Morgunblaðið - 24.05.1978, Qupperneq 22
Þau skipa 7 efstu sæti sjálfstæðis-
manna til bæjarstjórnarkosninga
í Vestmannaeyjumi
Arnar Sigurmundsson, Sigurður
Jónsson, Sigurbjörg Axelsdóttir,
Sigurgeir Olafsson, Gísli Guð-
laugsson, Eyjólfur Martinsson og
Georg Þ. Kristjánsson.
(Ljósm.i Sigurgeir).
að miklu meiri vinnu en ella þurfti
að legga í í að yfirfara alla þessa
reikninga og fyrir bragðið var
bókhald bæjarsjóðs óvirkt stjórn-
unartæki um nær 10 ára skeið. Þá
loks það var gert komu upp ýmis
atriði sem erfitt var að leiðrétta
þar sem svo langt var um liðið.
Allt hefur þetta markað störf og
stjórnun bæjarins og jafnvel þegar
fjölmenn tæknideild starfaði á
vegum bæjarins þurfti að kaupa
þjónustu fyrir stórar fúlgur frá
öðrum aðilum á sama sviði.
Vasast í mörgu
í senn.
Á undanförnum árum hafa
Vestmannaeyjar verið mikið í
sviðsljósinu vegna fjölmargra
óreiðumála sem upp hafa komið
hjá bæjarsjóði og hefur þetta rýrt
traust almennings á bæjarstjórn-
inni og áliti bæjarfélagsins út á
við hefur hrakað vegna þessa.
„Við viljum byggja
upp með áræði og
festu með það
mannlega í kili”
Sjálfstæðismenn í Vestmanna-
eyjum berjast nú fyrir því að
endurheimta meirihluta í bæjar-
stjórn Vestmannaeyja. Þeir hafa
nú fjóra bæjarfulltrúa af 9, en
fyrir 12 árum töpuðu þeir meiri-
hluta í hendur vinstri manna, sem
síðan hafa ráðið ferðinni. Sjálf-
stæðismenn efndu til víðtæks
prófkjörs um skipan lista Sjálf-
stæðisflokksins þar sem tæplega
900 Eyjamenn kusu. I samtali við
7 efstu menn listans kom það fram
að sjálfstæðismenn vilja margs
konar breytingar á stjórn og
framkvæmd bæjarmálanna, enda
hefur með hverju árinu komið æ
betur í Ijós hve stjórnleysi og
óráðsía hefur ráðið ferðinni hjá
vinstri flokkunum. Erfiðleikar
eftir gos spila þarna nokkuð inn í
vegna þess að bæjarstjórn Vest-
mannaeyja hafði ekki frumkvæði í
að rétta hlut Eyjamanna sam-
kvæmt loforðum um stofnun Við-
lagasjóðs, en það stjórnleysi er því
miður ekki einungis bundið eldgos-
inu, það ríkti bæði fyrir það eins
og má t.d. sjá á því að árið 1974
voru óafgreiddir reikningar
bæjarsjóðs frá árinu 1968 og
óráðsían var engu betri í stjórn
bæjarmálanna þegar mestu gos-
erfiðleikarnir voru gengnir yfir
vegna fádæma dugnaðar ein-
staklinga og fyrirtækja í Vest-
mannaeyjum.
Morgunblaðið ræddi við 7 efstu
menn á lista sjálfstæðismanna og
fara hér á eftir sjónarmið þeirra
í sambandi við bæjarmál Eyja-
manna, baráttumál og hagsmuna-
mál íbúa Vestmannaeyja. Þessir
sjömenningar eru Arnar Sigur-
mundsson, Sigurður Jónsson, Gísli
Guðlaugsson, Georg Kristjánsson,
Sigurgeir Olafsson, Sigurbjörg
Axelsdóttir og Eyjólfur Martins-
son.
Rœtt við sjö
efstu menn á
lista sjálfstœð-
ismanna til
bœjarstjórnar í
Vestmannaeyjum
Eyjamenn miklir
einstaklingshyggju-
menn
Það kom fram í upphafi sam-
talsins við þau að þau eru að vinna
fyrir bæjarfélag þar sem flestir
eru miklir • einstaklingshyggju-
menn. „Eyjamenn hafa ávallt
verið það, enda hefur það hentað |
þeim vel,“ sögðu þau, „þeir hafa
ávallt þurft að treysta á sjálfa sig
í lausn vandamála sinna, en aldrei
getað treyst á forsjá ríkiskerfisins.
Ábyrðarlaus for-
ysta vinstrimanna
og óráðsía.
Þau kváðu stöðuna í bæjarmál-|
um Vestmannaeyja í dag bera á
margan hátt merki ábyrgðarlausr-
ar forystu um árabil, forystu
vinstri flokkanna þar sem engin
samstaða um styrka forystu hefur
veriö fyrir hendi. Fjármálastaða
bæjarins er mjög slæm. Ákveðið
þenslutímabil var um skeið eftir
gos eins og eðlilegt var, „en því
verður nú að ljúka," sögðu fulltrú-
ar sjálfstæðismanna, „við verðumj
að komast niður á jörðina aftur.
Yfirbyggingin hefur verið alltof
stór á undanförnum árum. Stað-
reyndin er sú að bæjarsjóður er nú
50 milljón kr. í mínus á hlaupa-
reikningi auk tugmilljóna skulda
við fyrirtæki og aðra viðskipta-
menn í bænum, en allt veldur
þetta mikilli truflun í starfi og
rekstri fyrirtækjanna.
Stjórnleysi
Magnúsar
Magnússonar
Á miðju þessu kjörtímabili
skildi Magnús Magnússon fyrrver-
andi bæjarstjóri við sjö ára
reikninga bæjarsjóðs óskoðaða,
eða frá 1968—1974 þegar Alþýðu-
flokkur, Alþýðubandalag og Fram-
sóknarflokkur fara með meiri-
hlutastjórn. Þetta stjórnleysi kost-
aði miklu meira en eðlilegt var, því
Hugsanlega hefur þetta einnig
haft í för með sér að bæjarfélagið
hefur ekki fengið eðlilega fyrir-
greiðslu hjá fjármálayfirvöldum
og einnig hefur þetta rýrt vilja
fólks uppi á landi til að flytjast til
Eyja. Fulltrúar sjálfstæðismanna
ætla með oddi og egg að breyta
: þessari þróun og vinna -bæjar-
félaginu þann sess sem Vest-
mannaeyjum ber sem stærstu
verstöð landsins og því byggðar-
| lagi landsins sem mest leggur af
mörkum i þjóðarbúið.
Það hefur verið unnið skipulags-
laust að bæjarmálum i langan
tíma, vasast i mörgu í senn, en
ekki hugsað um að ljúka við
verkin. Þetta hefur bæði verið dýrt
og þreytandi fyrir hinn borgara,
skapað lausung og rótleysi í
samfélaginu þannig að fólk hefur
ekki notið sín sem skyldi.
i
Dýpka og bæta
aðstöðu í
Vestmannaeyjum
Sjálfstæðismenn vilja láta
dýpka Vestmannaeyjahöfn þannig
að meðaldýpið verði 8—9 metrar í
stað þess að nú er mesta dýpi þar
um 6 metrar. Við verðum að fá
nægilegt dýpi í höfnina til þess að
öll stærstu loðnuskipin geti leitað
hingað inn hvernig sem stendur á
sjávarföllum. Það tap sem bærinn
hefur orðið fyrir fjáhagslega