Morgunblaðið - 14.07.1978, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. JULÍ 1978
— Landsmót
Framhald af bls. 2
keppninni stjórnar Rosemarie
Þorleifsdóttir.
Klukkan 17.30 verða undanrásir
kappreiða í 250 metra og 350
metra stökki og einnig fer fram
fyrri sprettur í 1500 metra brokki.
Nær öll bestu hross landsins í
þessum greinum keppa og má
búast við spennandi keppni og þá
kannski ekki síst í 350 metrunum.
Einkum bíða menn spenntir eftir
því að sjá, hvaða árangri einar
fimm bestu hlaupahryssur lands-
ins ná í 350 metra stökkinu, en það
eru Loka og Glóa úr Reykjavík,
Nös frá Urriðavatni, Gjálp frá
Laugarvatni og Blesa frá Hvítár-
holti. Klukkan 20 í kvöld fer fram
keppni í gæðingaskeiði og er það
nýjung á landsmóti en í því er ekki
einungis miðað að því að ná sem
bestum tíma heldur er dæmt fyrir
skeiðtakt, fegurð skeiðsins og
ásetu knapans. Knapar, sem sitja
hesta í gæðingaskeiðinu, eru
Sigurður Olafsson í Laugarnesi,
Eyjólfur Isólfsson, Þorvaldur Þor-
valdsson, Ingimar Ingimarsson,
Þorvaldur Ágústsson, Albert Jóns-
son, Reynir Aðalsteinsson, Einar
Þorsteinsson og Trausti Þór
Guðmundsson.
Síðast á dagskrá mótsins í dag
er kvöldvaka sem hefst kl. 21. Fer
hún fram skammt frá dómpallin-
um en meðal atriða á kvöldvök-
unni er að Lárus Sveinsson og
Sveinn Birgisson blása til leiks,
börn og unglingar sýna ýmsar
greinar hestamennsku, sýndur
verður kerruakstur, konur ríða í
söðli, Guðmundur Jónsson syngur,
Flúðakórinn syngur og fluttur
verður leikþáttur.
Landsmótinu verður framhaldið
um helgina en á morgun hefst
dagskráin með kynningu á sölu-
hrossum á hrossamarkaðnum kl.
10.
Rœtt við fataframleiðendur um erfiðleika fataiðnaðar
f FRAMHALDI af fréttum um hið slæma ástand sem nú ríkir í fataiðnaðinum birti Mbl. í gær viðtöl við
þrjá framleiðendur á þessu sviði og bað þá að tjá sig um ástandið og leiðir til lausnar vandanum. Hér á
eftir fara viðtöl við tvo fataframleiðendur til viðbótar:
Bergþór Konráðsson hjá SÍS:
Treystum því að
eitthvað verði gert
Iljá iðnaðardeild Sambands-
ins á Akureyri náði Mhl. tali af
Bergþóri Konráðssyni
aðstoðarframkvæmdastjóra.
— Hér hjá okkur er sömu
sögu að segja og annars staðar
að við hljótum að sigla í strand
verði ekki að gert. Eins og málin
standa núna er enginn rekstrar-
grundvöllur fyrir hendi. Við
ætlum að bíða og sjá hvað setur
Bergþór Konráðsson
og ekki fækka starfsfólki hér
frekar en orðið er, en við
neyddumst til að draga saman
seglin, vegna minnkandi
viðskipta við Sovétríkin, en þar
fyrir utan hefur vaxandi sam-
keppni á markaðnum hér innan-
lands, vegna innflutnings, sett
strik í reikninginn hjá okkur.
— Það er hins vegar ekki
hægt að draga launakostnaðinn
sérstaklega út úr sem aðal-
ástæðu, verðbólgan er megin-
vandamálið og þær launa-
hækkanir og hráefnishækkanir
sem henni fylgja. Þar eð við
flytjum mikið af okkar vörum út
skiptir gengi krónunnar okkur
miklu og ég álít að það sé ekki
rétt skráð. Gengið er í raun
fallið og það þarf að skrá það í
samræmi við það.
— Mjög hefur dregið úr sölu
okkar til útlanda frá síðasta ári
og með erfiðleikunum hér heima
er því ljóst að það er spurning
um vilja banka til að halda
þessu gangandi hjá okkur, því
það er ekki um neina fjármagns-
myndun að ræða í fyrirtækinu
þegar svona er ástatt, en við
treystum því að eitthvað verði
gert.
Böðvar Jónsson hjá Föt h.f.:
Sitjum ekki við
sama borð og aðrir
MBL. hafði í gær cinnig sam-
hand við Biiðvar Jónsson vcrk-
smiðjustjóra hjá fyrirtækinu
Föt h/f í Rcykjavík og haíði
hann cftirfarandi að scgjai
— Ástandið hjá okkur er mjög
svipað og hjá öðrum, sem fást
við þetta. Hlutur launa og
launatengdra gjalda stækkar
stöðugt og fyrirtækin ráða ekki
við þetta. Ég veit til þess að á
Norðurlöndunum er niður-
greiðslufyrirkomulag á þessu,
þannig að ríkið greiðir fóikinu
hluta launanna.
— Ég reikna nú ekki með að
þaö komi til algerrar stöðvunar
hjá okkur á næstu vikum, enda
er það líka dýrt að stöðva
framleiðsluna og við erum ekki
óvanir að eiga við tímabundna
erfiðleika að etja. Hitt er þó
staðreynd að hér er um óvenju-
lega langt erfiðleikatímabil að
ræða, og það er Ijóst að eitthvað
þarf að gera.
— Ég get nú ekki bent á neina
ákveðna leið til úrbóta, enda
hafa vaidamenn þjóðarinnar
ekki gert það heldur, en hinu er
ekki að leyna, að við sitjum ekki
við sama borð og aðrir atvinnu-
vegir hvað varðar lánakjör, tolla
og söluskatt af orku. Svo eigum
við í mikilli samkeppni við
innfluttan fatnað frá löndum
þar sem vinnuafl er ódýrt og
núverandi gengisskráning
vinnur mjög með þeim sem
stunda innflutning.
Böðvar Jónsson
— Alþýðubandalagið
eyðilagði tilraunina
Framhald af hls. 32
þýðuflokksins teldi farsælast fyrir
þjóðina, að mynduð yrði ríkis-
stjórn Alþýðuflokks, Alþýðu-
bandalags og Sjálfstæðisflokks, en
hún yrði líklegust til að koma á
kjarasáttmála, tryggja vinnufrið
og hemja óðaverðbólgu. Ég mundi
því reyna myndun slíkrar stjórnar.
Viðræður um myndun ofan-
greindrar ríkisstjórnar munu
byggjast á því meginhlutverki að
koma á kjarasáttmála milli verka-
lýðssamtaka, vinnuveitenda og
ríkisvalds, til að tryggja vinnufrið,
kaupmátt, launajöfnuð og fulla
atvinnu. Á þann hátt einan verður
hægt að hemja verðbólguna og
lækka erlendar skuldir, en tryggja
með eflingu íslenzkra atvinnuvega
þjóðartekjur, og launþegum jafn-
an og réttlátan hlut þeirra.
Markmiðið verði tryggt efnahags-
legt sjálfstæði þjóðarinnar, sem er
undirstaða alhliða framfara.
Með þetta höfuðatriði í huga
leyfi ég mér að bjóða Sjálfstæðis-
flokknum til viðræðna ofan-
greindra þriggja flokka um sam-
stjórn þeirra. Ég vænti svars við
fyrsta hentuga tækifæri."
Bréf þessi boðsendi Benedikt
Gröndal til formanna Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðubandalags í fyrra-
kvöld. Alþýðubandalagið tók málið
fyrir á fundi árdegis i gær, en
Sjálfstæðisflokkurinn klukkan 16
síðdegis. Alþýðubandalagið hafn-
aði boði formanns Alþýðuflokks-
ins, en Sjálfstæðisflokkurinn tók
jákvætt undir það.
Svar Alþýðubandalagsins var
svohljóðandi:
„Alþingi, 13. júlí 1978.
Hr. formaður Alþýðuflokksins,
Benedikt Gröndal.
Á fundi í þingflokki Alþýðu-
bandalagsins, sem hófst klukkan
10 í morgun, var boð það, um
þátttöku Alþýðubandalagsins í
stjórnarmyndunarviðræðum, sem
barst með bréfi kl. 20,35 í gær-
kvöldi, tekið til afgreiðslu.
Svar þingflokksins við bréfinu
er eftirfarandi:
I könnunarviðræðum þeim um
stjórnmálahorfur og stjórnar-
myndunarmál, sem fram hafa
farið að undanförnu milli Alþýðu-
bandalags og Alþýðuflokks, hafa
fulltrúar Alþýðubandalagsins tek-
ið skýrt fram, að Alþýðubandalag-
ið telur það hlutverk sitt að beita
sér fyrir framgangi vinstri stefnu,
sem við núverandi aðstæður yrði
helzt komið fram með myndun
ríkisstjórnar Alþýðubandalags,
Alþýðuflokks og Framsóknar-
flokks.
Alþýðubandalagið er því andvígt
þátttöku í samstjórn með Alþýðu-
flokki og Sjálfstæðisflokki, enda
enginn málefnalegur grundvöllur
fyrir slíkri stjórn.
Að framangreindum ástæðum
lýsir þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins yfir því, að hann hafnar
þátttöku í stjórnarmyndunarvið-
ræðum við Alþýðuflokk og Sjálf-
stæðisflokk.
Nú liggur fyrir, að Framsóknar-
flokkurinn vill taka þátt í viðræð-
um um vinstri stjórn. Þingflokkur
Alþýðubandalagsins ítrekar áhuga
sinn á myndun slíkrar stjórnar,
sem m.a. beiti sér fyrir gjör-
breyttri stefnu í efnahags-, félags-
og sjálfstæðismálum.
Til viðræðna um myndun vinstri
stjórnar telur þingflokkurinn að
þurfi að efna sem fyrst.
Með virðingu — Lúðvík
Jósepsson."
Bréf formanns Sjálfstæðis-
flokksins var svohljóðandi:
„Hr. formaður Alþýðuflokksins
Benedikt Gröndal.
Á fundi miðstjórnar og þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins 13. júlí
1978, var samþykkt að- taka boði
formanns Alþýðuflokksins, sem
fram kemur í bréfi dagsettu í gær
um þátttöku í viðræðum til að
kanna möguleika á myndun ríkis-
stjórnar, sem njóti stuðnings
meirihluta Alþingis.
Með virðingu — Geir Hallgríms-
son.“
Bréf formanns Sjálfstæðis-
flokksins var samþykkt með sam-
hljóða atkvæðum á fundi mið-
stjórnar og þingflokks flokksins.
Eins og áður sagði mun flokks-
stjórn Alþýðuflokksins koma sam-
an til fundar í dag klukkan 16, þar
sem fjallað verður um þessa fyrstu
tilraun til stjórnarmyndunar.
Benedikt Gröndal kvaðst í gær
ekkert vilja tjá sig um stöðuna
eftir að Alþýðubandalag hefði
hafnað viðræðum, fyrr en flokks-
stjórnarfundurinn hefði tekið af-
stöðu til málsins. Þingflokkur
Alþýðuflokksins fjallaði i gær um
synjunina, en Benedikt kvað það
aðeins hafa verið byrjunarviðræð-
ur, sem halda myndu áfram á
flokksstjórnarfundinum í dag.
— Smíði
heimiluð
Framhald af bls. 32
að útgerðarfyrirtæki, sem eiga
skuttogara af stærri gerð, selji
þá úr landi og kaupi aðra minni
frá Portúgal.
Þá var Morgunblaðinu tjáð, að
ekki væri enn ákveðið af hvaða
gerð Portúgalsskipin yrðu, mest
væri hugsað um skuttogara af
minni gerð, og ennfremur skip
sem búin verða bæði til tog- og
nótaveiða, einnig hefði verið
rætt um fiskibáta af stærri
gerðinni.
— 5 frystihús
hafa stöðvast
Framhald af bls. 2
hærri. Halli á rekrekstrinum hefði
verið allnokkur þá og núna stefndi
í alger vandræði. Hann sagðist
hafa viljað stöðva reksturinn fyrr,
en slíkt væri ekki gert nema í
ýtrustu neyð, enda hefði Isstöðin á
milli sextíu og sjötíu manns í
vinnu. Þórarinn lýsti mikilli
óánægju með fyrirgreiðslu Seðla-
‘bankans, sem ekki hækkaði útlán
í samræmi við hækkun hráefnis-
verðsins.
Aðspurður kvað Þórarin ástand-
ið mun verra í ár en í fyrra, en þá
samþykktu frystihúsaeigendur
samskonar aðgerðir, sem lítið varð
úr, sagði hann að þá hefði verið
um að ræða 5—7% halla, en nú
væri hallinn u.þ.b. 17%. Hann
sagði að meðal nauðsynlegra
aðgerða til úrbóta væri ný gengis-
skráning krónunnar.
Bencdikt Jónsson sagði að
ástandið hjá frystihúsunum á
Suðurnesjum væri yfirleitt svipað
og það væri enginn möguleiki á
áframhaldandi rekstri, með núver-
andi afurðaverði. Sagði Benedikt
að lækkun viðmiðunarverðsins
hefði verið mikið reiðarslag, húsin
hefðu verið rekin með halla fyrir,
en nú keyrði um þverbák. Afurða-
lán nægðu vart fyrir hráefni svo
einhverjar aðrar aðgerðir væru
nauðsynlegar til að mæta þeim
17% halla sem nú væri.
Benedikt kvaðst ekki geta bent
á ákveðnar leiðir til lausnar
vandanum, en taldi að breytt
skráning krónunnar leysti engan
vanda til frambúðar, enda væru
lán til frystihúsanna nú öll ýmist
vísitölutryggð eða gengistryggð.
Hann sagði ennfremur að launa-
greiðslur væru engan veginn allur
vandinn, heldur vantaði fyrst og
fremst að meðaltali 15% upp á að
afurðaverðið væri nægilega hátt.
— Þrælkunar-
vinna í 8 ár
Framhald af bls. 1
játað sekt sína í því að hafa dreift
andsovéskum bókmenntum.
Domarinn í máli Ginzburgs
sagði að dómstóllinn hefði ekki
fellt yfir honum hámarksdóm að
sovéskum lögum vegna þess að
hann hefði, meðan á rannsókninni
stóð, gefið nytsamlegar upplýsing-
ar varðandi mál tveggja annarra
andófsmanna, þeirra Shchar-
anskys og forgöngumanns
Helsinkihópsins, Yuri Orlovs.
Samkvæmt frásögn verjanda
Ginzburgs, Yelenu Reznikovu,
munu „sérbúðirnar", sem bíða
Ginzburgs vera þær ströngustu og
verstu, sem um er að ræða meðal
þrælkunarvinnubúða í Sovét-
ríkjunum.
Eiginkona Schcharanskys,
Avital, hvatti í dag til þess að
Vesturlönd hættu algerlega að
eiga nokkur viðskipti við Sovétrík-
in hvort heldur stjórnmálaleg eða
í íþróttum og vísindum. Benti
frúin á , en hún býr nú i ísrael,
að alþjóðlega Ólympíunefndin ætti
nú að taka til athugunar að
endurskipuleggja næstu Ólympíu-
leika í Montreal í staðinn fyrir
Moskvu, sem andsvar við
ofsóknunum á hendur andófs-
mönnunum. Greindi hún frá því að
hún hefði átt símaviðtal við
Rosalynn Carter í gærkveldi og
hefði forsetafrúin kallað
Gyðingana í andófsmannahópnum
„hetjur í baráttunni fyrir borgara-
réttindum".
Frú Shcharansky hélt til Genfar
á miðvikudag þar sem hún kom
meðal annars að máli við Cyrus
Vance utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, sem fullvissaði hana um
að Bandaríkjastjórn myndi halda
baráttu sinni til streitu unz
eiginmaður hennar fengist laus.
Mjög harkaleg viðbrögð hafa
hvarvetna komið fram við dómin-
um yfir Ginzburg og hafa Bretar
t.d. neitað að vera gestgjafar
sovéska kolaiðnaðarráðherrans
um sinn, en hann var væntanlegur
til Bretlands á sunnudag.
— Carter 1 Bonn
Framhald af bls. 1
ir tveir munu halda fyrsta fund
sinn á morgun en efnahagsmála-
fundurinn sjálfur mun byrja á
sunnudag.
„Við bjóðum góðan vin vel-
kominn“ segir í fyrirsögn dag-
blaðsins „Die Welt“ á fimmtudag.
Samskipti Bandaríkjanna og
Vestur-Þjóöverja hafa ekki verið
með eðlilegustum hætti undan-
farna mánuði vegna ágreinings í
gjaldeyrismálum, um kjarnorku-
samning Þjóðverja og Brasilíu og
varðandi smíði nifteinda-
sprengjunnar.
Carter mun hafa fullan hug á að
sannfæra leiðtoga landanna sex,
Þýzkalands, Frakklands, Bret-
lands, Ítalíu, Kanada og Japans,
um að Bandaríkjamenn beri ekki
einir ábyrgðina á hvernig komið er
í efnahagsmálum iandanna, en
lönd þessi hafa mjög gagnrýnt
olíuinnflutning Bandaríkjamanna
og óhagstæðan viðskiptajöfnuð
þeirra. I viðtölum, sem birtust við
forsetann vestanhafs áður en hann
lagði upp í för sína, lýsti hann því
í fyrsta skipti yfir að inn-
flutningur erlends framleiðslu-
varnings væri miklu fremur en
innflutningur olíu orsök viðskipta-
hallans og lækkunar dollarans á
gjaldeyrismörkuðum.