Morgunblaðið - 04.05.1978, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.05.1978, Blaðsíða 8
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1978 Hverfafundir borgarstjóra...Hverfafundir borgarstjóra Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri ^hélt sinn annan hverfafund á þessu ári s.l. sunnudag í Átthagasal Hótels Sögu. Var þessi fundur fyrir íbúa í Nes- og Melahverfi, Vestur- og Miðbæjarhverfi. Fundinn sóttu um 200 manns, þrátt fyrir einstaklega gott veður. Fundarstjóri á fundinum var Hörður Sigurgestsson, en fundarritarar Garðar Pálsson og Helga Bachmann. í upphafi fundarins flutti borgarstjóri yfirgripsmikla ræðu um málefni Reykjavíkurborgar, framkvæmdir á yfirstandandi kjörtímabili, og hvað væri í bígerð. Að ræðu borgarstjóra lokinni var fundargestum heimilt að bera fram spurningar til borgarstjóra, sem hann svaraði jafnharðan og fara spurningar og svör borgarstjóra hér á eftir. Fólksfækkun Valtýr Guðmundsson spurði hvort borgarstjóri hefði tekið eftir því, að það væru allir að fara úr Vesturbænum, hefði borgarstjóri tekið eftir því að í þessu hverfi væru allir skólar að tæmast. Af hvaða ástæðu stafar þetta; er það ekki vegna lánastarfseminnar að allt unga fólkið fer upp í Breið- holt? Hefur borgarstjóri eitthvað velt þessu máli fyrir sér og hefur hann hug á að hjálpa okkur með hærri lánum til kaupa á eldra húsnæði þannig að unga fólkið setjist hér að á ný? I svari Birgis ísleifs Gunnars- sonar borgarstjóra kom það fram, að nú benti ýmislegt til þess að fólksfækkunarþróunin í Vestur- vatnaði báðum megin við hann og var þurrlendið til forna kallað Eiði og af því ber jörðin nafnið. Ég vil benda á að t.d. í Vestmannaeyjum er Eiði, vegna þess að sjór er báðum megin við það, í Mosfellssveit er jörðin Eiði og ber nafn af grandanum, sem gengur út í Geldinganes. Sá grandi heitir Eiðisgrandi, en ekki Eiðs- grandi," sagði Meyvant. I svari borgarstjóra kom fram að líklega væri rétt hjá Meyvant að kalla grandann eftir Eiðinu, en hins vegar hefði það festst í máli manna að kalla svæðið Eiðsgranda og héldi hann að á öllum skipu- lagsuppdráttum þar sem grandinn væri sýndur, væri hann kallaður Eiðsgrandi, en ekki Eiðisgrandi. Birgir ísleilur Gunnarsson borgarstjóri flytur ræðu sína á hverfaíundinum á sunnudag. Ljósm. Mbl.i Ól.K.M. borgurum í Reykjavík virtist oft að þegar fólk úti á landi væri búið að vinna sitt ævistarf, kæmi það til Reykjavíkur og léti Reykjavík- urborg greiða þá þjónustu sem það þyrfti á að halda. Sagðist Sölvi vilja ítreka spurningu sína um hver væri hlutur hins opinbera í þessari þjónustu og hvort þessi liður væri ekki óeðlilega þungt álag á hinum reykvíska skattborg- ara? Borgarstjóri sagðist skilja spurningu Sölva þannig, að hann vildi fá að vita um þátt ríkisins í þjónustu við aldrað fólk. Þáttur ríkisins í rekstri stofnana fyrir aldrað fólk kæmi fyrst og fremst til greina við stofnanir sem flokka mætti undir sjúkrahús. Þá greiddi ríkið reksturskostnað slíkra stofn- ana og mætti t.d. nefna sjúkra- rýmið í Hafnarbúðum í því sam- bandi og aðrar sambærilegar stofnanir, en þegar um væri að ræða íbúðir fyrir aldrað fólk kostaði borgin þær að fullu og þá kæmi ekki til styrkur frá ríkinu. Skautahöll Helgi Geirsson spurði um gang mála varðandi byggingu skauta- hallar og eflingu skautaíþróttar- innar í Reykjavík. í svari Birgis ísleifs borgar- stjóra kom fram, að á sínum tíma hafði verið fullhannað vélfryst Vesturbærinn er taka við auknum Hörður Sigurgestsson (t.h.) var fundarstjóri, en fundarritarar þau Ilelga Bachmann og Garðar Pálsson. » tilbúinn að fólksfiölda bænum væri hætt, því að meðal- aldur íbúanna hefði jafnvel lækk- að eitthvað. „Ég efast ekki um að einn af þeim þáttum, sem hér á hlut að máli er lánastarfsemin. Reykjavíkurborg hefur því óskað eftir því við Húsnæðismálastjórn ríkisins að þessu verði breytt. Nú nýlega var viðræðunefnd milli þessara aðila sett á laggirnar til þess að reyna að finna lausn á lánavandamálinu. Ég held að það sé alveg öruggt, að ungt fólk, sem er að stofna heimili og stendur frammi fyrir því hvort það eigi að kaupa gamalt eða byggja nýtt, velji nýbyggingu, þar sem lánamöguleikar til ný- bygginga eru miklu meiri og þess vegna stefnir yngra fólkið mjög hægt inn í gömlu hverfin, þó að nú hafi orðið allmikil breyting á, en þessu þarf að fylgja betur eftir með breyttri lánastefnu. Borgin sjálf hefur hins vegar ekki farið út í lánveitingar í þessu skyni, m.a. vegna þess að okkar framkvæmda- þörf er svo mikil að við höfum ekki treyst okkur að fara út í lánveit- ingar til kaupa á eldra húsnæði," sagði borgarstjóri. Eiðisgrandi — ekki Eiðsgrandi Meyvant Sigurðsson sagðist koma með áréttingu en ekki fyrirspurn. „Ég hef orðið var við það í blöðum og manna á meðal að grandinn sem liggur á milli jarðarinnar Eiðis á Seltjarnarnesi og Bráðræðis er kallaður Eiðs- grandi en það er rangnefni. Hann heitir Eiðisgrandi. Það hagar þannig til, að þegar vatn kom að þessum granda að þá Melavöll- urinn verður vart lagður niður Lóðaúthlutanir í nýja miðbænum Sveinn Björnsson spurði hvort áform væru um frekari lóðaúthlut- anir í svonefndum „nýja miðbæ". „Borgarstjóri talar um miðborg og miðbæ, en heitir þetta ekki „nýja miðborg". Hvert verður framhald- ið á lóðaúthlutunum fyrir félags- starfsemi eða aðra starfsemi," spurði Sveinn. Borgarstjóri sagði að því væri til að svara, að á þessu ári væri ekki gert ráð fyrir frekari lóðaúthlut- unum. „Við höfum hugsað okkur að halda áfram að byggja upp gatnakerfið í nýja miðbænum, en urðum að skera þær framkvæmdir niður, — sleppa þeim úr fjárhags- áætlun á þessu ári vegna fjár- skorts — þannig að það verður ekki fyrr en á næsta ári, sem við getum haldið áfram að byggja upp nýja miðbæinn og úthluta lóðum þar,“ sagði borgarstjóri. Er hægt að létta á umferðarþunganum í Vesturbænum? Anna Kristjánsdóttir sagðist vilja taka undir með fyrsta spyrjanda um að full ástæða væri fyrir borgaryfirvöld að huga að þeirri fólksfækkun sem væri orðin í Vesturbænum. „Ég vil þó upplýsa það sem kom fram á fundi íbúasamtaka Vesturbæjar með skipulagsyfirvöldum, að meðalald- ,ur fólks í hverfinu fer nú einmitt lækkandi, andstætt því sem er í mörgum eldri hverfum borgarinn- ar. „Mig langar því að spyrja borgarstjóra hvaða hugmyndir embættismenn borgarinnar hafi um að létta á umferðarþunga þessa hverfis, hvaða hugmyndir þeir hafi um að auka græn svæði, hvort lán til kaupa á eldra húsnæði verði hagstæðari, og eru borgaryfirvöld tiibúin til að taka við vaxandi fjölda barna í þessu hverfi, er t.d. Vesturbæjarskólinn í stakk búinn til að taka við auknum barnafjölda, eru leikskól- ar — dagheimili á þessu svæði — eins og Drafnarborg tilbúin að bæta við sig börnum?" „Umferðarþungann verður væntanlega ekki unnt að létta,“ F ólks- fækkun í Vestur- bænum er hætt sagði borgarstjóri í upphafi svars, „t.d. á ég ekki von á að hægt verði að létta umferð af Hringbraut, sem er mikilvæg samgönguæð og tengir saman hafnarsvæðið og önnur svæði borgarinnar. Við höfum möguleika á að bæta hér við dagheimilum og leikskól- um. Það er verið að bæta við einu dagheimili í Vesturbænum, þar á ég við Vesturborg, sem þó tekur ekki nema 34 börn, og lóðir eru til fyrir stofnanir sem þessar á fleiri stöðum í Vesturbænum. Græn svæði eru allmörg í Vesturbænum og niöguleiki er á því að stækka þau, búa betur út og koma þar fyrir betri aðstöðu til þess að draga fólk að. Niðurstaða mín er því sú, að það sé alveg óhætt að stefna að auka mun fólksfjölda hér á ný, fá meðalaldurinn niður, með því að fá meira af ungu fólki til að setjast að í hverfinu. Ég þykist vita að borgin geti uppfyllt þær þjónustu- skyldur, sem á henni hvíla í þessum efnum." Göngustígur Hörður Guðmundsson spurði hvort mögulegt væri að fá lag- færðan göngustíg, sem væri á milli Dunhaga og Neshaga, sunnan við Hagaskóla. Það sem sérstaklega þyrfti að lagfæra væri timburstigi við barnaheimilið við Fornhaga. Um þennan stíg færi mikill fjöldi erlendra ferðamanna og eins íslenzkra vegfarenda, ekki sízt barna. Borgarstjóri sagðist skyldu at- huga þetta mál og koma þessari ábendingu áleiðis. Hlutur hins opinbera í þjónustu við aldraða Sölvi Eysteinsson sagðist vilja spyrja borgarstjóra um hlut hins opinbera í þjónustu við aldraða. Kvað Sölvi það margoft hafa komið fram, að aldraðir í Reykja- vík væru hlutfallslega fleiri en annars staðar á landinu. Skatt- skautasvell i Laugardal og átti að staðsetja það austan við Laugar- dalshöll. „Svellið var hannað á þann hátt að fullkominni skauta- aðstöðu yrði komið á tveimur áföngum. Annars vegar skyldi svellið byggt, og með það traustum undirstöðum að hægt væri að byggja hús yfir það síðar. Hins vegar var gert ráð fyrir vélbúnaði. Fyrsti áfanginn var svo boðinn út á árinu 1974, en þá reyndust útboðin í mannvirkið vera svo há, — iangt umfram allar kostnaðar- áætlanir — að borgin hafnaði þeim öllum og verkið var lagt til hliðar. Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær ráðist verður í þetta verk að nýju og það boðið út. Við röðun framkvæmda á sviði íþróttamála hafa önnur verkefni verið talin meir aðkallandi eins og t.d. að ljúka við og bæta búningsklefa við Sundlaug Vesturbæjar, ljúka við vellina í Laugardal. En það er svo borgarstjórnar að ákveða hvenær ráðist verður í skautasvellið á ný, en framkvæmd sem þessi miðast yfirleitt við gerð fjárhagsáætlun- ar.“ Fleiri bekki vió sundlaugina Björg Einarsdóttir spurði hvort ekki væri hægt að bæta við fleiri bekkjum fyrir framan innganginn að Sundlaug Vesturbæjar. Benti hún á, að á sunnudagsmorgun er hún hefði farið í laugina hefði þar verið margt um manninn af ýmsu þjóðerni í fögru veðri. Við inngang sundlaugarbyggingarinnar væri Lóðum úthlutað í nýja mið- bænum á næsta ári

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.