Morgunblaðið - 09.06.1978, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.06.1978, Blaðsíða 1
120. tbl. 65. árg. FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Njósnamálið í Moskvu: Sovétstjómin æf og hótar „viðeigandi gagnráðstöfunum ’ ’ Moskvu — 8. júní — AP. SOVÉTSTJÓRNIN birti í dag harðorða mótmælayfir- lýsingu vegna málsins sem Veizluspjöll í Peking: Móðguð- ust og þustu út Peking — 8. júní — Reuter. AF UMMÆLUM Teng Hsiao- Pings, varaforsætisráðherra Kína, í veizlu sem haldin var til heiðurs forseta Afríkuríkis- ins Rúanda í Peking f dag má ráða að kínverska stjórnin styðji hugmyndir um samein; aðar öryggissveitir í Zaire. í ræðu sinni réðst Teng með offorsi á Sovétríkin fyrir að koma illu aí stað í Afríku og valda þar öngþveiti með íhlut- un sinni. en afleiðing þessara ummæla varð sú að fulltrúar Sovétríkjanna og bandalags- þjóða þeirra í veizlunni þustu á dyr. Þetta er í annað skipti á fáeinum mánuðum sem móðg- andi ummæli kínverskra ráða- manna í garð Sovétríkjanna valda veizluspjöllum í Peking Framhald á bls. 18 upp kom um daginn þegar starfsmenn bandaríska sendiráðsins í Moskvu fundu neðanjarðargöng frá sendi- ráðsbyggingunni en þau enduðu í herbergi sem fullt var af sovézkum njósnatækj- um. Hefur Sovétstjórnin nú hótað því að birta „skjalfest- ar upplýsingar“ um njósna- starfsemi Bandarikjamanna ef þeir hætti ekki að fjasa um mál þetta opinberlega. Þetta eru fyrstu opinberu við- brögð Sovétstjórnarinnar vegna málsins en í orðsendingunni segir jafnframt að gripið verði til „viðeigandi gagnráðstafana" ef Bandaríkjamenn láti ekki þegar í stað af „ólöglegu athæfí" og bæti skemmdir þær sem þeir hafi valdið á hitalögnum fjölbýlishúss þegar þeir brutust inn í neðanjarð- argöngin. Heldur Sovétstjórnin því fram að hér sé raunverulega um að ræða áróðursbragð af hálfu Bandaríkja- manna, og sé það liður í nýrri „and-sovézkri“ herferð. Sé „ögr- andi ásökunum" af hálfu Banda- ríkjamanna ætlað að draga at- hyglina frá umfangsmiklum raf- eindanjósnum þeirra sjálfra en fullvíst sé að ákveðnum útsendur- um h'afi löngum verið fjarstýrt frá bandaríska sendiráðinu í Moskvu með aðstoð rafeindatækja. Er gefið í skyn í orðsendingunni að tækin, sem Bandaríkjamenn hafi fundið hafi „einvörðungu verið ætluð til þess að verjast njósnum og ásælni" sendiráðsins. Solzhenitsyn heiðraður við Harvard ALEXANDER Solzhenit- syn, sovézki rithöfundurinn og Nóbelsverðlaunahafinn, veitti í gær viðtöku heið- ursnafnbót við Har- vard-háskóla fyrir afrek á bókmenntasviðinu. Gífur- leg fagnaðarlæti urðu þeg- ar tilkynnt var hver nafn- bótina hlyti að þessu sinni og Solzhenitsyn birtist óvænt á sviði útileikhúss þar sem talið er að 18 þúsund manns hafi verið samankomin. Síðan Solz- henitsyn var rekinn í út- legð frá Sovétríkjunum og settist að í Bandaríkjunum hefur hann í örfá skipti komið fram opinberlega. Myndin hér að ofan var tekin að athöfninni lokinni en Solzhenitsyn er hér ásamt rektor Harvard-há- skóla og Katchal- ski-Katzire, fyrrum forseta ísraels, sem heiðraður var fyrir framlag sitt til vís- inda. (AP-símamynd) Nýjar handtökur og ákærur í Moro-málinu Róm — 8. júní — AP VÍÐTÆK, skipulögð leit var gerð í Róm í dag og var þar um að ræða lið í rannsókn Moro-málsins. Ótiltekinn f jöldi fólks var handtekinn að Jákvæð viðbrögð við ræðu Carters Washington — Moskvu — 8. júní — Reuter — AP. VIÐBRÖGÐ við ræðu Carters forseta í Annapolis í gær hafa yfirleitt orðið jákvæð, en forsetinn lét m.a. svo um mælt að í sambúðinni við Sovétrík- in væri Bandaríkjunum ekk- ert að vanbúnaði, hvort held- ur Sovétríkin kysu að hún einkenndist af árekstrum eða samvinnu. Mörg helztu biöð á Vesturlöndum hafa lýst ánægju sinni með afstöðu Brezka stjórn- in hækkar vexti Lundúnum — 8. júní — Reuter. BREZKA stjórnin hefur gripið til víðtækra efnahagsráðstafana í því skyni að endurvekja traust stefnu stjórnarinnar í gjaldeyris- málum. Englandsbanki hefur hækkað lágmarksvexti á útlánum úr 9% í 10% og stjórnin hefur boðað refsiaðgerðir gegn þeim viðskiptabönkum sem fara upp fyrir ákveðið útlánaþak. Þá hefur stjórnin ákveðið að leggja nýja skatta á atvinnurekendur. Er tilgangurinn með þessari skatt- lagningu að afla fjár til að draga úr fyrirsjáanlegum halla í opin- bcrum rekstri eða m.ö.o. lækka lánaþörf hins opinbera úr 8.5 milljörðum stcrlingspunda í 8 milljarða. Efnahagsráðstafanir stjórnar- innar jafngilda nokkurs konar „aukafjárlögum" og er búizt við Framhald á bls. 19 Carters, og The Times í Lundúnum segir að ræðan sé merkasta framlag Carters til utanríkismála frá því að hann tók við embætti. Bonn-stjórn- in hefur lýst mikilli ánægju sinni með málflutning* Car- ters og í yfirlýsingu hennar í dag sagði að enn einu sinni hefði það nú sannazt svo ekki yrði um villzt hvert forystu- hlutverk Bandaríkjanna væri innan varnarbandalags vestr- ænna ríkja og á alþjóðavett- vangi um leið og fram kom að stjórnin væri sammála um- Framhald á bls. 18 sögn lögreglunnar en áreiðan- legar heimildir herma að átta manns eigi hlut að máli og hafi ákærur þegar verið gefn- ar út á hendur þeim. Lögregl- an verst allra frétta um málið en auk hinna handteknu voru nokkrir kallaðir til yfir- heyrslu. Að því er næst verður komizt áttu þessar handtökur sér stað samkvæmt fyrirmæl- um Gallucci rannsóknardóm- ara í Moro-málinu sem fyrr í þessari viku birti ákærur um mannrán og morð á hendur níu manns. Þeir, sem hand- teknir voru í dag hafa verið ákærðir fyrir samsæri, aðild að vopnuðum ofbcldishópi, fyrir að hafa vopn undir höndum og fyrir að veita þýfi viðtöku. Að sögn áreiðanlegra heimildar- manna eru í hópnum borgarstarfs- maður, bankamaður, tveir náms- menn og starfsmaður í mennta- málaráðuneytinu. Er fólk þetta úr þekktum og harðsvíruðum hópi vinstri sinnaðra öfgamanna sem lítur á ítalska kommúnistaflokk- inn sem erkióvin en talið er að margir liðsmanna Rauðu herdeild- anna komi upphaflega úr þessum hópi. Af þeim níu sem ákærðir hafa Framhald á bls. 18 Skæruliðaárás á trúboðsstöð: Tveir bodar kristni- myrtir AP. Salisbury. 8. júní. Hjálpræðisherinn skýrði frá því í dag, að í gær hefðu þjóðornissinnaðir skæruliðar myrt tvo kristniboða og sært aðra tvo þegar þeir réðust inn í kvennaskóla í suðvesturhluta Rhódesíu. Að sögn sjónarvotta ruddust um 15 skæruliðar inn á skólasvæðið í gærkvöldi og smöl- uðu saman þeim starfsmönnum, sem voru hvítir á hörund, röðuðu þeim upp við vegg og hófu skothríð. Tvær konur létu lífið samstundis, tvennt særðist alvar lega, en tveir sluppu að heita má ómeiddir. Atburður þessi átti sér stað skammt frá kristniboðsstöð þar sem skæruliðar myrtu tvo kaþólska kristniboða fyrir fimm dögum, en alls hafa skæruliðar myrt 19 hvíta kristniboða frá því að skæruliðahernaður í landinu hófst fyrir alvöru fyrir sex árum. Kvennaskólanum hefur verið lokað um óákveðinn tíma, en þar hafa um 300 stúlkur verið við nám. Talsmaður Hjálpræðishersins tel- Framhald á bls. 19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.