Morgunblaðið - 04.05.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1978
35
áttunda píanóharmónikku í
Vínarborg. Það var hins vegar ekki
fyrr en 1909 sem hin nútímalega
píanóharmónikka kom fram, og er
hún kennd við Pietro Deiro
ítalsk-amerískan spilara og tón-
skáld, sem flestir harmóniku
unnendur þekkja. Annar þekktur
harmónikkuleikari og tónskáld
Pietro Frosini lét smíða tveggja
áttunda bassaborð um 1930. Sú
þróun að víkka tónsvið bassans
hefur stöðugt haldið áfram
Hohner verksmiðjurnar þýsku
höfðu lengi forystu, en samtímis
(eða áður) höfðu Rússar framleitt
hljóðfæri með 4 átt. i bassa það
heitir Bayan, hefur 3—5 raðir af
hnöppum í dískant og 5—9 raðir
bassa. Nú til dags þekkist ekki að
flytjendur klassískrar tónl. sem
taka sjálfa sig alvarlega leiki á
venjulegt Stradella bassaborð, það
hefur aftur tekið á sig breytta
mynd, sem eignuð er A. Galla-
Rini, og breytist með skiptingu í
þriggja áttunda borð, en heldur
sömu niðurröðun. Rússnesku og
þýsku kerfin eru hins vegar byggð
eins og þriggja raða
hnappaharmónika, annaðhvort
með norsku eða sænsku kerfi.
Þekkt tónskáld hafa samið verk
fyrir harmónikku, m.a. P. Tchai-
kovsky, P. Hindemitt, T.
Lundquist og flestir nútíma
höfundar hafa sýnt henni áhuga.
Harmónikkan er meðal yngstu
meðlima í fjölskyldu hljóðfær-
anna. Þó menn greini á um hvar
og hvenær hún fyrst hafi séð
dagsins ljós, er víst að það er ekki
fyrr en á þessari öld að hún nær
þeirri þróun að geta talist full-
komið hljómborðs hljóðfæri.
Til íslands mun harmónikkan
hafa borist á síðustu áratugum 19.
aldar, og þá í mjög frumstæðri
gerð af díatóniskri — svokallaðri
einfaldri harmónikku, er hafði
eina röð hnappa, um 2 áttundir og
2 bassa. Til þessa hafði verið harla
fátt til fanga um hljóðfæri til að
leika fyrir dansi og munu jafnvel
hárgreiður hafa verið notaðar til
slíks tónlistarflutnings. Þóttust nú
menn himin hafa höndum tekið og
á árunum eftir síðustu aldamót
voru góðir „Harmonicu spilarar"
manna vinsælastir. Þeir ferðuðust
oft á tíðum langar leiðir í misjöfn-
um veðrum reiðandi
harmónikkuna í hnakknefinu léku
svo fyrir dansi í 10—12 tíma og
fengu nokkrar krónur í laun. Má
segja að þá þegár hafi mótast hér
á landi það viðhorf til harmónikk-
unnar, sem enn rikir. Henni var
strax ætlað það hlutverk eitt, að
vera danshljóðfæri, þar var hver
einn fullgildur, sem hafði til að
bera þrek og þol ásamt þokkalegri
taktfestu og tóneyra. Undan-
tekning frá þessu var þó viðleitni
nokkurra harmónikkuleikara, sem
tóku sig upp og héldu konserta,
ýmist einn eða tveir. Að vísu voru
viðfangsefnin að mestu danslög.
Var þessari tilbreytni vel tekið og
leikið fyrir fullu húsi hvarvetna.
Nokkrir íslendingár hafa unnið
til verðlauna fyrir leik sinn á
harmónikku erlendis. Lýður
Sigtryggsson varð Norðurlanda-
meistari, Einar Sigvaldason
Danmerkurmeistari og Grettir
Björnsson Kanadameistari.
Fyrstur íslendinga er hugði á
alvarlegt nám í harmónikkuleik
var Bragi Hlíðberg, sem hélt til
Bandaríkjanna árið 1947 og
dvaldist þar um eins árs skeið.
Hann hélt hér tónleika bæði áður
en hann hélt utan og eins eftir að
hann kom frá námi. Ljóst er að
hann hefur verið í fremstu röð
harmónikkuleikara heims á þeim
tíma, og 30 árum síðar lék hann á
plötu, sem er með því bezta sem er
til frá þeim árum. Bragi hætti að
mestu að leika á harmónikku
þegar honum mætti algert tómlæti
hér heima. Það skal þó tekið fram,
að hann vakti mikla hrifningu á
tónleikum sínum, og er mönnum í
minni enn þann dag í dag. Samt
sem áður hófst um þetta leyti það
skeið er skipti sköpum fyrir
harmónikkuna hér á landi. Tón-
listarskólar hófu hver af öðrum
starfsemi sína án þess að henni
væri gaumur gefinn, og er svo enn.
Kjólar Stefáns og Katrínar sem
kynntir eru hjá íslenzkum heimil-
isiðnaði eru bæði stuttir og síðir.
Einnig eru kynntar mussur.
Listkynning
hjá íslenzkum
heimilisiðnaði
ÍSLENZKUR heimilisiðn-
aður hefur opnað listkynn-
ingu í verzlun sinni að
Hafnarstræti í Reykjavík
og gert er ráð fyrir að
listkynningar sem þessi
verði í verzluninni fram-
vegis, þar sem kynntir
verða tveir til þrír lista-
menn hverju sinni.
Það listafólk sem kynnt er um
þessar mundir er Haukur Dór
leirkerasmiður og hjónin Katrín
Ágústsdóttir og Stefán Halldórs-
son, sem sýna batikkjóla og
mussur. Katrín og Stefán hafa
starfrækt vinnustofu í 12 ár, fyrst
sem hliðargrein við kennslu en nú
sem aðalstarf og sögðust þau
einkum hafa fengizt við ýmiss
konar þjóðlífsmyndir, en hygðust
nú reyna m.a. að vinna meira
batikkjóla og mussur í framtíð-
inni. Katrín stundaði listnám í
Danmörku og hefur haldið einka-
sýningar og tekið þátt í samsýn-
ingum.
Haukur Dór hefur starfrækt
sína vinnustofu í rúm 10 ár og var
áður við listnám í Skotlandi og
Danmörku og hefur hann einnig
haldið einkasýningar og verið með
á samsýningum. Munir þeir er
Haukur Dór sýnir eru bæði
búshlutir og skúlptúr í steinleir.
Gerður Hjörleifsdóttir hjá ís-
lenzkum heimilisiðnaði sagði að
ráðgert væri að sýningin stæði til
26. maí og væri þetta byrjunin á
starfi sem væntanlega yrði áfram-
hald á, það hefði lengi verið
hugmyndin að reyna þessa nýjung.
Að lokum sagði hún að kjólar
Stefáns og Katrínar yrðu kynntir
á sýningu í Skálafelli á fimmtu-
dagskvöld.
Fyrstadags-
umslög seld
til styrktar
Húsavík-
úrkirkju
Húsavik. 2. mai
í TILEFNI af útgáfu nýju frí-
merkjanna í dag þar sem mynd er
af Húsavíkurkirkju á öðru þeirra
hefur sóknarncfnd kirkjunnar
látið gera 500 áprentuð umslög
með mynd af kirkjunni og látið
stimpla þau á útgáfudegi.
Verður ágóðanum af sölu
þeirra varið til cndurbóta á
kirkjunni. Þau verða seld næstu
daga í bönkunum á Húsavík og
kostar umslagið 400 krónur.
Fréttaritari.
Utsölu-
markaóur
aðeins
MGAR
í lönaöarmannahúsinu
Hallveigarstíg
Mikið úrval
af nýjum vörum
teknar fram
þessa tvo daga
Opið laugardag
Vinnufatabúðin