Morgunblaðið - 09.06.1978, Blaðsíða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1978
Eini sirkusinn í
heimi sem flýgur
á milli landa
Bandalag íslenskra skáta hefur
nú gert samning við breska
sirkusinn Gerry Cootle og mun
sirkusinn koma hingað til lands og
halda 20 sýningar í Laugardalshöll
dagana 30. júní til 9. júlí í sumar.
Að sögn Þorsteins Sigurðssonar
framkvæmdastjóra sýningarinnar
er hér um að ræða stærsta og
þekktasta sirkus Bretlands, en
hann er sá eini í heimi sem fer á
milli landa fljúgandi.
Með Gerry Cootle sirkusnum
koma hingað til lands um 40
manns og eru þar með taldir
listamenn af öllum tegundum
sirkuslistafólks.
Helstu atriðin á sýningunum í
Laugardalshöll eru: Skrautleg
danssýning, fakír sem liggur á
nöglum og er einnig frægur
eldgleypir, línudans, ýmsar listir á
Ein af sirkusstjörnunum sem
hingað koma f sumar. Hann
heitir Samson og var valinn
„allra sterkasti maður“ sirkus-
heimsins á heimsmeistaramóti
sirkusa 1977. Atriðið á myndinni
felst í því að hann rekur risastór-
an nagla f spýtuna með höndun-
um einum saman og dregur hann
siðan úr með tönnunum.
nauðsynlegan hring um sýningar-
svæðið.
Að sögn Þorsteins er búist við
mikilli aðsókn að sýningunum þar
sem hér er um algjöra nýjung að
ræða. Hann sagði að til þess að
ekki yrði halli á sýningunum
þyrftu um 25.000 — 27.000 manns
að sjá þær og er hann mjög
bjartsýnn um að þetta muni takast
mjög vel. Þorsteinn sagði að það
hefði þó valdið nokkrum vonbrigð-
um að ekki fékkst leyfi til að fá til
landsins nein dýr, þótt búið hefði
verið að leysa öll flutningsvanda-
mál. I þess stað hefðu þeir fengið
fleira listafólk til að koma hingað.
Sýningarnar munu standa yfir í
Fflarnir í Gerry Cootle sirkusinum leika listir sfnar. Þeir fengu þó
ekki leyfi til að koma með flokknum til íslands.
einhjóla hjóli, einn sterkasti
maður sirkusheipisins sýnir krafta
sína, atriði úr villta vestrinu og
ekki má gleyma trúðunum auk
fjölda annarra atriða. Á meðan á
sýningunni stendur mun sérstök
sirkushljómsveit annast allan
undirleik.
Laugardalshöllin mun verða
sérstaklega skreytt í tilefni sýn-
inganna og reynt verður að skapa
það andrúmsloft sem yfirleitt ríkir
á slíkum sirkussýningum. Gerry
Cootle sirkusinn mun koma með
allt sem til þarf svo sem ljóskast-
ara og sætispalla til að mynda
um tvo klukkutíma í senn og
kynnir verður íslenskur. Að sögn
Þorsteins er ráðgert að hafa þrjú
miðaverð eftir því hvar setið er, en
hann sagði að það skipti nokkru
máli hvar áhorfendur sætu í
hringnum upp á það að njóta
sýningarinnar.
Þess má getaað hingað til lands
kom lítill sirkus árið 1952, en það
var svokallaður dýrasirkus og
nefndist hann „Circus Zoo.“ Ann-
ars er Gerry Cootle stærsti
sirkusinn sem hingað til lands
hefur komið, að sögn Þorsteins
Sigurðssonar.
Itzhak
Perlman á
listahátíð
í kvöld
kl 20,30:
Frá æfingunni í gær
„Jú, ég held að hljómsveitin
hafi bætt vjð sig síðan ég lék
með henni síðast. Æfingin í dag
gekk ljómandi vel, hljómlistar-
fólkið var mjög „inspírerað" í
leik sínum og ég vona að
tónleikarnir verði eftir því. Víst
gerði ég ýmsar athugasemdir á
æfingunni og sömuleiðis Ash-
kenazy. Nei, nei, ekki vegna þess
að ég væri óhress með hvernig
gengi. Síður en svo. Til þess eru
æfingar að samstilla leikarana.
Það væri til lítils að vera að
þessu annars. Og mér fannst allt
smella saman. Það er líka
sérstaklega gott að vinna með
Ashkenazy. Það verða allir
upplyftir sem með honum
starfa. Ég veit það af eigin
reynslu því að við höfum oft og
mikið unnið saman og ég tel að
því ákaflega mikinn feng fyrir
mig sem listamann."
Þetta sagði ísraelski fiðlu-
snillingurinn Itzhak Perlman í
stuttu spjalli við Mbl. að lokinni
æfingunni í Laugardalshöllinni
til undirbúnings hljómleikunum
þar í kvöld kl. 20.30. Auk
Perlmans leikur sellóleikarinn
Lynn Harell einleik.
— Perlman er maður rétt
þrítugur, fæddur í Tel Aviv og
var ekki nema þriggja ára þegar
hann sýndi merki þess að tónlist
lægi fyrir honum. Hann nam
fram eftir unglingsárum í Israel
en síðar í Bandaríkjunum og
víðar og er búsettur í New York,
en fer hljómleikaferðir vítt um.
— Það er augljóst að mér
þykir gott að koma hingað sagði
Perlman, þetta er nú í þriðja
skipti að ég spila hér. Ég hef
einu sinni áður komið á Listahá-
tíð. Svo kom ég hingað að
vetrarlagi þegar ég var hér á
ferð öðru sinni. Hvort ég man
Perlman
ekki snjóinn og myrkrið. En
núna — það er nú eitthvað
annað, þetta frískandi sólskin
með svo hreinum blæ sem ég
finn hvergi nema hér.
— Ég kom núna frá New
York. Ég ferðast út og suður,
stundum lungann úr árinu. Eftir
tvo daga á ég að vera kominn til
að leika með Fílharmoníunni í
Tel Aviv. Þangað fer ég oft, enda
rætur mínar þar og fyrstu
tilsögn og hvatningu í tónlist-
inni hlaut ég þar.
— Nei, ég get ekki kallað að
ég hafi fengizt við hljómsveitar-
stjórn, ég hef stjórnað smávegis
en hugur minn stefnir ekki að
því. Ég býst við að halda mig að
fiðlunni. Ég hef ekki samið neitt
sem er umtalsvert. Ég held að ég
sé fyrst og fremst túlkandi...
Nú kom Ashkenazy aðvífandi.
Hann sagðist vera ánægður með
það sem af
Listahátíð,
væri
almenningur sýndi dagskránni
áhuga og athygli og svo virtist
sem það væri orðið ráðandi
annað hvert ár væri eðlilegur og
nauðsynlegur þáttur í mannlíf-
inu. Þeir Áshkenazy og Perlman
þurftu að koma sér saman um
aðra æfingu fyrir hljómleikana
í kvöld. Lynn Harell kvaddi og
sagðist vera að fara að spila
tennis og hinir hljóðfæraleikar-
arnir tíndust smátt og smátt
brott.
Og í kvöld leikur Sinfóníu-
hljómsveitin forleik að óperunni
Euyanthe eftir Weber, fiðlukon-
sert í e-moll op. 64 eftir
Mendelssohn og konsert fyrir
fiðlu og selló og hljómsveit í
a-moll opus 102 eftir Brahms. Á
þeim hljómleikum heyrist áreið-
anlega hinn hreini tónn.
Ashkenazy og Harell. Ljósm