Morgunblaðið - 24.05.1978, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978
29
■i
i
Rætt vid Sa/óme
Þorke/sdóttur, sem
skipar efsta sæti
á iista Sjá/istæóis-
fíokksins vió
hreppsnefndar-
Mosfeiishreppi
n.k. sunnudag
nágrannasveitarfélögin. Miðað við
ástandið 1975 var kostnaður nauð-
synlegustu framkvæmda til að
koma frárennslismálunum í sæmi-
legt horf áætlaður um 60 milljónir
króna eða á verðlagi í dag um 130
milljónir króna. Af þessari upp-
hæð er búið að vinna um fimmta
hluta, þ.e. rotþró Holta- og Tanga-
hverfis og lagnir að henni. Hún ar
tekin í notkun haustið 1976.
Holræsamálin eru og verða einn
veigamesti þáttur þeirra verkefna
sem leysa verður i náinni framtíð,
jafnframt því að vera einn sá
kostnaðarsamasti.
Hvað varðar náttúruvernd, þá
stefnum við markvisst með hverj-
um tiltækum ráðum að upp-
græðslu og snyrtilegum frágangi á
þeim svæðum þar sem malar- eða
sandnám hefur spillt umhverfi.
Stefnt er að þvi að varðveita lífríki
sveitarinnar af fremsta megni.
Vatnsveitumál
Ástandið hér í vatnsveitumálum
var svo slæmt fyrir um fimm árum
að ekki var hægt að fá kalt vatn
á mörgum bæjum hér í kring. Á
s.l. kjörtímabili var unnið stórátak
í vatnsveitumálum hreppsins. Auk
lagna í hin nýju hverfi var lokið
við vatnsveitu í Reykjahverfi, lögð
vatnsveita frá Vesturlandsvegi að
Reykjalundi og í sjúkrahúsið og
íbúðabyggðin þar tengd vatnsveitu
hreppsins. — I dag fá flestir íbúar
hreppsins neyzluvatn frá Laxnes-
dýjum í Mosfellsdal. Talið er að
þar fáist um 30 sekúndulítrar af
góðu neyzluvatni. Vatnsmagn
þetta nægir fyrir um 4000-5000
íbúa, en í áætlun er að byggja um
1200 m3 miðlunargeymi á Helga-
fellsásum.
Skólamál
Vegna hinnar miklu íbúafjölg-
unar fer þörfin fyrir aukið skóla-
rými að aukast verulega. I því
skyni hafa á kjörtímabilinu verið
reistar tvær lausar kennslustofur
við barnaskólann, og heimavist-
ar-húsnæðinu breytt í handa-
vinnustofu. — Þá hefur hrepps-
nefnd nú þegar samþykkt að reisa
tvær lausar stofur við gagnfræða-
skólann fyrir haustið og jafnframt
að hefja undirbúning. að stækkun
barnaskóahússins. — Það er ljóst
að framundan eru stórátök í
byggingarmálum skólanna og
munu sjálfstæðismenn ekki liggja
á liði sínu í þeim efnum fremur en
endranær.
i
I
Hið nýja íþróttahús Mosfellinga við sundlaugina að Varmá
Dagvistarmál
Aðaláherzlan hefur verið lögð á
rekstur leikskóla og okkur hefur í
því sambandi tekist að hafa
tiltækt leikskólarými alveg frá
byrjun, jafnvel verið á undan í
þeim efnum. — Það var mín fyrsta
tillaga þegar ég kom í hreppsnefnd
1966 að leggja til að hreppsnefnin
starfrækti leikskóla í barnaskóla-
húsinu að Varmá yfir sumartím-
ann. Þetta var gert og gaf góða
raun. Síðan var haldið áfram
starfseminni í húsi sem Álafoss
lánaði okkur. Það voru síðan mikil
gæfuspor, 1975, þegar hreppurinn
keypti Hlaðhamra. Það var reynd-
ar fyrst og fremst gert vegna
landsins, en ákveðið var að nýta
húsið fyrir leikskóla og svæðið
síðan til bygginga, m.a. fyrir
aldraða. Þá hefur okkur verið það
til happs að hafa haft ákaflega
gott starfsfólk á leikskólanum
alveg frá upphafi.
Heilbrigðismál
Við erum mjög vel sett hvað
varðar heilsugæzlu. Við höfum
heilsugæzlustöð að Reykjalundi,
sennilega þá fyrstu á landinu. Það
var í upphafi samvinna með
Álafosslæknishéraði og forráða-
mönnum Reykjalundar um að
héraðslæknirinn fengi þar aðsetur.
D-listinn leggur áherzlu á áfram-
haldandi góða samvinnu við
Reykjalund svo að heilsuvernd
íbúanna megi aukast og fylgja
þróuninni, svo sem með aukinni
heilsuvernd skólabarna. Þá er gert
ráð fyrir að lyfjaverzlun verði
stofnuð í sveitinni á næstunni, en
fyrir því hefur leyfi þegar fengist.
Það sem okkur kemur til með að
vanta er hjúkrunaraðstaða fyrir
aldraða, en við væntum í því
sambandi eftir góðu samstarfi við
Reykjalund, en í dag eru nú þegar
nokkrir aldraðir þar.
Málefni
aldraðra
Félagsleg þjónusta við aldraða
hefur beinzt að því að veita þeim
heimilishjálp, sem þeir hafa þurft
svo að þeir geti sem lengst dvalið
í heimahúsum. Þessi þörf hefur
aukist nokkuð síðustu árin, en
aðalvandi okkar hefur verið að fá
starfsfólk.
Atvinnumálin
Öflugt atvinnulíf er allra hagur
og ber að varðveita þann rétt til
hins ýtrasta, þannig að saman fari
blómlegur atvinnurekstur er gefi
arð, og hægt sé að greiða fólki
sómasamlegt kaup. Hjá okkur er
mjög mikilvægur sá iðnaður sem
fyrir er hér. Iðnaður í Mosfells-
sveit er ekki nýtilkominn, því að
Álafoss hefur nú verið starfandi
síðan fyrir aldamót. Þá hefur
iðnaðurinn að Reykjalundi stöðugt
verið að eflast. Á þessum tveimur
vinnustöðum hafa nú um eða yfir
500 manns atvinnu og er það nær
einvörðungu fólk hér úr sveitinni.
Samgöngu- og símamálin hafa
verið okkur nokkurt áhyggjuefni.
Með þessari geysilegu aukningu
íbúa hefur þörfin fyrir aukna tíðni
samgangna með almenningsvögn-
um aukist verulega og er nú stefnt
að því að leita samstarfs við
Strætisvagna Reykjavíkur um
leiðir til lausnar því svo sem hvort
mögulegt væri fyrir okkur að
senda vagna í veg fyrir vagna SVR
í Árbæ. — Ástandið í símamálum
hefur verið þannig að lágmarksbið
eftir síma hefur verið um 1 '/2 ár,
en úr því ætti að rætast með
tilkomu nýrrar stöðvar sem er
verið að byggja hér á vegum Pósts
og síma.
Að lokum vil ég minnast á það
slæma ástand sem er ríkjandi um
þjónustu sýslumannsembættisins í
Hafnarfirði við íbúana. Núverandi
hreppsnefnd hefur árangurslaust
reynt að fá útibú frá embættinu
flutt heim í hérað, svo að menn
þurfi ekki að aka í gegnum 3
lögsagnarumdæmi til þess eins að
fá t.d. veðbókarvottorð, þinglýs-
ingar, útgáfu vegabréfa, ökuskír-
teina o.s.frv. — Því er það stefna
okkar sjálfstæðismanna að halda
áfram að vinna að lausn þessa
máls.
Pólitísku
viðhorfin
Eftir síðustu hreppsnefndar-
kosningar náði Sjálfstæðisflokk-
urinn í fyrsta skipti hreinum
meirihluta. Kjörtímabilið þar á
undan vorum við í samstarfi með
framsóknarmönnum og óháðum.
Þeir sem að sveitarstjórnarmálum
vinna, vita að landsmálapólitík
kemur þar lítið nærri, að öðru
leyti en því að viðhorf manna til
málefna hljóta að mótast af
lífsviðhorfum þeirra og skoðunum
almennt. Núverandi meirihluti
sjálfstæðismanna hefur aldrei
látið minnihlutann gjalda stöðu
sinnar. Ég tel að samstarfið hafi
verið gott. — Við sjálfstæðismenn
erum að sjálfsögðu ábyrgir fyrir
því hvernig til hefur tekist á
kjörtímabilinu, bæði því sem
miður hefur farið og vel hefur
verið gert. Ég óttast ekki dóm
sveitunga okkar, þeir hafa svo
margoft látið okkur finna, að þeir
hafa skilning á því, að það tekur
tíma að byggja upp samfélag eins
og hér er að gerast. Við gerum
okkur vonir um að okkur verði
treyst áfram og ég held að flestir
geri sér grein fyrir því að sam-
stæður meirihlutahópur er betri
en meirihlutahópur samsettur úr
mörgum flokksbrotum vinstri-
manna, ef þeir næðu meirihluta
nú. — Þó að við sjálfstæðismenn
séum bjartsýnir á framhaldið
megum við ekki sofa á verðinum.
Við þurfum á stuðningi allra
þeirra að halda, sem tryggja vilja
samstæðan meirihluta næsta kjör-
tímabil.