Morgunblaðið - 14.07.1978, Síða 1
32 SIÐUR
149. tbl. 65. árg.
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Það er ekki Amin yfirhershöfðinKÍ sem við sjáum hér hcf ja raust sína mcð
keyrið f handarkrikanum heldur leiðtoKÍ Afrfsku þjóðasamtakanna
„Zimhahwe“, Joshua Nkomo. LeiðtoKÍnn, sem mjÖK hefur látið að scr kveða
í Rhódesíudeilunni, sem forinKÍ uppreisnarmanna, heldur hér ræðu yfir
jarðneskum leifum herforinKja er lét lífið við landamæri Khódesfu.
Sendiherra Bandarikjanna, Andrew YounK. lét að því lÍKKja í daK að
óhæfuverk unnin 1 hvitum trúboðum f Rhódesfu kynnu miklu frekar að
vera undan rifjum Ian Smiths runnin en uppreisnarmanna.
Lögregla trylltist
í Baskahéruðum
Renteria Spáni 13. júlí. Reuter.
ÓEIRÐALÖGREGLA gekk
berserksganK í þrjá stundarfjórð-
unga í Baskaba'num Renteria í
dag og lét greipar sópa um
verzlanir og braut rúður að sögn
bæjarstjórans.
Antonio Gutierro sagði að 200
lögreglumenn hefðu ráðizt til
atlögu gegn götuvígjum sem
mótmælafólk hefur reist og beittu
reyksprengjum og skutu gúmmí-
kúlum til þess að dreifa mann-
fjöldanum. Mótmæli fólksins
beinast gegn því að tveir menn
biðu nýlega bana í götuóeirðum
bersýnilega af völdum lögregl-
unnar f Baskabæjunum San
Sebastian og Pamplona.
Gutierro bæjarstjóri sagði að
eftir atlöguna í dag hefði lögreglan
beitt byffsuskeftum og brotið rúður
og hurðir verzlana og rifið burtu
dyrasíma fjölbýlishúsa. Hann
sagði að vörur hefðu horfið úr
verzlunum.
I Madrid var haft eftir heimild-
um í innanríkisráðuneytinu að-
yfirmanni lögreglunnar í Renteria
yrði tafarlaust vikið úr starfi.
Gutierro bæjarstjóri hafði eftir
fylkisstjóranum um atburðina í
Renteria: „Ég er reiður. Yfirmenn
Framhald á bls. 19
Bæklaðir taka til sinna ráða
San Francisco, 13. júlí — AP.
MIKILL umferðarhnútur varð
í miðborg San Francisco á
mesta umferðartímanum í dag,
er íimmtíu manns í hjólastólum
þustu út á miðja götu og
neituðu að færa sig um sct.
Það voru samtök lamaðra og
fatlaðra í Bandaríkjunum, sem
stóðu fyrir aðgerðum þessum og
var tilgangur þeirra að vekja
máls á hindrunum, sem bæklað-
ir eiga hvarvetna við aö stríða.
Kröfðust viðkomandi að yfirvöld
beittu sér fyrir því að þeim yrði
m.a. gert auðvaldara að komast
upp í sporvagna með lyftum og
öðrum aðstoðarútbúnaði.
8 ár fyrir Ginzburg
Alexander Ginzburg
Carter
íBonn
Bonn 13. júlí, Reuter.
CARTER Bandaríkjaforseti kom
á fimmtudagskvöld til Bonn
ífjögurra daga heimsókn þar sem
hann mun síðar í vikunni sitja
ráðstefnu með fimm öðrum
leiðtogum vestrænna ríkja auk
Japans um efnahagsmál.
Kanzlari Vestur-Þýzkalands
fagnaði Carter á flugvellinum í
Bonn við þessa fyrstu komu hans
til landsins í þrjú ár. Leiðtogarn-
Framhald á bls. 18
Kaluga, 13. júlí. AP, Reuter.
SOVÉSKI andófsmaðurinn
Alexander Ginzburg var í
dag dæmdur til átta ára
þrælkunarvinnu í „sérbúð-
um“ sakaður um and-
sovéskan róg og áróður.
Sækjandinn í réttar-
höldunum yfir Ginzburg
hafði áður farið fram á 15
ára fangelsi og þrælkunar-
vinnu. Á sama tíma og
dómur féll yfir Ginzburg
var annar andófsmaður,
Viktoras Petkus, dæmdur í
Vilnius í Lithaugalandi
fyrir sömu sakir til 15 ára
fangelsisvistar, útlegðar
og nauðungarvinnu.
Réttarhöldin hafa mjög íþyngt
samskiptum Bandaríkjanna og
Sovétmanna og valdið miklu
fjaðrafoki á Vesturlöndum. Dómur
hefur ekki enn verið kveðinn upi
Majorca
í logum
Palma Majorca. 19. júlí — Rcuter.
HERMENN og slökkviliðsmenn
reyndu í dag að ráða niðurlögum
átta skógarelda á Majorca sem
embættismaður nokkur sagði að
hefði brcytzt í „logandi kyndil“.
Ferðamannastaðir eru ekki í
bráðri hættu.
Lögreglan tclur að verið geti að
eldarnir hafi verið kveiktir vísvit-
andi. Eldarnir geisa á ýmsum
stöðum á eynni og breiðast ört út.
Hafgola magnar eldana.
„Majorca er eins og kyndill í
hafinu og það sem verra er,
eldarnir eru farnir að mynda
hring þótt þeir séu aðskildir,"
sagði starfsmaður náttúruvernd-
arstofnunar eyjunnar.
Ferðamannastaðirnir á eynni,
sem eru troðfullir, eru langflestir
við ströndina en eldarnir geisa
inni í landi. Embættismenn neita
að segja nokkuð um eldsupptök en
samkvæmt heimildum í lögregl-
unni bendir margt til þess að þeir
hafi verið kveiktir af ráðnum hug.
yfir Gyðingnum Anatoly Shchar-
ansky, en sækjandinn í máli hans
mun einnig hafa krafist 15 ára
dóms. Andófsmennirnir eru allir
þrír félagar í Helsinkihópnum, er
settur var á stofn 1975 til að hafa
eftirlit meö því að mannréttindi
yrðu virt í Sovétríkjunum.
Eiginkona Ginzburgs Irina, sem
útilokuð var frá réttarhöldunum á
þriðjudag, lýsti réttarhöldunum
sem „harmrænum látaleik". „Þeir
hrækja á Vesturlönd fyrir allra
augum og hunza almenningsálitið“
sagði hún við fréttamenn. Sagðist
hún vilja fá að vera í friði og hélt
til kirkju að biðjast fyrir.
Móðir sakborningsins, Lyud-
mila, sagöi að staðhæfing
dómarans þess efnis að Ginzburg
heföi verið samvinnufús varöandi
tvö önnur kærumál gegn andófs-
mönnum væri tilraun til ,aö
óhreinka hann siðferðislega. Hún
skýrði frá því að sonur hennar
hefði neitað ákærum á hendur sér
og þverneitað að biöjast va'gðar.
Embættismönnum greindist hins
vegar svo frá að Ginzburg hefði
Framhald á hls. 18
Vance vitir Young
fyrir orðaglamur
Genf, Salisbury, 13. júlí,
A P Rpntpr
BANDARÍSKI utanríkis-
ráðherrann Cyrus Vance
sagðist í dag hafa snuprað
sendiherra Bandaríkjanna
hjá Sameinuðu þjóðunum,
Andrew Young, fyrir um-
deildar athugasemdir hans
varðandi pólitíska fanga í
Bandaríkjunum. Kom
fram hjá utanríkisráð-
herranum að hann hefði
orðið stromphissa, er hann
heyrði um ummæli Youngs.
Mikið uppnám varð i röðum
bandarískra stjórnmálamanna
vestanhafs er spurðist að sendi-
herrann hefði látið þau orð falla í
viðtali við franska blaðið „Le
Matin" að hundruð eða þúsundir
manna sættu fangelsisvist í
Bandaríkjunum fyrir pólitískar
sakir. Tomas O’Neill, þingmaður í
fulltrúadeildinni, lét t.d. svo um
mælt að „Andy hefði betur haldið
sér saman á þessari sérstöku
stundu". Þá virðist sem þingmenn
leggi æ harðar að Carter að reka
Andrew Young
sendiherrann úr embætti, en
tillaga þess efnis að sækja hann til
saka var felld í fulltrúadeildinni í
dag.
Young hefur sjálfur skýrt svo
frá að hann hyggist engan veginn
láta af störfum, þótt honum „yrði
aufúsa í að gera svo“ færi Carter
fram á það við hann. Segir Young
að athugasemd hans hafi verið
slitin úr samhengi af fjölmiðlum
og lýsti hann yfir fullri samstöðu
með yfirlýsingum Carters forseta
í tilefni af réttarhöldunum í
Moskvu, en Carter hefur fordæmt
þau harðlega.
I yfirlýsingu, sem sendiherrann
Framhald á bls. 19
Þrælkunarvinna í