Morgunblaðið - 31.05.1978, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 31.05.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MAl 1978 15 ítölsk mynd hreppti gullpálmann í Cannes Cannes. Frakklandi. 30. maí. AP. Reuter. ÍTALSKAR kvikmyndir hlutu helztu verðlaun kvikmynda- hátíðarinnar í Cannes, sem lauk í dag. Kvikmynd ítalska leikstjór- ans Ermanno Olmi, „Klossatré- ið“, hiaut gullpálma-verðlaunin, en myndin íjallar um bændur á Ítalíu á 19. öld. Þá hlaut kvik- myndin „Apadraumur“ sérstök verðlaun, en leikstjórinn Marco Ferreri, gerði hana. „Klossatréið" er rúmlega þriggja klukkustunda löng, og fara bændur á Norður-Ítalíu með helztu hlutverkin í myndinni. Hin ítalska myndin er ádeilu- kennd grínmynd, sem fjallar um endalok mannúðar í heiminum. Með helztu hlutverk í þeirri mynd fara Gerard Depardieu, Marcello Mastroianni og simpansaapinn Bella. Þá hlaut kvikmyndin „Ópið“ einnig sérstök verðlaun, en pólski leikstjórinn Jerzy Skolimowski gerði hana. „Ópið“ er byggð á samnefndri smásögu Roberts Graves. Alls voru 37 kvikmyndir sendar á kvikmyndahátíðina, en um 400 Einvígi Korchnois og Karpovs frest- að um sólarhring Manilla, Filippseyjum, 30. maí. AP Heimsmeistaraeinvígið í skák milli Anatoly Karpovs heims- meistara og Viktor Korchnois hefst hinn 17. júlí, en ekki 16., að því er tilkynnt var á Filippseyj- um f dag. Einvíginu, sem haldið verður á Filippseyjum, var frestað að beiðni Ferdinands E. Marcosar forseta, en ekki var tilkynnt hvaða ástæður lægju að baki beiðni hans. Einvfgið verður hið fyrsta sem haldið verður samkvæmt hinum nýju lögum FIFA. Samkvæmt lögunum eru jafntefli ekki talin með og sá vinnur scm fyrstur vinnur sex skákir. Spilling innan ítölsku óperunnar Róm, 30. maí. Reuter. LÖGREGLA handtók í dag 17 háttsctta embættismenn innan ftölsku óperunnar og yfirheyrði þá vegna sögusagna, sem verið hafa á kreikj um spillingu innan ópcrunnar. ítalska óperan er að mestu lcyti kostuð af hálfu rfkisins, sem greiðir sums staðar allt að 90% af rekstrarkostnaði söngleikjahúsa. Yfirvöld hafa sagt að meðal hinna handteknu séu yfirmenn söngleikjahúsanna í Róm, Napólí, og Cagliari, en handtökuskipanir hafa einnig verið gefnar út fyrir yfirmenn í Mílanó, Feneyjum, Flórenz og Veróna. Hinum handteknu er gefið að sök að háfa brotið gjaldeyrislög- gjöf ítaliu og greitt kunnum erlendum söngvurum lægri fjár- hæð en þeir tilkynntu yfirvöldum að þeir hefðu gert. Mismuninn eiga sakborningar að hafa flutt úr landi, en upphæðirnar nema milljónum króna. Dagblöð á Ítalíu héldu því fram á síðastliðnu ári að um mikla spillingu væri að ræða, og nefndu blöðin sem dæmi ráðningu banda- físks söngvara til ónafngreinds söngleikjahúss. Söngleikjahús- stjórinn sagði, að hann hefði greitt söngvaranum rúmar tvær milljón- ir króna, en umboðsmaður söngv- arans kvað hann aðeins hafa fengið 1.4 milljónir í sinn hlut. Vestur-Berilín, 30. maí. Reuter. AP. ÁKÆRUVALDIÐ í máli hryðjuverkamannanna fimm, sem réttarhöld fara nú fram yfir, krafðist þess í dag að tveimur verjendum Till Meyers yrði bannað að taka þátt í réttarhöldunum, vegna gruns um að þeir væru viðriðnir flótta Meyers úr Moabit-fangelsinu á laug- ardag. Yfirvöld ákveða á morgun hvort taka eigi kröfu ákæru- valdsins til greina, en verj- endurnir tveir, Nicolas Becker og Detlej Múllerhoff, voru settir í gæzluvarðhald eftir flótta Meyers. Þeim var kvikmyndir voru sýndar í Cannes meðan hátíðin stóð yfir. Bezta myndin var valin af níu manna dómnefnd, sem Liv Ullman átti sæti í m.a. Verðlaunin fyrir beztan leik í karlhlutverki fékk John Voight fyrir leik sinn í myndinni „Heim- koman". Myndina gerði Hal Ashby og fer Voight með hlutverk lamaðs hermanns úr Víetnam-stríðinu í henni. Tvær leikkonur, Jill Clayburgh og Isabelle Huppert, skiptu með sér verðlaununum fyrir beztan leik konu í aðalhlutverki. Clayburgh hlaut þau fyrir leik sinn í kvik- myndinni „Ogift kona“, sem Paul Mazursky leikstýrði, en Huppert fyrir leik sinn í „Violetta Nozieres". Frakkinn Claude Chabrol gerði síðarnefndu kvik- myndina. Verðlaunin fyrir beztu kvik- myndatökuna hlaut franski leik- stjórinn Louis Malle fyrir kvik- myndina „Snotra barn“. I -VEÐm- viða um heim Amsterdam 24 sólskin Apena 24 bjart Berlín 25 bjart BrUssel 26 sólskin Chicago 33 skýjaó Frankfurt 25 bjart Genf 21 sólskin Helsinki 23 sólskin Jóhannesarborg 20 sólskin Kaupmannahöfn 25 sólskin Lissabon 24 sólskin London 23 sólskin Los Angeles 37 bjart Madríd 20 skýjaó Malaga 21 bjart Miami 27 skýjaö Moskva 22 bjart New York 26 skýjað Ósló 26 sólskin Palma, Majorca 23 skýjéð París 25 bjart Róm 22 sólskin Stokkhólmur 26 sólskin Tel Aviv 34 bjart Tokýo 16 rigning Vancouver 15 bjart Vín 23 bjart Eldur í olíu- hreins- unarstöð Texas-borg, Texas, 30. maí. MIKLIR eldar geisuðu í dag í stórri olíuhreinsunarstöð í bænum Texas, og hafa að minnsta kosti þrír látið lífið og 12 særst í eldunum. Þrír hinna særðu eru sagðir svo mikið brunnir að þeim er vart hugað líf. Eldarnir kviknuðu í bitið í morgun og fyrr en varði var olíuhreinsunarstöðin orðin alelda. Slökkvistarfið gengur erfiðlega sakir hins mikla hita, og hafa slökkviliðsmenn einbeitt sér að því að verja þá olíugeyma, sem enn eru heilir. Ekki er vitað um eldsupptök. Verður verj endum Meyers bönnuð þátt- taka í réttarhöldmn? sleppt skömmu síðar, en saksóknari ríkisins heldur því fram að flótti Meyers hafi því aðeins verið mögulegur, að þeir hafi verið í vitorði með honum. Þá var annar verjandi settur í gæsluvarðhald í dag, en búizt er við að honum verði þó sleppt fljótlega. Verjandinn, Ingrid Loh- stoeter, var handtekinn í kjölfar húsrannsóknar sem gerð var á skrifstofu hans. Rannsóknin var gerð til að kanna hvort nokkuð fyndist, er bendlað gæti hana við flóttann. Lohstoeter er verj- andi eins hryðjuverkamann- anna fimm, sem eru nú fyrir rétti. Glæ gjafavörur - : & - f j 4 i t - i 1 Rosenthal býöur yður ýmislegt fleira en postulín og platta. Komiö í verzlun okkar og skoöið hinar frábæru gjafavörur, — glervöru, postulín og borðbúnað í ýmsum verðflokkum. Rosenthal merkið tryggir frábæra hönnun fyrir heimilið. Rosenthal vörur- gullfallegar — gulltryggðar A. EINARSSON & FUNK Laugavegi 85

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.