Morgunblaðið - 04.05.1978, Blaðsíða 22
54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1978
Skrítlumyndirnar fjórar eru án texta. En hér að
neðan standa fjórar setningar, sem hver um sig
á við eina myndanna. Reyndu að ráða fram úr
þeim og komast þannig að því, hvað fólkið á
myndunum er að segja.
A) Letinginn þinn.
B) Ef þú vilt komast með mér til Englands,
þegiðu þá og haltu áfram að synda.
C) Þetta er blómaverzlun, bílarnir eru aðeins til
skrauts!
D) Má ég biðja um nafn þitt, svo að ég geti
skrifað það á matseðilinn!
Vel svarað
Karl keisari hafði miklar mætur á munki nokkrum, að
nafni Notker. Hann var lærður maður og guðhræddur. Eitt
sinn kom keisarinn í klaustrið, þar sem munkurinn var
og dvaldi þar í þrjá daga.
Riddari nokkur í liði keisarans, sem sýndi meiri hroka
en yizku, lagði eftirfarandi spurningu fyrir munkinn:
„Ur því að þú ert lærðasti maðurinn í ríki keisarans,
getur þú víst sagt mér, hvað Guð er að gera á himnum
núna?“
Munkurinn svaraði hógvær: „Guð er núna að gjöra það,
sem hann gjörir alltaf. Hann niðurlægir þá dramblátu, en
veitir auðmjúkum náð.“
Mynd þessa teiknaði Páli Þórir Ólafsson, Baldursgötu 29, Reykjavík.
Hún minnir okkur á, hvað það getur verið nauðsynlegt, að foreldrar
lesi með börnum sinum og taki þátt í lífi þeirra og starfi.
Sendið
frum-
ort
Barna- og fjölskyldu-
síðan vill nú hvetja
lesendur sína til þess að
senda meira af frumortu
efni. Sérstaklega viljum.
við fara fram á það, að þið
sendið frumort íjóð á
næstunni og munum við
birta nokkur þeirra í
blaðinu á næstu vikum.
Látið nú hendur standa
fram úr ermum og sendið
blaðinu ljóð og teikningar,
og munið að setja fullt
nafn hvort sem það eru
ljóð, teikningar, sögur eða
annað, sem þið sendið.
Utanáskriftin er:
Morgunblaðið,
Barna- og fjölskyldu-
síðan,
Aðalstræti 6,
101, Reykjavík.
T röllabarnið
á Krákueyj u
Ný skemmtileg framhaldssaga
Persónur.
Melker Melkersen, eigandi stærsta
hússins á Krákueyju
Palli, sonur hans, 10 ára.
Malín. dóttir hans, 20 ára.
Pétur, ungur maður úr borginni,
giftist Malín
Skélla, dóttir Malínar og Péturs
(lítil)
Stína, 5 ára.
Skotta, 6 ára, kaupmannsdóttir,
Nisse. kaupmaður á Krákueyju.
Vestermann, sjómaður.
Sagan er byggð á samnefndri
kvikmynd gerðir af Astrid Lind-
gren. Þýðing úr dönsku: Rúna
Gísladcttir.
Saga þessi er framhald af
myndaflokknum „Saltkrákan",
sem sýnd var nýlega í íslenzka
sjónvarpinu. í henni yar Skotta
aðalpersónan ásamt stóra
Sankti-Bernhardshundinum
hennar, Bangsa, en í þessari
frásögu er ný aðalpersóna, Skella
litla, sem er aðeins tæpra 2ja ára.
Hún hefur skemmtilegt grallara-
andlit, og tekst að sigra hjörtu
áhorfendanna allra án þess að
segja nokkuð.
Krákueyja heitir hún. En
líklega er vonlaust fyrir þig
að leita að henni á landakorti,
því að hún er aðeins örlítill
depill í hafinu, landsskiki, þar
sem aðeins búa nokkrir tugir
manna. Mikill hluti eyjar-
innar er þakinn skógi, greni,
furu, eik og birki, en á opnum
svæðum vaxa jarðarber. Og
úti á sjónum veiðist fiskur.
Flestir íbúanna á Krákueyju
eru sjómenn, en þar er líka
kaupmaður, sem heitir Nisse
og hann selur meðal annars
afburða bragðgóðar kókós-
bollur.
Stínu og Skottu þykja
kókósbollur afskaplega góðar.
Stína rr fimm ára, en Skotta
sex ára. Þær eru ekki
byrjaðar í skóla ennþá, en
þegar þær fara í hann, þurfa
þær að sigla yfir á megin-
landið með báti á hverjum
degi, því að á Krákueyju er
enginn skóli.
Sagan hefst á fallegum
sumardegi. Fallegum, já.
Hann er vjst ekki mjög
fallegur, þegar allt kemur til að þær eru í gönguferð og
alls, því að úr skýjunum fínu kjólarnir þeirra mega
kemur hellirigning. Telpurnar ekki blotna. Tryggur trítlar á
halda á regnhlíf yfir sér, því eftir þeim. Tryggur er hundur