Morgunblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978
Varðskipsmenn þinga
um kjaramál sín
Varðskipsmenn halda um þcss-
ar mundir fundi innan starfs-
mannafélaKs síns, þar sem til
Leiðrétting
Á BLS. 48 og 49 í Morgun-
blaðinu í dag eru birtar
myndir frá ýmsum þáttum
borgarlífsins, í texta sem
fylgir með myndunum segir
m.a.: „Hér á síðunni eru
nokkrar svipmyndir af
nokkrum þessara fram-
kvæmda, svo sem af verka-
mannabústöðum í Breiðholti,
sem borgin leggur til...“.
Hér á hins vegar að standa,
„svo sem af verkamannabú-
stöðum í Breiðholti, sem
borgin leggur fé til. Eru
lesendur Morgunblaðsins
beðnir velvirðingar á þessum
mistökum.
I>YRLA Landhelgi.sgæzlunnar
fór í' gær í sjúkrafíug inn í
Esjufjöil í Vatnajökli og sótti
þangað konu, sem hafði meiðst á
fæti.
Björn Jónsson flugmaður hjá
Landhelgisgæziunni sagði, að
konan. sem þeir sóttu, hefði verið
hjúkrunarkona í flokki Hjálpar-
sveitar skáta á leið þvert yfir
Vatnajökul í Kverkfjöll. Kvað
hann Hjálparsveitarflokkinn
hafa gist f skálanum í Esjufjöil-
um í fyrrinótt og lagt af stað á
umræðu er kjarauppbót sú, sem
þeir telja sig hafa verið svipta
fyrir áramót, og hvernig þeir
skuii bregðast við þessari kjara-
skerðingu, sem þeir telja sig hafa
orðið fyrir. Haldnir eru fundir
með áhöfnum einstakra varð-
skipa, en forráðamenn starfs-
mannafélagsins hafa ekki viljað
Miðstjórn-
arfundur ASÍ
á fimmtudag
FUNDUR var í gær haldinn í
10— manna nefnd ASI og þar var
staða kjaramálanna rædd og
hugsanlegar aðgerðir ríkisstjórn-
arinnar til lausnar kjaradeilunni.
Engar ákvarðanir voru teknar á
fundinum um frekari verkfallsað-
gerðir, en ákveðið var að kveðja
saman fullskipaða miðstjórn
Alþýðusambands Islands næst-
komandi fimmtudag.
jökulinn í gærmorgun, en þegar
hópurinn hefði verið staddur
skammt NA af skálanum hefði
konan orðið fyrir óhappinu. í
fyrstu hefði konan ætlað að gera
að sárum sfnum sjálf, en þegar
haft var talstöðvarsamhand við
iækni var ráðlagt að hún yrði
flutt til byggða.
Björn sagði að þeir hefðu farið
með konuna til Hafnar í Horna-
firði þar sem gert hefði verið að
sárum hennar, sfðan hefði hún
fylgt þeim í þyrlunni til Reykja-
víkur.
láta uppi hver niðurstaða funda
þessara hefur verið enda sé ekki
búið að nátil áhafna allra skip-
anna.
Nokkrir fundir hafa verið milli
forráðamanna Starfsmannafélags
Landhelgisgæzlunnar og við-
semjenda þeirra, en ekkert þokast
það í samkomulagsátt. Af hálfu
ríkisins er litið svo á að kjaraupp-
bótin, sem varðskipsmenn nefna
svo, hafi verið áhættuþóknun, sem
einungis gilti meðan þorskastríðið
stóð sem hæst.
Maður með
blæðandi
magasár
sóttur til
Kulusukk
I gær sótti Elíser Jónsson eigandi
Flugstöðvarinnar fullorðinn mann
til Kulusukk á Grænlandi. Var
maðurinn með blæðandi magasár
og þurfti að komast undir læknis-
hendur strax. Elíser hélt til
Grænlands nokkru eftir hádegi í
gær og í för með honum voru
Frosti Sigurjónsson læknir og
hjúkrunarkona. Flugið til Kulu-
sukk og til baka tók '5 klukku-
stundir. Við komuna til Reykjavík-
ur var Grænlendingurinn fluttur
rakleiðis á gjörgæzludeild Borgar-
spítalans, þar sem átti að gera
aðgerð á honum í gærkvöldi.
— Olíulöndunin
Framhaid af bls. 32.
tonn af gasolíu, sem voru í skipinu,
til þess að unnt væri að losa skipið
við olíutanka Skeljungs í Skerja-
firði. Vegna grynninga í Skerja-
firði og hversu djúprist skipið er
með olíuna og bensínið til Skelj-
ungs og bensínið í Hafnarfjörð,
varð að heimila losun olíunnar
áður en skipið færi í Skerjafjörð.
Verða tankarnir, sem olían fer á,
síðan innsiglaðir.
Hins vegar mun Verkamannafé-
lagið Hlíf hafa samþykkt í fyrra-
kvöld, að engin undanþága yrði
gefin vegna olíubannsins.
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
\! LLYSIV. \
SIMINN KK:
22480
Vilhjálmur sagði, að það þýddi, að
magn Olíufélagsins, sem væri um
5.000 tonn af bensíni, yrði ekki
losað og myndi skipið því sjálfsagt
sigla utan með það aftur. „Dags-
brún getur eðlilega ekki veitt leyfi
til þess að fært sé á land hér það
magn, sem Hlíf hefur bannað að
taka á land í Hafnarfirði," sagði
Vilhjálmur Jónsson og bætti við:
„Formaður Hlífar lýsti því yfir
áðan, að þetta væri endanleg
afstaöa og ekki þýddi fyrir mig að
biðja um frekari fundi með þeim.“
Vilhjálmur Jónsson var spurður
að því, hvort þessi afstaða Hlífar
væri ekki hrapalleg fyrir Olíufé-
lagið. Hann svaraði: „Þetta er
hrapallegt fyrir alla aðila að
sjálfsögðu — þjóðfélagslega og
hefur auðvitað áhrif á bensín-
birgðir í landinu.“ Aðspurður
sagði Vilhjálmur að bensínbirgðir
í landinu myndu nú endast senni-
lega til dagsins fyrir alþingis-
kosningarnar eða um það bil, en
kosningahelgin er 25. júní. Vil-
hjálmur kvaðst ekkert hafa heyrt
um komu annars olíuskips en það
átti að vera komið af stað til
landsins. Taldi hann ósennilegt að
Rússarnir sendu skip af stað á
meðan þetta ástand ríkti hér. Það
skip á að koma með bensín. Ef
hins vegar fengist losun á þessum
5 þúsund lestum af bensíni, sem
Olíufélagið h.f. á, myndu bensín-
birgðir duga fram til 10. júlí eða
þar um bil.
Morgunblaðinu barst í gær
fréttatilkynning frá Verkamanna-
félaginu Dagsbrún, þar sem segir
að félagið telji sig ekki standa í
deilum við almenning í landinu og
vilji því ekki á þessu stigi málsins
beita aðgerðum, sem bitnuðu jafn
harkalega á almenningi og mundi
verða ef landið yrði bensínlaust í
langan tíma. Frétt Dagsbrúnar er
svohljóðandi:
„Eftir að verkalýðsfélögin höfðu
framlengt olíubann sitt til 15. júní
n.k. var það yfirlýst frá olíufélög-
unum, að þau ættu birgðir af
bensíni fram í júnímánuð.
Hins vegar þegar olíuskip kom
með bensínfarm fyrir nokkrum
dögum til íslands, upplýstu olíu-
félögin, að bensínbirgðir þeirra
þrytu í þessari viku. Fulltrúar
Dagsbrúnar hafa kynnt sér ástand
þessara mála og gengið úr skugga
um að seinni upplýsingar olíufé-
laganna um bensínbirgðir eru
réttar. Einnig hafa fulltrúar
Dagsbrúnar sannreynt að ef það
skip, sem hér liggur með bensín-
farm fær ekki afgreiðslu þá siglir
það af landi brott eigi síðar en 25.
maí og þá er augljóst, að landið
verður bensínlaust í þrjár vikur til
mánuð.
Verkamannafélagið Dagsbrún
telur sig ekki siðferðilega skuld-
bundið að veita olíufélögunum
neina undanþágu þar sem þau sem
aðilar í samtökum atvinnurekenda
hafa neitað að ganga að sann-
gjörnum kröfum verkalýðsfélag-
anna um að verkafólk fái að búa
við óskerta samninga. Hins vegar
er Dagsbrún ljóst, að algjört
bensínleysi í heilan mánuð myndi
bitna mjög harkalega á öllum
almenningi oog hefur því
trúnaðarmannaráð félagsins
ákveðið á fundi sínum í dag að
heimila losun á því bensíni, sem
átti að fara í land í Reykjavík.
Verkamannafélagið Dagsbrún
telur sig ekki standa í deilum við
almenning í landinu og vill því
ekki á þessu stigi málsins beita
aðgerðum, sem bitnuðu jafn
harkalega á almenningi og mundi
verða ef landið yrði bensínlaust í
langan tíma.“
Morgunblaðið reyndi í gær að ná
tali af Hallgrími Péturssyni,
formanni Verkamannaféiagsins
Hlífar í Hafnarfirði, til þess að
spyrja um afstöðu Hlífar í þessu
máli, en það tókst ekki.
— Nýbygging
Framhaid af bls. 32.
1200 1/sek. með sjálfrennsli, en
með dælingu má síðar auka
flutningsgetuna um 30—40%.
Árið 1976 tók til starfa dælustöð
við Eiríksgötu, sem tryggir nægan
vatnsþrýsting á Skólavörðuholti
og á næsta hausti verða hafnar
framkvæmdir við dælustöð á
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Ég er orðinn 16 ára. Finnst yður ég ekki vera nógu gamall
til þess að ákveða sjáifur. hvað ég vil? Ég er orðinn leiður
á því að láta pabba og mömmú sífeilt stjórna mér.
Þar sem þú ert orðinn 16 ára, ættirðu að geta tekið
sumar ákvarðanir sjálfur, en ekki allar. Biblían segir:
„Hlýð þú, son minn, á áminning föður þíns og hafna
eigi viðvörun móður þinnar" (Orðskv. 1,8).
Þið foreldrar ykkar ættuð að setjast niður og ræða
þessi vandamál í ró og næði. Þau þurfa að gera sér
grein fyrir, að tími er til þess kominn, að þú farir að
standa að nokkru leyti á eigin fótum. Þau eiga að
stuðla að því, að þú þroskist og verðir sjálfstæður,
fullorðinn maður. Skrifaðu á blað, hvaða aðstæður það
eru, sem sífellt valda misklíð. Reyndu að fá foreldra
þína til að leyfa þér að ráða sjálfur í sumum þessum
málum. Ef þau fallast á það, skaltu sýna þeim, með
ráðabreytni þinni, að þau megi treysta dómgreind
þinni.
Svo lengi sem foreldrar þínir leggja eitthvað fram
þér til framfærslu, hafa þau fullan rétt til þess að
setja þér einhverjar reglur og til að ætlast til þess,
að þú farir eftir þeim.
Það er miklu auðveldara að komast að samkomu-
lagi, ef þú leitar ráða og vizku hjá Guði, þegar þú
fjallar um þessa erfiðleika. Þið þurfið að biðja fyrir
þessu, þú og foreldrar þínir. Með Guðs hjálp komizt
þið að niðurstöðu, sem mun að nýju efla frið og
hamingju á heimilinu.
Óhlýðni við foreldra er ein helzta orsök afbrota
meðal ungs fólks. Guð hefur heitið að heiðra þá, sem
hlýða foreldrum sínum.
Þyrla Gæzlunn-
ar 1 sjúkraflug
1 Esjufjöll
Hraunbrún, norðan nýja skeiðvall-
arins, fyrir Breiðholt. Dælustöðin
mun ekki taka til starfa fyrr en
haustið 1979, en öryggi dælingar
til Breiðholts verður á meðan
tryggt sem frekast er unnt með
varadælum og vararafstöð, en
vatnsleysi í hæsta hluta Breiðholts
á rætur að rekja til rafmagnstrufl-
ana við Gvendarbrunna og í
dælustöð við Elliðaárnar, sem nýja
stöðin á Hraunbrún leysir af'
hólmi.
„Næsta stórverkefni vatnsveit-
unnar verður svo Gufunesið, þegar
það fer að byggjast," sagði Þórodd-
ur Th. Sigurðsson. „Þar höfum við
ekkert fyrir, þannig að þetta
verður geysimikið verkefni, þannig
að vonandi verðum við búnir með
framkvæmdir í Heiðmörkinni og
það sem þarf að gera í gömlu
byggðinni, þegar að Gufunesinu
kemur."
Það sem þarf að gera í gömlu
byggðinni sagði Þóroddur vera
lagfæringar „á nokkrum flösku-
hálsum í kerfinu", m.a. í Sogavegi
og tengingar m.a. í Fossvogi og
Blesugróf.
Þegar Mbl. spurði Þórodd hvað
vatnskerfi borgarinnar væri langt,
sagði hann, að það sem vatnsveit-
an á væru um 320 kílómetrar og
heimæðar eru annað eins, þannig
að vatnskerfið allt er 6—700
kílómetrar.
— Enn finnast
tuttugu lík
Framhald af bls. 1
en talið er að 350 úr liði innrásar-
manna hafi fallið.
Belgíska stjórnin var harðlega
gagnrýnd í belgíska þinginu fyrir
að hafa ekki sent lið til bjargar
hvítum mönnum í Kolwezi nógu
snemma. Kom til mjög harðvít-
ugra umræðna um þetta í þinginu
og var stjórninni aö nokkru kennt
um að svo margir hvítir menn
skyldu h^fa látið lífið sem raun
ber vitni. Þá hefur Mobutu forseti
Zaire heitið því að enginn dipló-
mat frá Zaire eða nokkur annar
fulltrúi þess ríkis, allra sízt hann
sjálfur, muni nokkurn tíma í
framtíðinni virða Henri Simonet
utanríkisráðherra Belgíu viðlits,
en Mobutu telur að Simonet hafi
staðið í vegi fyrir ósk Zaire um
vopnaða aðstoð frá Belgíu þegar í
upphafi innrásarinnar.
I umræðunum í belgíska þinginu
voru látnar í ljós miklar áhyggjur
vegna öryggis belgískra borgara í
Zaire en þar munu vera um 30
þúsund Belgíumenn, flestir tækni-
menn, læknar, kennarar og aðrir
sérfræðingar.
Franska blaðið Le Monde hefur
það eftir frönskum tæknimanni í
Kolwezi í dag, að stór hluti
íbúanna í bórginni hafi stutt
innrásarliðið frá upphafi.
Innrásarliðið skildi eftir í aðal-,
stöðvum sínum í Kolwezi skjöl og
ýmsan búnað sem nú er til
athugunar hjá her Zaire stjórnar.
Talið er víst að innrásin hafi verið
þaulundirbúin með löngum fyrir-
vara og að í borginni hafi tekið á
móti innrásarliðinu vopnað iið
stuðningsmanna. í skjölum liðsins
er einnig talið að komi fram að
skipulögð morð á hvítum mönnum
í borginni hafi hafizt þegar á
fyrsta degi innrásarinnar.
Atvinnulíf er enn lamað í
Kolwezi og hætta er talin á að
drepsóttir breiðist út, þar sem enn
liggja lík á götum í brennheitri
sólinni. Ljóst þykir að náma-
vinnsla í Shaba-héraði geti ekki
hafizt fyrr en eftir nokkra mánuði,
en námagröfturinn þar er undir-
stöðuatvinnuvegur landsins. Starf-
semi þessi hefur að miklu leyti
byggzt á útlendum sérfræðingum
sem nú hafa verið drepnir eða
fluttir burt. Mobutu Sese Seko
forseti Zaire kom í dag til Parísar
til að sitja síðasta fund ráðstefnu
fyrrverandi nýlendna Frakka í
Afríku. Bongo forseti Gabon og
formaður ráðstefnunnar sagði í
dag að ljóst væri nú að þörfin á
sameiginlegu öryggiskerfi Afríku-
ríkja færi sífellt vaxandi. Hugsan-
legt er talið að komið verði á fót
litlu gæzluliöi frá mörgum Afríku-
ríkjum til að hafa eftirlit með
ástandinu í Shaba-héraði í Zaire.