Morgunblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978 Erlendar íþróttaf réttir keppa aftur Nordqvist jafnar met Moores BJÖRN Nordquist lék sinn 108. landsleik fyrir Svíþjóð á sunnudag og jafnaði þar með landsleikjamet Bobby Moores. Svíar léku við Tékka og endaði leikurinn með jafntefli, 0—0, og þótti hann frekar daufur. Nord- quist tekur þátt í sinni þriðju heimsmeistarakeppni í Argentínu nú í júní. Sænski fyrirliðinn setur að öllum líkindum nýtt met er Svíar leika sinn fyrsta leik í heimsmeistaraekppninni á móti Brasilíu 3. júní. — Ég er sæmilega ánægður með leikinn, sagði Ericsson þjálfari Svía, — og þó svo að okkur tækist ekki að skora var vörnin sterk hjá okkur og ég kvíði engu í Argen- tínu. Tékkar komu beint frá Rio þar sem þeir léku við Brasilíu, og var þjálfari þeirra beðinn um samanburð á liðunum og sagði hann það vera erfitt en ekki væri fráleitt að Brasilíumenn hefðu leikið ívið betur, og verið erfiðari andstæðingar. P Alþjóðafrjálsíþróttasam bandið hefur nú veitt brezka sleggjukastaranum Barry Williams keppnisleyfi á ný, en á sinum tíma var Willi- ams dæmdur frá keppni þar sem hann játaði f blaðavið- tali að hafa notað óleyfileg hormónalyf til að auka af- reksgetu sína. A síðasta hausti dæmdi sam- bandið fimm íþrótfámenn frá keppni þar sem í ljós kom við prófanir að þeir höfðu neytt óleyfilegra hormónalyfja. í þeim hópi voru tveir Finnar, hástökkv- ari og spjótkastari, norski kringlu- kastarinn Knut Hjeltnes og tveir kvenkúluvarparar frá Sovétríkj- unum og Austur-Þýzkalandi. Nú hefur verið ákveðið að þetta tölk fái keppnisleyfi á ný, en það er þó eigi gjaldgengt á mót fyrr en eitt ár líður frá því að upp komst um brot þess. Andretti sigraði MARIO Andretti frá Bandaríkjunum sigraði í Grand Prix kappaksturs- keppninni sem fram fór í Zolder í Belgíu um síöustu helgi. Andretti, sem ekur Lotus bifreið, sagöi eftir keppnina aö sigur sinn heföi verið of auðveldur og kæmi það til af því aö Hunt og Lauda lentu í vandræðum með bíla sína og gátu ekki veitt Andretti neina keppni. Helsti keppinautur hans framan af var ungur Frakki, Villeneuve, en er hann hafði ekið 40 hringi af þeim 70, sprakk hjá honum og of langur tími fór í að skipta um dekk. Patrick Depailler, sem sigraöi í Monte Carlo fyrir 14 dögum náði aldrei að blanda sér í baráttuna. Úrslitin uröu þessi: 1. Andretti, Bandaríkjunum (Lotus), 2. Petersson, Svíþjóð (Lotus), 3. Reut- ermann, Argentínu (Ferrari), 4. Villen- euve, Frakklandi (Ferrari). Eftir að sex keppnum af 16 er lokiö er Mario Andretti efstur í stigakeppninni með 27 stig, annar er Patrick Depailler, Frakklandi, með 23 stig, og Reuter- mann þriðji með 22 stig. • Ronnie Peterson (t.v.) og Andr- etti fagna sigri. • Beckenbauer á fullri ferð fyrir Cosmos. . Beckenbau- er heiðraður FRANZ Beckenbauer var sérstak- leg heiðraður áður en leikur New York Cosmos og Seattle Sounders hófst á sunnudaginnn, en nú ér rétt ár liðið síðan Beckenbauer kom til Cosmos frá Bayern Múnch- en. Rúmlega 71 þúsund áhorfendur fögnuðu Beckenbauer innilega og leikmenn Cosmos héldu upp á daginn með þvíað vinna Seattle 5:1. Mörkin skoruðu Chinagia 3, Tuert og Bogicevic. I viðtali við New York Times á sunnudaginn segir Beckenbauer að það hafi verið það bezta sem hann gat gert að flytja til Bandaríkj- anna. „Hér get ég farið um allt án þess að nokkur þekki mig en heima í Þýzkalandi fékk ég aldrei frið, hvert sem ég fór.“ WBA vinn- ur í Kína ENSKA liðið West Bromwich Albion er nú í keppnisferðalagi í Kína. Léku Englendingarnir við kínverska landsliðið á verka- mannaleikvanginum í Peking um helgina að viðstöddum 80 þúsund áhorfendum . West Bromwich vann 2:0 með mörkum Alister Brown og Cyril Regis. Þetta er í fyrsta skipti sem evrópskt knatt- spyrnulið skipað atvinnumönnum leikur í Kína. mmmm starstriker tvottal); áfnv hc »«* 6*e » ?*»««« plfanmbmh** *o*i*<> >V*t*a*rí**». r™* O’F-w* • ÍJrklippan úr Shoot. Skinner vinsæll 1 fran MEÐ HVERJUM deginum sem líður styttist í að heimsmeistara- keppnin í Argentínu hefjist. Meðal liðanna, sem þar leika eru írarnir. en þeir eru ekki taldir eiga mikla möguleika. í riðla- keppninni leika þeir með Holl- endingum. Skotum og Perúmönn- um. Leikmenn írans eru alls ekki svartsýnir á árangurinn í Argen- tinu og einn aðalleikmaður liðs- ins, Hassan Rowsan, spáir því að íran komist 1 milliriðil ásamt Hollendingum. Fyrir nokkru birtist stutt viðtal við Rowsan í enska knattspyrnublaðinu Shoot og þar er íraninn spurður hverjir séu uppáhaldsþjálfarar hans. Rowshan nefnir fjóra þjálfara og meðal þeirra er George Skinner, þjálfari Vestmannaeyinga í knattspyrnu. Skinner hefur tals- vert starfað í Arabalöndum og greinilega getið sér gott orð. Jafntefli hjá l'rum og Norðmönnum NOREGUR og írland léku vináttu- landsleik í knattspyrnu á Ullevál- leikvangnum í Ósló á sunnudags- kvöldið. Leiknum lauk með jafn- tefli 0:0. Leikurinn var mjög slakur og hann einkenndist af mikilli hörku enda er orðið vináttulandsleikur sett í gæsalappir í fréttaskeytum frá leiknum. írarnir höfðu marga snjalla menn í sínu liði, t.d. Stewe Heighway, Dave OLeary og Liam Brady en þeim tókst ekki að koma boltanum í netið. vann bikarinn BELGÍSKU bikarkeppninni lauk á sunnudaginn. í úrslitaleiknum vann Bevcren Jið Charleroi, sem Guðgeir Leifsson lék með í fyrra, 2.0. Mörkin skoruðu Coninx og Stevens í s.h. Þrjú ný ísL-met í sundi hjá Þórunni ÞÓRUNN Alfreðsdóttir hefur verið iðin við kolann að undanförnu og æft að miklum krafti til að undirbúa sig sem best fyrir verkefni sumarsins, sem eru fjölmörg. Árangurinn lætur heldur ekki á sér standa og nýverið setti Þórunn tvö íslandsmet. Þórunn synti 200 m skriðsund á 2,12,5 mín. sem er nýtt met, gamla metið var 2,14,0. Þá setti hún einnig met í 200 metra fjórsundi synti á 2,32,6 mín. Voru met þessi sett í sundhöllinni í Vestmannaeyjum. Hinn 7. maí síðastliðinn bætti svo Þórunn enn metið í fjórsundinu, synti 200 m á 2,31,1 mín. Þrjú íslandsmet á skömmum tíma eru ekki svo slæm uppskera. þr. Ljósm. Mbl.i Sigurgeir. • Þórunn einbeitt á svip í fjórsundinu. Myndin var tekin þegar hún setti metið í Vestmannaeyjum. ■ ■ Oruggur sigur yfir Færeyingum í lands- leik í badminton UM SIÐUSTU helgi léku Islendingar landsleik í badminton við Færey- inga og var leikið í Færeyjum. Fóru leikar svo aö íslenzka liöið sigraði meö nokkrum yfirburðum en í sumum leikjunum var um haröa keppni aö ræða. Þetta var fjóröa landskeppnin milli pjóðanna í bad- minton. Fyrsti einliðaleikurinn var milli meistara landanna, þeirra Jóhanns Kjartanssonar og Kára Nielsen Fær- eyjum, og tölurnar tala sínu máli 15:3 og 15:3 Jóhanni í vil. 2. einliðaleikurinn var á milli Sigfúsar Æ. Árnasonar og Péturs Hansen Færeyjum og lauk með sigri Sigfúsar 15:6 og 15:5. 3. leikurinn var á milli Siguröar Kolbeinssonar og Hans Jacob Stein- berg Færeyjum. Þetta var fyrsti landsleikur Sigurðar, og lenti hann í mikilli baráttu þar sem vart mátti á milli sjá. Hans komst í 14:7 í fyrstu lotu en Sigurði tókst aö hala inn 10 punktum í röð og sigraöi 17:14 eftir framlengingu. Næstu lotu vann Hans 15:6 og í aukalotu var staöan 8:6 þegar Siguröur skipti um völl og sigraöi 15:9. Á 1. velli í tvíliöaleik léku Haraldur Kornelíusson og Steinar Petersen við Færeyjameistarana þá Kára Níelsen og Pétur Hansen og lauk meö sigri íslendinganna 15:3 og 15:5. 2. leikurinn var mun haröari og þar léku Sigfús Ægir og Siguröur Kol- beinsson viö Hans Jacob Steinberg og Poul Michelsen. Þetta var spenn- andi leikur þar sem Færeyingar veittu íslendingum mikla keppni. Daginn eftir var haldiö opiö mót í einliöaleik og tviliöaleik, 15 þátttak- endur voru heimamenn en 10 frá Islandi. Vegna tímaskorts var aðeins leikin ein lota upp í 21. I undanúrslit- um léku Sigfús Ægir og Kári Níelsen, Færeyjum og sigraði Sigfús 21:18. Á hinum vængnum sigraði Jóhann Kjartansson Jan B. Larsen (danska þjálf.) með 21:14, og í úrslitunum léku þvi' Jóhann og Sigfús og sigraöi Sigfús 21:14. I tvi'liðaleiknum sigruöu Haraldur Kornelíusson og Steinar Petersen þá Sigfús Ægir og Sigurö Kolbeinsson með 15:11, 11:15 og 15:3. Eins og endranær létu íslending- arnir mjög vel af móttökunum í Færeyjum og rómuöu mjög gestrisni heimamanna. Sundmót Ármanns SUNDMÓT Ármanns veröur haldið í Sundlauxinni í Lauicardal lauxardairinn 27. maí kl. 16.00. hátttokutilkynninirar sendist á tímavarðarkurtum SSÍ er tiigreini fa'ðinitarár keppenda svo og besta tfma viðkomandi á keppnistímahilinu, til Sund- deildar Ármanns, í Sundhöll Reykjavfkur, til Guðmundar Gfslasonar Reynimel 80 eða Siggeirs Siijiteirssonar, Grettisgötu 92. fyrir miðvikudagskvöld 24. maf. Þátttöku- gjald kr. 100 fylgi með skráninxu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.