Morgunblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978
5
Flösku-
póstur frá
Krísuvík
ELLEFU ára skólastúlka frá
Hamborg, Margit Schmidt,
veiddi nýlega grænleita vín-
flösku upp úr ánni Elbu. í
flöskunni var bréf frá einhverj-
um Jóni Jónssyni, sem segir
farir sínar ekki sléttar. Bréfið er
dagsett í ágúst 1960, og hljóðar
svo í lauslegri þýðingu: “Ég sit
hér á lítilli klettasnös. Hér gæti
ég þurft að dveljast í fimmtán
ár. Ég hef lifað á mjög einföldu
fæði frá því brimið skolaðL mér
hér upp. Krísuvíkurbjargið er
ekki heimili við mitt hæfi. Ef ég
aðeins kynni að synda.“
Margit Schmidt með bréfið frá
Það fylgir fréttinni í þýzka
blaðinu BILD, að verið sé að
kanna hvað hafi orðið um Jón
Jónsson.
Utankjörstað-
arkosning
Utankjörstaðarkosning á veg-
um borgarfógetaembættisins er í
Miðbæjarbarnaskólanum. inn-
gangur að norðan. Kjörstaðurinn
er opinn alla daga frá klukkan 10
til 12, 14 til 16 og frá klukkan 20
til 22. nema sunnudaga og helgi-
daga, þá er kjörstaðurinn opinn
frá klukkan 14 til 18.
Utankjörstaðarkosningin er
fyrir þá, sem verða ekki heima á
kjördag, 28. maí. í Reykjavik er
kosið í Miðbæjarbarnaskólanum
eins og áður segir, en annars
staðar á landinu geta menn kosið
hjá sýslumönnum, bæjarfógetum
og hreppstjórum.
Það eru tilmæli borgarfógetans
í Reykjavík, að menn, sem ekki
verða heima á kjördag, kjósi sem
allra fyrst til þess að forðast
öngþveiti síðustu daga fyrir kjör-
dag. Sem dæmi má nefna að fyrir
síðustu kosningar kusu helmingi
fleiri síðustu vikuna fyrir kjördag
en vikuna áður og mynduðust þá
biðraðir á kjörstað og urðu menn
jafnvel að bíða upp undir klukku-
stund til þess að komast að.
I Kópavogi er utankjörstaðar-
kosning í Lögreglustöðinni að
Auðbrekku 57, 1. hæð og er
kjörstaðurinn opinn alla virka
daga frá klukkan 10 til 15 og frá
klukkan 18 til 20, laugardaga er
opið frá 10 til 12, 13 til 15 og frá
18 til 20, og sunnudaga frá klukkan
10 til 12.
Á Akureyri fer utankjörstaðar-
kosning fram að Hafnarstræti 107,
2. hæð og er opið allan daginn og
fram til klukkan 22 á kvöldin.
Lokað er á tímabilinu frá 15.30 til
16.30 og milli klukkan 19 og 20.
Utankjörstaðarkosning fyrir
Hafnarfjörð og Garðabæ fer fram
að Strandgötu 31 í Hafnarfirði og
er opin frá klukkan 08.45 til 20 alla
virka daga, laugardaga frá klukk-
an 10 til 20 og helgidaga frá
klukkan 13 til 19.
Utankjörstaðarkosning á Sel-
tjarnarnesi er á skrifstofu bæjar-
fógeta í Mýraarhúsaskóla og er
opið alla daga frá klukkan 17 til
20.
JNNLENT
Fjölmenni hjá Hvöt
FULLT var út úr dyrum á
fundi Sjálfstæðiskvennafé-
lagsins Hvatar í Sjálfstæðis-
húsinu á mánudagskvöld.
Munu þar hafa verið yfir
300 manns. Tilefni fundar-
ins var kynning á þeim
konum, sem eru á framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins í
borgarstjórnarkosningunum
I upphafi fundar ávörpuðu
konurnar átta fundargesti og
hvöttu þá við góðar undirtektir til
að leggja sig fram síðustu vikuna
fram að kosningum til að vinna að
því að tryggja Sjálfstæðisflokkn-
um áframhaldandi forustu í
borgarstjórn. En þær eru í sömu
röð og þær töluðu: Anna Guð-
mundsdóttir leikkona, Þórunn
Gestsdóttir húsmóðir, Þuríður
Pálsdóttir söngkona, Sigríður
Ásgeirsdóttir lögfræðingur, Hulda
Valtýsdóttir húsmóðír, Margrét
Einarsdóttir ritari, Bessí Jóhanns-
dóttir kennari og Elín Pálmadóttir
blaðamaður.
Að því loknu var tekið upp
léttara hjal og flutt við mikla
kátínu „heimatilbúin" skemmti-
atriði undir stjórn Sigríðar Hann-
esdóttur. En konur úr Hvöt brugðu
sér þar í ýmis hlutverk. Og leiddu
að lokum, ásamt frambjóðendum,
fjöldasöng. En að svo búnu flutti
formaður Hvatar, Jónína Þor-
finnsdóttir, ávarpsorð og bauð til
kaffiveitinga i neðri salnum í
Sjálfstæðishúsinu.
1700 kr.
fyrir kg.
af 1. fl.
humri
VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegsins
hefur ákveðið verð á humri til
vinnslu í sumar. Fyrir 1. flokk, þ.e.
óbrotinn humarhala 25 gr og
þyngri, verða greiddar kr. 1.700 og
fyrir 2. flokk, óbrotinn hala 10 gr
að 25 gr, brotinn humarhala 10 gr
og þyngri, verða greiddar kr. 820.
I frétt frá Verðlagsráðinu segir
að verðflokkun byggist á gæða-
flokkun Framleiðslueftirlits
sjávarafurða og að verðið sé miðað
við að seljandi afhendi humarinn
á flutningstæki við hlið veiðiskips.
Það verð sem nú er greitt fyrir
1. flokks humar er um 300 kr.
hærra en á s.l. ári.
S j álfstæðisflokkiim
vantar bfla
Sjálfstæðisflokkinn vantar
allmarga bíla til að annast
þjónustu við kjósendur á
kjördag. Er í ráði að hafa
bílastöðvar á fjórum stöðum
á kjördag
í borginni, að Seljavegi 2,
Reykjanesbraut 12, Skeifunni
11 og Seljabraut 62. Eru þeir
sem geta lánað bíla sína og
starfað við þessa þjónustu
beðnir að láta skrá sig í
símum 86216 og 82900. Segir
í frétt frá Sjálfstæðisflokkn-
um að sjálfboðaliðar séu
beðnir að láta ekki yfirvof-
andi bensínskort aftra sér frá
því að sinna þessum störfum.
AUGLYSfNGASlMINN KR:
-•m
22480
JHergtinMabtb
Mittisúlpur
Verö frá kr. 6950-
Stærðir 30—34. og S. M. og L.
Myndabolir
Rétt spor í rétta átt.
Sporin í Torgið.
Verð frá kr. 1450-
Stærðir fyrir börn og fullroðna.
Strigaskór
Allar stærðir. Margar gerðir.