Morgunblaðið - 14.07.1978, Side 1

Morgunblaðið - 14.07.1978, Side 1
32 SIÐUR 149. tbl. 65. árg. FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Það er ekki Amin yfirhershöfðinKÍ sem við sjáum hér hcf ja raust sína mcð keyrið f handarkrikanum heldur leiðtoKÍ Afrfsku þjóðasamtakanna „Zimhahwe“, Joshua Nkomo. LeiðtoKÍnn, sem mjÖK hefur látið að scr kveða í Rhódesíudeilunni, sem forinKÍ uppreisnarmanna, heldur hér ræðu yfir jarðneskum leifum herforinKja er lét lífið við landamæri Khódesfu. Sendiherra Bandarikjanna, Andrew YounK. lét að því lÍKKja í daK að óhæfuverk unnin 1 hvitum trúboðum f Rhódesfu kynnu miklu frekar að vera undan rifjum Ian Smiths runnin en uppreisnarmanna. Lögregla trylltist í Baskahéruðum Renteria Spáni 13. júlí. Reuter. ÓEIRÐALÖGREGLA gekk berserksganK í þrjá stundarfjórð- unga í Baskaba'num Renteria í dag og lét greipar sópa um verzlanir og braut rúður að sögn bæjarstjórans. Antonio Gutierro sagði að 200 lögreglumenn hefðu ráðizt til atlögu gegn götuvígjum sem mótmælafólk hefur reist og beittu reyksprengjum og skutu gúmmí- kúlum til þess að dreifa mann- fjöldanum. Mótmæli fólksins beinast gegn því að tveir menn biðu nýlega bana í götuóeirðum bersýnilega af völdum lögregl- unnar f Baskabæjunum San Sebastian og Pamplona. Gutierro bæjarstjóri sagði að eftir atlöguna í dag hefði lögreglan beitt byffsuskeftum og brotið rúður og hurðir verzlana og rifið burtu dyrasíma fjölbýlishúsa. Hann sagði að vörur hefðu horfið úr verzlunum. I Madrid var haft eftir heimild- um í innanríkisráðuneytinu að- yfirmanni lögreglunnar í Renteria yrði tafarlaust vikið úr starfi. Gutierro bæjarstjóri hafði eftir fylkisstjóranum um atburðina í Renteria: „Ég er reiður. Yfirmenn Framhald á bls. 19 Bæklaðir taka til sinna ráða San Francisco, 13. júlí — AP. MIKILL umferðarhnútur varð í miðborg San Francisco á mesta umferðartímanum í dag, er íimmtíu manns í hjólastólum þustu út á miðja götu og neituðu að færa sig um sct. Það voru samtök lamaðra og fatlaðra í Bandaríkjunum, sem stóðu fyrir aðgerðum þessum og var tilgangur þeirra að vekja máls á hindrunum, sem bæklað- ir eiga hvarvetna við aö stríða. Kröfðust viðkomandi að yfirvöld beittu sér fyrir því að þeim yrði m.a. gert auðvaldara að komast upp í sporvagna með lyftum og öðrum aðstoðarútbúnaði. 8 ár fyrir Ginzburg Alexander Ginzburg Carter íBonn Bonn 13. júlí, Reuter. CARTER Bandaríkjaforseti kom á fimmtudagskvöld til Bonn ífjögurra daga heimsókn þar sem hann mun síðar í vikunni sitja ráðstefnu með fimm öðrum leiðtogum vestrænna ríkja auk Japans um efnahagsmál. Kanzlari Vestur-Þýzkalands fagnaði Carter á flugvellinum í Bonn við þessa fyrstu komu hans til landsins í þrjú ár. Leiðtogarn- Framhald á bls. 18 Kaluga, 13. júlí. AP, Reuter. SOVÉSKI andófsmaðurinn Alexander Ginzburg var í dag dæmdur til átta ára þrælkunarvinnu í „sérbúð- um“ sakaður um and- sovéskan róg og áróður. Sækjandinn í réttar- höldunum yfir Ginzburg hafði áður farið fram á 15 ára fangelsi og þrælkunar- vinnu. Á sama tíma og dómur féll yfir Ginzburg var annar andófsmaður, Viktoras Petkus, dæmdur í Vilnius í Lithaugalandi fyrir sömu sakir til 15 ára fangelsisvistar, útlegðar og nauðungarvinnu. Réttarhöldin hafa mjög íþyngt samskiptum Bandaríkjanna og Sovétmanna og valdið miklu fjaðrafoki á Vesturlöndum. Dómur hefur ekki enn verið kveðinn upi Majorca í logum Palma Majorca. 19. júlí — Rcuter. HERMENN og slökkviliðsmenn reyndu í dag að ráða niðurlögum átta skógarelda á Majorca sem embættismaður nokkur sagði að hefði brcytzt í „logandi kyndil“. Ferðamannastaðir eru ekki í bráðri hættu. Lögreglan tclur að verið geti að eldarnir hafi verið kveiktir vísvit- andi. Eldarnir geisa á ýmsum stöðum á eynni og breiðast ört út. Hafgola magnar eldana. „Majorca er eins og kyndill í hafinu og það sem verra er, eldarnir eru farnir að mynda hring þótt þeir séu aðskildir," sagði starfsmaður náttúruvernd- arstofnunar eyjunnar. Ferðamannastaðirnir á eynni, sem eru troðfullir, eru langflestir við ströndina en eldarnir geisa inni í landi. Embættismenn neita að segja nokkuð um eldsupptök en samkvæmt heimildum í lögregl- unni bendir margt til þess að þeir hafi verið kveiktir af ráðnum hug. yfir Gyðingnum Anatoly Shchar- ansky, en sækjandinn í máli hans mun einnig hafa krafist 15 ára dóms. Andófsmennirnir eru allir þrír félagar í Helsinkihópnum, er settur var á stofn 1975 til að hafa eftirlit meö því að mannréttindi yrðu virt í Sovétríkjunum. Eiginkona Ginzburgs Irina, sem útilokuð var frá réttarhöldunum á þriðjudag, lýsti réttarhöldunum sem „harmrænum látaleik". „Þeir hrækja á Vesturlönd fyrir allra augum og hunza almenningsálitið“ sagði hún við fréttamenn. Sagðist hún vilja fá að vera í friði og hélt til kirkju að biðjast fyrir. Móðir sakborningsins, Lyud- mila, sagöi að staðhæfing dómarans þess efnis að Ginzburg heföi verið samvinnufús varöandi tvö önnur kærumál gegn andófs- mönnum væri tilraun til ,aö óhreinka hann siðferðislega. Hún skýrði frá því að sonur hennar hefði neitað ákærum á hendur sér og þverneitað að biöjast va'gðar. Embættismönnum greindist hins vegar svo frá að Ginzburg hefði Framhald á hls. 18 Vance vitir Young fyrir orðaglamur Genf, Salisbury, 13. júlí, A P Rpntpr BANDARÍSKI utanríkis- ráðherrann Cyrus Vance sagðist í dag hafa snuprað sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, Andrew Young, fyrir um- deildar athugasemdir hans varðandi pólitíska fanga í Bandaríkjunum. Kom fram hjá utanríkisráð- herranum að hann hefði orðið stromphissa, er hann heyrði um ummæli Youngs. Mikið uppnám varð i röðum bandarískra stjórnmálamanna vestanhafs er spurðist að sendi- herrann hefði látið þau orð falla í viðtali við franska blaðið „Le Matin" að hundruð eða þúsundir manna sættu fangelsisvist í Bandaríkjunum fyrir pólitískar sakir. Tomas O’Neill, þingmaður í fulltrúadeildinni, lét t.d. svo um mælt að „Andy hefði betur haldið sér saman á þessari sérstöku stundu". Þá virðist sem þingmenn leggi æ harðar að Carter að reka Andrew Young sendiherrann úr embætti, en tillaga þess efnis að sækja hann til saka var felld í fulltrúadeildinni í dag. Young hefur sjálfur skýrt svo frá að hann hyggist engan veginn láta af störfum, þótt honum „yrði aufúsa í að gera svo“ færi Carter fram á það við hann. Segir Young að athugasemd hans hafi verið slitin úr samhengi af fjölmiðlum og lýsti hann yfir fullri samstöðu með yfirlýsingum Carters forseta í tilefni af réttarhöldunum í Moskvu, en Carter hefur fordæmt þau harðlega. I yfirlýsingu, sem sendiherrann Framhald á bls. 19 Þrælkunarvinna í

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.