Morgunblaðið - 24.05.1978, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ; MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978
13
Borgarsljóri svarar...
Tekið er á móti
fyrirspurnum
til borgarst jóra
í sima 10100
kl. 10-12
mánudaga til
föstudags
Rykbinda
holtið?
Þórunn Benediktsdóttir,
Barónsstíg 61:
Hvers vegna er ekki hægt að
rykbinda Skólavörðuholtið, Bar-
ónsstígsmegin? Við sem búum
beint á móti holtinu erum orðin
langþreytt á að berjast við rykið
sem berst inní íbúðir okkar.
I ofanálag kemur sífellt reyk-
ur mikill frá Templarahöllinni.
Hverju sætir hann, er ekki
hitaveita í húsinu?
SVAR.
Sem svar við annarri fyrir-
spurn svipaðs efnis hef ég skýrt
frá því, að í sumar er ráðgert að
ganga frá göngubrautum frá
Barónsstíg að Hallgrímskirkju
og frá Eiríksgötu við gatnamót
Mímisvegar að Iðnskóla svo og
ræktun meðfram þessum stíg-
um, eftir því sem tími vinnst til.
Á sumrinu 1979 er síðan ætlunin
að fullganga frá ræktunarsvæð-
um með trjágróðri og blómum.
Hitaveita hefur verið tengd í
Templarahöllina, en húseigandi
hefur samt kosið að kynda
áfram með svartolíu. Það er rétt
að af þessu stafar oft mikill
reykur og í tilefni af þessari
fyrirspurn hef ég beint þeim
eindregnu tilmælum til hús-
stjórnar Templarahallarinnar,
að heita vatnið verði sem fyrst
nýtt í stað svartolíunnar.
sem það sætir. Er ekki hægt að
láta borgina eða stofnanir henn-
ar innheimta þetta beint, án
milligöngu húsfélagsins?
Um leið langar mig að spyrja
hvort ekki sé of langt síðan
blokkin, sem er í eigu Reykja-
víkur hérna rétt hjá, var máluð
síðast, það er næstum móðgandi
við íbúana hvernig umhirðu
hennar er háttað.
SVAR.
Við byggingu framkvæmda-
nefndarblokkanna var það
ákvörðun byggjandans að hafa
sameiginlegan hitaveitumæli
fyrir hverja blokk, auk þess sem
sameiginleg rafmagnsnotkun er
á einum mæli. Hins vegar munu
vera sérstakir rafmagnsmælar
fyrir hverja íbúð. Þetta fyrir-
komulag mun raunar vera mjög
algengt í fjölbýlishúsum í borg-
inni.
Það er hins vegar ákvörðun
hvers húsfélags hvernig inn-
heimtu húsgjalda er háttað og
gjöldin geta verið mjög mishá
eftir því t.d. hversu miklum
fjármunum er varið til viðhalds
eða til að standa straum af
sameiginlegum framkvæmdum
íbúanna.
Ábending fyrirspyrjanda um
fjölbýlishúsin að írabakka 2—16
er réttmæt og er þess að vænta,
að unnt reynist að mála húsin
nú í sumar.
Verri
þjónusta?
Hvað kostaði
gróðursetningin?
Tryggvi Hanncsson,
Vallhólma 16:
— Fyrir nokkru vöru sett
niður tré í eyjunni á allri
Breiðholtsbrautinni, þrjú tré við
hvert niðurfall. Tveimur dögum
seinna voru þau öll tekin upp
aftur. Hvað kostaði þetta hringl
með gróðurinn?
SVAR.
Umrædd tré munu hafa verið
sett niður fyrir mistök og án
samráðs við garðyrkjustjóra eða
gatnamálastjóra, sem töldu
staðsetningu trjánna ranga, þar
sem skolast mundi frá rótum
þeirra. Nákvæmar kostnaðartöl-
ur vegna þessa „hringls" liggja
ekki fyrir, en áætla má að þær
nemi 40—50 þús. kr.
Borgin
innheimti?
Ólafía Theódórsdóttir,
Ferjubakka 6:
Ég hef búið í framkvæmda-
nefndarblokk í 10 ár. Höfum við
lengst af þurft að greiða mun
hærri húsgjöld en flestir aðrir
hér í nágrenninu. Hefur t.d.
verið greitt helmingi hærra en
nemur hita og rafmagni, hverju
Guðrún Árnadóttir, írabakka
12:
Á liðnu hausti var breytt leið
11 gegnum Breiðholt I, þar sem
áður var ekið allan hringinn í
hverfinu.en nú er 'aðeins farið
rakleiðis að verzlununum
(Breiðholtskjöri) og til baka. Er
því mun lengra fyrir marga í
vagninn og yfir bersvæði að
fara, erfitt á vetrum. Verður
þessu eitthvað breytt aftur, þar
sem við teljum mörg að um verri
þjónustu sé að ræða?
SVAR.
Við breytinguna á leið 11
vannst tvennt, annars vegar
jókst ferðatíðnin úr 20 mín. í 15
mín. og hins vegar var unnt að
nota sömu leið til aksturs í
Breiðholti II. Má auk þess benda
á, að erfiðara er að tímajafna
með hringakstri en fastri enda-
stöð. Við upphaf og lok vinnu-
dags ekur hins vegar hraðferð
fimm sinnum um Arnarbakka.
Þá ieysir leið 13 nú ákveðínn
vanda þeirra, sem talið var að
verst hefðu orðið fyrir barðinu
á áðurnefndri breytingu, þ.e.
íbúar Stekkjahverfis.
Gönguleið frá írabakka að
endastöð S.V.R. er tæplega
meira en 3—400 m., sem telst
viðunandi.
Með ofangreindri breytingu er
talið að þjónusta við íbúa
Breiðholts I sé almennt betri en
áður var.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
Al (iLVSIN(ÍA
SÍMINN ER:
22480
Bragi
Michaelsen
skrifar:
X-D
í Kópavogi
Það voru tímamót í Kópa-
vogi, þegar Sjálfstæðisflokk-
urinn tók við stjórn bæjarins
(í samstarfi við Framsóknar-
flokkinn) árið 1970. Lögð var
að kröfu Sjálfstæðisflokksins
áherzla á bætta þjónustu við
bæjarbúa. Og hún var stór
lega bætt. Til marks um það
eru nokkrar staðreyndir.
• Hitaveita var lögð í Kópa-
vog á árunum 1973—1975,
en hún sparar Kópavogs-
búum á þessu ári um 900
milljónir króna.
• Varanlegt slitlag var lagt á
25% gatnakerfisins á árun-
um 1976—1977, en það
sparar Kópavogsbúum
ótaldar fjárhæðir í rekstr-
ar- og viðhaldskostnaði
bifreiða.
Sjálfstæðisflokkurinn í
Kópavogi stefnir að fullkom-
inni þjónustu bæjarins við
íbúana. Hann lauk hitaveitu-
verkefninu með sóma, þó að
einn stuðningsmaður hans,
Eggert Steinsen, sem nú er í
framboði fyrir S-listann, væri
reyndar andvígur því. Brýn-
asta verkefni Sjálfstæðis-
flokksins á næsta kjörtímabili
er að halda áfram gatnafram-
kvæmdum, ljúka því verkefni,
svo að hægt sé að sinna
öðrum. Þeir, sem kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn í Kópavogi í
næstu bæjarstjórnarkosning-
um, kjósa áframhaldandi
þjónustu við bæjarbúa þeim
öllum í hag. Þess vegna segja
flestir Kópavogsbúar: X U.
Kaffisala J.C.
Vík á kosninga-
daginn
N.K. sunnudag, 28. maí, þegar
borgarstjórnarkosningarnar fara
fram, efnir J.C. Vík til kaffidrykkju
að hótel Loftleiðum, Víkingasal,
milli 15.—17.
Á þessum degi vill J.C. Vík vekja
athygli á væntanlegu byggðarlags-
verkefni sínu, sem er að stuðla að
bættri tómstundaaðstöðu langlegu-
sjúklinga.
J.C. Vík var stofnað 6. apríl s.l.,
og er eina J.C. félagið á landinu,
sem eingöngu er skipað konum. Én
í J.C. félögum er ungt fólk frá
aldrinum 18—40 ára sem vill
þroska sig í ýmiss konar félags-
störfum svo sem með þátttöku í
námskeiðum í ræðumennsku,
fundarreglum, stjórnþjálfun og
síðast en ekki síst vinnur J.C. að
ýmsum framfaramálum síns
byggðarlags.
Þetta er í fyrsta skipti sem J.C.
Vík lætur að sér kveða og er það
von félagsmanna að sem flestir
borgarbúar notfæri sér þetta tæki-
færi.
Á boðstólum verður kaffi og
heimabakaðar kökur ásamt smurðu
brauði. Hafa félagar J.C. Vík séð
um allan undirbúning og munu
ganga um beina á meðan á
kaffidrykkju stendur.
Eins og getið var um í upphafi
vill J.C. Vík vekja athygli á
væntanlegu byggðarlagsverkefni
sínu, sem er að stuðla að bættri
tómstundaaðstöðu langlegu-
sjúklinga, málefni sem varðar
okkur öll.
✓
1
þinn miói ?
þinn miói ?
þinn miói ?
20. ágúst átt þú þrjá seðla í potti áskrifendaleiksins gerist þú
áskrifandi fyrir næstu mánaðamót. 3 seðla með þínu nafni.
Og símanúmerið verður þú að muna:
27022
Þegar einn þinna seðla hefur verið dreginn út, þarftu að nefna
símanúmer Dagblaðsins hátt og snjallt í viðurvist fógeta.
Hringdu því strax og pantaðu áskrift. Blöðin sem þú færð til
mánaðamóta kosta þig hvort sem er ekki neitt.
Askrifendasíminn er hinn sami: 27022.
Ferðaskrifstofan Sunna sér um ferðina.
&BIABIÐ
Áskrifendasími 27022