Morgunblaðið - 31.05.1978, Qupperneq 32
AUÍI/YSINÍ.ASIMINN ER:
22480
JHorjjtmblaÖifc
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1978
Hvetur VMSI
til yfirvinnu-
banns
ALLT benti til þess í
gærkveldi, að niðurstaða
formannaráðstefnu, Verka-
mannasambands Islands,
Flestir list-
ar í Reykja-
vík og á
Reykjanesi
ALMNGISKOSNINGAR vcrða
haldnar hinn 25. júní næstkom-
andi ok vcrða þá í öllum kjör-
dæmum framboðslistar með lista-
hókstöfunum A, B, D, F ok G, en
í fjórum kjördæmum verða fleiri
listar, alls 8 í Reykjavík, 7 í
Reykjaneskjörda'mi. 6 í Suður-
landskjördæmi og 6 í Vestur-
landskjördæmi.
I Reykjavík verða í kjöri, A-listi
Alþýðuflokksins, B-listi Fram-
sóknarflokksins, D-listi Sjálf-
stæðisflokksins, F-listi Frjáls-
lyndra og vinstri manna, -G-listi
Alþýðubandalagsins, K-listi
Kommúnistaflokks íslands, R-listi
Fylkingar byltingarsinnaðra
kommúnista og S-listi Stjórnmála-
flokksins. — Samtals 8 listar.
I Reykjaneskjördæmi eru allir
sömu 5 listarnir og í Reykjavík, en
þar er að auki S-listi Stjórnmála-
Framhald á bls. 18
r • r r€\
i jum:
sem ekki var lokið um
miðnætti, yrði að samband-
ið skoraði á aðildarfélög
sín að þau boðuðu yfir-
vinnubann í júnímánuði.
Miklar umræður urðu í
gær um til hvaða aðgerða
skyldi gripið í yfirstand-
andi kjaradeilu og stóðu
umræður enn yfir, er
Morgunblaðið fór í prent-
un.
Formannaráðstefnan var
haldin á Hótel Loftleiðum.
Talið var að Verkamanna-
sambandið myndi veita ein-
hvern frest, þar til yfir-
vinnubann gengi í gildi, í
trausti þess að vinnuveit-
endur freistuðu þess að ná
samningum. Er þar einkum
höfðað til bæjarstjórna um
að koma til móts við verka-
lýðshreyfinguna og semja.
Formannaráðstefna
VMSÍ hófst klukkan 14 í
gær. Á sjöunda tímanum
var gefið kvöldverðarhlé, en
fundir hófust aftur um
klukkan 21. Á meðan unnu
nefndir að samningu álykt-
ana um kjaramálin.
SKURÐGRAFAN lét staðar numið á lóðinni bak við Fjalaköttinn
í gær þegar Gérard Lemarque settist fyrir framan skúr Þorkels
Valdimarssonar með ungbarn í fangi. Sjá frásögn á bls. 12.
Sigurjón Pétursson:
„Könnun á aukakostnaði af
fullum vísitölubótum á laun”
„Málið ekki rætt”, segir Kristján Benediktsson
„EFTIR rabbfund okkar í
dag var skrifstofustjóra
borgarstjóra falið að
kanna hvaða aukakostnað
það hefði í för með sér
fyrir Reykjavík að greiða
fullar vísitölubætur á laun.
Fn það lögðu ekki allir
jafnmikla áherzlu á þetta á
Sæljón
seldi í Hull
SÆUÓN SU 104 frá Eskifirði
seldi 38 lestir af ísfiski í Hull í gær
fvrir 0.6 millj. kr. Meðalverð á kíló
var kr. 251.
I dag selur Gylfi frá Patreks-
firði í Hull og á föstudag selur
Valþór frá Siglufirði. í næstu viku
er gert ráð fyrir að 4 íslenzk
fiskiskip selji afla í Hull.
fundinum,“ sagði Sigurjón
Pétursson borgarfulltrúi
Alþýðubandalagsins er
Mbl. spurði hann í gær
hvort vænta mætti frá
meirihlutanum tillögu um
að Reykjavíkurborg
greiddi óskertar vísitölu-
bætur á laun.
Mbl. spurði einnig þá
Björgvin Guðmundsson
borgarfulltrúæ Alþýðu-
flokksins og Kristján Bene-
diktsson borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins hvort
slíkrar tillögu væri að
vænta frá meirihlutanum.
„Um þetta mál heíur
ekkert verið rætt og ég vil
ekki tjá mig um það á þessu
stigi,“ sagði Kristján Bene-
diktsson. „Við þurfum að
sjálfsögðu að aðgæta fyrst
hvernig fjárhagsstaða
Reykjavíkurborgar er.“
„Ég tel að það komi til
greina að athuga hvort
Reykjavíkurborg geti greitt
fullar vísitölubætur á laun,“
sagði Björgvin Guðmunds-
son. „Það þarf auðvitað að
athuga vel, hvað slíkt
myndi kosta borgina, því að
það hefur engan tilgang að
lofa launahækkun sem ekki
eru til peningar fyrir.“
AlKil.VSINOASÍMrNN ER:
22480
2Hor0unt>I«t>ií>
Friðrik er
enn efstur
FRIÐRIK Ólafsson gerði jafntefli
við Spánverjann Mestres á skák-
mótinu í Las Palmas á
Kanaríeyjum í gærkvöldi. Varð
skák þeirra 17 leikir. Friðrik
heldur forystu í mótinu með 6‘/2
vinning að loknum 8 umferðum.
Önnur úrslit í gærkvöldi urðu
þau að Perez vann Medina og
Csom gerði jafntefli við Rubio.
Aðrar skákir fóru í bið.
Friðrik er efstur eins og fyrr
segir með 6 'h vinning, Csom hefur
6 vinninga, Rodriguez og Padron 5
vinninga en aðrir minna. Þrjár
umferðir eru eftir í mótinu og er
nú ljóst' að Friðrik mun hreppa
eitt af efstu sætunum.
Fiskverðs-
ákvörðunin
í yfimefnd
NÝTT fiskverð á að taka gildi 1.
júní n.k., og að því er Morgunblað-
inu var tjáð í gær, mun enn langt
í land að samkomulag um nýtt
fiskverð takist. Verðlagsráð
sjávarútvegsins fjallaði fyrst um
fiskverðið, en er ljóst varð að
samkomulag myndi ekki nást þar,
var málinu vísað til yfirnefndar.
Yfirnefnd hefur haldið marga
fundi um málið og er næsti fundur
boðaður á morgun.
Utankjör-
staðakosn-
ing hafin
Utankjörstaðarkosning fyrir
alþingiskosningarnar hinn 25.
júní hófst í Miðbæjarbarna-
skólanum á sunnudag. Kjör-
staðurinn, sem ætlaður er þeim,
sem ekki verða heima á kjördag,
er opinn daglega frá klukkan 10
til 12 og 14 til 18 og frá klukkan
20 til 22.
Jónas Gústafsson borgarfógeti,
sem sér um talninguna kvaðst í
samtali við Morgunblaðið vilja
hvetja kjósendur, sem þurfa að
kjósa utankjörstaðar til þess að
gera það hið fyrsta. Þegar hafa um
70 kjósendur neytt kosningaréttar
síns. Reynsla undanfarinna ára
hefur verið að síðustu viku fyrir
kosningar, hefur verið slík örtröð
af fólki, að kjósendur hafi þurft að
bíða í allt að klukkustund til þess
Framhald á bls. 18
Rainbow
Warrior
á leiðinni
MORGUNBLAÐIÐ fékk staðfest í
gær að skip Greenpeace-samtak-
anna, Rainbow Warrior, væri nú
lagt af stað á íslandsmið. Var
skipið síðast í Bergen í Noregi, en
hélt svo þaðan til Þórshafnar í
Færeyjum, þar sem höfð verður
viðkoma í einn sólarhring eða svo.
Síðan áætla Greenpeace-menn að
koma á mið hvalveiðibátanna hinn
4. júní n.k., en sem kunnugt er
ætla þeir að reyna að koma í veg
fyrir veiðar hvalbátanna.