Morgunblaðið - 04.05.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.05.1978, Blaðsíða 14
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1978 Jón t». Arnason ,JEn nú á tímum er heimurinn ekki heilbrigður. Og það, sem við sjáum, þegar við lítum í kringum okkur í veröldinni, bendir ekki til að heimurinn sé á batavegi. Hið aukna vald, sem við höfum náð á náttúruöflunum vegna stöðugra framfara á sviði vísinda og tækni, hefir ekki reynzt okkur neinn hvati til að aga umsvif okkar í anda skynsemdar og jákvœðs vilja.“ — Gunnar Myrdal. Lífríki og lífshættir XIV: „Velferðar“-líf er lotterí, sem arftakarnir eru ekki taldir of fallegir til þess að borga. Vandamálin hrannast upp „Gðmul íhaldsúrræði” reynast bezt Mesta hrun allrar heimssögu Allt að 100% hráefnisskortur Hugsað í kjörtímabilum Að slepptum glæpaverkum vinstrimanna vítt og breytt um heim og hugsunarlausri heimtu- frekju verkalýðshreyfinga á Vesturlöndum um síaukinn náttúruránskap og lífríkisspjöll, ber ekkert hærra á himni •heimsviðburða en linnulaus ráð- stefnu- og fundahöld þjóðaleið- toga. Undantekningalítið eru viðfangsefnin nær söm og óbreytt frá því þeim síðast var vísað til nánari meðferðar. Á síðari árum hefir þrálát upp- dráttarsýki hagvaxtartrúarinn- ar reynzt erfiðust viðureignar, og hefir dýrmætum tíma verið sóað í könnun hennar af þrjózkufullri tryggð við bernsk- an „velferðar“draum. Dagana 7.-9. f .m. sat ein slík ráðstefna við úrræðaleit í Kaup- mannahöfn. Þar voru leiðtogar Efnahagsbandalags Evrópu að bera saman bækur sínar og leitast við að finna leiðir til að hressa við lamað atvinnulíf í löndum þess. Ekki er kunnugt um neina sanngjarna manneskju, sem hefir látið í ljós grun um, að ráðstefnumenn hafi skort góðan vilja og víðtæka þekkingu til að fást við verkefni sín, en hins vegar var almennt ekki búizt við neinum þátta- skilaárangri, sérstaklega þar sem alkunna var, að þeim var tamara að hugsa í kjörtímabil- um en kynslóðum. Fullyrða má einnig, að sárafáir muni hafa öfundað þátttakendur af við- fangsefnum þeirra. Þegar af þessum ástæðum gat enginn raunsýnismaður gert sér vonir um aðra niðurstöðu ráð- stefnuhaldsins en raun varð á, þ.e. staðfestingu eldri yfirlýs- inga um að helzta bjargráðið liggi enn sem fyrr í auknum hagvexti, sem á liðnu ári hafði orðið langtum minni, eða að meðaltali 1,9% verbólgusneydd- ur, en áformað hafði verið. EBE-ráðið skoraði því á ríkis- stjórnir bandalagslandanna að skuldbinda sig til að leggja sig allar fram um að ná áður settu markmiði, sem var að meðaltali 4—4,5%, frá miðju ári 1978 til jafnlengdar árið 1979. „Aðeins með því móti geta vonir staðið til að unnt reynist að fækka atvinnuleysingjum, sem nú telja nærri 6.500.000 í ríkjum banda- lagsins, svo að nokkru nemi,“ segir í yfirlýsingunni. Svona bjartsýni er enn tekin gild í heimi, sem með degi hverjum verður snauðari af óendurnýjanlegum hráefna- forða, þar sem aðeins fáir sérvitringar gerast svo djarfir að benda á, að maður og heimur geti því aðeins átt framtíð, ef mannkynið gangi ekki nær höfuðstól sínum en ítrasta nauðsyn krefur, geri sér ljóst, að það á ekki annarra vitlegri kosta völ en að gera sér að góðu að lifa af vöxtum hans — — Það verði m. ö. o. að snúa frá vinstri síns vegar, rifja ðþpi „gömul íhaldsúrræði" líf- verndarmanna, sem eru, voríi og verða: - Fyrirhyggja, ráðveþ^ni, dirfska og hófsemi. Enda þótt EBE-ráðstefnunni í Kaupmannahöfn, sem var reyndar sú fyrsta af þremur, er nauðsynlegar þykja til undir- búnings endurreisnaraðgerða, hafi lokið með ásetningi um að halda ótrautt troðnar slóðir eins og vænta mátti og áður segir, væri ekki sanngjarnt að láta þess ógetið, að í yfirlýsingu forystumannanna er einnig drepið á að nauðsyn beri til að athuga leiðir til orkusparnaðar og stöðu'gleika í gjaldeyris- málum. Hvort tveggja er fagnaðarefni út af fyrir sig, þó að ekki liggi ljóst fyrir, á hvern hátt unnt er að gera það tvennt í senn: að auka hagvöxt og draga úr orkunotkun. Ég fæ ekki varizt þeirri hugsun, að slíkir galdrar hlytu að vekja mér álíka ónotafurðu og að frétta úr einhverju vanþroskaríki, að stjórnvöld þar teldu sér fært að lækna verðbólgu samtímis því, að streystast við að halda sérhverri liðleskju, sem finnan- leg væri í landinu í stöðugri atvinnu. Fordómar eru fjötrar Höfuðorsök þeirra þrenginga, sem hrjá EBÉ-leiðtoga og þá kollega þeirra aðra, er hafa tekið ástfóstri við 19. aldar vinstrifáfræði um þau augljósu sannindi, að gnægtaforði jarðar er takmarkaður, á ýmsum sviðum m.a.s. ákaflega takmarkaður, og arðgjafir náttúruríkisins þess cegna alls ófullnægjandi til að mæta ásköpuðum bruðlfýsnum fjöld- ans, er einmitt í því fólgin, að þá skortir kjark til að ráðast gegn og kála eigin fordómum. Rétt og skylt er að viðurkenna — og virða til hóflegrar vorkunnar — að menn, sem frá blautu barnsbeini hafa verið aldir upp við, að allsherjarjöfn- uður fái samrýmzt heilbrigðu lífi, sé þar ofan í kaupið engin ögrun við fegurð og tign lífsins, sé jafnvel æskilegur, muni síður en svo eiga auðvelt með að taka skyndilegri hugarfarsbreytingu. Á hinn bóginn má ekki gleyma, að þeir hafa fyrir augunum óhrekjanlegar, vísindalega rök- studdar upplýsingar um, hvernig komið er og fara hljóti að áliti margra færustu lær- dómsmanna heims, ef látið verði skeika að sköpuðu. Þeim mun t.d. naumast ætlandi að hafa ekki kynnt sé lokayfirlýsingu 2. umhverfis- málaráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna, sem starfaði í Reykjavík fyrir tæpu ári, en í henni segir m.a. tæpitungulaust: „Nú er mjög líklegt, næstum alveg víst, að innan 50 ára muni, til viðbótar liðnum vist- kreppum, yfir dynja mesta hrun í allri heimssögunni.“ Þetta heimsávarp sömdu og undirrituðu 130 áhyggjufullir og samvizkusamir vísindamenn frá 20 löndum, sem í fyllsta máta væri ósæmilegt að bera á brýn, að hefðu látið að sér hvarfla eitthvað þessu líkt: „Það er fréttnæmt að segja að dómsdag- ur sé í nánd, það er grundvöllur til að selja fleiri blöð.“ Samdráttur í blaðasölu, eða sölutregða varnings og þjónustu yfirleitt, hefir ekki verið á meðal þyngstu áhyggjuefna ráðamanna svonefndra velferð- arríkja hingað til. En á viðskipt- um er sala ekki eina hliðin. Á viðskiptum eru minnst tvær hliðar: sala og kaup. Og það eru kaupin, sem valda sárustu höf- uðverkjunum, því að.flest iönað- arríki Vestur-Evrópu þurfa að kaupa ógrynni hráefna, hvar sem bjóðast og fáanleg eru, oft við okurverði. Ástæða þess er hvergi leyndarmál: Iðnaðarríki Vestur-Evrópu eru orðin óralangt frá að geta fullnægt þörfum sínum af eigin náttúruauðlegð, þau eru komin í þrot með eiginlega allt nema kol, sem þau samt sem áður verða að kaupa annars staðar þótt ekki sé teljandi samanborið við annað. Allt þarf að kaupa inn Samkvæmt ágætri heimild, „Mitteilung der Europáischen Gemeinschaft: Uran, Vorráte und Versorgungsanlagen von 1962—1980“, sem engin ástæða er til að rengja, eru EBE-ríkin níu háð innflutningi þýðingar- mestu hráefna eins og hér greinir, og hefir þá verið tekið tillit til endurvinnsluhlutdeild- ar: Kol ..................... 7% Álmelmi ................ 57% Kopar .................. 65% Úran ................... 75% Járn ................... 75% Magnesín ............... 80% Tin .................... 86% Hráolía ................ 95% Wolfram ................ 95% Fosfór ................. 99% Mangan ................ 100% Kóbalt ................ 100% Nú er Evrópa orðin fátæk, því að það, sem hún átti, hefir hún ýmist brælt upp á síðastliðnum 200 árum eða fleygt frá sér. En hún hefir aldrei haft „þörf“ fyrir meira heldur en nú, þegar allt efnahagslíf hennar er miðað við að efla eyðslumátt verk- launa. Því hlutverki er hagvext- inum ætlað að þjóna, sem í raun og veru merkir hvorki meira né minna en það, að höfuðstóll náttúruríkisins skuli urinn upp af magnaðra ofstæki en nokkru siniM fyrr, alveg eins og núlif- andi kynslóðir séu sannfærðar um að eiga óskoraðan rétt á síðustu slumsunni og alráðnar i að láta arftaka sína gjalda fyrir hamstolaviðhorf sín. Gegn betri vitund hamast fjölmennir skarar, sem að veru- Framhald á bls. 55.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.