Morgunblaðið - 08.07.1978, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1978
5
Ljósm. Mbl.: Þórleifur Ólafsson
Fétur Davíðsson við flugvélina sina í
Að sögn Péturs þá var hann í Reykjavík
við vinnu s.l. vetur, en kom austur til
foreldra sinna með flugvélina í maímán-
uði s.l. Kvaðst hann hafa flogið vélinni þó
nokkuð, yfirleitt ekki langar ferðir en þó
er Pétur búinn að fara einu sinni til
Egilsstaða og margar ferðir hefur hann
farið um Suðurlandsundirlendið, enda
segir hann að mjög gott sé að fljúga þar,
„sennilega hvergi betra á landinu."
hlaðvarpanum að lossum.
„Brautin sem ég hef hér, er mjög góð,
en vélin þarf ekki nema 250 metra braut,
og nóg er af slíkum hér í nágrenninu.
Þegar hún er á jörðinni, hef ég hana
annaðhvort utan við fjárhúsvegginn hér
skammt frá eða við hlöðuna hér heima
við hús.“
Pétur var spurður hvort hann ætlaði að
eiga vélina lengi. Svaraði hann því til, að
hann hefði ekkert hugsað um það, en
Það er mjög þægilegt að eiga
flugvél hér í sveitinni, það er
hægt að skreppa á miíli bæja
á henni og eins tel ég að hún
komi sér mjög vel í göngum
og eftirleit, því hér er víða erfitt að
smala. Sá sem þetta mælir er ungur
Skaftfellingur, Pétur Davíðsson á Foss-
um í Landbroti. Pétur hefur átt fjögurra
sæta Piper Tripacer flugvél frá því í
fyrrahaust og er nú með vélina heima hjá
sér í Landbrotinu. A túninu við Fossa
hefur Pétur ágætis flugbraut og segir
hann að víðast hvar sé hægt að lenda á
túnum í sveitinni, þar sem þau séu slétt
og hraun undir þannig að vatn safnast
ekki fyrir á þeim.
„Ástæðan fyrir því að ég keypti mér
flugvél, var sú að ég átti dýran bíl, sem
ég seldi og keypti annan ódýrari. Eftir
þessi skipti átti ég nokkurt fé eftir og
fannst því tilvalið að kaupa mér flugvél
líka. Ég frétti af því að Baldur Oddsson
og fleiri flugmenn hjá Loftleiðum hefðu
Piper Tripacer vél til sölu og var ég
fljótur að slá til, enda er Tripacer-inn,
sem oft er kallaður loftjeppinn, heppileg
vél hér í sveitinni.
Þegar ég var búinn að festa kaup á
vélinni dreif ég mig í að læra að fljúga
i fyrrahaust og að sjálfsögðu á mína eigin
vél og lauk ég við einkaflugmanninn, en
áður var ég búinn að hafa áhuga á flugi
í mörg ár eða frá því að ég var
smástrákur," segir Pétur.
Piper Tripacer vélin er f jögurra sæta og
að sögn Péturs hentar hún vel í sveitum,
bæði til flutninga og leitar.
sagðist væntanlega eiga hana eitthvað
áfram, enda væri hún í góðu ásigkomu-
lagi, þrátt fyrir að hún væri orðin 20 ára
gömul. „Tripacer-inn er smíðaður 1958, en
hefur síðan verið endurbættur og byggður
a.m.k. einu sinni upp. Ég hef áhuga á að
verða mér úti um mun fleiri flugtíma, en
þeir eru víst orðnir um 80 núna.
Þá er þessi vél mjög heppileg til leitar
hér í nágrenninu, en fjöllin hér fyrir ofan
eru seinsmöluð og eins er erfitt að smala
í hraunhólunum í Landbrotinu. Það
kemur sér því vel að eiga flugvél til að
fara yfir svæðið."
Eldsneyti á flugvélina þarf Pétur að fá
frá Reykjavík og fær hann það sent á
tunnum, þá notar hann líka tækifærið í
hvert sinn, sem hann flýgur á staði, þar
sem flugvélabensín er afgreitt og fyllir
geyma vélarinnar, en hún hefur 5 klst.
flugþol.
„Annars er það svo að þótt ég vildi eiga
vélina sem lengst, þá getur það reynzt
nokkuð erfitt, þar sem tryggingar af
flugvélum eru dýrar og eins kostar það
mikið að láta skoða _ flugvélar. Ætli
tryggingargjöld af svona flugvél séu ekki
i kringum 300 þús. kr. á ári, og þar við
bætist kaskótrygging," sagði Pétur.
Uddevalla 19. júní 1978
8. ÞING norrænna barna- og
unglingabókahöfunda var sett í
Bohusgarden í Uddevalla 17. júní.
Skráðir þátttakendur á þingið
eru 106. Eru þarna meðtaldir
nokkrir sem hlusta á fyrirlestra,
en taka ekki að öðru leyti þátt í
störfum þingsins — makar
höfunda, fyrirlesarar sumir o.fl.
Flestir eru þátttakendur frá
Svíþjóð. Frá Danmörku, Noregi og
Finnlandi eru fremur fáir að þessu
sinni og engir frá Grænlandi eða
Færeyjum. Frá íslandi eru fjórir
þátttakendur, Gunnvör Braga frá
Ríkisútvarpinu, Silja Aðalsteins-
dóttir, sem er ein af fyrirlesurum
á þinginu, og rithöfundarnir
Vilborg Dagbjartsdóttir og Jenna
Jensdóttir.
Aðalumræðuefni þingsins er:
Áhrif gróðasjónarmiða á norræn-
ar barnabókmenntir.
Þingið var sett af formanni
sænska rithöfundasambandsins
Jan Gehlin. Inger Brattstrom
rithöfundur skýrði síðan út ýmis
mikilvæg atriði varðandi þingið.
Síðan flutti einn rithöfundur frá
hverju landi lauslegt yfirlit um
starfsemi félaga sinna. Af Islands
hálfu talaði Vilborg Dagbjarts-
dóttir. Þess má geta að ýtarleg
greinargerð varðandi barnabækur
íslenskar barst frá formanni
barnabókanefndarinnar á Islandi
Önnu Brynjúlfsdóttur.
í norsku skýrslunni kom fram,
sem áður er vitað, að þar er
sérstakt félag barna- og unglinga-
bókahöfunda sem heitir: Ungdoms
litteraturens Forfatterlag —
skammstöfun ULF. Það er nú 31
árs og sennilega eina sjálfstæða
félagið í Evrópu fyrir barna- og
unglingabókahöfunda. Sýnilega er
mikill áhugi og vinnugleði í þessu
félagi. Formaður- þess, Mette
Newt, lagði fram fjölritaða skýrslu
um starfsemi félagsins og mun
hennar verða getið nánar síðar.
Gaman er að geta þess að einn
fulltrúinn frá Noregi er
Islendingurinn Albert Ólafsson
rithöfundur frá Oppdal í Þrænda-
lögum. Hann hefur búið í Noregi
yfir 50 ár en er mörgum íslending-
um heima að góðu kunnur.
Vinnuhópur sá er tilnefndur var
á Norræna barna- og unglinga-
bókahöfundaþinginu í Noregi fyrir
tveim árum skilaði greinargerð
HLJÓMSVEITIN Mánar frá Sel-
fossi, sem átti sitt blómaskeið við
upphaf þessa áratugs, er ekki
öldungis dauð úr öllum æðum, því
hún mun leika á dansleik að
Hvoli í kvöld í tilefni af hesta-
mannamóti sem Hestamannafé-
lagið Geysir heldur á Rangár-
bökkum á morgun.
Þeir sem leika saman í kvöld eru
þeir sem skipuðu hljómsveitina á
blómaskeiði hennar, þ.e. Ólafur og
Björn Þórarinssynir, Guðmundui
Benediktsson, Smári Kristjánsson
og Ragnar Sigurjónsson. Þeir
Ólafur, Björn og Smári starfa nú
sinni varðandi „bókmenntir fyrir
fatlaða." I þeim vinnuhópi voru:
Hans Petersen, Christina Anders-
son, Phil.Newt og Palle Petersen.
Þeirrar greinargerðar verður
einnig getið síðar. Ekki lá meira
fyrir þingi fyrsta daginn.
í hljómsveitinni Kaktus, en Guð-
mundur og Benedikt í Brimkló.
Þeir félagar munu einungis
leika saman á þessum eina dans-
leik.
Jenna Jensdóttir:
8. þing norrænna barna-
og unglingabókahöfunda ^
Mánar aftur á ferð