Morgunblaðið - 08.07.1978, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1978
23
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Ég er að velta því fyrir mér, hvers vegna þeir voru svo
margir, sem hötuðust við Jesúm og gagnrýndu hann. Mér
finnst, að allir hefðu hlotið að elska hann, svo guðlegur sem
hann var.
Það er kaldhæðnislegt, að manneðlinu er þannig
háttað, að það hafnar hinu bezta og lætur sér oft lynda
hið versta. Hvers vegna vildi múgurinn, að Barrabas
yrði látinn laus, en Jesús krossfestur? Svarið er að
finna í staðhæfingu Biblíunnar: „Svikult er hjartað
fremur öllu öðru, og spillt er það“ (Jer. 17,9).
Jesús er eins guðlegur og lifandi í dag og hann var
föstudaginn langa forðum — en enn í dag eru milljónir
manna, sem veita honum ekki viðtöku. Biblían talar
um, hvernig má „krossfesta Guðs son að nýju og
smána hann“ (Hebr. 6,6), og þótt ótrúlegt sé, segja enn
margir: „Krossfestu hann!“
Ennþá er gæzka hans ákæra á illsku okkar.
Hreinleiki hans sýnir enn óhreinleika okkar.
Syndleysi hans leiðir enn í ljós syndugleika okkar. Og
enn vill hið illa í hjarta okkar tortíma honum, nema
við leyfum honum að tortíma því. Þetta er barátta
aldanna.
Minning:
Jónmundur Gíslason
fyrrverandi skipstjóri
Fæddur 29. desember 1927.
Dáinn 28. maí 1978.
Ég var stödd á sjúkrahúsi þegar
Sigurður bróðir minn hringdi og
sagði mér lát Jónmundar. Mér brá,
því hann var alltaf svo hress, þó
vissum við að hann hafði ékki
alltaf verið heill heilsu hin síðari
ár.
I huga minn koma margar
minningar. Ég var í vist hjá þeim
hjónum Jónmundi og okkar kæru
móðursystur, Dóru, og var ég að
passa dóttur þeirra, Sjöfn. Ég
minnist þess fyrst þegar ég sá
Jónmund að ég var feimin, því
um á Seyðisfirði. Soffía f. 1907.
Átti Friðrik bakara Steinsson.
Áslaug Þórdís f. 1910 fyrri kona
Páls sýslumanns Hallgrímssonar,
forstjóra Kristinssyni. Þóra dó
barn að aldri. Þorgerður f. 1891 d.
1975 Guðmundsdóttir bónda í
Eyði-Sandvík, bjó að Múlastöðum
í Flókadal, Borgarfirði með Odd-
geir Guðmundssyni f. 1893 d. 1957,
af Deildartungu og Skáneyjarætt-
um.
Maður Sesselju er Sigurður
Ingvar f. 12. febr. 1901 Grímsson,
gjörvilegur maður, fríður sýnum,
greindur vel, glaður heim að sækja
,og reglumaður hinn mesti.
Börn þeirra eru: Grímur bílavið-
gerðameistari f. 1928, Selfossi.
Ágústa Þórhildur f. 1930 M.
Sigurður byggingameistari Guð-
mundsson. Sigurður Símon f. 1935.
Ólafur f. 1940.
Frú Sesselja rækti sitt mikla
móður- og heimilishlutverk með
sérstakri prýði.
Þróttmiklir og umsvifasamir
synir bjuggu henni ærin verkefni.
Gestakoma var þrotlaus, þau hjón
áttu mjög miklum vinsældum að
fanga meðal Selfossbúa og ná-
granna, enda sérstaklega vinföst
og hollviljuð. Sesselja var vel gefin
kona, einbeitt og þrekmikil, en
viðkvæm í lund, líknaði oft þeim,
sem erfitt áttu, og nærfærin.
Hjördís mín, börn hennar Eva,
Herdís, Gerður og Óskar börn
Þorvaldar heitins Daníelssonar
eiga Sesselju og Sigurði mikið að
þakka, umhyggju og tryggð.
Við sendum Sigurði, börnum
hans og barnabörnum, tengda-
börnum og systkinum hinnar
framliðnu dýpstu samúð.
Helgi Vigíússon.
maðurinn var stór og mikill $ velli.
Sú feimni varði þó ekki lengi því
hann var sérlega góður og
skemmtilegur maður og það ekki
síst við börn. Var þá oft gaman og
hlegið dátt. Hann var gæfusamur
skipstjóri og svo lánsamur að
bjarga mannslífum sem hann var
og heiðraður fyrir. Hann var
skapsterkur maður en réttlátur,
það hef ég heyrt yfir árin af
mönnum sem unnu undir hans
stjórn. Mikið samband var milli
heimila okkar þar sem móðir
okkar' Laufey Þorsteinsdóttir og
Dóra okkar elskulega móðursystir,
sem báðar eru látnar, voru sér-
staklega samrýndar. Það er mér í
barnsminni að varla leið sá dagur
að ekki væri haft samband þar í
milli.
Það er mér mjög minnisstætt er
við fjölskyldan, faðir okkar
Friðrik Sigurðsson og bróðir okkar
Þorsteinn, báðir látnir, mamma,
Siggi og ég fórum þangað í
heimsókn. Það var alltaf tilhlökk-
un og hún var ekki síðri ef
Jónmundur var í landi. Þá var oft
hlegið dátt, því hann og faðir
okkar voru báðir mikið fyrir börn,
að glettast við okkur og leika.
Svona iiðu árin og áður en varði
vorum við börnin orðin fullorðin,
en alltaf hélst vinátta og kær-
leikur milli heimilanna. Nú erum
við búin að missa báða foreldra
okkar, missinn er aldrei hægt að
bæta, en guð gefur og tekur. Verði
hans vilji.
Megi góður guð blessa og
varðveita börn, barnabörn og aðra
ástvini Jónmundar.
Fyrir hönd okkar systkina,
E’rna Friðriksdóttir.
Frimerkl
eftir JON AÐAL-
STEEN JÓNSSON
Ellefta Þing
L.Í.F.
í síðasta þætti, 16. júní, var þess
getið, að einn þáttur væri eftir.
Hafði ég í huga, að hann kæmi út
um mánaðamótin. Ýmislegt varð
þess valdandi, að útkoma hans
hefur dregizt um viku. Þá tók ég
síðast fram, að efni þessa þáttar
yrði að hluta um nýafstaðið þing
Landssambands íslenzkra frí-
merkjasafnara og eins frímerkja-
sýninguna HAFNEX 78, sem
haldin var í tengslum við þingið,
svo sem lesendur vita. Er því
einsætt að hefja þennan þátt og
helga að mestu leyti þessum
málum, enda þótt einungis verði
stiklað á aðalatriðum. Segja má
og, að slíkt nægi hér, þar sem
nákvæm greinargerð fyrir þing-
störfum mun berast aðildarfélög-
um L.Í.F. á.næstu vikum.
Þing L.Í.F., sem var hið ellefta,
var haldið í Víðistaðaskóla í
Hafnarfirði laugardaginn 3. júní
sl.j og hófst það kl. 9. Setti forseti
L.Í.F., Sigurður H. Þorsteinsson,
það og bauð þingfulltrúa, 20 að
tölu, velkomna. Voru þeir frá
öllum starfandi aðildarfélögum
sambandsins nema úr Þingeyjár-
sýslu. Boðuðu Þingeyingar forföll
að þessu sinni, en annars eru þeir
áhugasamir um frímerkjasöfnun
og skyld efni, svo sem oft hefur
komið fram í þáttum þessum.
S.H.Þ. flutti fyrst skýrslu sína
og kom víða við. Helztu mál
sambandsins á liðnu starfsári
voru útgáfa tímaritsins Grúsk í
samvinnu við Félag frímerkja-
safnara. Er þeirri samvinnu nú
lokið og útgáfan öll komin í
hendur L.Í.F., þar sem F.F. er
orðið eitt aðildarfélaga sambands-
ins. Er nú fullur ásetningur
stjórnar L.Í.F. að halda útgáfu
tímaritsins áfram og koma henni
á fastan fót og eins öruggan
grundvöll og kostur verður á.
Kennslubók í frímerkjasöfnun
eftir S.H.Þ. var gefin út á liðnu
starfsári. Taldi forseti, að ekki
hefði verið staðið nógu vel að
dreifingu hennar. Þá vék hann að
starfi L.Í.F. út á við og gat m.a.
um þær alþjóðafrímerkjasýning-
ar, sem fram undan eru á þessu og
næstu árum. í lok skýrslu sinnar
gat hann þess, að hann hygðist
leggja niður störf sín sem forseti
L.Í.F., en þvi hefur hann gegnt frá
upphafi.
Páll Ásgeirsson, gjaldkeri, las
síðan upp reikninga sambandsins
fyrir liðið starfsár og skýrði þá.
Urðu allmiklar umræður um þá og
einkum þá liði, sem vörðuðu
tímaritið og jólamerkin. Er það og
ekkert launungarmál, að skoðanir
eru skiptar innan stjórnar L.Í.F.
um útgáfu jólamerkjanna og þá
stefnu, sem þar hefur ríkt fram að
þessu.
Forseti las svo upp þær skýrsl-
ur, sem borizt höfðu frá aðildarfé-
lögum.
Nokkrar lagabreytingar voru
gerðar samkv. tillögum fráfarandi
stjórnar, og urðu allmiklar um-
ræður um sumar þeirra. Er
þarflaust að rekja þær hér, en
samþykkt var einróma að fela
tveimur stjórnarmönnum, Sigurði
P. Gestssyni og Jóni Aðalsteini
Jónssyni, að yfirfara stofnskrá
L.Í.F. og leggja hana endurskoð-
aða fyrir næsta þing.
Um nokkur ár hefur þing L.Í.F.
veitt því pósthúsi hér á landi, sem
talið er stimpla bezt póstsending-
ar sínar, svonefndan silfurstimpil.
Er það gert með viðurkenningar-
eða heiðursskjali, sem ætlazt er
til, að pósthúsið setji upp á stað,
þar sem allir viðskiptavinir geti
séð það og lesið. Hlýtur það að
vera mikið keppikefli pósthúsa að
hljóta slíka viðurkenningu frá
þeim, sem bezt kunna að meta
góða og vandláta stimplun frí-
merkja. Að þessu sinni hlaut
pósthúsið í Árbæjarhverfi, R-10,
þessa viðurkenningu, og er það
jafnframt fyrsta pósthúsið á
Reykjavíkursvæðinu, sem hlýtur
þennan silfurstimpil. Áður höfðu
pósthúsin á Hvammstanga og
Dalvík hlotið hann.
Þar sem Sigurður H. Þorsteins-
son var að láta af störfum sem
forseti L.Í.F., var sú tillaga borin
upp, að hann yrði gerður að fyrsta
heiðursformanni sambandsins
fyrir margháttuð störf í þágu þess
og frímerkjasafnara. Var tillagan
samþykkt einróma með lófataki.
í lok þings var Sigurður P.
Gestsson kjörinn formaður L.Í.F.
til eins árs og varaformaður
Sigfús Gunnarsson. Meðstjórn-
endur til sama tíma voru kosnir
Hartvig Ingólfsson, Jón Aðal-
steinn Jónsson og Sigurður
Ágústsson. Varamenn í stjórn
voru kjörnir Sveinn Jónsson frá
Akureyri og Þórður Reykdal frá
Hafnarfirði, og er þetta nýmæli.
Fyrir -í stjórn voru Hálfdan
Helgason ritari og Páll Ásgeirsson
gjaldkeri.
Þingstörfum var lokið um há-
degisbil, og sátu fulltrúar síðan
hádegisverðarboð bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar að Þinghóli.
HAFNEX 78
Frímerkjasýningin HAFNEX 78
stóð dagana 2.-4. júní sl. og var
vel sótt. Gizka forráðamenn
hennar, sem voru Félag frímerkja-
safnara í Hafnarfiröi og Garða-
bæ á, að allt að þúsund manns
hafi komið þessa daga til að virða
fyrir sér sýningarefnið. Aðgangur
var ókeypis, en hins vegar voru
gefin út og seld sérstök umslög og
eins sýningarblokk. Er mér tjáð,
Næst að stigatölu var safn Jóns
Halldórssonar af ónotuðum
íslenzkum bréfspjöldum með alls
kyns afbrigðum. Hlaut það einnig
silfurverðlaun. Þar sem sýningin
var undir vernd L.Í.F., mega bæði
þessi söfn fara á alþjóðasýningar
og í samkeppnisdeild.
Svonefnt silfrað brons hlutu
fjögur söfn á HAFNEX 78. Jón
Aðalsteinn Jónsson sýndi elztu
dönsku frímerkin, ferningsmerki,
sem út komu 1851—1863, í einum
ramma. Voru hér stök stimpluð
merki og eins á heilum bréfum.
Sigurður P. Gestsson sýndi í
þremur römmum upphaf póstflugs
á íslandi, og kenndi þar margra
góðra hluta. Sigurður H. Þor-^
steinsson sýndi í fimm römmum
efni, sem hann nefndi ísland á
erlendum vettvangi. Þá sýndi Jón
Halldórsson í einum ramma
bráðskemmtilegt stimplasafn á 20
aura merki með mynd af Safna-
húsinu frá 1925. Þetta safn sýndi
Jón einnig í fyrra, en nú hafði
hann bætt verulega úr í sambandi
við uppsetningu. Ég varð var við,
að þetta söfnunarsvið vakti
athygli margra gesta.
Nokkur söfn fengu bronsverð-
laun og önnur viðurkenningu. Hér
er ekki hægt að greina frá þeim
öllum. Ég verð þó að geta eins
safns. Eiður Árnason á Hall-
bjarnarstöðum á Tjörnesi sýndi í
tveimur römmum efni, sem hann
að sala þessara hluta hafi gefið
um 200 þús. kr. í aðra hönd. Má
það einmitt verða öðrum félögum
safnara hvatning til að halda þess
konar sýningar í sambandi við
þing L.Í.F. Hér var og mikill
stuðningur, að Póst- og símamála-
stofnunin leyfði notkun sér-
stimpils. Segja má og, að sjálfsagt
sé, að önnur félög innan vébanda
L.Í.F. styðji við bak þeirra félaga,
sem geta ekki að öllu leyti komið
slíkum sýningum á fót af eigin
rammleik. Þá má ekki heldur fella
undan að geta þess hér, að ýmis
félög í Hafnarfirði styrktu þessa
frímerkjasýningu með fjárfram-
lögum. Þess vegna var vel til
fundið að hafa sérstakan ramma,
sem blasti við gestum, er inn á
sýninguna kom, þar sem komið
var fyrir umslögum frímerktum
til þessara velvildarmanna
sýningarinnar.
Vitaskuld má lengi deila um,
hvað sýna beri á frímerkja-
sýningum og þá ekki sízt hinum
minni háttar. Á HAFNEX 78 voru
51 rammi, svo að hér var ekki unnt
að sýna nema takmarkaðan hluta
þess efnis, sem til er í eigu
íslenzkra safnara. Engu að síður
er það skoðun mín, að hér hafi
ótrúlega vel tekizt til, og þá
einkum, þegar almenningur er
hafður í huga, þ.e. þeir sem vilja
gjarnan kynnast þessu rúmlega
aldargamla tómstundagamni ekki
svo lítils hluta mannkyns. Hér
mátti sjá ýmsar hliðar frímerkja-,
tegunda og stimplasöfnunar, og
hlaut það að vekja menn til
umhugsunar um það, hverju safna
má — oft án of mikils kostnaðar.
Silfurverðlaun á HAFNEX 78
hlaut Grænlandssafn Hálfdans
Helgasonar og um leið flest stig.
Safn þetta sýndi Hálfdan einnig á
Frímex 77, en nú hafði hann aukið
það á ýmsa lund. Er það mjög
fjölbreytt og skipulagt á sérstæð-
an og persónulegan hátt. Er
Hálfdan vel að þeim verðlaunum
kominn, sem safn hans hlaut.
nefnir: Úr Þingeyjársýslu. Hér er
einmitt um skemmtilegt
söfnunarsvið að ræða. Eiður hefur
safnað saman stökum stimpluðum
frímerkjum og eins á heilum
bréfum með stimplum úr Þing-
eyjarsýslum. Hér er fitjað upp á
stórfróðlegu sýningarefni. Því
verður aftur á móti ekki leynt, að
Eiður verður að vinna safn sitt
betur og raða efninu skipulegar en
hér var gert til þess að eiga þess
kost að koma því á erlendar
sýningar. En mjór er mikils vísir,
segir máltækið.
Sérstök heiðursverðlaun
HAFNEX 78 hlutu þeir Sigurður
Ágústsson, sem átti margvíslegt
efni á sýningunni, og Sigurður P.
Gestsson og Guðmundur Ingi-
mundarson.
Frímerkjasýning
á Eyrarbakka
15.—17. júní sl.
Hér var vissulega ekki um
stórviðburð að ræða í frímerkja-
heiminum, enda ekki til þess
ætlazt af Félagi frímerkjasafnara
á Selfossi. Engu að síður lýsti hún
vel áhuga safnara austan fjalls.
Það eitt að koma sýningu á
laggirnar utan Stór-Reykjavíkur-
svæðisins er virðingarvert átak og
það jafnvel þótt sækja verði
verúlegan hluta efnisins til reyk-
vískra safnara. Sigurður Ágústs-
son, sá kunni áhugamaður og
hjálparhella dreifbýlismanna í
frímerkjamálum, átti þarna veru-
legan hlut á sýningunni. Það leiðir
af sjálfu sér, að þessi sýning var
kynningarsýning einvörðungu, og
í því ljósi verður að meta efni það,
sem sýnt var.
Þessi þáttur verður hinn síðasti
um sinn. Vil ég því nota tækifærið
og þakka öllum þeim, sem fylgzt
hafa með þáttunum, og þá ekki
sízt þeim, sem lagt hafa sitt af
mörkum til að gera þá fjölbreytt-
ari en ella hefði orðið.