Morgunblaðið - 09.06.1978, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.06.1978, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1978 Sovfakt olíuflutninfíaskip lá við Lautjarnos í gær o« var að losa 10—11.000 tonn af bensíni sem undanþága var’veitt fyrir en farmurinn á allur að fara í land í Reykjavík. Ljósim Mbl. Kristján. „Nýsköpun- arstjórn” í Siglufirði NÝKJÖRIN bæjarstjórn SíbIu- fjarðar kom saman tii fyrsta fundar síns í «ær en meirihluta- samstarf hefur tekizt með Al- þýðuflokki. Alþýðubandalasi ok Sjálfstæðisflokki. Forseti bæjarstjórnar var kjör- inn Jóhann G. Möller af A-lista, 1. varaforseti Vigfús Þór Árnason af D-lista ofí 2. varaforseti Kolbeinn Friðbjarnarson af G-lista. I bæj- arráð voru kjörnir; Gunnar Rafn Sifíurbjörnsson af G-lista, Jóhann G. Möller af A-lista og Björn Jónasson af D-lista. Bjarni Þór Jónsson var ráðinn bæjarstjóri áfram með atkvæðum allra bæjar- fulltrúa. Á fundinum báru fulltrúar A-lista og G-lista fram tillögu um að bæjarstjórn fæli bæjarstjóra að semja við starfsmannafélag Siglu- fjarðarbæjar og Verkalýðsfélagið Vöku á grundvelli tilboðs Verka- mannasambands Islands frá í maí um fullar verðbætur á laun allt að 130.000 króna miðað við 1. desem- ber 1977, og hlutfallslega sömu krónutölu á laun þar yfir. Þessi tillaga var samþykkt með 5 atkvæðum fulltrúa A- og G-lista. Fulltrúar B-listans sátu hjá og fulltrúar D-listans sátu hjá en létu gera þá bókun að þeir teldu að bæjarfélagið ætti ekki að hafa afskipti af vinnudeilum enda hefði það ekki verið gert í bæjarstjórn Siglufjarðar. Hins vegar lýstu þeir sig sammála þeirri stefnu að bæta laun þeirra lægstlaunuðu. Saksóknari óskar umsagnar ráðherra í tveimur málum EMBÆTTI ríkissaksóknara hefur nýlega sent tvö mál til umsagnar ráðherra, þar sem um er að ræða meint brot í opinberu starfi. Er það'skylt lögum samkvæmt. Þetta eru handtökumál Hauks Guð- mundssonar fyrrverandi rann- sóknarlögreglumanns og meint fjárdráttarmál Páls Líndal fyrr- verandi borgarlögmanns. Mál Hauks fjallar sem kunnugt er um meinta ólöglega handtöku Guðbjarts Pálssonar og Karls Guðmundssonar í Vogum á Vatns- leysuströnd í desember 1976. Mál Páls fjallar um meint fjárdráttar- mál hjá Reykjávíkurborg að upp- hæð rúmar 5 milljónir króna. Þar af hefur Páll greitt til baka tæpar tvær miHjórrir. — Læt ekki Framhald af bls. 2 væri einnig að birta fyrir fundinn tilkynningu þar sem borgarstjóra- embættið yrði auglýst laust til umsóknar. Þegar Mbl. spurði hvort stefnt væri að því að meirihlutinn yrði tilbúinn til nefndakjörs á fundinum sögðu þeir að stefnt væri að kjöri í nefndir þar, en Kristján Bene- diktsson gat þess að það hefði oft gerzt að kosningu í einstaka nefndir hefði verið frestað. Þegar Mbl. spurði hvort viðræð- urnar um málefnasamning hefðu leitt til afgreiðslu einhverra sér- stakra þátta hans svöruðu þeir Björgvin og Kristján neitandi og sögðu að engin mál hefðu verið tekin út úr, heldur væri málefa- samningurinn ræddur á breiðum grundvelli. „En viðræðurnar ganga vel og það miðar í rétta átt,“ sögðu þeir. Fjórði viðræðufundur meiri- hlutaflokkanna var í gær. — Tillagan Framhald af bls. 2 með Sjálfstæðisflokknum í heilan áratug og við urðum aldrei varir við það að samstarfsmenn okkar í Sjálfstæðisflokknum þá, forsætis- ráðherrarnir og aðrir, treystu ekki utanríkisráðherrum okkar þeim Guðmundi I. Guðmundssyni og Emil Jónssyni. Svo ég undrast það að forsætisráðherra skuli vera að draga þetta fram“, sagði Benedikt Gröndal Þá spuröi Mbl. Benedikt Gröndal hvort Alþýðuflokkurinn myndi setja sem skilyrði fvrir þ^tttöku í hugsanlegri vinstri stjórn að loknum Alþingiskosning- um að varnarliðið yrði áfram. „Um það hvað kann aö gerast við hugsanlega stjórnarmyndun get ég ekki annað en lýst núverandi stefnu Alþýðuflokksins", svaraði Benedikt Gröndal. — Moro-málið Framhald af hls. 1 verið fyrir mannrán og morðið á Aldo Moro eru sex í fangelsi en hinir hafa enn ekki náðst. Fimm voru handteknir átta dögum eftir að lík Moros fannst í miðborg Rómar í síðasta mánuði en stúlka úr hópnum, dóttir auðugs blaðaút- gefanda, var handtekin fyrir tveimur mánuðum í Napólí. Fólk þetta hefur lengi verið á lista lögreglunnar yfir eftirlýsta með- limi Rauðu herdeildarinnar. Andreotti forsætisráðherra, sem jafnframt gegnir embætti innan- ríkisráðherra til bráðabirgða, hef- ur látið boð út ganga til allra lögreglustöðva í landinu um að átak verði gert til að koma í veg fyrir að upplýsingar „leki“ til fjölmiðla varðandi mál sem eru í rannsókn. Fullyrðir Andreotti að slík vinnubrögð hafi hvað eftir annað orðið til þess að hindra lögregluna í störfum auk þess sem mikil brögð séu jafnan að því að þessar upplýsingar séu ónákvæm- ar og villandi. Vikublaðið Giorni, sem kommúnistar eiga mest ítök í, vitnar í ummæli þriggja ónafn- greindra manna, sem sagðir eru fyrrverandi starfsmenn leyniþjón- ustunnar ítölsku, um að Rauða herdeildin geti reitt sig á vernd háttsettra manna sem annað hvort sé að finna í innanríkisráðuneyt- inu eða í bækistöðvum lögreglunn- ar í Róm, Tórínó, Mílanó og Genúa. Hefur blaðið jafnframt eftir þessum heimildarmönnum sínum að hryðjuverkamenn hefðu ekki getað náð Aldo Moro á sitt vald hefði leyniþjónustunni verið falið að ábyrgjast öryggi hans en fimm lífverðir Moros, sem féllu í skotárásinni þegar honum var rænt, voru úr röðum lögreglunnar. — 4 milljarða Framhald af hls. 32 Tómas ræddi nokkuð um þær viðræður sem staðið hafa við Portúgali að undanförnu. Kvað hann menn vonast til að samning- ar við þá tækjust á næstunni en ekki væri heppilegt á þessari stundu að fjölyrða mikið um þessi mál. Saltfiskframleiðslan frá ára- mótum til 1. júní s.l. nam 23.500 lestum en á sama tíma í fyrra var hún 25.500 lestir. Það kom fram á fundinum að aðeins ein grein saltfiskverkunar er talin standa á núlli, aðrar eru reknar m^ð tapi. Þessi eina grein er verkun á ufsaflökum sem að mestu fara á v-þýzkan markað og eru notuð í sjólaxgerð. Valgarð J. Ólafsson framkvæmdastjóri skýrði frá því að verð á ufsaflökum hefðu hækkað um allt að 50% í dollurum síðan 1976 en tilkostnað- ur framleiðenda hefði einnig hækkað mjög mikið og salan dregizt saman um 25%. Því yrðu menn að gæta hófs í verðkröfum, en menn vildu halda sínum mark- aðsþætti. Þá minntist Valgarð á ferð sem farin var til Bandaríkj- anna og S-Ameríkulanda á s.l. ári til að kanna þurrfiskmarkaðina. Kom fram hjá honum, að mögu- leiki væri á nokkurri sölu þangað en það væru líka mörg ljón í veginum. T.d. þyrftu íslendingar' að vanda betúr til framleiðslunnar þar sem þurrkaður saltfiskur væri mjög dýr vara. Friðrik Pálsson gerði grein fyrir afkomu saltfiskverkunarinnar og sagði að það væri í raun óforsvar- anlegt að eyða Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins eins og nú ætti að gera. Helga Þórarinssyni fram- kvæmdastjóra, sem lætur af störf- um hjá S.Í.F. síðar á þessu ári, voru sérstaklega þökkuð góð störf á fundinum en hann hefur nú starfað í 37 ár hjá S.Í.F., þar af 31Vá ár sem framkvæmdastjóri. > Stjórn Sölusambands ísl. fisk- framleiðenda var öll endurkosin en hana skipa nú: Tómas Þorvalds- son formaður, Sigurður Markús- son varaformaður, Bjarni Jóhann- esson, Jón Ármann Héðinsson, Margeir Jónsson, Stefán Runólfs- son og Víglundur Jónsson. — Lögbann Framhald af bls. 2 sem fór mað málið f.h. V-listans og spurðist fyrir um til hverra ráða yrði nú gripið. Sigurður kvaðst í byrjun ætla að skrifa mennta- málaráðherra opið bréf með beiðni um að hafa áhrif á þetta mál. Ennfremur hugsaði hann sér að stefna Útvarpsráði og öllum þeim persónulega sem stóðu að ákvörð- uninni. Þeir hefðu farið út fyrir sitt valdsvið. Skaðabótakröfuna hygðist hann byggja á þeim útreikningum sem Útvarpsráð heíði sjálft gefið sér fyrir lög- bannstryggingunni vegna tjóns af breyttri dagskrá ef af lögbanni yrði, eða kr. 12.5 milljónir. Það mál yrði síðar rekið allt til Hæstaréttar. Það væri þýðingar- laust að skjóta ákvörðun fógeta- réttarins til Hæstaréttar vegna skorts á tíma. Árið 1960 kvað Hæstiréttur Danmerkur upp dóm í máli frá kosningum þar í landi áriö 1957. Útvarpsráð danska útvarpsins neitaði óháða flokknum, sem þá var nýstofnaður, um þátttöku í flokkakynningu útvarpsins á þeim grundvelli að aðeins þeir flokkar sem ættu menn á þingi nytu þessara réttinda. Niðurstaða þess máls var sú að ákvörðun útvarps- ins bryti gegn málfrelsisákvæðum dönsku stjórnarskrárinnar en grundvöllur þess máls var annar en þess sem hér er á ferðinni. — Kvaðst aldrei... Framhald af bls. 32 sagði hann hjá lögreglunni enda bar filman í vélinni því vitni. Sem fyrr segir fékk Konrad sumt af búnaði sínum aftur, svo sem kaðla og annan sigbúnað, en hald var lagt á áhöld til þess að halda eggjum heitum og ýmsan búnað til veiða á ungum, svo sem háfa og sérstaklega útbúnar steng- ur. Ennfremur var hald lagt á langvíuegg sem þeir feðgar höfðu í fórum sínum. Loks var haldið eftir fjórum talstöðvum sem þeir höfðu flutt ólöglega inn í landið. Konrad Ciesielski er 42 ára gamall en Lothar sonur hans tvítugur. — Skæruliða- árás Framhald af bls. 1 ur að skæruliðar Joshua Nkomos hafi töluverð ítök í skólanum sem og í öðrum kristniboðsstöðvum á þessum slóðum. Hjálpræðisherskonurnar, sem féllu í árásinni í gærkvöldi, voru frá Norður-írlandi og Englandi. — Peking Framhald af bls. 1 en Teng hélt áfram máli sínu eins og ekkert hefði í skorizt og hældi Afríkuríkjum fyrir að treysta tengsl sín, sameina kraftana og gera ráðstafanir til að tryggja sameiginlega varn- arhagsmuni sína. — Carter Framhald af bís. 1 mælum Carters í öllum atriðum. Moskvu-stjórnin minntist ekki frekar á Annapolis-ræðuna í dag er. hélt þó áfram árásum sínum á stjórn Carters og sagði meðal annars að aðildarríki Atlantshafs- bandalagsins hefðu verið þvinguð til þess í Washington á dögunum f að samþykkja vígbúnaðaráætlun til Jangs tíma. Hefði-Carter lagt fram frágengna áætlun á leiðtoga- fundinum vestra og hefði hann ekki ljáð máls á athugasemdum leiðtoga annarra aðildarríkja. Væri þessi hegðun staðfesting á því að árásarstefna Carters og Brzezinskis öryggismálaráðgjafa hefði orðið ofan á og stríddi hún gegn áformum um slökun spennu í samskiptum ríkja. Vestrænir stjórnmálasérfræð- ingar telja þessi viðbrögð Sovét- ríkjanna staðfestingu á afstöðu þeirra til samskipta austurs og vesturs að undanförnu og ónafn- greindur háttsettur hugmynda- fræðingur í Kreml tjáði vestræn- um fréttamönnum í dag að Sovét- stjórnin teldi sig ekki eiga kosta völ á næstunni, þannig að ekki yrði um stefnubreytingu að ræða í samskiptum við Vesturlönd. — Vildu kauplækkun Framhald af bls. 32 • Þeir stóðu að því að vísitalan var tvívegis skert, fyrst með því að taka áfengi og tóbak út úr h'enni, síðan með því að taka kostnáð við einkabifreið út úr henni. • Þeir stóðu að því um mánaða- mótin mai-júní að taka nokkur vísitölustig af launþegum sem jafngilda á núgildandi verðlagi mörg þúsund milljónum króna. • Þeir stóðu að því að söluskatts- hækkun kæmi ekki fram í vísitölu. • Þeir stóðu að því að ekkert samráð var haft um þessar aðgerð- ir við verkalýðshreyfinguna eins og lofað hafði verið í málefna- samningi vinstri stjórnar flokk- anna. í viðtali við Þjóðviljann í gær segir Benedikt Davíðsson formaður Sambands byggingarmanna: „Ég held, að það sé flestu fólki ljóst, — ljósara en áður — að kjör fólks verða ekki ráðin af gerð samnings- ákvæða eingöngu, heldur af því hvernig hægt er að verja samn- ingsákvæðin fyrir óskammfciln- um stjórnvöldum. Það þarf að tryggja þannig stjórnvöld að þau, kjör, sem samið er um, haldi." — Minning Jakobína Framhald af bls. 22. höfðingleg og reisnin stór, að enginn tók eftir því, hvað hún bjó við einföld ytri lífsskilyrði, þau hurfu í skuggann fyrir henni sjálfri. Gjafmildi hennar og gest- risni var með eindæmum og þykktist hún jafnan við ef einhver fór hjá garði hennar án þess að líta inn. En það var ekki aðeins kaffið hennar Bínu sem dró að sér gestina, heldur miklu fremur viðmót hennar og viðræðuhæfi- leikar, frásagnarsnilldin var ein- stök og minnið gott fram á síðasta dag. Voru þeir orðnir æði -margir sem að Melabúð komu og nutu návistar hennar, fræddust og glöddust og \ voru ríkari eftir hverja heimsókn. Bæði innlend og erlenda fræði- og listamenn bar oft að hennar garði til að hlusta og nema litríkar frásagnir hennar. Hún var dulvit- ur og skyggn og sá oft fyrir óorðna atburði. Já, hún Bína gerði garð sinn frægan og hennar verður lengi minnst, hún er óafvitandi orðin þjóðsagnapersóna í sögunni. Fyrir mér sem ólst upp á næsta bæ við hana og þekkti hana náið, verður hún mikilvæg minning og ábending, hvernig hægt er að öðlast lífshamingju á einfaldan máta og án þess að gera tilraun til að kaupa haná dýru verði ytri gæða. Og þegar hún Bína er nú horfin af sjónarsviðinu, verður allt eitthvað risminna á ævislóð henn- ar, en umhverfið verður þó ætíð það sama, fegurð og tign jökulsins okkar minnir á stórbrotið og gott fólk sem lifði í nálægð hans og hann heldur áfram að magnast duiarkrafti þess fólks sem við rætur hans bjó. Minning þín lifir, Bína í Mela- búð. • Kristinn Kristjátisson>

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.