Morgunblaðið - 14.07.1978, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1978
„Við viljum hærra kaup”
HÓPUR unglinga í Vinnuskóla
Rcykjavíkur gekk um miðborgina
í gær og krafðist hærra kaups og
vinnu í ágúst. Gengið var á fund
borgarstjóra, fulltrúa f borgar-
stjórn og garðyrkjustjóra.
Krakkarnir fara fram á sama
kaup og jafnaldrar þeirra f
Kópavogi fá. í Reykjavfk er
tímakaup þeirra sem fædd eru
1964 305 kr. en f Kópavogi er það
á að þarna væru einhverjar skrif-
stofur borgarinnar og að nú væri
rætt við Sigurjón.
Elsa Kristín og Magnea héldu á
börða á milli sín sem á stóð:
„Sanngjarnt kaup, betri afköst."
Magnea hafði haft samband við
verkakvennafélag og fengið taxta
þess, sem hljóðar upá 599 kr. á
tímann fyrir 14 ára unglinga í
garðyrkjustörfum.
sem gengu á fund Gunnlaugs
Péturssonar. Hún sagði að hann
hefði tekið þeim vel.
„Gunnlaugur sagðist ætla að
hafa samband við sína yfirmenn, en
Sigurjón var ekki við. Hann sagði
að borgin væri ekki nógu rík til að
borga hærra kaup.“
„Áfram, áfram unglingar...“
Á leiðinni upp Laugaveginn var
Fólk á göngu um Laugaveginn
horfði undrandi á kröfugönguna.
fóru á fund Guðrúnar Helgadóttur.
Gengið var að Skúlatúni 2 og þar
var Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri
heimsóttur. Kristín, Eygló og
Hjördís báru fram kröfu um hærri
laun og lengri vinnutíma en Hafliði
sagðist lítið geta gert fyrir þær.
„Ég er ekki fjármálastjóri borg-
arinnar, en úr borgarsjóði er allt
búið, þið fáið það kaup sem borgin 1
Gestir Guðrúnar voru nú aftur
komnir í för með hópnum og voru
mjög ánægðir með heimsóknina til
hennar. Hún hafði sagzt ætla að
styðja kröfur þeirra og tala um þær
við Sigurjón.
Á leiðinni niður Hverfisgötuna
töluðu strákar úr Árbænum um
vinnuna. „Við gerum ýmislegt,
stingum upp, reitum arfa og
gróðursetjum. Krakkarnir í Mos-
Fyrst var haldið á fund borgarstjóra.
479 kr. Þau sem fædd eru 1963 fá
345 kr. á tfmann í Reykjavík en
539 kr. f Kópavogi. Unglingarnir
eru aðeins ráðnir f vinnu til
tveggja mánaða á báðum stöðum.
Kröfugangan lagði af stað frá
Lækjartorgi og hélt á fund borgar-
stjóra í Pósthússtræti. Á meðan
nokkur fóru inn til að hitta
ráðamenn borgarinnar beið hópur-
inn fyrir utan og hrópaði: „Hærra
kaup, hærra kaup“. Ekki voru allir
viðstaddir vissir um hvers vegna
þarna var stanzað en þó lék grunur
„Þegar ég talaði við verka-
kvennaféiagið sögðu konurnar þar
að Vinnuskólinn væri ekki á þeirra
vegum og þess vegna ættu samn-
ingar þeirra ekki við um okkur,“
sagði Magnea. „Ég vil fá að vita
hvaða 14 ára unglingar, sem vinna
garðyrkjustörf að sumarlagi, fá 599
kr. á tímann.“
Þegar lagt var af stað aftur var
haldið upp Laugaveginn og að
Tryggingastofnuninni. Guðrún
Hólmgeirsdóttir var ein af þeim
hrópað: „Hærra kaup og vinnu í
ágúst" og sungið: „Áfram, áfram
unglingar og við fáum hærra kaup.“
Umferðin tafðist að sjálfstöðu
eitthvað, en það var engin lögregla
í fylgd með göngunni. Lögreglu-
þjónn á gangi niður Laugaveginn
sagði, að það þyrfti að fá leyfi til
að fara í kröfugöngu, „en þau hafa
gert þetta áður og þá var ekkert
gert við því.“
Við Tryggingastofnunina var
staðið mjög stutt, en um 15 krakkar
hefur ráð á. Ef þið viljið hærra
kaup verða foreldrar ykkar að
borga hærri skatta."
Þegar minnst var á það starf sem
vinnuskólinn vinnur sagði Hafliði
að borgin gæti sparað mikið fé og
þó unnið mikið verk án vinnuskól-
ans. Hann sagði að hægt væri að
nota úðun til að koma í veg fyrir
arfa, en stelpurnar héldu því fram
að þær ynnu þarft starf í borginni
við rakstur og málun „og þið hafið
enga vél eða tæki til að sjá um að
gróðursetja!“
felissveit fá að gera miklu meira en
við, þeir bæta malbiki í göturnar
og svoleiðis." sagði Kjartan Gylfa-
son.
„Það eru skítverkin sem við
fáum, en þau eru betri en ekki
neitt. Kaupið er allt of lágt og
klárast undir eins. Við vitum ekki
hver átti hugmyndina að þessari
kröfugöngu, en við fréttum af henni
í vinnuflokknum okkar. Henni
mætti nú vera betur stjórnað"
sögðu Árbæingarnir.
Lúðvík Jósepsson:
Enginn málefna-
legur grundvöllur
í BRÉFI Lúðvíks Jósepssonar,
formanns Alþýðubandalagsins,
sem hann sendi Benedikt Grön-
dai, formanni Alþýðuflokksins f
gær segir, að Alþýðubandalagið
Lúðvfk Jósepsson
sé andvígt þátttöku í samstjórn
með Alþýðuflokki og Sjálfstaeðis-
flokki, „enda enginn málefnaleg-
ur grundvöliur fyrir slíkri
stjórn“. Morgunblaðið spurði
Lúðvfk að því í gær, hvort ekki
gæti orðið um málefnagrundvöll
að ræða, sem miðaði að lausn
efnahagsvandans.
Lúðvík Jósepsson sagði: „Út af
fyrir sig getur maður sagt, að
aldrei er hægt að segja, hvað kann
að koma upp. í þessu svari okkar
felst þó það, að það sem fram
hefur komið, yfirlýst stefna okkar
og skoðun á því hvað gera eigi —
og á hinn bóginn hvað komið hefur
fram hjá Sjálfstæðisflokknum um
það hvað hann telji að gera þurfi,
stangast á með öllu. Þar með
drögum við þá ályktun, að ekki sé
grundvöllur fyrir hendi. Okkur
sýnist að öll skrif og allt bendi til
þessa alveg fram á síðasta dag.“
I
Suðurnes:
5 frystihús hafa
þegar stöðvast
MBL. HEFUR borist ályktun frá
fundi Frystihúsaeigenda á Suður-
nesjum sem haldinn var sl.
miðvikudag. Þar kemur fram að
18 frystihús á svæðinu munu
hætta móttöku á fiski eftir 26.
Landsmótið í Skógarhólum sett i dag:
Hver hryssanna nær best-
um tíma í 350 metrunum?
LANDSMÓT hestamanna í
Skógarhólum 1 Þingvallasveit
verður formlega sett kl. 13.30 í
dag af formanni Landssambands
hestamannafélaga Albert
Jóhannssyni. Síðdegis f gær töidu
forsvarsmenn mótsins að um 5000
manns væru komnir á mótssvæðið
en veður á Þingvölium var hið
besta, sóskin og hlý gola. Á
miðvikudag var hafist handa við
dóma stóðhesta og í gær voru
kynbótahryssur og klárhestar
með tölti dæmdir auk þess, sem
þau hross, er seld verða á
hrossamarkaði mótsins siðdegis á
morgun, voru kynnt.
Dagskrá mótsins í dag hefst kl.
13 með því að öllum kynbótahross-
um, sem sýnd eru sem einstakling-
ar, verður riðið inn á völlinn. Þá
verður mótið sett og kl. 14 verður
hafist handa við að dæma alhliða
gæðinga en þeir eru dæmdir með
spjaldadómum og gefst áhorfend-
um tækifæri til að fylgjast með
hvaða dóm hver hestur hlýtur. Þá
verða bæði kynbótahryssur og
stóðhestar kynntir og kl. 15 fer
fram keppni unglinga 10—12 ára
bg taka þátt i henni 20 krakkar en
Framhaid á bls. 18
þessa mánaðar, eins og frá var
skýrt í Mbl. í gær, en fimm
frystihús á svæðinu hafa nú
þegar stöðvast og nokkur til
viðbótar dregið úr rekstri sínum
að þvf er segir í tilkynningu frá
fundi frystihúsaeigenda á Suður-
nesjum.
í áiyktuninni segir að þar sem
verðjöfnunarsjóður geti ekki leng-
ur staðið við skuldbindingar sínar
um greiðslur vegna frosinna fisk-
afurða, fái frystihúsin 11% lægra
verð fyrir afurðir sínar, en heitið
var við síðustu verðákvörðun.
Síðan segir í ályktuninni: „Frysti-
húsin geta ekki staðið undir
þessari lækkun, jafnframt því að
aðrir kostnaðarliðir hafa hækkað
allmjög. Þau eru því nú rekin með
17% tapi. Útilokað er því, að
óbreyttum aðstæðum, að hægt sé
að standa skil á vinnulaunum og
hráefnisgreiðslum. Til að auka
ekki enn vanskil við viðskipta-
aðila, samþykktu eftirtalin frysti-
hús að hætta móttöku á fiski eftir
26. júlí n.k.
Ásgeir h/f, Garði; Baldur h/f,
Keflavík; Baldvin Njálsson, Garði;
Berg, Garði; Brynjólfur h/f,
Njarðvík; Fiskanes h/f, Grindavík;
Guðlaugur Aðalsteinsson, Vogum;
Heimir h/f, Keflavík; H/F Miðnes,
Sandgerði; Hraðfrystihús Grinda-
víkur, Grindavík; Hraðfrystihús
Keflavíkur, Keflavík; Hraðfrysti-
hús Ólafs S. Lárussonar, Keflavík;
Hraðfrystihús Þórkötlustaða,
Grindavík; ísstöðin h/f, Garði; Jón
Erlings h/f, Sandgerði; Keflavík
h/f, Keflavík; Rafn h/f, Sandgerði;
R.A. Pétursson, Njarðvík."
Mbl. hafði í gær samband við þá
Þórarin Guðbergsson fram-
kvæmdastjóra ísstöðvarinnar h/f í
Garðinum og Benedikt Jónsson
framkvæmdastjóra Hraðfrysti-
húss Keflavíkur og innti þá álits
á ástandinu í málefnum frystihúsa
þeirra.
Þórarinn Guðbergsson sagði að
ísstöðin hefði nú 11% minni
tekjur en í síðasta mánuði og
rekstrarkostnaður væri þó ívið
Framhald á bls. 18