Morgunblaðið - 24.05.1978, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 24.05.1978, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978 21 Forset- inn tapaði Santo Domingo, 23. maí. Reuter. ALLAR horfur voru é Því í kvöld aö Antonio Guzman, mótframbjóðandi Balaguers forseta, hefði borið sigur- orð af forsetanum í forsetakosning- unum í landinu, en talning atkvæða hófst að nýju í gær eftir að herinn hafði stöðvað talninguna í nokkra daga. Herinn greip í taumana í síðustu viku þegar Ijóst var orðið að Guzman hefði hlotið mikinn meirihluta atkvæða. Óvíst er nú hvað tekur við og yfirmenn hersins munu á tveimur áttum um það hvort til skarar eigi aö láta skríða. Guzman hefur þegar lýst sig sigurveg- ara, en ekkert hefur enn heyrzt frá Balaguer forseta. Þettajgerðist 24. maí VEÐUR inða, um heim Amsterdam 18 skýjað AÞena 25 heiðskírt Berltn 20 rigning Brtlssel 13 skýjað Chicago 19 rigning Frankfurt 19 rigning Genf 12 skýjað Helsinki 17 heiðskýrt Jóhannesarb. 19 sólskin Kaupm.höfn 23 skýjað Lissabon 18 heiðskirt London 17 sólskin Los Angeles 23 skýjað Madrid 15 rigning Malaga 17 skýjað Miami 29 skýjað Moskva 14 sólskin New York 27 heiðskírt Ósló 19 skýjað Palma 21 léttskýjað París 15 skýjað Róm 21 heiðskírt Stokkhólmur 19 sólskin Tel Aviv 26 heiöskírt Tókýó 24 heiöskírt Vancouver 14 sólskin Vínarborg 26 skýjað Það leikur ekki vafi á því hver móðirin er, en hvernig ætli það sé með faðernið? yyNiður með kommún- ismann,, í Búlgaríu Vínarborg — 23. maí — AP. FREGNIR hafa borizt af því að um hvítasunnuhelgina hafi liig- reglan í Sófiu, höfuðborg Búlgar íu. króað af svæði í miðborginni eftir að borði einn mikill með áletruninni „Niður með kommún- ismann“ hafði verið látinn falla af þaki háhýsis í miðborginni. Um leið var dreift seðlum meðal vegfarenda með svipuðum boð- skap. Svo virðist sem upphafsmenn þessara mótmæla, sem eru vægast sagt óvenjuleg í landinu, hafi sloppið óséðir. Atburðurinn á að hafa gerzt á torgi því í miðborg- inni er húsakynni löggjafarsam- kundu landsins eru við. Fregn þessi er komin eftir krókaleiðum og barst austurríska sjónvarpinu í gær frá fréttaritara þess í Júgó- slavíu. 1977 — Podgorny forseta vikið úr stjórnmálaráðinu. 1976 — Concorde-flug til Washington hefst. 1973 — Mótmæli í Reykjavik gegn stefnu Breta í iandhelgis- deilunni. 1973 — Bandaríkjamenn og Rússar ákveða að senda banda- ríska og sovézka út í geiminn í sameiningu 1975. 1968 — Tíu milljón verkfalls- menn lama Frakkland og De Gaulle bjargar stjórn sinni með umbótum. 1%7 — Framkvæmdastjóri SÞ, U Thant fer frá Kaíró og striðshætta vofir yfir í Miðaust- urlöndum. 1%4 — 300 bíða bana í óeirðum við knattspyrnuleik í Líma, Perú. 1962 — Scott Carpenter fer þrjá hringi um jörðu og verður annar bandaríski geimfarinn. 1941 — „Bismarck" sekkur „Hood“ nálægt íslandi. 1900 — Bretar innlima óran- íu-fríríkið í Suður-Afríku. 1639 — Fyrra biskupastríðið hefst með bardaganum við Turniff í Skotlandi. 1625 — Hollendingurinn Peter Minuit kaupir Manhattan-eyju af Indíánum fyrir glingur að verðmæti rúmar sex þúsund ísi.kr. 1612 — Danir taka Elfshorg og Gullberg af Svíum í Kalmar- stríðinu. Innlentt Kolbeinn Auðkýlingur 1309 — D. Sig. biskup Stefáns- son 1790. Afmæli dagsins, William Gil- bert, enskur vísindamaður (1544—1603) — Jean-Paul Mar- at, franskur byltingarmaður (1743-1793) - Viktoría Eng- landsdrottning (18*9—1901) — Sir Arthue Wing Pinero, brezk- ur leikritahöfundur (1855—1934) — Jan Christiaan Smuts, suður-afrískur stjórn- skörungur (1870-1950) - Bob Dylan, bandarískur söngvari. Orð dagsinst Allir eru snillingar — að minnsta kosti einu sinni á ári — Georg Christoph Lichten- berg, þýzkur eðiisfræðingur (1742-1799). Gerðu áhlaup á vígi Mengitus í Eritreu Róm — 23. maí — Reuter. Aðskilnaöarsinnar í Erítreu segj- ast hafa gert áhlaup á bæinn Barentu, sem er eitt af fjórum vígjum, sem stjórnarherinn í Eþíópíu hefur enn á valdi sínu í héraðinu. Aö sögn málsvara aö- skilnaðarsinna er hart barizt í bænum, en tvær fylkingar aöskiln- aöarsinna, ELF og EPLF, sameinuð- ust í pessari árás. Þá er haft eftir áreiðanlegum heimildum aö hér sé um að ræða undanfara meiri tíðinda, og sé Þess skammt aö bíða aö aöskilnaðarsinnar láti til skarar skríða í Asmara, helztu borg í Erítreu, og freisti pess að ná henni úr höndum stjórnarhersins. Þær tvær borgir aðrar, sem stjórnarherinn hefur á valdi sínu, eru hafnarborgirnar Massawa og Assab viö Rauða hafið, en herforingjástjórn- in í Addis Abeba nýtur sem kunnugt er forsjár Sovétmanna. Af hálfu beggja fylkinganna, ELF og EPLF, kemur fram að Kúbumenn annist þjálfun stjórnarhermanna í Asmara og Massawa, en á hinn bóginn segjast talsmenn aðskilnaðarsinna ekki haf öruggar heimildir fyrir því að Kúbumennirnir taki beinan þátt í bardögum með stjórnarhernum á þessum stöðum. Merkingarfræðileg hryðjuverkastarfeemi Nýlega birtist í Die Welt grein, þar sem umtalsefnið er sú hlið hryðjuverkastarfsemi, sem bitnar ekki beint á fórnar- lömbum eins og til dæmis Aldo Moro, heldur fréttamönnum og almenningi. Þetta mætti nefna „merkingarfræðilega hryðju- verkastarfsemi", en hún felst í þeim lævísa áróðri að rangnefna hugtök og hluti. Allir kannast við yfirlýsingar Rauðu herdeildarinnar um að Aldo Moro hafi verið „fluttur í alþýðufangelsi" þar sem hann „beið þess að koma fyrir rétt“ og átti „yfir höfði sér dauðadóm og aftöku“, og loks var „dauða- dómnum, sem upp var kveðinn fullnægt.“ Þetta er orðalagið, sem ítalska glæpaklíkart-, öðru nafni „Rauða herdeildin", notar í orðsendingum sínum, en frétta- menn bíta síðan unnvörpum á agnið, og nota það í frásögnum sínum. Alþjóðlegar fréttastofur taka þetta síðan í mjög miklum mæli sem góða og gilda vöru, og er þá ekki að sökum að spyrja, — fréttaskeytin eru þýdd á allra þjóða tungumál og þannig berst boðskapur hryðjuverkamanna með leifturhraða um víða ver- öld. Á þennan hátt fá morð og önnur ofbeldisverk nokkurs kon- ar „gæðastimpil" þegar yfir þau eru notuð orð eins og „aftaka", ræningjabæli verður að alþýðu- fangelsi" og það sem í rauninni eru pyntingar verður að „réttar- aðgerðum", svo dæmi séu nefnd. Óhjákvæmileg afleiðing þessa tungutaks, sem fjölmiðlar éta upp eftir hryðjuverkamönnum, verður svo sú að almenningur venst því smátt og smátt, og með þessum sama hætti, segir í Die Welt, hafa einræðisveldi hlotið hina hljómfögru nafngift „Alþýðulýðveldi" og morðingja- sveitir fá sæmdarheitið „Frelsishreyfingar." Völundar útihuróir Fallegar útihuröir setja ekki hvað síst svip á húsið og Völundar útihurð getur gjörbreytt útliti hvaða húss sem er. Timburverslunin Völundur hefur 70 ára reynslu í smíði hurða og hefur jafnan fylgt þeim sveiflum, sem orðið hafa í hurðasmíði undanfarin ár. Massifar Völundar útihurðir úr teak og furu eru framleiddar úr bestu efnum, sem völ er á og mikil áhersla lögð á vandaða vinnu, góða þjónustu og eingöngu fullkomnustu vélar notaðar til framleiðsl- unnar. Hinar viðurkenndu Assa skrár og lamir eru í öllum hurðum frá Völundi. Vandaðu val útihurðar á hús þitt, það er mikilvægt vegna heildarútlits. „Valin efni, vönduð smíð“ hafa verið einkunnarorð Völundar í mörg ár og gildir það um alla fram- leiðslu. <áTá Timburverzlunin v Volundur hf. KLAPPARSTIG 1, SIMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.