Morgunblaðið - 31.05.1978, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1978
29
fundi 1977 eins fjölmennasta
stjórnmálaflokks á íslandi:
„Kristin kirkja hefur um aldir
mótaö að miklu leyti hugsunarhátt
íslenzku þjóðarinnar. Einn feg-
ursti samfélagslegi ávöxturinn af
áhrifum kristinnar trúar er
lýðraeðið með mannhelgi sinni,
frelsi og gagnkvæmri ábyrgðar-
skyldu þegnanna.
Lýðræðið byggir á siðgæðis-
þroska þegnanna og er sprottið
upp af kristnu hugarfari. Það er
jafnsterkt því hugarfari og
stendur og fellur með því.
Þess vegna ber að styrkja
kristna kirkju og efla áhrif
kristins dóms í öllum uppeldis-
störfum á heimilum og í skólum.
Þar er undirstaðan lögð.
Hlutverk stjórnmálamanna á að
vera útfærsla kristinnar grund-
vallarhugsjónar á sem flestum
sviðum samfélagsins."
Heiðruðu (sjálfstæðis-)foringjar
á íslandi. Hvers vegna ætti þá ekki
að byggja skóla og kirkjur eftir
sama lögmáli hvað snertir fjár-
framlög til þjóðarheilla?"
• Sportveiðar
og harðýðgi
Ingvar Agnarsson skrifari
„í Morgunblaðinu 17. maí sl. er
viðtal við einn af frambjóðendum
Sjálfstæðisflokksins á Selfossi.
M 1« j í \ 5
t * h \ íi S ’>
f ^
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
I0100KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
'Tr ilMlTBWUte'U II
Talar frambjóðandinn þarna um
tómstundaiðju sína, og virðist
telja sér það mjög til gildis hve
gaman hann hefur af að drepa dýr
allra tegunda. Nokkrar stuttar
tilvitnanir í ummæli hans gefa
nokkra mynd af því, hvað hann
telur sér helst til gildis:
„Ég hef haft gaman af stang-
veiðinni frá því ég var stráklingur,
og veiði ég jafnt lax og silung,
alveg eftir því hvað bítur á hjá
mér.“
„Nú hef ég einnig gaman af
fuglaveiði og hef skotið bæði rjúpu
og gæs.“
„I fyrra reyndi ég einnig að fá
leyfi til að skjóta hreindýr á
Austurlandi... ég held að það sé
afargaman að skjóta hreindýr.“
„... ég bý öll mín riffilskot til
sjálfur ... og nú ætla ég að færa
út kvíarnar og hlaða einnig mín
eigin haglaskot."
Maðurinn virðist telja sér þessa
óseðjandi drápsfýsn til gildis eða
dyggða og hann lýsir því hvar
hann stundi helst lax- og silungs-
veiði og hvert hann leggur leið
sína til rjúpna- og gæsaveiða. Þá
lýsir hann því einnig hvað þetta er
„spennandi íþrótt og heilsusam-
leg“.
Einkennileg
hvöt
Til eru menn sem telja sér
helst til dyggða eða lofs það sem
síst skyldi, eins og t.d. ónauðsyn-
legt dýradráp með öllum þeim
þjáningum, sem það hefur í för
með sér fyrir viðkomandi dýr, og
ætíð er það svo, að mikill fjöldi
veiðidýra sleppur helsærður úr
klóm veiðimanna, og verður að
heyja sitt helstríð þar til dauðinn
sigrar að lokum.
Einkennileg er sú hvöt margra
manna, að hafa ánægju af að
drepa og limlesta varnarlaus dýr.
Og í flestum tilvikum er hér ekki
um að ræða sjálfsbjargarviðleitni
þessara manna, því flestir hafa
þeir framfæri sitt af annarri
atvinnu, enda eru sportveiðar
flestum mönnum ærið kostnaðar-
samar en ekki ábatasamar.
Illt er til þess að vita að menn
skuli án ámælis geta svalað
grimmd sinni (veiðilöngun sinni) á
varnarlausum dýrum, sem ættu að
vera öllum til yndisauka, lifandi
en ekki dauð.
Sportveiðar þ.e. ónauðsynlegt og
ómannúðlegt dýradráp, ætti að
leggjast niður, en í stað þess
skyldu allir njóta hinnar lifandi
náttúru landsins, með öllu því lífi
sem þar er að finna.
Islenskir menn eru ekki einir í
landi sínu, sem betur fer. Islensk
dýr, margra tegunda, eru einnig
íbúar okkar fagra lands, og þau
hafa sinn lifsrétt. Því er okkur
skylt að vernda líf þeirra, eftir því
sem kostur er á, í stað þess að eyða
því.
Það er brot á lögmálum lifsins
og tilverunnar að eyða lífi án illrar
nauðsynjar. '*
Ingvar Agnarsson“
Þessir hringdu
Aumingja konan, skyldi þetta vera
hættulegt? Ætli allir útveggir
húsa í Miðborginni séu sótthreins-
aðir? Ég býst varla við því. Þetta
er þá aöeins eitt dæmi um hvað
hundar gera af sér til að hrella
viðkvæmt fólk. En hafa hundar
ekki gert þetta fyrr? Eða kettir?
Ég vona fastlega að hunda- og
kattaeigendur borgarinnar láti
dýrin hér eftir pissa í kopp heima
hjá sér, svo slíkt og annað eins
hrjái ekki vesalings konuna, enda
þótt hundahland sé nær lyktar-
laust, þorni fljótt eða skolist burt
í næstu rigningarskúr."
• Hundar á götum
Ásgeir Guðmundsson iðn-
skólakennari hringdi og hafði
þetta að segja:
„Kona í Miðborginni sá í tvo
daga í röð hund kasta frá sér þvagi
á húsvegg!! Þvílíkt og annað eins.
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Hvítur mátar í þriðja leik
Ný réttarhöld yfír Menten
Haág, Hollandi, 29. maí. AP.
HÆSTIRÉTTUR Hollands
ákvað í dag að ný réttarhöld
skyldu fara fram yfir milljóna-
mæringnum Pieter Menten, en
dómstóll í Amsterdam hafði
fyrr dæmt Menten í 15 ára
fangelsi fyrir stríðsglæpi. Ónóg-
ar sannanir munu hafa valdið
mestu um dóm hæstaréttar.
Menten, sem er 78 ára og var
handtekinn í desember í fyrra,
var dæmdur í fangelsi í desem-
ber sl. fyrir þátt sinn í útrým-
ingu Gyðinga í Póllandi. Segir í
ákærunni að hann hafi fyrir-
skipað að á milli 20 og 30
Gyðingar í pólska bænum
Podhoroce skyldu drepnir.
Menten hefur alla tíð haldið
sakleysi sínu til streitu.
Fjölmörg vitni hvaðanæva
voru leidd fyrir réttarhöldin og
báru þau öil að Menten hefði
drepið nokkra Gyðinga og fyrir-
skipað dauða annarra.
Ekki er vitað hvenær réttar-
höldin yfir Menten hefjast en
talið er líklegt að það verði
seinna á árinu.
SioeA v/gga é áhveraw
Höfum fyrirliggjandi
Farangursgrindur og
bindingar á allar
stærðir fólksbíla,
Broncoa
og fleiri bfla.
Einning skíðaboga
Bílavörubúðin Fjöðrin h.f.
Skeifan 2. simi 82944.
Staðan kom upp í hollensku
deildakeppninni í vetur. Það var
De Roode, sem hafði hvítt og átti
leik, en andstæðingur hans var
Piket. Lausnin er mjög skemmti-
leg:
27. Bh6+! Svartur gafst upp. Ef
27 ... Hxh6 þá 28. Dxf7 mát og ef
27... Dxh6 þá 28. He8+! - Kxe8,
29. De7 mát.