Morgunblaðið - 31.05.1978, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 31.05.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1978 5 Kosið á ísafirði. Marías b. Guðmundsson oddviti yfirkjörstjórnar stendur fyrir borðsenda. Ljósm. Úlfar. Kjördagur á ísafirði KJÖRSÓKN við sveitarstjórnar- kosningarnar á Isafirði varð örlít- ið meiri en við þær síðustu, nú 86,1% en síðast 85,7% þrátt fyrir að veður væri leiðinlegt á kjördegi. Framan af var rigning öðru hvoru sem jókst er á leið og bjóst yfirkjörstjórn við minni kjörsókn, en er leið að kvöldmat var hún orðin meiri en síðast. Marías Þ. Guðmundsson og Jens Kristmannsson voru á skrifstofu yfirkjörstjórnar í Gagnfræðaskóla Isafjarðar þar sem kosið var og ásamt þeim á sæti í yfirkjörstjórn Magni Guðmundsson. Stjórnuðu þeir talningunni um kvöldið en hún hófst nokkru áður en kjör- stöðum var lokað og fór fram í Gagnfræðaskólanum. Störfuðu við hana 10—12 manns alls, þ.e. yfirkjörstjórn ásamt fulltrúum flokkanna er buðu fram. „Enginn gerði sér vonir um að G-listinn fengi 5 menn” —segir Guðmundur Þ. Jónsson 5. borgarfulltrúi Alþýðubandalags EINN frambjóðandi í borgar- stjórnarkosningunum hlaut mjög óvænta kosningu en það er Guðmundur Þ. Jónsson, formaður Landssambands iðn- verkafólks. fimmti maður á lista Alþýðubandalagsins. Kosning hans þýddi fall meiri- hluta Sjálfstæðisflokksins. Morgunblaðiö ræddi í gær við Guðmund um hina óvæntu setu hans í borgarstjórn Reykjavík- ur. — Eg er nú satt að segja vart búinn að átta mig á því að ég sé kominn í borgarstjórn, sagði Guðmundur. Það hvarflaði aldrei að mér allan tímann að svona færi. Markmiðið hjá okkur í kosningabaráttunni var .það að tryggja Guðrúnu Helga- dóttur sæti í borgarstjórn. En við þekkjum öll í dag hvernig útkoman varð og ég fagna mjög þessari útkomu. Ég er ákaflega ánægður með þá góðu kosningu, sem Alþýðubandalagið fékk hér í Reykjavík og um allt land. — Kosning þín þýddi að áralöng meirihlutastjórn Sjálf- stæðisflokksins var fallin. Hvernig er þér innanbrjósts eftir slíkan stórpólitískan at- burð? — Ég er mjög ánægður með það að mitt nafn skuli tengt þeim sögulega atburði að fimmtíu ára meirihluti sjálf- stæðismanna í borgarstjórn skuli felldur. Hitt er svo annað mál að ég lít' ekki á þetta sem persónulegan sigur heldur sigur Alþýðubandalagsins. — Fyrir hvaða málum muntu einkum beita þér fyrir í borgar- stjórn? — Þetta hefur nú komið svo óvænt að ég hef vart áttað mig á þessu eins og ég sagði áðan. Ég held að enginn hafi gert sér vonir um það að G — listinn myndi fá fimm menn kjörna og að ég kæmist í borgarstjórn. Og þegar maður hefur ekki einu sinni „gengið með borgarfulltrú- ann í maganum", er kannski ekkert skrítið að maður skuli ekki geta svarað þessari spurn- ingu óviðbúið. Þegar ég tók sæti á þessum lista sagði ég að ég liti fyrst og fremst á mig sem fulltrúa verkafólks vegna tengsla minna við verkalýðs- hreyfinguna og starfa minna þar. Ég hef nú ekki á prjónunum neinar tillögur um þau mál í borgarstjórn en eðlilega kemur svo að því þegar maður fer að starfa að þar að upp komi mál sem maður hefur áhuga á og þá reynir maður að vinna að framgangi þeirra eins og tök eru á. Kjörstjórnina skipa (f.h) Steinn Kjartansson. Auðunn Karlsson og Finnbogi Hermannsson. „Þetta er heil ritgerð” Á kjördegi í Súðavík Súðavík í Álftafirði er einn þeirra staða á landinu þar sem kosið er óhlut- bundið, þ.e. í kjöri eru allir þeir er kosningarétt hafa og eru á kjörskrá. Að þessu sinni eru 149 á kjörskrá og hafa því Súðvíkingar úr þessum fjölda að velja er þeir kjósa sína fimm menn í sveitarstjórn. Einn til- kynnti þó að hann gæfi ekki kost á sér. Þegar Mbl. leit við í Félagsheimilinu í Súðavík uppúr hádegi á kjördag var þar jafn straumur fólks kominn til að kjósa og afhenti kjörstjórinn at- kvæðaseðla og leiðbeindi hvernig fara ætti að. — Hér þurfa menn að kjósa alls 12 manns þ.e. 5 sveitarstjórnarmenn og 5 til vara og einn sýslu- nefndarmann ásamt vara- manni, sögðu þeir kjör- stjórnarmenn, en þeir eru þrír: Finnbogi Hermanns- son, Auðunn Karlsson og Steinn Kjartansson. — Við erum eiginlega allt í'senn undir, yfir og allt í kring, sögðu þeir, þ.e. bæði undir- og yfirkjörstjórn. „Þetta er heil ritgerð," sagði einn kjósandinn að lokinni kosningu, „því það þarf að skrifa svo rnikið," og annar kjósandi kvartaði undan því að geta ekki lesið það sem hann hefði skrifað því skriffæri kjörstjórnar- innar væru í daufara lagi. — Við byrjum að telja strax kl. átta í kvöld og reiknum með að það taki nokkurn tíma, sögðu kjör- stjórnarmenn, því það eru talsvert mörg nöfn sem geta komist á blað, kannski 50—60 manns í allt. Það er gjörsamlega útilokað að segja fyrir um það hvort það verða miklar breyting- ar á sveitarstjórninni, því atkvæðin dreifast svo mjög á menn. Þegar Mbl. var þarna á ferð höfðu 32 kosið, en þeir áttu von á að a.m.k. 70% myndu kjósa alls, en kjör- fundi átti að ljúka kl. 20.00 og hafði staðið yfir frá hádegi. Nýjar sendingar af stórglæsilegum tízkufatnaði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.