Morgunblaðið - 04.05.1978, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.05.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MAI 1978 37 Raufarhólshellir í Þrengsl- unum er í alfaraleiö. Op hans eru aðeins nokkrar bíllengdir frá veginum, en þar sem engin merking er við hellinn fara flestir þar fram hjá án þess að hafa hugmynd um að í götu þeirra er sérkennilegt náttúru fyrirbæri sem skemmtilegt er að skoða, jafnvel þótt aðeins sé farið steinsnar inn í hellinn. Meðfylgjandi myndir voru teknar fyrir skömmu fremst í hellinum, en mestan hluta ársins er ísing þar á um 100 metra kafla af þeim u.þ.b. lOOOmetrum sem hellirinn nœr inn í jörðina. ísingin myndast þegar vatn drýpur í gegn um jarðveginn fyrir ofan hellisloft- ið og koma kynlegar ísmyndan- ir upp úr hellisgólfinu þegar frostið bindur dropa eftir dropa og einnig hanga grýlu- kerti niður úr loftinu. Gólf Raufarhólshellis er grýtt urð, en það er magnað að fara um hana þegar kynjaverur ísing- arinnar tróna þar hundruðum saman,, sumar allt að mann- hœðar háar. Sá hluti hellisins er á mörkum birtu og myrkurs, en nauðsynlegt er að hafa vasaljós með sér þar inn til skoðunar. Hellirinn er fegurst- urfremst við opin, svo og innst inni þar sem hann greinist í tvennt, Tröllastofu og Hraun- fossinn þar sem dreggjar hrauns hafa storknað í fallinu. Loftop erufremst í hellinum, en endaopið er með afltðandi göngustig. Auðvelt er að finna Raufarhólshelli með því að hyggja að girðingu sem er vinstra megin við veginn þegar komið er austur Þrengslin, nokkur hundruð metra áður en komið erfram á brún vegarins í brekkunni niður úr Þrengsl- unum. Girðingin er i kring um opin á Raufarhólshelli, sem geta hulist i miklum snjóum, en á vetrum er endaopið oft á kafi i snjó, en hins vegar fært í hellinn um snjódyngjur í loft- opunum. Og stjörn- urnar blika Heiðdís Norðfjörði Ævintýri frá annarri stjörnu TeikninKar eftir Þóru Sigurðar- dóttur Bókaforlag Odds Björnssonar Akureyri 1977 Fyrir jólin kom út bók eftir ungan höfund, sem ekki hefur sent bók frá sér fyrr. Eins og nafnið ber með sér er hér á ferðinni ævintýri. Höfundur lætur hugann reika til þeirra daga er hann lítill horfði á stjörnurnar út um gluggann sinn og velti því fyrir sér „hvort verið gæti að fólk byggi á einhverri þeirra“. Svo verður ævintýrið til: „Litla stjarnan sem ég ætla að segja ykkur frá heitir Sólblika —“ Og höfundurinn vill leyfa les- endum sínum að ferðast með sér til stjörnunnar Sólbliku: „En heyrið þið krakkar, á ég að leyfa ykkur að ferðast þangað upp með mér?“ Síðan dregur höfundurinn upp myndir af landslagi á Sól- bliku: „Grænar grundir, víðáttu- miklir skógar, hrikaleg fjöll, ár, lækir, fossar og stöðuvötn. Höfin blá og breið og himinninn er heiður og blár — “ Allt er líkt og á jörðinni nema — allt er dvergvaxið. Höfundur freistar þess ekki að verða þátttakandi í ævintýrum þeim er hann lætur gerast. Hann verður sögumaður og lesendur eru hlustendur hans, sem ferðast með honum til Sólbliku. Hetja sögunn- ar er litli drengurinn Astró sem býr í litla skakka húsinu Sólskins- bæ. „En í litla skakka Sólskinsbæ búa fleiri en Astró litli. Þar búa einnig pabbi hans og mamma, hundurinn Júpiter, kötturinn Merkúr. Ekki má ég nú gleyma litla bláa hestinum honum Appolló, því að Astró og hann eru óaðskiljanlegir vinir." Pabbi Astrós er skógarvörður í Stóra- skógi. „ — og Astró fannst ekkert eins gaman og að reika með honum um skóginn. — “ Og dag nokkurn þegar „ — Himinninn var heiður og blár og sólin hellti geislum sínum yfir Sólskinsbæ" lögðu Astró, faðir hans, hundurinn Júpiter og hest- urinn Appoló af stað inn í skóginn. „Þeir gengu eftir litlum skógarstíg og Astró var svo glaður. Hann teygaði að sér skógarilminn og hugsaði með sér, hvað allt væri fagurt í dag.“ En í skógiiium verða Astró og félagar hans fyrir því óhappi að týna föður Astrós. „Pabbi“, kallar Astró. „Pabbi“. En enginn svaraði. Hvar var pabbi hans? Þetta var sannarlega dular- fullt.“ Þeir leita og leita, verða brátt svangir og seðja svengd sína með grænum berjum. Þeir til mikillar skelfingar missa þeir brátt minnið, muna ekki hvar þeir eiga heima. Astró og félagar hans lenda nú í margs konar ævintýr- um, meðan pabbi hans fer að ráðum uglunnar og snýr heim er hann hefur týnt drengnum sínum. Og nú koma við sögu: Galdranorn- in Anganóra, Grænhaus galdra- karl, Bolsíus búálfur, Krummi króknefur, kústar sem þjóta um loftið og galdraprik. Höfundi tekst vel að sameina frásagnargleði sína og hugmynda- flugið gerir söguna of flókna ungum lesendum fyrir það hve mörgum er sífellt bætt inn í hana. Heildarsvipurinn verður veikari af því Astró litli og Appolló hverfa stundum fyrir öðrum, sem koma þó minna við sögu til þess að halda spennu hennar á þessu ævintýra- lega ferðalagi þeirra félaga. Málið á bókinni er gott og ævintýrið er fallegt og hreint. Heiðdís Norðfjörð sýnir með þessu ævintýri sínu góða hæfileika til listrænnar túlkunar á viðfangs- efnum sínum, þeir hæfileikar hljóta að koma betur í ljós með Bókmenntlr eftir JENNU JENSDÓTTUR Heiðdís Norðfjörð æfingu og ögun. Það verður því mikil eftirvænting að næstu bók hennar. Og það er von mín að ekki líði á löngu þar til við heyrum á ný frá þessum unga höfundi, sem strax hefur reynst eftirtektarverð- ur. Frá forlagsins hendi er allur frágangur til fyrirmyndar, eins og á öðrum bókum sem frá því koma. Myndskreyting er mjög góð. Sigurpáll með 40 mál- verk í Keflavík SIGURPÁLL ísfjörð opnaði málverkasýningu s.l. laugardag í Iðnaðarmannasalnum í Kefla- vík. Sigurpáll sem er búsettur í Kópavogi sýnir þar 40 mál- verk, sem flest eru máluð á síðasta ári. Þetta er þriðja einkasýning Sigurpáls. Fyrir- myndirnar eru sóttar hingað og þangað um landið. Sýningin er opin daglega virka daga frá 6—10 en helgar frá 2—10 og sýningunni lýkur n.k. laugar- dagskvöld 6. maí. EFÞAÐERFRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Al (ÍLYSINGA SIMINN ER: 22480

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.