Morgunblaðið - 24.05.1978, Side 32

Morgunblaðið - 24.05.1978, Side 32
AUÍIASINÍ,ASIMINN EK: 22480 AL'ííI.YSINÍ,ASÍMJ\N ER: 22480 Jflsrfltmblntiiíi MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978 SSh; „Þetta eru tví- sýnar kosningar” Mannúðleg félagsmála- stefna eða innreið sósíal- isma og vinstri stjórnar BIRGIR ísl. Gunnarsson, borgarstjóri, sagði í útvarpsum- ræðum um borgarmál í gærkvöldi, að kosningar þær, sem fram fara á sunnudaginn kemur, væru tvísýnar þrátt fyrir mikinn kosningasigur sjálfstæðismanna fyrir fjórum árum. „Meirihluti sjálfstæðismanna í borgarstjórn verður ekki tryggður nema allir, sem vilja veita okkur brautargengi, leggist á eitt,“ sagði borgarstjóri. Birgir ísl. Gunnarsson sagði vinstri flokkana sækja hart að Sjálfstæðisflokknum í borjjar- stjórn með þeim ásetningi að ná meirihlutavaldi í borginni og koma á vinstri stjórn. „Eg þykist þess fullviss. að meginþorri Reyk- víkinga er andvígur því að sósíalismi haldi innreið sina í stjórn borgarmála,“ sagði borg- arstjóri. „Eina tryggingin gegn því, að sósíalismi verði ráðandi í Reykjavík á næsta kjörtimabili, er að greiða Sjálfstæðisflokknum atkvæði sitt.“ Borgarstjóri sagði f ræðu sinni. að sjálfstæðismenn legðu áherzlu á mannúðlega félagsmálastefnu. Sjáifstæðismenn hefðu beitt sér fyrir og framkvæmt grundvallar- breytingu í félagsmálastarfi borgarinnar, þar sem megin- áherzla er lögð á að styðja þá, sem standa höllum fæti, til sjálfsbjargar. í félagsmálum sagði borgarstjóri, að áherzlan væri að öðru leyti lögð á tvö atriðii framkvæmdir í þágu aldr- aðra og dagvistunarmál. Mikið hefði verið gert í þessum mála- flokkum á undanförnum árum, en Birgir ísl. Gunnarsson sagði ljóst, að margt væri þó ógert til þess að fullnægja eftirspurn. í lok ræðu sinnar í gærkvöldi, sagði borgarstjóri, að sjálfstæðis- menn færu þess nú á leit við Reykvíkinga, að þeir tryggðu áframhaldandi meirihluta þeirra í borgarstjórn Reykjavíkur. „Við leitum eftir trausti ykkar, Reyk- víkingar,“ sagði Birgir ísl. Gunn- arsson. Ljósm. Mbl. Þórleifur Ólafsson. Scanhouse Ltd.. sem er að 60% í eigu islenzkra aðila. hefur nú hafið byggingu á fjöida íbúða í Nígeríu og er þegar lokið við að steypa mikinn fjöida af plötum undir hús, bseði á vegum hersins og eins á vegum Shell-BP, Gulf Oil og Daiiy Timcs í Lagos. í Okitipua í Ondo-ríki, sem er frumskógarsvsði um 300 km austur af Lagos, er Scanhouse að byggja 1212 íbúðir fyrir landherinn. og var þessi mynd tekin þar fyrir skömmu. er verið var að steypa plötu að einu húsanna. Alls er Scanhouse með verkefni í Nígeríu fyrir um 14 milljarða kr. 2000 hafa kosið utankjörstaðar ÞEGAR Morgunblaðið hafði sam- band við skrifstofu utankjörstaða- atkvæðagreiðslu vegna borgar- stjórnarkosninganna í Miðbæjar- skólanum í gærkvöldi höfðu 1978 manns kosið utankjörstaðar. Var Mbl. tjáð að síðustu daga hefði verið stöðugur straumur fólks á kjörstað til að kjósa. Dagsbrún leyfir olíulöndun en Hlíf ekki: Olís og Skeljungur fá sinn hluta farmsins en Olíufélagið ekkert Bensínbirgðir endast nú fram að alþingiskosningum VERKAMANNAFÉLAGIÐ Dags- brún veitti í gær undanþágu á losun 7.700 lcsta af bensini úr sovézka olíuskipinu, sem hér hefur beðið frá 19. maí. Vegna tæknilegra annmarka á losun bensínsins varð einnig að leyfa losun á 6.000 lestum af gasolíu. Þessar 7.700 lestir bensíns fara til Olíufélagsins Skeljungs h.f. og Olíuverzlunar Islands h.f., en hins vegar fær Olíufélagið h.f. ekki dropa af bensíni. þar sem farmurinn sem Esso átti að fá, var skráður til Ilafnarfjarðar. Trúnaðarmannaráð Verka- mannafélagsins Hlífar aftók með öllu að veita undanþágu. og þvi mun sovézka olíuskipið sigla með um 5.000 lestir af bensíni utan, er losun er lokið til OIís og Skelj- ungs. Samkvæmt upplýsingum Vil- hjálms Jónssonar, forstjóra Olíu- félagsins h.f., Esso, var heimiluð losun á 7.700 tonnum af bensíni, sem var á farmskrá til Reykjavík- ur og ennfremur var heimilað að taka upp í sérstaka geyma 6.000 Framhald á bls. 18 Nýbygging vatnsveitunnar kostar 1600-1700 milli. kr. „ÞESSAR framkvæmdir eru al- gjbr nýbygging á vatnsvirkjun og aðfa-rslu vatns til borgarinnar og þegar þeim verðpr lokið að fullu, sem á að verða á árinu 1982, þá er allt vatn hrunnvatn og hægt að byggja við eftir þörfum því aðíærslukerfið getur tekið allt að tvisvar og hálfum sinnum meira vatnsmagn en nú er. Með öllu saman er þetta framkva-md upp á 1600 — 1700 milljónir króna." sagði Þóroddur Th. Sigurðsson. vatnsveitustjóri. í samtali við Mbl. í gær. Þetta nýja kerfi leysir Gvendarbrunnana af hólmi. en Þóroddur sagði að vatnsbólið myndi standa áfram sem náttúru- fyrirbrigði. Rannsóknir á vatnsvinnslu- möguleikum í Heiðmörk hafa staðið í mörg ár og er nú lokið að því marki, sem þarfir vatnsveit- unnar krefjast um langt árabil. Vinnsluboranir hófust 1973 og verður þeim hætt að sinni í sumar. Þóroddur sagði, að boraðar hefðu verið um 80 rannsóknaholur í Heiðmörk til að kortleggja grunn- vatnsstöðuna á svæðinu og nú hafa verið boraðar 20 vinnsluholur, 12 á Jaðarssvæðinu og 8 á Myllulækj- arsvæðinu. A Jaðarssvæðinu hafa nú verið boraðir 9 brunnar og grafinn einn djúpur vinnslubrunnur en reynslu- boranir benda til þess að þar megi vinna frá 600 1/sek til 750 1/sek eftir grunnvatnsstöðu. Á Myllu- lækjarsvæðinu eru nú 8 brunnar tilbúnir til virkjunar, með afkasta- getu milli 500 og 600 1/sek., en möguleikar eru á verulega meiri vatnsvinnslu þar, þegar á þarf að halda. Nú er unnið að smíði fyrsta dælustöðvarhússins við Jaðar og næsta haust er ráðgert að tvær stöðvar verði tilbúnar til uppsetn- ingar á vélum. Á árinu 1979 er ráðgert að öllum dælustöðvar- byggingum verði lokið á Jaðars- svæðinu, en virkjun brunna á Myllulækjarsvæðinu hefst vart fyrr en á árunum 1980 — 1981. Árið 1974 hófst lögn á nýrri aðalæð til Heiðmerkur að nýju og verður lokið við verkið ísumar, samtals um 5,5 km af pípum. Næsta vetur mun aðalæð þessi tekin í notkun að hluta. í upphafi mun aðalæðin geta flutt allt að Framhald á bls. 18 Ríkis- stjórnar- aogerðir RÍKISSTJÓRNIN fjallaði um þann vanda, sem kjaramálin eru nú í á ríkisstjórnarfundi í gær. Að sögn Geirs Hallgríms- sonar forsætisráðherra er fréttatilkynningar að vænta á næstunni um aðgerðir ríkis- stjórnarinnar, þar sem greint verður frá niðurstöðum þeim, sem ríkisstjórnin hefur komizt að. Annað vildi forsætisráð- herra ekki segja um málið að sinni. Morgunblaðið hefur haft af því spurnir, að forsætisráð- herra og aðrir ráðherrar ríkis- stjórnarinnar hafi átt fundi með aðilum vinnumarkaðarins um væntanlegar aðgerðir. Er jafnvel búizt við að fréttatil- kynning sú, sem forsætisráð- herra talar um, verði birt í dag eða á morgun. Morgunblaðið spurði forsætisráðherra í gær, hvort um bráðabirgðalög væri að ræða, og svaraði hann þá aðeins, að það kæmi í ljós er fréttatilkynningin birtist.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.