Morgunblaðið - 31.05.1978, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1978
LOFTLEIDIfí
lawBÍLALEI6A
MALLORCA
Dagflug á sunnudögum. Eftirsótt-
asta paradís Evrópu. Sjórinn, sól-
skinið og skemmtanalífið eins og
fólk vill hafa það. Tvær Sunnu-
skrifstofur og hópur af íslensku
starfsfólki, barnagæsla og leik-
skóli.
Bestu og eftirsóttustu hótel og
íbúðir, sem hægt er að fá, svo sem:
Royal Magaluf, Royal Torrenova,
Portonova, Antillas, Barbados,
Guadalupe, Helios hótel og
íbúðir, og Hótel 33 fyrir unga
fólkið (Klúbb 32).
Farið verður: 3. og 21. maí -1.-11.
18. júní -2.-9.-23.-30. júlí 6.-13.-20.
27. ágúst 3.-10.-17.-24 sept.
1.-8.-15. okt.
SVNNA
Bankastræti 10. Símar 29322.
Þakka öllum, sem minntust
mín á sjötugsafmæli mínu.
Kr. Guðmundur
Guðmundsson.
Skuldabréf
fasteignatryggð og spariski'rteini
til sölu. Miðstöð verðbréfa-
viðskipta er hjá okkur.
Fasteigna og verðbréfasala
Vesturgötu 17 sími 16223.
Þorleifur Guðmundsson
heimasími 12469.
Útvarp Reykjavík
yfilDMIKUDKGUR
31. mai
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 8.00, 8.15
og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05.
Fréttir kl. 7.30. 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
9.15. Sigríður Eyþórsdóttir
lýkur lestri sögunnar um
„Salómon svarta“ eftir Hjört
Gíslason (8).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Kirkjutónlist kl. 10.25. Páll
ísólfsson leikur á orgel
AUrasálnakirkju f Lundún-
um tónverk cftir Jóhann
Sebastian Bach.
Morguntónleikar kl. 11.00.
Kammersveitin í Brno leik-
ur Concerto grosso op. 6 nr.
8 eftir Corellii Bohdan
Warchal stj. / Hermann
Baumann og Konserthljóm-
sveitin í Amsterdam leika
Hornkonsert í d-moll eftir
Rosetti; Jaap Schröder
stjórnar. / Isaac Stern,
Punchas Zukermann og
Enska kammersveitin leika
Sinfóníu concertante í D-dúr
fyrir fiðlu, víólu og hljóm-
sveit eftir Stamitz. Daniel
Barenboim stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
Við vinnuna. Tónleikar.
SÍÐDEGIÐ_____________________
14.30 Miðdegissagan. „Gler-
húsin“ eftir Finn Söeborg.
Halldór S. Stefánsson les
þýðingu sína (8).
15.00 Miðdegistónleikar
Danska útvarpshljómsveitin
leikur „Helios“ — forleik
eftir Carl Nielsen, Erik
Tuxen stjórnar.
Leon Goossens og hljóm-
sveitin Fflharmonía leika
Konsert fyrir óbó og
strengjasveit eftir Vaughan
Williams. Walter Susskind
stjórnar.
Nýja sinfóníuhljómsveitin
leikur Sinfónfu nr. 2 op. 19
eftir Samuel Barber. höfund-
ur stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn
Halldór Gunnarsson kynnir.
17.20 Litli barnatiminn
Gísli Ásgeirsson stjórnar
tfmanum.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
KVOLDIÐ
MIÐVIKUDAGUR 'J
31. maf
19.00 On We Go.
Enskukennsla.
29. þáttur frumsýndur.
19.15 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.30 Smokie (L).
Hljómsveitin Smokie sem
skemmta mun á listahátfð
7. júní flytur þrjú lög.
20.40 Nýjasta tækni og vír
indi.
Regnörvun. Tæknivæðing
frumstæðs búskapar.
Sífrerinn.
Umsjónarmaður Sigurður
H. Richter.
21.00 Charles Dickens (L).
Breskur myndaflokkur.
9. þáttur. Draumar.
Efni áttunda þáttar.
Charles Dickens laðast æ
meir að mágkonu sinni,
Mary Hogarth. Hann hefur
samið ieikrit, sem tekið er
til sýningar, en leikhús-
stjórinn neitar að greiða
ritlaun, nema Charles semji
annað ieikrit. Fjölskylda
Dickens fer stækkandi, og
hann festir kaup á íbúðar
húsnæði. En nú dynur ógæf-
an yfir. Mary Hogarth deyx.
Þýðandi Jón O. Edwald.
21.50 Verndarvættir fiski-
mannanna (L).
Bresk fuglamynd.
Á Hjaltlandi er einhver
mesta byggð sjófugla í
Evrópu. Þar búa lundar,
teistur, álkur, skarfar, súl-
ur og fleiri tegundir saman
í sátt og samiyndi. En nú er
hafið umhverfis eyjarnar
tekið að mengast og ekki
bætir úr skák, að olía hefur
fundist á hafsbotni f
grenndinni.
Þýðandi og þulur Bogi
Arnar Finnbogason.
22.15 Spor í rétta átt.
Ymsir dansar, sem Henný
Hermannsdóttir hefur sam-
ið sérstaklega fyrir sjón-
Stjórn upptöku Tage
Ammendrup.
Áður á dagskrá 8. maí 1977.
22.35 Dagskrárlok.
19.35 Gestur í útvarpssal.
Ritva Auvinen syngur lög
eftir Yrjö Kilpinen. Agnes
Löve leikur á píanó.
20.00 Hvað á hann að heita?
Hjálmar Árnason og Guð-
mundur Árni Stefánsson
hleypa af stokkunum nýjum
þætti fyrir unglinga.
20.40 íþróttir
Hermann Gunnarsson sér
um þáttinn.
21.00 Sænsk tónlist
Sinfóníuhljómsveitin f
Berlín leikur tónlist eftir
Adolf Wiklund, Áke Uddén,
Nils Björkander o.fl.i Stig
Rybrant stjórnar.
21.30 Dómsmál.
Björn Helgason hæstarétta-
ritari segir frá.
21.50 Gftarleikur
Louise Walker leikur tón-
verk eftir Fernando Sor og
Guido Santorsola.
22.05 Kvöldsagan. Ævisaga
Sigurðar Ingjaldssonar frá
Balaskarði.
Indriði G. Þorsteinsson les
sfðari hluta (15).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Djassþáttur f umsjá Jóns
Múla Árnasonar.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
Sjófuglabyggð
á Hjaltlandi
„Verndarvættir fiski-
manna" nefnist brezk
fuglamynd sem sýnd
verður í sjónvarpi klukk-
an 21.50. í kvöld. í
myndinni er sagt frá
sjófuglabyggð á Hjalt-
landi, en byggðin þar er
einhver sú mesta í
Evrópu.
Lundar, teistur, álkur,
skarfar og súlur búa þar
í sátt og samlyndi og
hefur svo verið frá örófi
alda. En nú ógnar olíu-
mengun eyjunum og til
að bæta gráu ofan á
svart hefur olía fundizt í
nágrenni Hjaltlands.
Framtíð fuglabyggðar-
innar stafar mikill
hætta af olíunni og víst
er að umhverfis-
verndunarsinnar mun
gera sitt til að fugla-
byggðin verði ekki með
öllu lögð í rúst.
Á eftir fréttum og auglýsingum í kvöld skemmtir hljómsveitin
Smokie í sjónvarpi. Pop-hljómsveitin flytur þrjú kunn lög, en
þátturinn er 10 mfnútna langur. Eins og kunnugt er kemur
hljómsveitin á listahátfð og þvf gefst pop-áhugamönnum hér gott
tækifæri til að sjá hljómsveitina á sviði. Ætti því enginn að þurfa
að kaupa köttinn f sekknum, þegar að hljómleikahaldi Smokie
kemur.
„Hvað á hann að heita“.
Þessu einkennilega nafni
nefnist nýr þáttur fyrir
börn og unglinga sem
hefur göngu sína í
útvarpi í kvöld klukkan
20.00. Hjálmar Árnason
og Guðmundur Árni
Stefánsson stjórna þætt-
inum sem er 40 mínútna
langur.