithöfundur þýddi. Sei sei nei og vafamál að sígandi lukka miskunni sig nokk- urn tímann yfir þær. En bækur þurfa ekki að vera einskis nýtar þótt illa seljist. Kannski er bara orðinn svona mikill hörgull á óheimskum kaupendum. Þá líður að lokaþætti rithöf- undabréfs. Ennþá liggur maður á nokkrum aldurhnignum hugsjón- um. Þó ekki í þágu ákveðinnar stéttar, pólitíkur eða fjárkröfu fyrir sig og sína, því það er líka hollt að vinna fyrir ekki neltt. Og þær snerta sálarstyrjöldina miklu, sem nú fer líkt og logi yfir akur mannsálarinnar og slítur upp hverja jurt sem ætlað var að bera ávöxt svo maður er að missa alla heimsins lyst. • Eiturlyf, ofbeldi, klám Þessi árásarher og sá eyðandi mannshugur sem á bak við hann býr er að festa hér rætur eins og hvert annað sníkjudýr og er nú tími til kominn að föðurlandsvinir og það erum við öll vitaskuld, bíti í skjaldarrendurnar eins og forn- kapparnir og stuggi þessum ó- boðna gesti burt! Við vitum öll hvemig eiturlyf geta leikið mannskepnuna og hvað ofbeldinu viðkemur langar okkur til að geta rölt eftir Austurstræti Reykjavíkurskáldsins Tómasar Guðmundssonar og Bakarabrekk- una þótt svo Arnarhólsturninum hafi verið dembt niður á miðri leið, þreytt frá störfum að kvöld- eða næturlagi, án þess að varpað sé á mann skítyrðum og barsmíðum af klúryrtum akandi eða gangandi rumpulýðs. Hvað er annars orðið af hýðing- arstaurnum sem trónaði á Austur- velli fyrir eitt eða tvö hundruð árum? Er ekkert eftir af honum uppí Arbæ líka sem hægt væri að nota? • Og þá er það stíllinn... Ekkert skil ég í kvikmynda- eftirlitinu að banna börnum að horfa á klofmyndir í bíó meðan þær eru hangandi alla daga í útstillingargluggum kvikmynda- húsanna eða að öðru leyti í máli og myndum í hverri einustu bókabúð í Reykjavík og tyllt út í glugga á öllum sjoppum kjördæm- anna. Nú stendur mér hjartanlega á sama þótt einhver ákveðinn þjóð- félagshópur, sem ekki getur treint sér kyngetuna með öðrum hætti en þeim að hafa alltaf berrassað fólk sem gleymt hefur að girða upp um sig, fyrir augum. Ég tala nú ekki um ef þessir lausgirtu sýningar- gripir gerðu það gagn með nær- veru sinni, að fæla burt eitthvað af allri bílaglásinni sem er að sprengja utan af sér miðborgina. Hitt fannst mér slæmt að þetta stóðlíf fullorðna fólksins er eitt fyrsta skoðunarefni yngstu borg- aranna okkar, barnanna með nýju töskurnar sínar á leið í skólann að læra að lesa. Og sjái nú hver sjálfan sig — eða þeir sem eiga hlut að máli — fari að endurnýja sína jurt og þurrka óþverrann af landinu. Guðrún Jakobsen." - Góð þjónusta Ánægður viðskiptavinur í hljómplötuverzlun vildi koma eft- irfarandi á framfæri: „Fyrir nokkru las ég grein um lýsingu fólks á framkomu starfs- fólks vegna gallaðrar plötu sem keypt var á úsölu. Eftir öllu að dæma átti útsalan að afsaka bæði gallana og framkomu starfsfólks- ins sem mér fannst fáránleg. Ég minnist á þetta hér vegna mjög mikillar kurteisi sem ég varð fyrir í Fálkanum á Suðurlands- braut. Þangað fór ég með gallaða plötu sem keypt var nokkrum dögum áður. Ég hafði engar sannanir í höndunum og bjóst ekki við neinu. Hins vegar vakti framkoma starfsfólksins þar virðingu og aðdáun mína og reyndi ég það að til er vin í eyðimörk, ef svo mætti segja í þessu samhengi, þótt ekki sé annars staðar stingandi strá. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Á skákmóti í Noregi í vetur kom þessi staða upp í skák þeirra Eriks Iloidahls. sem hafði hvítt og átti leik, og Johns Magnussens. lfi. IIxd5! — Dxd5 (Eða 16... exdöj 17. Hel+ - Kf8, 18. Dh6+ og mátar) 17. De7. Mát. Þú ert búinn að eyðileggja barnapúðursbaukinn! TILKYNNING TIL SÍMNOTENDA Símaskráin 1978 Athygli skal vakin á því aö símaskráin 1978 gengur í gildi frá og meö sunnudeginum 7. maí n.k. Ennfremur er athygli símnotenda vakin á fjölmörgum númerabreytingum á Reykjavíkur- svæöinu og hinum sérstöku númerabreytingum á Akureyri, sem framkvæmdar veröa þar mánu- daginn 8. maí n.k. Áríöandi er því aö símnotendur noti nýju símaskrána strax og hún gengur í gildi, enda er símaskráin frá 1977 þar meö úr gildi fallin. Póst- og símamálastofnunin. V E R Z LU N I N KOMNIR AFTUR Vinsælu trékloss- arnir komnir aftur, margar nýjar geröir. Póstsendum. GEYSiP" Suöurnesjakonur athugiö Líkamsþjálfun Nýtt 4 vikna námskeiö hefst 8. maí í íþróttahúsi Njarövíkur. * Tímar tvisvar í viku. * Byrjenda- og framhaldsflokkar. Ath: Næst síðasta námskeiö fyrir sumarfrí. Uppl. og innritun í síma 2177. Birna Magnúsdóttir. tiiísm Speedway vinsælu fótlaga strigaskórnir komnir Póstsendum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.