Morgunblaðið - 31.05.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.05.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1978 Opnir meirihluta- fundir í borgarstjórn? Sigurjón: Björgvin: Kristján: Samkomulag Fráleit Það mál þarf til hugmynd úr sögunni MBL. spurði í gær Sigurjón Pétursson borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins hvort borgarfulltrúar flokksins myndu beita sér fyrir því að fundir núverandi meirihlutans í borgarstjórn yrðu opnir, eins og Þorbjörn Broddason flutti tillögu um á síðasta borgarstjórnarfundi fyrir kosningar að meirihlutafundir Sjálfstæðisflokksins yrðu. „Ég býst við því að þegar meirihlutinn hefur komið sér saman um málefnin þá setji hann sér starfsreglur," sagði Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins. „Ég býst hins vegar ekki við að við Alþýðubandalags- menn munum beita þeim málum fram sem við höfum mælt fyrir áður, ef ekki verður um þau samkomulag. Við reiknum ekki með að heimurinn allur verði frelsaður á þessu sumri." Mbl. hafði einnig samband við Björgvin Guðmundsson borgar- MBL. SPURÐI þá Björgvin Guð- mundsson borgarfulltrúa Alþýðu- Sjálfstæðismenn: Ráðstefna í Reykja- neskjördæmi SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN í Reykjaneskjördæmi heldur for- manna- og bæjarfulltrúaráðstefnu nk. fimmtudagskvöld 1. júní kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu í Kópa- vogi, sem er að Hamraborg 1, 3. hæð. Ráðstefnuna sitja formenn fulltrúaráða Sjálfstæðisflokksins, kvenfélaga, félaga ungra sjálf- stæðismanna og annarra sjálf- stæðisféiaga í kjördæminu, ný- kjörnir bæjarfulltrúar flokksins, þingmenn og aðrir frambjóðendur til alþingis. Rætt verður um stjórnmálaviðhorfið og komandi þingkosningar. fulltrúa Alþýðuflokksins og Kristján Benediktsson borgarfull- trúa Framsóknarflokksins og spurði þá um málið, en hvorugur tjáði sig um tillögu Þorbjörns og sátu þeir hjá við atkvæðagreiðslu um hana, en henni var vísað frá með atkvæðum fulltrúa Sjálf- stæðisflokksins, gegn þremur at- kvæðum fulltrúa Alþýðubanda- lagsins. „Ég var samþykkur ýmsu í tillögu Þorbjörns Broddasonar, meðal annars því að borgar- stjórnarfundir yrðu auglýstir betur og almenningur fenginn til flokksins og Sigurjón Pétursson borgarfulltrúa Alþýðubandalags- ins hvort þeir væru íylgjandi fjölgun borgaríulitrúa í 21, eins og Kristján Benediktsson kvaðst „Telja líklegt“ að gert yrði í samtali við hann sem birtist f Mbl. í gær. „Við fyrrvérandi minnihluta- flokkar í borgarstjórn fluttum tillögu um fjölgun borgarfulltrúa í 21 og tel ég vafalaust að þetta mál verði flutt aftur á þessu kjörtíma- bili,“ sagði Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi. „Þetta er hins vegar mál sem ekki kallar að í bráð, þar sem það á ekki við fyrr en um næstu kosningar." „Ég er eindregið fylgjandi því að borgarfulltrúum verði fjölgað," sagði Björgvin Guðmundsson. „Ég hef staðið að tillögu um fjölgun þeirra í 21 og tel að löggjafinn hafi ætlazt til þess, þegar hann setti fjölda borgarfulltrúa við 15 til 27 í lögum sem sett voru snemma á öldinni, að þeim yrði fjölgað með auknum íbúafjölda Reykjavíkur." að fylgjast betur með störfum borgarstjórnar. En ég var alveg ósammála þeim hlutanum sem fjallaði um opna meirihlutafundi og fannst hann fráleitur. Ég er enn sömu skoðunar," sagði Björg- vin Guðmundsson. „Það mál er úr sögunni," sagði Kristján Benediktsson. „Ég geri ekki ráð fyrir því að það verði endurflutt." Formaður SUF hafnaði sæti á lista Fram- sóknarflokks „Mér þótti ekki rétt að taka sæti á listanum. þar sem skoðanakönnun náði aðeins til fimm efstu sætanna og ég hlaut ekkert þeirra og mér þótti heldur ekki rétt að fara í sjötta sæti listans, þar sem um það hafði alls ekki verið kosið í skoðanakönnuninni. Auk þess má segja að óánægja mín með ýms atriði í sambandi við framkvæmd skoðanakönn- unarinnar, meðal annars það að engir fundir voru haldnir, haíi ýtt undir þá ákvörðun mína,“ sagði Magnús Ólafsson á Sveinasstöðum í A-Húna- vatnssýslu, formaður Sam- bands ungra framsóknar manna, í samtali við Mbl. í gær, en Magnús er ekki á framboðslista Framsóknar- flokksins í Norðurlandskjör dæmi vcstra. Fyrir skipan framboðslistans var efnt til skoðanakönnunar um skipan 5 efstu sætanna. Sjö frambjóðendur kepptu um sæt- in, þar á meðal Magnús, sem varð sjötti í skoðanakönnun- inni. Brynjólfur Sveinbergsson, Hvammstanga, sem varð sjö- undi í skoðanakönnuninni, skipar sjöunda sæti framboðs- listans og var Magnúsi Ólafs- syni boðið að skipa sjötti sæti listans, en hann hafnaði því, eins og fram kemur af orðum hans hér að framan. Borgarfulltrúum fjölgað úr 15 í 21 á kjörtímabilinu Meirihlutinn i borgarstjórn: Reiknar með kjöri forseta og full- trúa í borgarráð — á fyrsta fundinum á fimmtudag „VIÐ RÆDDUM ýmsa fleti, cn engu var slegið föstu og ekkert var ákveðið,“ sagði Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi Alþýðu- handalagsins er Mbl. spurði hann í gær hvað liði gerð málefnasamn- ings meirihlutaflokkanna í borg- arstjórn, en fulltrúar þeirra áttu með sér „rabbfund“ í gær. „Við erum í greinilegri tímapressu, þar sem fyrsti borgarstjórnar- fundurinn er á fimmtudaginn, en við reiknum með að af kosningu borgarráðs og forseta borgar- stjórnar geti orðið, þótt ekki sé enn ljóst hvort það næst.“ Næsti fundur fulltrúa meirihlutaflokk- anna er ákveðinn í dag. Spurningu Mbl. um það, hvort niðúrstaða væri fengin um forseta borgarstjórnar og hvernig þrjú sæti meirihlutans í borgarráði yrðu ^kipuð svaraði Sigurjón neitandi, og þegar Mbl. spurði hvort hann teldi að sætin þrjú í borgarráði yrðu skipuð einum fulltrúa frá hverjum flokki eða með öðrum hætti sagði hann engar ákvarðanir hafa verið teknar um það. Björgvin Guðmundsson borgar- fulltrúi Alþýðuflokksins og Kristján Benediktsson borgarfull- trúi Framsóknarflokksins létu báðir í ljós vonir um að á borgarstjórnarfundinum á fimmtudag yrði unnt að kjósa forseta borgarstjórnar og væntan- lega einnig í borgarráð, en hvorki Framhald á bls. 19 Skemmtanir D-listans í Reykjavík Á fimmtudag verður efnt til skemmtunar fyrir þá sem störf- uðu fyrir D-listann í Reykjavík á kjördag. Skemmtunin verður í Sigtúni við Suðurlandsbraut fimmtu- dag 1. júní og hefst kl. 21. Hljómsveitin Galdrakarlar leikur fyrir dansi til kl. 1 e.m. og Baldur Brjánsson skemmtir. Þá verður einnig haldin skemmtun fyrir það fólk sem starfaði fyrir D-listann á kjör- dag og ekki hefur náð 18 ára aldri í Sigtúni mánudag 5. júní kl. 20—24. Diskótek og Baldur Brjánsson skemmtir. Miðar verða afhentir á mið- vikudag og fimmtudag kl. 9—17 á skrifstofu fulltrúaráðsins í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Dómsmál vegna kjörskrár: Krafa um flutningsvottorð undirritað af viðkomandi Eðlileg eftir dóm Hæstaréttar seg- ir Hrafn Bragason borgardómari „ÉG tel að í kjölfar þessa úrskurðar Hæstaréttar sé eðlilegt að breyta um fyrir Alþingis- kosningarnar og krefjast þcss að fram verði lögð flutningstil- kynning sem viðkomandi hafi undirritað sjálfur, en það hefur ekki vcrið venjan hingað til,“ sagði Hrafn Bragason borgar- dómari í samtali við Mbl. í gær um dóma, þar sem menn eru dæmdir inn á kjörskrá.“ Hrafn sagði, að þegar menn flyjtu milli landa atvinnu vegna væri ljóst að þeir flyttu lögheimili sitt um leið. Fyrir slíku væri Hæstaréttardómur. „Um námsfólk gegnir öðru rnáli," sagði Hrafn. „Samkvæmt 10. grein lögheimilislaganna þarf námsmaður ekki að flytja lög- heimili sitt til þó að hann stundi nám annars staðar en heima hjá sér. Því hefur það verið venjan að dæma námsmenn erlendis inn á kjörskrár hér heima, þegar ekki hefur legið fyrir að þeir hafi sjálfir undirritað flutningstil- kynningu. Tilkynningar annarra svo sem samnorrænar flutnings- tilkynningar stofnana, leiða ekki til breytingar á lögheimili. Til þess þarf persónulega yfirlýsingu hvers og eins og sé hún ekki fyrir hendi er ekki um flutning á lögheimili að ræða.“ Á föstudag kváðu Hrafn og Friðgeir upp dóma í 55 málum og dæmdu þá 49 manns inn á kjörskrá til borgarstjórnarkosn- inganna. „Engar tilkynningar undirritaðar af viðkomandi sjálfum voru lagðar fram í málum þessum og engin mótmæli komu fram við því, að þeir yrðu á kjörskrá í Reykjavík," sagði Hrafn. I Hæstaréttardómnum, sem Hrafn vísar til var kröfu náms- manna erlendis um dóm inn á kjörskrá í Garðabæ synjað, þar sem fyrir lá flutningsvottorð undirritað af viðkomandi um brottflutning héðan af landi. Missti þrjá fingur í karfaflökunarvél ALVARLEGT vinnuslys varð í fiskiðjuveri Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar um áttaleytið á mánudagskvöld. 22 ára gamall maður lenti með vinstri höndina í karfaflökunarvél mcð þcim afleiðingum að hann missti þrjá fingur og sá fjórði er mikið skaddaður. Vinnu var lokið þegar þetta gerðist en maðurinn var að þrífa vinnslusalinn og tæki í honum með því að sprauta á vatni úr slöngu. Einhverjar tægjur munu hafa orðið eftir í karfaflökunarvélinni og hugðist maðurinn fjarlægja þær með hendinni en gætti þess ekki að vélin var í gangi. Tóku hárbeittir hnífar flökunarvélar- innar alveg af þrjá fingur vinstri handar, litlafingur, baugfingur og löngutöng og sködduðu auk þess vísifingur. Maðurinn var strax fluttur á slysadeild Borgarspítalans, þar sem gert var að meiðslum hans. Fingurnir voru einnig fluttir þangað í volgu vatni og ágræðsla reynd en án árangurs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.