Morgunblaðið - 09.06.1978, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.06.1978, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1978 15 Vinstri stjórn á Selfossi FYRSTI bæjarstjórnarfundurinn á Selfossi var haldinn á miðviku- dag og kom þar fram meirihluta- samstarf Alþýðuflokks, Fram- sóknarflokks og Aiþýðubanda- lags sem hafa samtals 6 fulltrúa. í stjórnarandstöðu eru sjáifstæð- ismenn með 3 fulltrúa. Bæjar- stjórnin samþykkti með öllum atkvæðum bæjarfulltrúa að ráða fyrrum sveitarstjóra, Erlend Ilálfdánarson, sem fyrsta bæjar- stjórann á Sclfossi. Samkvæmt upplýsingum Óla Þ. Guðbjartssonar kom ekki fram á fundinum að flokkarnir þrír hefðu gert með sér málefnasamning en þeir stóðu saman um kjör forseta og um kjör í nefndir. „Æsktu þeir góðs samstarfs við minnihlutann,“ sagði Óli, „og þeir munu fá það.“ I bæjarráð voru kjörnir: Haf- steinn Þorvaldsson af B-lista, Sigurjón Erlingsson af G-lista og Óli Þ. Guðbjartsson af D-lista. Forseti bæjarstjórnar var kjörinn Ingvi Ebenhardsson af B-lista, sem áður var sýslunefndarmaður ög hreppstjóri. A fundinum var ekki gengið frá bæjarmálasam- þykkt. Nýtt hörpu- disksverð VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegsins hefur ákveðið nýtt lágmarksverð á hörpudiski og gildir verðið frá 1. júní s.l. til 30. september n.k. Fyrir hörpudisk 7 cm á hæð og yfir greiðast kr. 46.00 á kíló og fyrir hörpudisk 6 cm að 7 cm hæð greiðast kr. 36.00 á kíló. Verðið er miðað við, að seljend- ur skili hörpudiski á flutningstæki við hlið veiðiskips og á að vega hörpudiskinn á bílavog af löggilt- um vigtarmanni og þess gætt, að sjór fylgi ekki með. Verðið miðast við gæða- og stærðarmat framleiðslueftirlits sjávarafurða og á gæða- og stærðarflokkun að fara fram á vinnslustað. Eskifjörður: Meirihluti Fram- sóknarmanna og Alþýðubandalags Eskifirði 8. júní. FYRSTI fundur nýkjörinnar bæj- arstjórnar var haldinn í dag og hafa framsóknarmenn og alþýðu- bandalagsmenn myndað meiri- hluta en Alþýðuflokkurinn dró sig út úr viðræðum þar um. Forseti bæjarstjórnar var kjör- inn Aðalsteinn Valdimarsson af B-lista, 1. varaforseti Guðni Ósk- arsson af G-lista og 2. varaforseti Júlíus Ingvarsson af B-lista. I bæjarráð voru kjörnir Hrafnkell Jónsson af G-lista, Júlíus Ingvars- son af B-lista og Ragnar H. Hall af D-lista. Bæjarstjóri var ráðinn áfram Áskell Jónsson. Á fundinum spurði Ragnar H. Hall hvort bæjarstjórnin hygðist greiða starfsmönnum bæjarins óskertar vísitölubætur á laun og svaraði Hrafnkell Jónsson því að Alþýðubandalagið hefði ákveðið að svo yrði gert og þá frá 1. marz sl. og myndu framsóknarmenn von- andi samþykkja það. Nokkra athygli vakti að á fundinum var elliheimilisnefnd kjörin sú sama og sat síðasta kjörtímabil, en elliheimilismálið varð til þess, að þáverandi meiri- hlutasamstarf framsóknarmanna og sjálfstæðismanna hætti og við tók meirihluti sjálfstæðismanna og alþýðubandalagsmanna. I kosningunum fyrra sunnudag fengu allir listar óbreytta fulltrúa- tölu; A-listi einn og B, D og G — listi 2 hver. Fréttaritari. Ljósm. Mbl. Kristján. Framkvæmdum á baklóð Fjalakattarins var haldið áfram í gær og þá var einnig rifinn skorsteinn frá bakhlið hússins. BUÐIN • Litsjónvarpskynning • Tæknimenn veröa yður til aöstoðar • Sölumenn til leiöbeiningar. • Allir sem koma á kynninguna, fá aðgangskort, sem jafnframt gildir sem happdrættismiði. í verölaun eru: 1. Litasjónvarp frá N0RDMENDE 2. Tölvuúr 3. Hljómpiötur Allir velkomnir. - BUÐIN Skipholti 19, Reykjavík, sími 29800. er sérverzlun með sjónvörp og hljómtæki. ATHUGIÐ: 1. Viðskiptavtnurinn er mikiivægastur í öllum viöskiptum. 2. Viöskiptavinurinn er ekki háður okkur. Viö erum háö honum. 3. Viöskiptavinurinn truflar ekki vinnu okkar, hann er tiigangur hennar. 4. Viðskiptavinurinn gerir okkur greiða aö líta inn. Viö gerum honum engan greiða aö bíöa eftir honum. 5. Viöskiptavinurinn er hluti af verziuninni, ekki boöflenna. 6. Viöskiptavinurinn er ekki bara peningar í kassann. Hann er mannleg vera meö tilfinning- ar eins og okkar. 7. Viðskiptavinurinn er manneskja sem kemur ti! okkar með óskir sínar og þarfir, þaö er starf okkar aö uppfylla þær. 8. Viðskiptavinurinn á ekki annaö skiliö en alla þá kurteisi, sem viö getum sýnt honum. Hann er lífæð þessa og allra fyrirtækja. Radíóbúðin er sérverzlun allra landsmanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.