Morgunblaðið - 24.05.1978, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978
19
Chaplin
grafinn á
ný í gær
Corsier-sur-Vevey, Sviss
— 23. maí. AP.
JARÐNESKUM leifum leikarans
Charles Chaplin var komið fyrir
í rammgerðri grafhvelfingu í
dagrenningu í morgun. Gröfin er
þar sem Chaplin var upphaflega
jarðsettur. Greftrunin í mogun
fór fram með leynd og í kyrrþey,
og voru ekki aðrir viðstaddir en
ekkja Chaplins, nokkur barna
hennar og fulltrúar hins opin-
bera.
Líki Chaplins var rænt í byrjun
marz, en Ieikarinn lézt um síðustu
jól. Að sögn grafarans, sem
uppgötvaði hvarf kistunnar á
sínum tíma, hefur nú verið gengið
svo tryggilega frá gröfinni, að ekki
er hægt að rjúfa hana nema með
loftpressu.
— íþróttir
Framhald af bls. 31.
þessu sinni. Atli og Albert voru
mjög sterkir á miðjunni og Arnór
Guðjohnsen ógnaði sífellt með
hraða sínum og leikni og gekk
varnarmönnum úrvalsins illa að
ráða við hann. Ingi Björn Alberts-
son lék með unglingaliðinu i
þessum leik og var góður. Hann
kom í stað Guðmundar Þorbjörns-
sonar, sem ekki gefur kost á sér í
landsleikinn við Norðmenn vegna
prófa. _____ — ÞR/SS
— „Þessari kyn-
slóð ekki
fyrirgefið
Framhald af bls. 1
fræðinga til að rannsaka gaum-
gæfilega allar leiðir í afvopnunar-
málum og takmörkun vopnabún-
aðar.
Margir þjóðarleiðtogar og ráða-
menn eru komnir til afvopnunar-
fundarins, en fundarstjóri í dag
var aðstoðarutanríkisráðherra
Júgóslavíu, Lazar Mojsov, en hann
er núverandi forseti allsherjar-
þingsins. Fyrsti ræðumaður að
loknu máli Waldheims var forsæt-
isráðherra Júgóslavíu, Veselin
Djuranovic, Hann lagði á það
áherzlu að ráðstefna þessi gæfi
mannkyni einstakt tækifæri til að
koma afvopnunarmálum á rekspöl
og komandi kynslóðir myndu ekki
fyrirgefa þessari kynslóð ef það
mistækist.
Meðal þeirra sem síðar ávarpa
ráðstefnuna eru Gicard d'Estaing
Frakklandsforseti, Schmidt kanzl-
ari V-Þýzkalands, Mondale vara-
forseti Bandaríkjanna, Callaghan
forsætisráðherra Bretlands og
Gromyko utanríkisráðherra
Sovétríkjanna.
— Við viljum
Framhald af bls. 22.
Við viljum efla
mannlega þáttinn
Við sjálfstæðismenn viljum efla
mannlega þáttinn og hafna t.d. því
eins og nú er komið hjá bæjarsjóði
Vestmannaeyja að tölvur stjórna
orðið öllu. Við viljum auka sam-
band almennings og þeirra sem
fara með stjórn bæjarmála, auka
áhuga og forvitni bæjarbúa á því
hvernig peningar þeirra eru notað-
ir. Við viljum byggja upp okkar
bæjarfélag með áræði og festu,
með það mannlega í kili og vonum
að bæjarbúar taki höndum saman
við okkur. Við höfum hér lauslega
minnst á helztu baráttumál okkar,
því að á mörgu þarf að taka. Okkar
markmið er að fá meirihluta í
bæjarstjórn með kjöri Sigurgeirs
Ólafssonar stýrimanns sem skipar
5. sæti lista okkar. Við viljum
starfandi sjómann í bæjarstjórn,
við viljum rífa stöðu bæjarmála í
Vestmannaeyjum upp úr því feni
sem hún liggur í. Slíkt er unnt ef
Eyjabúar hjálpast að og sýna að
þeir vilji láta taka ákveðið á
málunum með því að kjósa sjálf-
stæðismenn til áhrifa í bæjar-
stjórn.
— Lestur bréfa
Framhald af bls. 2
dæmum um rit&koðun af þessu
tagi, þar á meðal einu islenzku.
Eg gæti auðveldlega staðfest
ummæli mín í Stapa nánar en á
þessu stigi þykir mér rétt að skýra
aðeins frá vissu okkar í þessum
efnum og benda á bók Med-
vedjef-bræðra."
Guðmundur sagði, að Vladimir
Jakúb hefði haft einhver sam-
skipti við íslenzka námsmenn í
Moskvu áður, en kvaðst ekki vita
um þau nú. „Enda vita flestir
Islendingar um þetta."
Guðmundur kvaðst ekki vita til
þess að námsmenn hefðu haft orð
á þessari ritskoðun við starfsmenn
sendiráðs Islands í Moskvu eða
utanríkisráðuneytið hér. „Minn
tilgangur með því að skýra frá því
að Vladimir Jakúb hefði þann
starfa að lesa bréf til og frá
íslenzkum námsmönnum í Moskvu
var fyrst og fremst sá að sýna
fram á að við íslenzkir sósíalistar
teljum það ekki okkar hlutverk að
verja glæpsamlegt athæfi sov-
ézkra stjórnvalda," sagði Guð-
mundur Ólafsson.
— Hafnargerð
Framhald af bls. 2
inn á að verða fullgerður í árslok
1979.
I Grafarvogi er fyrirhuguð
sérstök starfsemi, afgreiðsla alls
konar efnisvöru og fjórða svæðið í
Sundahöfn er svo Klettssvæðið,
sem er stærsta einstaka fram-
kvæmdin, en kostnaðaráætlun
fyrir landfyllingu og viðlegur þar
hljóðar upp á 1400 milljónir króna
á verðlagi í árslok 1977.
Auk þess er svo rétt að geta þess
að nú er verið að gera hagkvæmn-
isathugun í sambandi við aðstöðu
til skipasmíða og viðgerða og mun
þeirri athugun örugglega ljúka á
þessu ári. Þá verður hægt að taka
afstöðu til þess hvort tímabært sé
að ráðast í framkvæmdir á þessu
sviði. Jafnframt hefur hafnar-
stjórn falið hafnarstjóra að gera
úttekt á möguleikum varðandi
olíuhöfn, en hvar sem hún kann að
koma á svæði Reykjavíkurhafnar,
þá er þetta eitt af þeim málum,
sem brýnt er að taka til athugun-
ar.
Ég vil svo geta þess í lokin,"
sagði Ólafur B. Thors, „að Reykja-
víkurhöfn er eina höfn landsins
sem ekki nýtur framlags ríkissjóðs
til nýbygginga og byggist því upp
fyrir eigið fjá'rmagn og lánsfé, en
á í vaxandi samkeppni við ná-
grannahafnir sem njóta 75%
ríkisstyrks til framkvæmda."
— Sýni hvorki
miskunn né...
Framhald af bls. 1
eða þykjast ekki vita að lýðræðis-
leg starfsemi verður að vera reist
á heiðarleika og þeim grundvallar-
atriðum sem þjóðfélagið byggir á“,
sagði Sadat í hinni harkalegu árás
sinni á andstöðuflokka til hægri og
vinstri.
Blaðamönnum sagði Sadat að
þeirra hlutverk væri að segja
egypzku þjóðinni frá staðreyndum
á skýran og skilmerkilegan hátt án
allra tilrauna til að villa um fyrir
fólkinu. í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni var m.a. ákveðið að blaða-
menn ættu í framtíðinni að hafa
í huga þrjú markmið: þjóðarein-
ingu, frið innan lands og óumflýj-
anleika hinnar sósíalísku bylting-
ar.
Öllum kommúnistum var bann-
að að skrifa i blöð í landinu eða
tímarit og jafnframt verður þeim
ekki heimilt að starfa hjá öðrum
fjölmiðlum, gegna háttsettum em-
bættum eða vera ráðandi i verka-
lýðs- eða stéttarfélögum.
Sadat var í dag valinn stjórn-
málamaður ársins af blaðint
Diplomatic World Bulletin sem er
gefið út af starfsmönnum og
sendinefndum hjá Sameinuðu
þjóðunum.
— Kóreu-
samningar?
Framhald af bls. 1
ríkjanna í eðlilegt horf, sem þýðir
meðal annars að komið yrði á fullu
stjórnmálasambandi. Haft er eftir
áreiðanlegum heimildarmönnum í
utanríkisráðuneytinu í Tókýó, að
ýmis ágreiningsatriði séu enn
fyrir hendi, sem standi í vegi fyrir
slíku sambandi Bandaríkjanna og
Kína, m.a. sú krafa Pekingstjórn-
arinnar að Bandaríkjamenn segi
skilið við stjórnina á Formósu.
Greinilegt er að kínverskum
ráðamönnum hafa fallið vel um-
mæli Brzezinskis varðandi áhuga
Carters forseta á að koma á
stjórnmálasambandi, ekki sízt þar
sem öryggismálaráðgjafinn var
um leið harðorður í garð Sovét-
stjórnarinnar. Er það mál manna,
bæði í Peking og Tókýó, að í
Peking-heimsókninni hafi
Brzezinski verulega stuðlað að
sáttum stjórna Kína og Bandaríkj-
anna.
— Stykkishólmur
Framhald af bls. 25
munu Stykkishólmur og Snæfells-
nes í heild njóta framsýni þeirra,
sem í framkvæmdirnar réðust
upphaflega og þeirra, sem stýrðu
lokaáfánganum í höfn. 26 tveggja
manna herbegi gefa ekki eftir því
sem best gerist á nýtízku hótelum
og í tengslum við hótelið er
félagsheimilið, svo glæsileg vistar-
vera að aðkomumenn setur hljóða.
Kjartan Lárusson forstjóri Ferða-
skrifstofu ríkisins hefur verið
Hólmurum mjög hjálplegur og
útvegað hótelstjóra, Guðrúnu Þor-
steinsdóttur, sem í sumar mun
reka hótelið eins og Edduhótelin
hafa verið rekin undanfarin ár
með góðum árangri. Með tilkomu
hótelsins er komin frábær aðstaða
fyrir innlenda og erlenda ferða-
menn, sem vilja skoða náttúruund-
ur Snæfellsness og Breiðafjarðar.
Stykkishólmshreppur er aðaleig-
andi hótelsins.
Um helmingur allra gatna hefur
á sl. 3 árum verið lagður bundnu
slitlagi og varð gerbreyting á
bæjarliðfinu við það. Verið er að
ljúka við lengingu flugbrautarinn-
ar í 1000 metra og unnið að því að
fá 200 metra til viðbótar. Gamall
Hólmari og áhugamaður um þessi
mál, Jóhann Rafnsson, hefur í
hálfgerðri sjálfboðavinnu verið
opinber talsmaður Hólmara í
þessu máli. Einnig verður á
næstunni gengið frá öryggisbún-
aði, ljósum og radíóvita. Aætlun-
arflug Vængja 5 sinnum í viku
hefur haft byltingu í samgöngum
í för með sér. Verið er að ljúka við
dvalarheimili aldraðra og heil-
brigðismálum er vel borgið í
höndum systra St. Francisregl-
unnar. Unnið er að gerð íþrótta-
vallar, að könnun möguleika á
hitaveitu eða kyndistöðvar fyrir
bæinn og í nýju 450 íbúa hverfi er
það skilyrði fyrir byggingaleyfi að
húsin verði byggð til að taka við
slíkri veitu. Hafnarbætur eru
einnig á dagskrá og raunar yrði
alltof langt mál að telja upp öll
þau framfaramál, sem Hólmarar
vinna að af atorku.
Með áskrift að Vísi færðu fréttir
dagsins glóðvo/gar í gegnum lúguna
til lesturs þegar þér hentar, hvort
sem þú ert heimavinnandi eða grípur
til hans þegar heim kemur að
loknum vinnudegi.
Áskrift er ekki aðeins þægilégri fyrir
þig, heldur einnig hagkvæmari auk
þess að gefa glæsilega vinningsvon.
1. júní verður dreginn út Simca GLS frá
Chryslerí áskrifendagetraun Vísis, léttum
og skemmtilegum leik,sem þú tekur
að sjálfsögðu þátt í gerist þú áskrifandi.
SANNAÐU TIL, MED ÁSKRIFT Á TTU
STÓRKOSTLEGA VINNINGSVON OG FÆRÐ
FRÉTTIR DAGSINS FRÁ FYRSTU HENDI,
íGEGNUM LÚGUNA. Síminn er 8 66 11.
ÍGEGNUM
LÚGUNA!