Morgunblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978
21
Forset-
inn tapaði
Santo Domingo, 23. maí. Reuter.
ALLAR horfur voru é Því í kvöld aö
Antonio Guzman, mótframbjóðandi
Balaguers forseta, hefði borið sigur-
orð af forsetanum í forsetakosning-
unum í landinu, en talning atkvæða
hófst að nýju í gær eftir að herinn
hafði stöðvað talninguna í nokkra
daga.
Herinn greip í taumana í síðustu viku
þegar Ijóst var orðið að Guzman hefði
hlotið mikinn meirihluta atkvæða.
Óvíst er nú hvað tekur við og yfirmenn
hersins munu á tveimur áttum um það
hvort til skarar eigi aö láta skríða.
Guzman hefur þegar lýst sig sigurveg-
ara, en ekkert hefur enn heyrzt frá
Balaguer forseta.
Þettajgerðist 24. maí
VEÐUR
inða, um heim
Amsterdam 18 skýjað
AÞena 25 heiðskírt
Berltn 20 rigning
Brtlssel 13 skýjað
Chicago 19 rigning
Frankfurt 19 rigning
Genf 12 skýjað
Helsinki 17 heiðskýrt
Jóhannesarb. 19 sólskin
Kaupm.höfn 23 skýjað
Lissabon 18 heiðskirt
London 17 sólskin
Los Angeles 23 skýjað
Madrid 15 rigning
Malaga 17 skýjað
Miami 29 skýjað
Moskva 14 sólskin
New York 27 heiðskírt
Ósló 19 skýjað
Palma 21 léttskýjað
París 15 skýjað
Róm 21 heiðskírt
Stokkhólmur 19 sólskin
Tel Aviv 26 heiöskírt
Tókýó 24 heiöskírt
Vancouver 14 sólskin
Vínarborg 26 skýjað
Það leikur ekki vafi á því hver móðirin er, en hvernig ætli það sé
með faðernið?
yyNiður með kommún-
ismann,, í Búlgaríu
Vínarborg — 23. maí — AP.
FREGNIR hafa borizt af því að
um hvítasunnuhelgina hafi liig-
reglan í Sófiu, höfuðborg Búlgar
íu. króað af svæði í miðborginni
eftir að borði einn mikill með
áletruninni „Niður með kommún-
ismann“ hafði verið látinn falla
af þaki háhýsis í miðborginni.
Um leið var dreift seðlum meðal
vegfarenda með svipuðum boð-
skap.
Svo virðist sem upphafsmenn
þessara mótmæla, sem eru vægast
sagt óvenjuleg í landinu, hafi
sloppið óséðir. Atburðurinn á að
hafa gerzt á torgi því í miðborg-
inni er húsakynni löggjafarsam-
kundu landsins eru við. Fregn
þessi er komin eftir krókaleiðum
og barst austurríska sjónvarpinu í
gær frá fréttaritara þess í Júgó-
slavíu.
1977 — Podgorny forseta vikið
úr stjórnmálaráðinu.
1976 — Concorde-flug til
Washington hefst.
1973 — Mótmæli í Reykjavik
gegn stefnu Breta í iandhelgis-
deilunni.
1973 — Bandaríkjamenn og
Rússar ákveða að senda banda-
ríska og sovézka út í geiminn í
sameiningu 1975.
1968 — Tíu milljón verkfalls-
menn lama Frakkland og De
Gaulle bjargar stjórn sinni með
umbótum.
1%7 — Framkvæmdastjóri SÞ,
U Thant fer frá Kaíró og
striðshætta vofir yfir í Miðaust-
urlöndum.
1%4 — 300 bíða bana í óeirðum
við knattspyrnuleik í Líma,
Perú.
1962 — Scott Carpenter fer þrjá
hringi um jörðu og verður annar
bandaríski geimfarinn.
1941 — „Bismarck" sekkur
„Hood“ nálægt íslandi.
1900 — Bretar innlima óran-
íu-fríríkið í Suður-Afríku.
1639 — Fyrra biskupastríðið
hefst með bardaganum við
Turniff í Skotlandi.
1625 — Hollendingurinn Peter
Minuit kaupir Manhattan-eyju
af Indíánum fyrir glingur að
verðmæti rúmar sex þúsund
ísi.kr.
1612 — Danir taka Elfshorg og
Gullberg af Svíum í Kalmar-
stríðinu.
Innlentt Kolbeinn Auðkýlingur
1309 — D. Sig. biskup Stefáns-
son 1790.
Afmæli dagsins, William Gil-
bert, enskur vísindamaður
(1544—1603) — Jean-Paul Mar-
at, franskur byltingarmaður
(1743-1793) - Viktoría Eng-
landsdrottning (18*9—1901) —
Sir Arthue Wing Pinero, brezk-
ur leikritahöfundur
(1855—1934) — Jan Christiaan
Smuts, suður-afrískur stjórn-
skörungur (1870-1950) - Bob
Dylan, bandarískur söngvari.
Orð dagsinst Allir eru snillingar
— að minnsta kosti einu sinni á
ári — Georg Christoph Lichten-
berg, þýzkur eðiisfræðingur
(1742-1799).
Gerðu áhlaup á vígi
Mengitus í Eritreu
Róm — 23. maí — Reuter.
Aðskilnaöarsinnar í Erítreu segj-
ast hafa gert áhlaup á bæinn
Barentu, sem er eitt af fjórum
vígjum, sem stjórnarherinn í
Eþíópíu hefur enn á valdi sínu í
héraðinu. Aö sögn málsvara aö-
skilnaðarsinna er hart barizt í
bænum, en tvær fylkingar aöskiln-
aöarsinna, ELF og EPLF, sameinuð-
ust í pessari árás. Þá er haft eftir
áreiðanlegum heimildum aö hér sé
um að ræða undanfara meiri
tíðinda, og sé Þess skammt aö bíða
aö aöskilnaðarsinnar láti til skarar
skríða í Asmara, helztu borg í
Erítreu, og freisti pess að ná henni
úr höndum stjórnarhersins.
Þær tvær borgir aðrar, sem
stjórnarherinn hefur á valdi sínu, eru
hafnarborgirnar Massawa og Assab
viö Rauða hafið, en herforingjástjórn-
in í Addis Abeba nýtur sem kunnugt
er forsjár Sovétmanna. Af hálfu
beggja fylkinganna, ELF og EPLF,
kemur fram að Kúbumenn annist
þjálfun stjórnarhermanna í Asmara
og Massawa, en á hinn bóginn
segjast talsmenn aðskilnaðarsinna
ekki haf öruggar heimildir fyrir því að
Kúbumennirnir taki beinan þátt í
bardögum með stjórnarhernum á
þessum stöðum.
Merkingarfræðileg
hryðjuverkastarfeemi
Nýlega birtist í Die Welt
grein, þar sem umtalsefnið er
sú hlið hryðjuverkastarfsemi,
sem bitnar ekki beint á fórnar-
lömbum eins og til dæmis Aldo
Moro, heldur fréttamönnum og
almenningi. Þetta mætti nefna
„merkingarfræðilega hryðju-
verkastarfsemi", en hún felst í
þeim lævísa áróðri að
rangnefna hugtök og hluti.
Allir kannast við yfirlýsingar
Rauðu herdeildarinnar um að
Aldo Moro hafi verið „fluttur í
alþýðufangelsi" þar sem hann
„beið þess að koma fyrir rétt“ og
átti „yfir höfði sér dauðadóm og
aftöku“, og loks var „dauða-
dómnum, sem upp var kveðinn
fullnægt.“
Þetta er orðalagið, sem
ítalska glæpaklíkart-, öðru nafni
„Rauða herdeildin", notar í
orðsendingum sínum, en frétta-
menn bíta síðan unnvörpum á
agnið, og nota það í frásögnum
sínum. Alþjóðlegar fréttastofur
taka þetta síðan í mjög miklum
mæli sem góða og gilda vöru, og
er þá ekki að sökum að spyrja,
— fréttaskeytin eru þýdd á allra
þjóða tungumál og þannig berst
boðskapur hryðjuverkamanna
með leifturhraða um víða ver-
öld.
Á þennan hátt fá morð og
önnur ofbeldisverk nokkurs kon-
ar „gæðastimpil" þegar yfir þau
eru notuð orð eins og „aftaka",
ræningjabæli verður að alþýðu-
fangelsi" og það sem í rauninni
eru pyntingar verður að „réttar-
aðgerðum", svo dæmi séu nefnd.
Óhjákvæmileg afleiðing þessa
tungutaks, sem fjölmiðlar éta
upp eftir hryðjuverkamönnum,
verður svo sú að almenningur
venst því smátt og smátt, og
með þessum sama hætti, segir í
Die Welt, hafa einræðisveldi
hlotið hina hljómfögru nafngift
„Alþýðulýðveldi" og morðingja-
sveitir fá sæmdarheitið
„Frelsishreyfingar."
Völundar útihuróir
Fallegar útihuröir setja ekki hvað síst svip á húsið
og Völundar útihurð getur gjörbreytt útliti hvaða
húss sem er.
Timburverslunin Völundur hefur 70 ára reynslu í
smíði hurða og hefur jafnan fylgt þeim sveiflum,
sem orðið hafa í hurðasmíði undanfarin ár.
Massifar Völundar útihurðir úr teak og furu eru
framleiddar úr bestu efnum, sem völ er á og mikil
áhersla lögð á vandaða vinnu, góða þjónustu og
eingöngu fullkomnustu vélar notaðar til framleiðsl-
unnar.
Hinar viðurkenndu Assa skrár og lamir eru í öllum
hurðum frá Völundi.
Vandaðu val útihurðar á hús þitt, það er mikilvægt
vegna heildarútlits.
„Valin efni, vönduð smíð“ hafa verið einkunnarorð
Völundar í mörg ár og gildir það um alla fram-
leiðslu.
<áTá Timburverzlunin
v Volundur hf.
KLAPPARSTIG 1, SIMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244