Morgunblaðið - 08.07.1978, Síða 1
32 SIÐUR OG LESBOK
144. tbl. 65. árg.
LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
2 andófsmenn
fyrir rétt í dag
Moskvu 7. júlí. Reuter.
RÚSSAR tilkynntu í dag að andófsmað-
urinn Anatoly Shcharansky urði leiddur
fyrir rétt á morgun og höfðu þar með að
Áður hefur verið tilkynnt að
andófsmaðurinn Alexander Ginz-
burg verði leiddur fyrir rétt á
morgun og þar með mæta tveir
virkustu félagar „Helsinki" nefnd-
engu viðvaranir frá Washington um þau
áhrif sem slík ráðstöfun getur haft á
samskipti Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna.
vörnum fyrir Shcharansky og
Ginzburg.
Réttarhöldin gegn þessum
tveimur kunnustu andófsmönnum
Framhald á bls. 19
ar andófsmanna fyrir rétti sama
daginn. Sú ráðstöfun er að dómi
vestrænna diplómata ögrun við
Bandaríkjastjórn og aðrar ríkis-
stjórnir sem hafa haldið uppi
Flök sex bifreiða sem leyniskyttur skutu á í austurhluta Beirút. Þrír biðu bana. Hægra megin er
lögreglustöðin Bourj Hamoud með líbanska fánanum. Lengst til vinstri hefur verið unnið skemmdarverk á
stórri mynd af Camille Chamoun fyrrverandi forseta og leiðtoga hægrimanna. Gamall heyrnarlaus maður
(undir fánanum) hélt áfram göngu sinni og hann sakaði ekki.
Sadat í Vín
Vín 7. júlí — Reuter
ANWAR Sadat forseti kom til
Vínar í dag ásamt fjölmennu
fylgdarliði til viðræðna við aust-
urríska ráðherra og ísraelska
Verkamannaflokksleiðtogann
Shimon Peres um helgina.
Peres hefur tekið fram að hann
komi ekki fram fyrir hönd ísra-
elsku stjórnarinnar og sagði í dag
að á fundinum færu fram skoðana-
skipti „sem ættu að vekja vonir'
um lausn deilumálanna
Mið-austurlöndum.
Vegirnir
opnaðir í
Austurríki
Vín 7. júlí. Reuter.
AUSTURRÍSKIR vörubflstjórar
hættu í dag fimm daga mótmæla-
aðgerðum, sem hafa leitt til þess
að flestir vegir til Austurríkis
hafa verið lokaðir þar sem
stjórnin hefur eindregið neitað að
fallast á kröfu þeirra um afnám
umdeilds vegatolls.
Aðeins við Salzburg og á nokkr-
um minni stöðum lokuðu vörubíl-
stjórar enn vegum í kvöld. Sums
staðar gáfust bílstjórarnir upp af
þreytu, annars staðar vegna
áskorana vinnuveitenda, sums
staðar af því að lögreglan hótaði
að beita valdi.
Vantrauststillaga hefur verið
borin fram vegna málsins á þingi
þar sem jafnaðarmannastjórn
Bruno Kreiskys kanzlara hefur
í aðeins þriggja atkvæða meiri-
hluta.
Samstaða um
forseta Ítalíu
Róm. 7. júlí. Reuter.
Kristilegir demókratar jöfnuðu
í kvöld ágreining sinn við vinstri-
flokkana og samþykktu sam-
eiginlegan frambjóðanda flokk-
anna í kosningunni um nýjan
forseta Ítalíu.
Hann er Sandro Pertini 81 árs
gamall sósíalisti, hetja úr and-
spyrnuhreyfingunni í síðari
heimsstyrjöldinni og fyrrverandi
forseti fulltrúadeildar þingsins.
Fráfarandi forseti, Giovanni
Leone, sagði af sér í síðasta
mánuði vegna ásakana um fjár-
málamisferli og skattsvik.
Kjörmannasamkunda öldunga-
Framhald á bls. 19
ísraelskur liðsauki að
landamærum Líbanon
John Silkin.
Bretar semja
vid Norðmenn
um Norðursjó
London 7. júlí. AP.
JOHN SILKIN, landbúnaðar- og
sjávarútvegsráðherra Bretlands,
skýrði Neðri málstofunni frá því
í dag, að Bretar og Norðmenn
hefðu komið sér saman um leiðir
til að auka eftirlit með fiskveið-
um í Norðursjó og að þjóðirnar
hefðu „mjög líka“ afstöðu til
fiskverndunar í Norðursjó.
Silkin kom til Osló í fyrri viku
og sagði að Norðmenn hefðu
fullvissað hann um að þeir myndu
leyfa brezkum sjómönnum að
veiða í norskri landhelgi og að þeir
vonuðust til að Bretar leyfðu þeim
slíkt hið sama í brezkri landhelgi.
Beirút. 7. júlí. AP. Reuter.
LÍBANSKIR stjórnmálaleiðtogar
og erlendar ríkisstjórnir skoruðú
í dag á Elias Sarkis forseta að
láta ekki verða af þeirri hótun að
segja af sér þar sem óttazt er að
hættuástandið í Libanon geti leitt
til árekstra milli Sýrlendinga og
ísraelsmanna.
Israelsmenn lýstu því yfir að
þeir hefðu sent liðsauka að landa-
mærum Líbanons til þess að leggja
áherzlu á stuðning sinn við kristna
menn í Líbanon og þetta varð til
þess að Sýrlendingar skipuðu
herafla sínum að vera í viðbragðs-
stöðu.
Kortið sýnir Beirút og nágrenni.
Kyrrt hefur verið í kristna
hverfinu í Beirút síðan fallbyssur
Sýrlendinga þögnuðu eftir sex
daga harða skothríð í gær þegar
ísraelskar herflugvélar flugu yfir
borgina en leyniskyttur láta að sér
kveða og flestir íbúar austurhluta
Beirút halda sig innan dyra.
Forseti Sýrlands Hafez Assad
skoraði í dag á Sarkis að halda
áfram í embætti forseta til þess að
fryggja öryggi í landinu. En Salim
E1 Hoss forsætisráðherra sagði að
Sarkis væri enn ákveðinn í því að
hætta. Forsetinn sagði stjórn-
málamönnum að hann yrði að fá
völd til þess að geta stjórnað
Framhald á bls. 18
Niðurskurður eftir
skattauppreisnina
Sacramento 7. júlí — Reuter
ÁHRIF SKATTAUPPREISNARINNAR í Kaliforníu sögðu til
sín í dag er Jerry Brown ríkisstjóri beitti neitunarvaldi gegn
kauphækkun ríkisstarfsmanna og samþykkti niðurskurð á
fjárveitingum til fóstureyðinga.
Áður en Brown beitti neitun-
arvaldinu samþykkti hann fjár-
lög þar sem gert er ráð fyrir því
í fyrsta skipti um langt árabil
að dregið verði úr ríkisútgjöld-
um. Niðurstöðutölur fjárlag-
anna eru að vísu 14 milljarðar
dollara og hærri en á fjárlögum
margra ríkja en samkvæmt
þeim er gert ráð fyrir niður-
skurði á ýmsum sviðum.
Sparnaðarviðleitni Browns
lýsir sér í því að hann hefur
ákveðið að hætta með öllu
aukningu útgjalda til velferðar-
mála og er það bein afleiðing
atkvæðagreiðslunnar fyrir rétt-
um mánuði þegar íbúar Kali-
forníu samþykktu að skera
niður fasteignaskatta, sem hafa
. farið sífellt hækkandi, um sjö
milljarða dollara.
Þar með hófst svokölluð
skattauppreisn í Kaliforníu sem
er fjölmennasta ríki Bandaríkj-
anna og fastlega er gert ráð
fyrir því að hún breiðist til
langflestra ríkja Bandaríkjanna
á þessu ári sem er kosningarár
því að bæði verður kosið til
þjóðþingsins og ríkisþinga í
haust.
Niðurskurðurinn á fjárlögum
Kaliforníu er talinn töluvert
hættuspil fyrir Jerry Brown
sem er 38 ára gamall og talinn
líklegasti keppinautur Carters
forseta um tilnefninguna í
forsetaframboðið 1980.