Morgunblaðið - 14.07.1978, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1978
15
Ummjón:
Bmrgljót Ingólfmdóttir
Það er skcmmtilegt að eiga sérstakar töskur til að nota
að kvöldlagi, eða þegar farið er í spariföt. Hér eru
myndir af slíkum, sem sæmilega laghent manneskja ætti
að geta búið til án mikils kostnaðar.
Hliðartaskan er búin til úr tveimur hekluðum
„dúllum“ eða smádúkum, sem saumaðir eru á samlitt
efni. Hér er það hvítt. Haldið er úr samlitri silkisnúru.
Hin taskan er búin til úr flauels- og satínborðum,
mismunandi litum. Ef settir eru saman margir litir, eins
og hér, er hægt að nota töskuna við margvíslega litan
klæðnað.
Hér er fóður og bryddingar úr grænu satíni og
borðarnir eru í eftirtöldum litumi Svartur, rósbleikur,
tveir grænir litir, laxableikur, drapplitaður, rústrauður
og gulgrænn.
Borðarnir eru nædlir á „flysselín“ á ská, síðan eru
aðrir jafnlangir undir og yfir, eins og mynd sýnir. Á
myndunum má sjá hvernig á að bera sig að við frágang.
Sýning vatns-
litamynda í
Suðurgötu 7
SÝNING á verkum brezka
listamannsins Peter Schmidt
verður opnuð í Galleríi Suð-
urgötu 7 á morgun klukkan
16.00. Hingað kemur þessi
sýning frá París, en upphaf-
lega var hún sýnd í London.
Peter Schmidt hefur feng-
izt við kvikmyndun, tónlist,
ljósasýningar, grafík og bóka-
gerð, en síðastliðin tvö ár
hefur Schmidt nær eingöngu
helgað sig vatnslitatækninni
og má sjá afrakstur þess á
sýningunni.
Meðan á sýningunni stend-
ur verða leikin af segulbandi
tvö verk eftir tónlistamann-
inn Brian Eno, „Descreet
Music“, sem hefur áður verið
gefið út á hljómplötu og áður
óútgefið verk, „Music for
Airports“, en síðastliðin ár
hafa þeir Peter Schmidt og
Eno haft með sér samstarf.
Peter Schmidt verður
staddur hér meðan á sýning-
unni stendur, en hann ætlar
að notfæra sér veru sína hér
til að starfa að list sinni.
Sýningin í Galleríi Suðurgötu
7 verður opin daglega til 30.
þessa mánaðar frá klukkan
16.00 til 22.00 virka daga og
klukkan 14.00 til 22.00 um
helgar.
BÍLA-
KRÁIN
NÝR veitingastaður hefur verið
opnaður í ROasiilu Alla Rúts að
Ilyrjarhöfða 2. Nefnist staðurinn
BOakráin og er í eigu sömu aðila
og Ilalti haninn á Laugavegi.
I Bílakránni, sem er fyrsti
veitingastaðurinn í Artúnshöfða,
eru seldir ýmsir smáréttir, enn-
fremur pyslur, kaffi, kökur,
sælgæti, öl og tóbak. Staðurinn er
opinn alla daga frá kl. 9 til 19.
Myndina tók Kristinn í Bílakránni
í vikunni.