Morgunblaðið - 09.06.1978, Blaðsíða 32
í kvöld, föstudag, kl. 20.30 leikur ísraelski fiðlusnillingurinn Itzhak Perlman með Sinfóníuhljómsveit
íslands og einnig leikur brezki sellóleikarinn Lynn Hareli einleik. Vladimir Ashkenazy stjórnar og
í gær, fimmtudag, skömmu eftir komu Perimans til landsins var æfing hljómsveitarinnar. Á myndinni
eru þeir Ashkenazy, Perlman og Harell að bera saman nótur sínar á æfingunni. Ljísm. ói. k.m.
KONRAD Ciesielski og son-
ur hans Lothar ætluðu að
halda af landi brott í gærkvöldi
með skipi Eimskipafélagsins
áleipft til Þýzkalands. Tóku þeir
bílinn sinn með og hluta af þeim
búnaði sem lögreglan hafði lagt
hald á en sumt af búnaði þeirra
feðga var gert upptækt.
uninn og ungarnir fundust og gæti
hann með engu móti farið að játa
á sig brot annarra.
Að sögn Williams hélt Konrad
Ciesielski því fram að hann hefði
aldrei séð íslenzka fálka en hins
vegar hefði hann séð fálka erlend-
is. Það staðfestist þegar búið var
að framkalla filmu sem var í vél
Þjóðverjans en þar gat að líta
myndir af fálkaungum í einhvers
konar útungunarvél. Röð mynda af
fálkaungum bar það með sér að
myndirnar hefðu verið teknar
erlendis. Þess má geta hér að í
blaðaviðtölum fyrr í vikunni sagði
Þjóðverjinn að hann hefði aldrei
séð fálka á ævi sinni en annað
Framhaid á bls. 18
Eggjatæki
Þjóðverjans
gerð upptæk
20% halli á jm
saltfiskverkuninni: /[ 1 I I 1
króna halli á ári
Þessi búnaður Þjóðverjans var
gerður upptækur, tæki til þess að
halda hita á eggjum.
Að sögn Williams Th. Möller
aðalfulltrúa lögreglustjórans í
Reykjavík hefur mál þeirra feðg-
anna verið rannsakað nú í vikunni.
Var haft samband við það fólk,
sem vitað var aö feðgarnir höfðu
rætt við á ferð sinni um landið en
sú athugun leiddi ekki neitt
saknæmt í ljós. Þá var Ciesielski
spurður um fálkaungafundinn í
snyrtiherbergi á Keflavíkurflug-
velli fyrir tveimur árum en hann
kvaðst ekkert kannast við það mál.
Sagði hann að það hlyti að vera
alger tilviljun að hann skyldi hafa
farið um flugstöðina sama morg-
AFKOMA saltfiskverkunarinnar
í landinu er nú mjög slæm, fyrir
fiskverðshækkunina 1. júní og
launahækkanirnar sem þá urðu
var talið að halli af hverju
verkuðu tonni næmi 7—9% miðað
við söluverð. Eftir fiskverðs- og
launahækkanirnar hefur staða
saltfiskverkunarinnar versnað
enn og nú er hallinn talinn vera
um og yfir 20% eða í kringum 4
milljarðar á ári, miðað við sama
magn og var verkað á s.l. ári.
Kom þetta fram á aðalfundi
Sölusambands ísl. fiskframleið-
enda sem haldinn var f Reykjavík
í gær.
í upphafi aðalfundarins í gær
sagði Tómas Þorvaldsson formað-
ur SIF að meiri erfiðleikar væru
nú í saltfiskverkuninni en nokkru
sinni síðan á árunum 1968 og 1969.
Óðaverðbólgan hefði aldrei verið
meiri. Ríkisbáknið og opinberar
stofnanir þendust út og þeir sem
ynnu þár heimtuðu mat sinn og
engar refjar. „Nú er svo komið
fyrir sjávarútveginum að hann er
eins og vagnklár sem gefið er moð
til að freista þess að hann komist
upp á næsta leiti," sagði hann.
I skýrslu stjórnar, sem flutt var
af Tómasi Þorvaldssyni, Friðriki
Pálssyni og Valgarð J. Ólafssyni
kom það fram, að allmiklar
sveiflur hafa verið í saltfiskfram-
leiðslunni á árunum 1970—1977
eða allt frá 34 þús. til 44.800 lestir,
og verðmæti þessa hefur verið frá
1.6 milljarði til 13.8 milljarðar og
þá miðað við verðlag hvers árs.
Saltfiskur hefur verið frá 24—28%
af verðmæti botnfiskafla og
13—15% af verðmæti alls sjávar-
afla.
Það kom fram hjá Tómasi
Þorvaldssyni að heildarneyzla á
saltfiski væri talin vera um 200
þús. lestir í heiminum nú en ekki
fyrir löngu hefði hún verið
350—400 þús. lestir. Kvað hann
það hættulegt ef menn ætluðu að
sættast á samdrátt í saltfiskfram-
leiðslu Islendinga og efla frysti-
iðnaðinn í þess stað. Nauðsynlegt
væri að halda jafnvægi í fram-
leiðsluháttum og þess væri
skemmst að minnast að saltfisk-
framleiðsla hefði bjargað ómæld-
um verðmætum þegar skreiðar-
markaðirnir brugðust. Á árunum
1974—1975 hefði verið hærra verð
á saltfiski en á frystum fiski og þá
Rádherrar Alþýðubandalags vorið 1974:
Vildu kauplækkun —
frestun vísitöluhækk-
unar — gengislækkun
VORIÐ 1974 gerðu ráðherrar
Alþýðubandalagsins í þáverandi
ríkisstjórn, þeir Lúðvík Jósepsson
og Magnús Kjartansson, m.a.
eftirfarandi tillögur um ráðstafan-
ir í efnahagsmálum:
• að kaup yrði lækkað
• að vísitöluhækkunum yrði
frestað
• að gengið yrði lækkað
Miklar umræður fóru fram
innan vinstri stjórnarinnar vorið
1974 um aðgerðir í efnahags- og
kjaramálum. í þessum umræðum
lögðu þeir Lúðvík Jósepsson nú-
verandj formaður Alþýðubanda-
lagsins og Magnús Kjartansson
fram ýmsar tillögur. Þessar voru
helztar:
• Þeir lögðu til að kaup yrði
lækkað, þannig að allar kaup-
hækkanir, sem voru umfram
20% og samið hafði verið um
fyrr um veturinn, yrðu afnumd-
ar.
• Þeir lögðu til að vísitöluhækkun
sem áætlað var að kæmi til
útborgunar hinn 1. september
1974 yrði frestað til 1. desember
það ár.
• Þeir lögðu til að gengi íslenzku
krónunnar yrði lækkað til þess
að mæta vanda útflutningsat-
vinnuveganna vegna aukins
tilkostnaðar og lækkandi út-
flutningsverðs.
• Þeir hreyfðu engum andmælum
við tillögum sem fram komu
innan vinstri stjórnarinnar þess
efnis að engir kjarasamningar
væru gildir nema þeir hcfðu
hlotið samþykki ríkisstjórnar-
innar. Tillaga þessi jafngilti
afnámi frjals samningsréttar
verkalýðssamtakanna en ráð-
herrar Alþýðubandalagsins
mótmæltu henni ekki.
Eftir að ráðherrar Alþýðu-
bandalagsins, þeir Lúðvík Jóseps-
son og Magnús Kjartansson höfðu
lagt fram ofangreindar tillögur í
vinstri stjórninni stóðu þeir m.a.
að eftirtöldum aðgerðum í efna-
hagsmálum:
Framhald á bls. 18
hefði engum dottið í hug að draga
úr saltfiskframleiðslunni. Eftir-
spurn eftir saltfiski væri falin og
myndi aukast strax og slakað yrði
á innflutningshömlum í markaðs-
löndunum. „
Framhald a bis. 18
Peningum
stolið í
Hafnarfirði
í FYRRINÓTT var stolið 65
þúsund krónum úr húsi í Hafnar-
firði. Húsráðandinn uppgötvaði
þjófnaðinn strax um nóttina og
gerði lögreglu viðvart. Grunur féll
á tvo menn sem höfðu verið
gestkomandi í húsinu um nóttina.
Fór lögreglan á stúfana og fann
hún kumpánana tvo í Reykjavík
þar sem þeir óku um í leigubíl.
Voru þeir handteknir og viður-
kenndu þjófnaðinn. Höfðu þeir
eytt helmingnum af períingunum.
Sömu nótt var stolið nokkrum
tugum þúsunda í öðru húsi í
Hafnarfirði og er það mál í
rannsókn.
r
Arekstur i
Kópavogi
PILTUR innan við tvítugt hlaut
opið fótbrot og höfuðhögg í
árekstri sem varð á mótum
Digranesvegar og Bröttubrekku í
Kópavogi í gærkvöldi. Hann var
fluttur í slysadeild Borgarspítal-
ans.
Pilturinn var á mótorhjóli og
lenti í árekstri við bíl, en í
gærkvöldi var ekki ljóst með
hverjum hætti áreksturinn varð.
Fyrr um daginn hafði unglingur á
skellinöðru orðið fyrir bíl á
Hlíðarvegi í Kópavogi og handar-
brotnað.