Morgunblaðið - 31.05.1978, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1978
Plakat á 10
þúsund krónur
LISTAHÁTÍÐ hefur ákveðið í
samráði við Erró að gefa út plakat
Errós, sem hangið-hefur uppi víða,
sem auglýsingu fyrir Listahátíð.
Plakatið verður prentað í 60
númerúðum eintökum á sérstakan
pappír og verður það til sölu, 10
þúsund krónur eintakið. Eintökin
verða árituð af Erró.
Olafur Jensson
læknir ver
doktorsritgerð
Doktorsvörn fer fram við lækna-
deild Háskóla íslands laugar-
daginn 3. júní n.k. Mun Ólafur
Jensson læknir þá verja ritgerð
sína „Studies on Four Hereditary
Blood Disorders in Iceland" fyrir
doktorsnafnbót í læknisfræði.
Andmælendur af. hálfu lækna-
deildar verða prófessor dr. med.
Káre Berg frá Háskólanum í Ósló
og prófessor dr. med. John
Edwards frá Háskólanum í
Birmingham.
Doktorsvörnin fer fram í hátíða-
sal háskólans og hefst kl. 2 e.h.
Öllum er heimill aðgangur.
Sérstök flugvél
flytur hljóðfærin
SMOKIE eru væntanlegir á Lista-
hátíð. Þegar þeir koma, kemur
með þeim sérstök flugvél, sem
flytja mun hljóðfæri þeirra til
landsins. Hljóðfærin eru á milli 17
og 18 tonn. „Það er því öruggt,"
sagði Hrafn GunnláUgsson, fram-
kvæmdastjóri Listahátíðar, „að
það verður „sánd“ í Laugardals-
höllinni, þegar þeir leika þar.“
Bíll valt
Volkswagenbifreið með þremur
ungum mönnum valt á Vestur-
landsvegi við Dalsmynni um hálf-
eittleytið í fyrrakvöld. Tveir
mannanna fóru á slysadeild
Borgarspítalans, en reyndust ekki
hafa meiðst alvarlega.
Tildrög atburðarins voru þau, að
bifreiðastjórinn missti stjórn á
bílnum þegar hann kom af
Sverrisbraut svonefndri og í lausa-
möl. Valt bíllinn nokkrar veltur og
er hann gjörónýtur talinn.
Fjölmenn útför
á Hornafirði
Hofn. Hornafirði. 30. maí
ÚTFÖR Kjartans Árnasonar,
héraðslæknis í Hafnarlæknis-
héraði, var í dag gerð frá Hafnar-
kirkju að viðstöddu miklu
fjölmenni. Mætti fólk að hvaðan-
æva úr sýslunni og úr næstu
sýslum.
Kjartan var vinsæll og traustur
maður og hafði þjónað þessu
læknishéraði í 28 ár. Séra Gylfi
Jónsson jarðsöng. — Elías.
Leiðrétting
SL. SUNNUDAG slæddist sú
meinlega villa inn í frétt af starfi
Tæknifræðingafélags íslands, að
félagið íhugaði aðild að Verkfræð-
ingafélagi íslands o.s.frv. — Hið
rétta er að félagið íhugar ásamt
Verkfræðingafélagi íslands aðild
að FEANI, Evrópusamtökum
verk- og tæknifræðinga. Biðst Mbl.
velvirðingár á þessum mistökum.
Leiðrétting
í VIÐTALI við Örn Einarsson
garðyrkjubónda í Silfurtúni, sem
birtist í Mbl. í gær, varð sú
missögn að milliliðir fengju um
helming þess verðs, sem garð-
yrkjubóndi fengi fyrir blóm. Hér
átti að standa að garðyrkjubænd-
ur fVngju um helming þeirrar
upphæðar, sem neytendur greiddu
fvrir blómin. Eru hlutaðeigendur
beðnir velvirðingar á þessu.
— Sadat
Framhald af bls. 1
sem hann kallaði svo. En hann tók
fram að hann ætlaði ekki að grípa
til aðgerða gegn þeim.
Sadat kvaðst enn fylgjandi
lýðræði en bætti því við að hegna
yrði andstæðingum hans og hét
því að berjast áfram gegn marxist-
um í innanlandsmálum. Hann
varði um það bil helmingi blaða-
mannafundarins til að útskýra
ástæðurnar fyrir þjóðaratkvæða-
greiðslunni.
— Nýjar bækur
Framhald af bls. 16
vörður annast útgáfuna. Félagið
nýtur styrks til útgáfunnar frá
Alþingi og nú eiga eftir að koma
út 3 bindi.
Á fréttamannafundinum kynntu
forráðamenn Sögufélags einnig 4.
bindi ritraðarinnar Safn til sögu
Reykjavíkur, Reykjavík miðstöð
þjóðlífs. Efni þessa bindis byggist
að mestu á fyrirlestrum sem
fjölmargir fræðimenn fluttu á
Reykjavíkurráðstefnu á Kjarvals-
stöðum í apríl 1977. Eru þar erindi
um þá þróun Reykjavíkur að verða
miðstöð þjóðlífs á íslandi, eins og
Einar Laxness komst að orði og
meðal efnis sem höfundar fjalla
um er: Blöð og fundahöld í
Reykjavík, trjárækt, konur í at-
vinnulífi, flutning kirkjulegrar
yfirstjórnar til Reykjavíkur, sam-
gönguleiðir, stjórnmál, verkalýðs-
mál, verzlunarmál, skólamál og
örnefni. Umsjónarmenn ritsins
eru Kristín Ástgeirsdóttir
háskólanemi og Helgi Þorláksson
cand.. mag.
I nýja stjórn Sögufélas voru
kjörin og skipti hún þannig með
sér verkum: Einar Laxness cand.
mag. forseti, dr. Gunnar Karlsson
lektor, Helgi Þorláksson cand.
mag. ritari, Pétur Sæmundsen
bankastjóri gjaldkeri, Sigríður
Erlendsdóttir. Til vara voru kjörn-
ir Helgi Skúli Kjartansson cand.
mag. og Sigurður Ragnarsson
menntaskólakennari.
Sögufélag var stofnað árið 1902
í þeim tilgangi að gefa út
heimildarrit um sögu íslands
einkum eftir siðaskipti. Félagar
teljast þeir sem eru kaupendur
ársrits félagsins Sögu, og eru þeir
nú um eitt þúsund talsins. Útgáfu-
rit félagsins eru flest seld á
almennum markaði og njóta
félagsmenn 20% afsláttar frá
venjulegu bóksöluverði. Afgreiðsla
er til húsa að Garðastræti 13 og
er Ragnheiður Þorláksdóttir fram-
kvæmdastjóri félagsins.
200 manns
hjá Hval h.f.
UM OG yfir 200 manns munu
vinna hjá Hval h.f. í sumar, en
hvalskurður hófst í Hvalfirði í
gær, er fyrstu 3 hvalirnir bárust
að landi. Á hvalbátunum fjórum
eru 60 manns, við hvalstöðina í
Hvalfirði vinna síðan 100 manns
og í frystihúsi Hvals h.f. í
Hafnarfirði vinna um 60 manns að
meðaltali. Þá þrjá daga sem
hvalveiðarnar hafa verið stundað-
ar hafa veiðarnar gengið vel og í
gærmorgun voru bátarnir búnir að
fá alls 7 hvali, 5 langreyðar og 2
búrhvali.
Lézt af völdum
umferðarslyss
MAÐURINN, sem slasaðist lífs-
hættulega þegar hann varp fyrir
strætisvagni á Laugavegi á móts
við Mjólkurstöðina að morgni
miðvikudags í síðustu viku, lézt á
Borgarspítalanum í gær af völdum
meiðsla, sem hann hlaut í slysinu.
Maðurinn hét Loftur Gestsson,
Skúlagötu 72, Reykjavík. Loftur
var 60 ára gamall, fæddur 31. júní
1917. Hann lætur eftir sig konu og
þrjú börn.
Tikka Khan
fyrir
herdómstól
Humarvertíðin hafin:
Minni ásókn í hum-
arleyfin en áður
HUMARVEIÐAR hófust á
laugardag og eru humarbátarnir
nú að koma að landi úr fyrstu
veiðiferðinni. Að þessu sinni
fengu 122 bátar leyfi til veiðanna,
en á s.l. ári fengu 180 bátar leyfi
tii veiðanna, en aðeins 147 nýttu
sér leyfið.
Jón B. Jónasson deildarstjóri í
sjávarútvegsráðuneytinu sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær, að
ásókn í leyfin hefði verið miklu
minni nú en í fyrra. Um ástæðuna
sagðist Jón ekki vita gjörla, en
menn hefðu sagt að útkoman á
veiðunum í fyrra hefði ekki verið
nógu góð.
Til skamms tíma hafa margir
þeirra sem verka humar borgað
jafnaðarverð fyrir humarinn, þ.e.
óflokkaðan, og með því móti hefur
fengist hærra jafnaðarverð fyrir
hann. Morgunblaðið hefur hins
vegar heyrt að nú hafi humar-
kaupendur tekið sig saman um að
greiða fyrir humarinn eftir flokk-
un Framleiðsueftirlits sjávaraf-
urða, sem þýðir að lægra jafnaðar-
verð fæst fyrir humarinn en áður,
og mun þetta hafa dregið úr ásókn
útgerðarmanna í leyfin.
Vitað er að mikið af ungum
humri er nú í uppvexti og var
humarinn t.d. smár á s.l. ári. Hafa
fiskifræðingar spáð því að svo
verði einnig í sumar, en á næsta
ári megi reikna með stærri humri
í veiðinni.
Lahore 2. maí Reuter
TIKKA Khan hershöfðingi, fyrr-
verandi varnarmálaráðherra og
stuðningsmaður Ali Bhuttos, fyrr-
verandi forsætisráðherra Pakist-
ans, verður leiddur fyrir sérskip-
aðan herdómstól og bornar fram á
hendur honum ákærur um að vera
viðriðinn morð og múgæsingu.
Tikka Khan var handtekinn í
Lahore í marz er hann stjórnaði
óeirðum til þess að mótmæla
dauðadómnum sem kveðinn var
upp yfir Bhutto. Tikka Khan var
landstjóri í Austur-Pakistan um
hríð áður en kom til stofnunar
Bangladesh árið 1971. Hann gekk
síðar í Þjóðarflokk Bhuttos og var
einn helztur ráðgjafa hann í sex
ár.
Sameiginlegir fram-
boðsfundir 1 Norður-
landskjördæmi eystra
FRAMBJÓÐENDUR stjórnmála-
flokkanna í Norðurlandskjör-
dæmi cystra hafa ákveðið að efna
til sameiginlegra framboðsfunda
fyrir alþingiskosningarnar 25.
júní. Þetta er nýmadi í kosninga-
baráttu í kjördæminu, en slíkir
sameiginlegir fundir hafa ekki
verið haldnir síðan Norðurland
eystra varð eitt kjördæmi.
Ákveðnir hafa verið 12 fundir á
jafnmörgum stöðum. Fundahöldin
hefjast í Hrísey 1. júní og lýkur á
Akureyri í síðustu viku fyrir
kosningar.
Fundirnir verða sem hér segir:
1. júní: Hrísey. 2. júní: Þelamerk-
urskóla. 3. júní: Laugaborg. 7. júní:
Húsavík. 8. júní: Laugum. 9. júní:
Grenivík. 10. júní: Ólafsfirði. 12.
júní: Dalvík. 13. júní: Kópaskeri.
14. júní: Raufarhöfn. 15. júní:
Þórshöfn.
Ekki hefur verið ákveðinn
fundardagur á Akureyri, en hann
verður í síðustu viku fyrir kosn-
ingar.
Allir fundirnir verða nánar
auglýstir síðar á viðkomandi
stöðum.
(Frá írambjtióonduin).
— Flestir listar
Framhald af bls. 32.
flokksins og V-listi óháðra kjós-
enda. — Samtals 7 listar.
Suðurlandskjördæmi eru list-
arnir 5, en að auki L-listi óháðra
kjósenda.
í Vestfjarðakjördæmi eru
listarnir 5, en að auki H-listi
óháðra kjósenda.
í öðrum kjördæmum eru listarn-
ir 5, A, B, D, F og G.
Utankjörstaðakosning fyrir
alþingiskosningarnar 25. júní
hófst síðastliðinn sunnudag. For-
maður Landskjörstjórnar er Vil-
hjálmur Jónsson, hæstaréttarlög-
maður.
— Utankjör-
staðakosning
Framhald af bls. 32.
að kjósa. Þá segir reynslan enn-
fremur að mun fleiri neyti
atkvæðisréttar síns utankjör-
staðar til alþingiskosninga en
borgarstjórnar eða sveitarstjórna-
kosninga. Árið 1974 kusu við
borgarstjórnarkosningar 4.400
manns, en við alþingiskosningar
rúmlega 8 þúsund manns.
ASÍMINN ER:
22480
JR«r0imblnbit>
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
SVAR MITT eftir Billy Graham
Við heyrum mikið talað um frið. En trúið þér því í raun
og veru, að von sé um frið í heiminum eins og hann er?
Friðarhorfur eru daufar, ef við bindum vonir okkar
við bandalög, Sameinuðu þjóðirnar, stjórnarskrá ríkis
okkar eða á góðan vilja forystumanna heimsins.
Marteinn Lúther sá verkamenn í Wittenberg reisa
vegg í kringum borg sína, þegar Tyrkir réðust inn í
Evrópu. Hann mælti: „Ef Drottinn er okkur ekki
veggur, er þessi veggur einskis virði“.
Friðurinn er andlegur. Hann fæst, þegar við gerum
okkur grein fyrir hinum andlegu lögmálum og krafti.
Einu sinni sagði Jehú við Jóram, að ef hann gleymdi
Guði og elti skurðgoðin og dýrkaði þau, þá mundi
.hann farast eins og þjóðir þær, sem Drottinn útrýmdi
fyrir augum hans.
Það er sérstætt við þjóð okkar, að hún varð til í
andrúmslofti trúar a Guð. Ef það glatast okkur,
höfum við enga frekari tryggingu fyrir friði en hvaða
þjóð sem vera skal, sem ekki er kristin.
„Sæl er sú þjóð, sem á Drottin að Guði“. Nei, það
eru litlar horfur á friði, meðan friðarhöfðingjanum
er hafnað.
Ein milljón
atvinnulaus
á Spáni
Madríd 29. maí. AP.
SPÁNSKA hagstofan tilkynnti í
dag aö nærri milljón manna væri
atvinnulaus á Spáni en fjöldi
vinnufærra í landinu mun vera um
13 milljónir. Atvinnulausir eru því
um 7%. Mest er atvinnuleysið í
byggingariðnaði en einnig er
atvinnuleysi mikið í þjónustuiðn-
aði og öðrum iðnaði.
Tilboð opn-
uð í dreifi-
kerfið i
Sandgerði
Tilboð hafa verið opnuð í
dreifikerfi Hitaveitu Suðurnesja í
Sandgerði. Alls bárust fimm tilboð
í verkið, það lægsta frá Ásbergi
h.f. í Reykjavík að upphæð 102.3
millj. kr. en kostnaðaráætlun
Fjarhitunar h-.f. hljóðaði upp á
119.1 millj. kr.
Önnur tilboð sem bárust í
dreifikerfið voru frá Sverri Þór-
ólfssyni og Höskuldi Guðmunds-
syni, kr. 112.1 millj. kr., Víkurverk
í Grindavík, kr. 110.3 millj.,
Véltækni h.f., Reykjavík, kr. 121.0
millj., og frá Garðasmiðjunni s.f,
Garðabæ, kr. 111.1 millj.
Vitni vantar
FIMMTUDAGINN 25. maí s.l. var
ekið á bifreiðina G-5219, sem er
Austin mini fólksbifreið, gulbrún
á lit, þar sem hún stóð á
Linnetsstíg í Hafnarfirði fyrir
utan blómabúðina Burkna.
Skemmdir urðu á vinstri hlið.
Þeir, sem telja sig geta veitt
upplýsingar um þessa ákeyrslu,
eru beðnir að hafa samband við
Rannsóknarlögregluna í Hafnar-
firði.
Dánarorsökin
var drukknun
MAÐURINN, sem fannst látinn í
heita læknum í Nauthólsvík s.l.
laugardagsmorgun, hét Ingólfur
Arnar Guðmundsson, Grundar-
götu 5, Akureyri. Hann var
þrítugur að aldri.
Ingólfur heitinn fannst í lækn-
um um níuleytið á laugardags-
morgun. Vitni telur sig hafa rætt
við Ingólf við lækinn milli klukkan
5 og 6 á laugardagsmorgun og var
þá allt í lagi. Niðurstaða krufning-
ar varð sú, að banamein Ingólfs
hafi verið drukknun.