Morgunblaðið - 14.07.1978, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JtJLÍ 1978
3
Sigurjón og- Jóel úr Árbænum sögðu að kaupið væri fljótt að fara.
Hafliðii Foreldrar ykkar verða þá að borga hærri skatta.
Fjárhagur
borgarinnar
er mjög s1æmur“
Að lokum gengu nokkur á fund
Björgvins Guðmundssonar, borgar-
fulltrúa Alþýðuflokksins. Guðrún
Hólmgeirsdóttir hafði orð fyrir
hópnum og gerði Björgvin grein
fyrir göngunni og þeim sem þau
höfðu hitt.
„Ég skal ræða þetta í borgarráði
á þriðjudaginn og sjá hvort hægt er
að hækka kaupiö ykkar. Vísitölu
samþykkt var gerð um daginn og
þið gætuð fengið einhverja hækkun
í samræmi við hana. Fjárhagur
borgarinnar er mjög slæmur, en við
skulum sjá til.“ sagði Björgvin.
Þau, sem enn voru í göngunni, en
hún var mun þéttari á Lækjartorgi
en þegar komið var á Arnarhól,
ætluðu að setjast þar niður áður en
þau færu heim. Kröfugöngumenn
voru alls staðar að úr borginni. Þær
fréttir bárust úr Heiðmörk að þar
hefði verið vel mætt til vinnu svo
ekki lá öll starfsemi Vinnuskóla
Reykjavíkur niðri í gær.
Unglinga-
vinna í
Reykjavík
lægst
launuð
• í framhaldi af kröfugöngu
ungiinga í Vinnuskóla Reykjavík-
ur í gær fannst Morgunblaðinu
fróðlegt að leita upplýsinga um
laun unglinga í vinnuskólum á
nokkrum stöðum utan Reykjavík-
ur. Kom í ljós að unglingar í
starfi hjá Reykjavíkurborg fá
lægra tímakaup fyrir störf sín en
unglingar fá fyrir sams konar
störf á þeim stöðum sem Mbl.
hafði samband við.
I Reykjavík fá unglingar fæddir
1963 345 kr. á tímann, í Kópavogi
fá þau 539 kr. í Mosfellssveit 400
kr., á ísafirði 640 kr. og á Akureyri
365 kr. Þeir unglingar, sem eru
fæddir árið 1964, fá í Reykjavík
305 kr. á tímann, í Kópavogi fá þau
479 kr., í Mosfellssveit 320 kr., á
ísafirði 584 kr. og á Akureyri 320
kr.
Allir vinnuskólarnir sem Mbl.
hafði samband við nema á Isafirði,
hætta störfum um mánaðamótin
júlí-ágúst. Á ísafirði fer skólinn í
frí um miðjan júlí og síðan verður
séð til hvað verður í ágúst. Þar er
unglingunum borgað samkvæmt
taxta verkamannafélagsins en
yfirleit ræður bæjarfélagið laun-
unum. Störf unglinganna eru
svipuð á öllum stöðunum. Þau
felast í garðvinnu og almennri
snyrtingu kaupstaðanna.
ATHYGLI vekur að í bréfi Geirs
Hallgrímssonar, formanns Sjálf-
stæðisflokksins, sem hann reit
Benedikt Gröndal, formanni Al-
þýðuflokksins, f gær, að orðalag
bréfsins er ekki einskorðað við
nýsköpunarstjórn. Morgunblaðið
spurði Geir Hallgrímsson að því
í gær, hvort verið gæti að
Sjálfstæðisflokkurinn væri tilbú-
inn til stjórnarsamstarfs við
Alþýðuflokkinn í viðreisn eða ef
til vill að styðja minnihlutastjórn
Alþýðufiokksins.
Geir Hallgrímsson:
Tillögur um brey t-
ingu á stjórnar-
skrá innan 2ja ára
Geir Hallgrímsson sagði: „Á
þessu stigi held ég, að ekki verði
lögð meiri merking í þetta orðalag,
en að við viljum ná málefnalegri
samstöðu um lausn aðsteðjandi
vandamála á nægilega breiðum
grundvelli til þess að geta myndað
sterka og sannfærandi stjórn, sem
fær verði um að ráða við þau
viðfangsefni, sem hennar bíða.
— Ég vil undirstrika, að Sjálf-
stæðisflokkurinn mun láta mál-
efnin ráða afstöðu sinni og auðvit-
að eru þar einnig önnur mál en
efnahagsmálin, sem skipta sköp-
um. Gert er ráð fyrir því að allir
flokkar geri sér ljóst, að ágreining-
ur í utanríkismálum sé lagður til
hliðar og að staðið verði við gert
samkomulag á síðasta þingi um
ákveðnar tillögur til lausnar
stjórnarskármálinu og að tillögur
varðandi kjördæmaskipan og
kosningalög verði lagðar fram
innan tveggja ára.“
Andafjölskylda
í erfiðleikum
LÖGREGLAN í Reykjavík var Lögreglan flutti svo andafjöl-
kvödd á Mýrargötu rétt vestan skylduna á Tjörnina en um
við Slippinn í gærkvöldi en þar þetta leyti er alltaf eitthvað um
stóð þá hópur fólks og hélt vörð það að lögreglan aðstoði endur
um önd og fjóra unga hennar með unga sem komast í þrot í
sem kettir hverfisins höfðu borgarumferðinni.
reynt að setja klærnar í.
Lúðvík
vill sjálf-
ur mynda
vinstri
stjórn
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ hefur
tekið óstinnt upp, að forseti
fslands skuli hafa falið Bcne-
dikt Gröndal, formanni Al-
þýðuflokksins að gera tilraun
til myndunar meirihlutastjórn-
ar. óánægja Alþýðubandalags-
manna með þessa ákvörðun
forseta kemur fram bæði í
forsíðufrétt og forystugrein
Þjóðviljans í gær, þar sem m.a.
segir að Alþýðubandalagið hafi
verið tilbúið til þess að gera
sjálft tilraun til myndunar
vinstri stjórnar og ástæðan
fyrir þvi að Benedikt skuli
fyrstum manna falin stjórnar-
myndun telur Þjóðviljinn að
hljóti að vera sú að Geir
Hallgrímsson hafi bent sérstak-
lega á Benedikt í þessu skyni.
Geir Ilallgrímsson sagði hins
vegar í Morgunblaðinu í gær,
að Sjálfstæðisflokkurinn hefði
ekki bent á neinn sérstakan
aðila til stjórnarmyndunar að
þessu sinni.
í forsíðufrétt Þjóðviljans seg-
ir, að það veki nokkra athygli að
formanni Alþýðuflokksins skuli
falið að reyna að mynda meiri-
hlutastjórn, og þá með samstarf
Alþýðuflokks, Alþýðubandalags
og Sjálfstæðisflokks fyrir aug-
um, þar sem fyrir liggi af hálfu
þingflokks Alþýðubandalags að
flokkurinn telji rétt að gera
tilraun til myndunar vinstri
stjórnar, og eins hafi Framsókn-
Framhald á bls. 19
I Slippfé/agið ífíeykjavíkhf
Má/ningarverksmiðjan Dugguvogi
Símar 33033og 33414
Vitretex sandmálning er sendin og fín plastmálning
sem hentar jafnt inni sem úti.
Hún myndar þykka málningarfilmu, þar sem 1 yfirferð
svarar til 3 yfirferða af venjulegri plast-málningu.
Fæst í 12 staðallitum og einnig í hvítu.
Blanda má staðallitunum innbyrðis og fá mismunandi
blöndunarliti eftir óskum.