Morgunblaðið - 31.05.1978, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1978
25
félk í
fréttum
+ Rita Hoefiing hefur einangr-
að sig í húsi sinu skammt frá
Höfðaborg í S-afríku — ein-
angrað sig frá veröld, sem er
full af óvinum. Taugar hennar
eru að því komnar að bresta og
hún er mjög veik. Aðalorsak-
anna er að leita í samfélagi því
sem hún býr í.
Fyrir 4 árum hófst martröð,
sem ekki sér fyrir endann á
enn. Rita Hoefling var starf-
andi hjúkrunarkona og gift
flugvirkja. Þau áttu 2 börn,
pilt og stúlku og fjölskyldan
lifði hamingjusömu lífi. Fjár-
hagurinn var góður og það sem
skipti mestu máli — þau voru
hvít. Þá kom f Ijós að Rita
þjáðist af sjúkdómi í nýrnahett-
unum sem ollii því að húð
hennar dökknaði smátt og
smátt. í byrjun leit út eins og
hún væri bara svona dökk af
sólinni. En smám saman varð
húðin æ dekkri. Læknir hennar
ráðlagði henni að flytja þangað
sem loftslag væri heilnæmara,
en það hafði engin áhrif.
Fjölskyldan settist þá að í Sea
Point, sem liggur að sjó. Þar
fékk Rita að finna fyrir hvað
kynþáttamisrétti er. Daginn,
sem þau fluttu í húsið var hún
boðin _velkomin“ af nágrönn-
unum. I póstkassanum var miði
sem á stóði „Það er nýtt fyrir
okkur að hafa nágranna, sem
er litaður og við kærum okkur
ekki um það.“ Fólk hélt að hún
væri kynblendingur og hlust-
aði ekki á útskýringar hennar
eða fjölskyldunnar. Því í S-
Afríku tala hvítir menn ekki
við fjölskyldur litaðra. Nokkr-
um dögum síðar fékk hún aðra
kveðju frá nágrönnunum.
Mynd, sem einn nágranni henn-
ar hafði tekið af henni, var
hent inn til hennar og var
myndin ötuð skít. En það var
ekki nóg með að nágrannarnir
sýndu henni fjandskap. Eitt
sinn þegar hún ætlaði að taka
strætisvagninn inn í Höfðaborg
var henni neitað um far með
vagninum sem ætlaður er hvít-
um. Hún fór á skrifstofur
vagnanna og fékk vottorð upp
á að hún mætti ferðast með
vögnum fyrir hvíta. En vagn-
stjórarnir tóku Iitið mark á
því. Og þá sjaldan að hún fékk
far með þeim vögnum létu
farþegarnir andúð sfna f ljós.
Rita Hoefling hefði e.t.v.
getað borið þessa byrði ef
fjölskyldan hefði staðið saman.
En því var ekki að skipta.
Fyrir 2 árum sleit sonurinn allt
samband sitt við móður sfna og
skömmu síðar yfirgaf eigin-
maður hennar hana. Þeir gátu
hvorugur staðið undir þeirri
byrði sem á þá var lögð. Hún
hefur misst allt — fjölskyldu
sína, vini og nú bíður hún eftir
þvf að dóttir hennar gefist upp.
Hún segir að það eina sem hún
vilji nú sé að fá að deyja. Því
það sé það eina sem getur losað
hana undan öllu þvf sem eitrað
hefur líf hennar.
+ Skilti þar sem stendur „aðeins fyrir hvíta og aðeins fyrir Iitaða“ eru á öðru hvoru
götuhorni í Höfðaborg og annars staðar í S-Afríku. Og strangt eftirlit með því að farið
sé eftir þessum skiltum.
PROOUCTION
Við útvegum dieselvélar og fylgihluti
til ísetningar í ýmsar gerðir bifreiöa.
Frekari upplýsingar gefur
HAFRAFELL HF
VAGNHÖFÐA 7, SÍMI 85211
Verkfasra-
hengi
Veggplötur ásamt hengjum og krókum til að
hafa verkfæri á. Fylgihlutunum má raða á
plötuna eftir því sem best hentar. Ómissandi á
vinnustöðum, verslunum, t.d. til útstillinga, og
heima við vilji maður hafa hlutina á visum stað.
Stærðir:
A 2000 mm 475 mm
B 1500 mm 475 mm
C 1000 mm 475 mm
D 500 mm 475 mm
# ^ Jk r
Skipholti 17, simar 15159 og 122 30
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
\l GLYSINGA
'^%Ér~7 SÍMINN ER:
4» 22480