Morgunblaðið - 06.09.1978, Síða 1
32 SÍÐUR
201. tbl. 65. árg.
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Callaghan lof ar
ákvördun skjótt
Brighton, 5. september.
AP. Reuter.
Forsætisráðherra Breta, James
Callaghan, hét því á þriðjudag að
gera upp hug sinn bráðlega um
hvort efna skuli til þingkosninga í
næsta mánuði, eins og almennt er
búist +ið. eða bíða þar til snemma
árs 1979, svo að ráðrúm gefist til að
efla efnahag landsins.
Callaghan ávarpaði í dag ársþing
brezku verkalýðssamtakanna, sem
telja um tólf milljónir verkamanna
og var almennt búist við að hann
myndi þá blása til orrustu í
væntanlegri kosningabaráttu. For-
sætisráðherrann gaf hins vegar
engin ákveðin svör og virðast
fréttaskýrendur nú á þeirri skoðun
að Callaghan muni gefa ákvörðun
sína til kynna á ráðuneytisfundi á
fimmtudag.
Ekki verður sagt að stjórnar-
leiðtoginn hafi fengið blíðlegar
móttökur er hann kom til fundarins
er hópur atvinnulausra gerði aðhróp
að honum og heimtaði lifibrauð.
I ávarpi sínu lét Callaghan í það
skína að verðbólga myndi aftur
gossa á næsta ári sættu verkalýðsfé-
lög sig ekki við fimm hundraðshluta
hámarkshækkun á kauptaxta, en
margir sérfræðingar spá aukinni
verðbólgu á næsta ári.
Ihaldsflokkurinn kallaði saman
„skuggaráðuneyti“ sitt í gær og
hefur þegar hafizt handa við
samningu kosningaávarps. Sam-
kvæmt stjórnarskrá landsins er
Cailaghan ekki skyldur til að efna til
kosninga fyrr en í október á næsta
ári en sökum ótryggrar stöðu
stjórnarinnar á þingi, þar sem
opinbers stuðnings Frjálslyndra
nýtur ekki lengur við, virðast
bráðlegar kosningar óumflýjanlegar.
Vottar NATO
hollustu sína
HINN nýi utanríkisráðherra
Portúgals, sem að undanförnu
hefur sætt ákúrum vegna gruns
um að fella hug til kommúnista,
lýsti því yfir í dag að Portúgals-
stjórn, vikugömul, myndi stuðla
að „varanlegri rótfestu" landsins
í Norður-Atlantshafsbandalag-
inu.
FRÁ SLYSSTAÐ — Rhódesískir lögregluþjónar taka saman líkamsleifar
fórnarlamba, sem hryðjuverkamenn skutu nærri flaki flugvélar félagsins Air
Rhódesía.
Nkomo axlar
sök á flugsly si
Salisbury, 5. septcmber
Reuter — AP
RHÓDESÍSKAR hersveitir leituðu
ákaft að hryðjuverkamönnum á
Heiðri
Tarzans
ofbodid
New York, 5. sept. AP. •
„TARZAN, sneypairumskógar-
ins“ heitir nýleg klámmynd,
sem orðið hefur tilefni
málsóknar ættingja rithöfund-
arins Edgar Rice Burroughs,
hins kunna höfundar Tarzan-
bókanna. Gera ættingjarnir
kröfu til þess að sýningar á
myndinni verði samstundis
stöðvaðar vestanhafs og að
framleiðandi greiði þeim þrjár
milljónir dollara í skaðabætur.
Bætir gráu ofan á svart að
sögumaður í hinni nýstárlegu
kvikmynd er Johnny Weismull-
er, sonur sundkappans fræga,
sem fór með hlutverk apa-
fóstrans í fjölda kvikmynda á
fyrri tíð.
I skógarsvæði í dag þar sem orðspor
er á reiki um að þeir hafi skotið til
bana farþega, sem lifðu af er
| flugvél hrapaði í Norður-Rhódesíu
á sunnudag.
Leiðtogi skæfuliða, Joshua Nkomi,
lýsti því yfir í Lusaka í dag að hans
menn hefðu skotið niður Viscount-
vél-flugfélagsins Air Rhódesía þar
sem flugvélar af þessu tagi hefðu
verið notaðar til herliðs- ög vopna-
flutninga. Þessa yfirlýsingu Nkomos
hafa stjórnendur flugfélagsins hins
vegar dregið i efa og sagt að engar
sannanir bendi til að vélin hafi verið
skotin niður, þar sem hún féll nærri
landamærum Sambíu.
Talsmaður landvarnaráðuneytis-
ins í Rhódesíu sagði í dag að fjöldi
manna hefði gefið sig fram af
sjálfsdáðum til að hafa hendur í hári
hryðjuverkamannanna, sem sagt er
að hafi myrt tíu af átján farþegum,
er af kpmust. Nkomo hefur á hinn
bóginn þverneitað ábyrgðinni af
ódæðinu enda þótt hann hafi áréttað
að skæruliðar úr hans röðum muni
skjóta á allar herflutninga flugvélar.
„Viscountvélar hafa verið notaðar til
herflutninga og við höfðum enga
ástæðu til að ætla að í þessu tilviki
væri öðru máli að gegna,“ sagði
Nkomo.
Forsetar faðmast — Carter Bandaríkjaforseti fagnar Sadat
Egyptalandsforseta við komu hans til Camp David í Maryland í
dag þar sem þeir munu hefja friðarviðræður ásamt Begin,
forsætisráðherra Israels. simamynd ap
Ráðherra
rekinn í
Rúmeníu
Vín, 5. september. Reuter.
DÓMSMÁLARÁÐHERRA Rúmen-
íu var vikið frá án skýringa í dag
og bendir flest til að brottrekstur
inn sé liður í hreinsunum Ceaus-
escus forseta eftir að hátt settur
öryggisráðgjafi flúði til Bandaríkj-
anna fyrir nokkru.
Ráðherrann, Teodor Coman að
nafni, var sviptur embætti með
stuttlegri tilskipun undirritaðri af
Ceausescu forseta og var annar lítt
þekktur starfsmaður kommúnista-
flokksins samstundis ráðinn í hans
stað.
Coman er annar úr röðum áhrifa-
mikilla ráðherra, sem rekinn er eftir
að samstarfsmaður forsetans, Ion
Pacepa, stakk af fyrir sex vikum.
Ferðamálaráðherra landsins,
Nicolae Doicaru, var látinn hafa
pokann sinn fyrirvaralaust um
miðjan ágúst. Grunur leikur á að
báðir hafi mennirnir sætt yfir-
heyrslum í sambandi við liðhlaup
Pacepas. Heimildir i Búkarest herma
að um hundrað manns hafi komið við
sögu í tiltektum forsetans.
Carter ætlar að
reyna til þrautar
Thurmont, 5. september. Reuter AP
FORSÆTISRÁÐHERRA ísraels, Menachem Begin, og Anwar Sadat, forseti Egyptalands, komu í kvöld
báðir til Bandarikjanna til væntanlegs stórfundar með Carter forseta um málefni Mið Austurlanda. Ilvor
tveggja Sovétríkin og talsmenn Palestínuskæruliða hafa fordæmt fundarhöldin en allt bendir til að
leiðtogarnir þrír muni engu síður reyna til hins ýtrasta að ná samningum.
Sadat, sem kom til Maryland um
tveim tímum á undan Begin.sagði
við komu sína að hann myndi gera
úrslitatilraun en Begin hins vegar
lofaðist til að gera allt sem í hans
valdi stæði til að ná samkomulagi
í átt til friðar. Áður höfðu
embættismenn í tengslum við
Bandaríkjaforseta látið í veðri
vaka að hann væri reiðubúinn að
þrauka fyrir luktum dyrum uns
tækist að brjóta ísinn í viðræðun-
um. Báðir féllu þeir Sadat og
Begin í faðma við Carter er þeir
heilsuðu honum sitt í hvoru lagi í
Camp David, en þangað flutti
þyrla þá frá Washington. Áttu
þeir síðan um fimmtán mínútna
fund hvor með forsetanum. Að
sögn blaðafulltrúa Hvíta hússins
átti Begin síðan að hitta Carter að
máli aftur á miðnætti að íslenzk-
um tíma í kvöld en Sadat og
Carter munu svo funda klukkan
tvö síðdegis á morgun.
Það kom fram hjá sovésku
fréttastofunni Tass, sem sagði frá
Camp David fundinum í dag, að
Bandaríkjamenn væru á þennan
hátt að koma ár sinni fyrir borð
í valdataflinu fyrir botni
Miðjarðarhafs og utanríkisfulltrúi
palestínskra hersveita í Beirut
komst svo að orði að stjórn
Carters freistaði þess nú að þvinga
fram eigin lausnir í landsvæða-
deilu Araba og ísraelsmanna.
Skæruliðasveitir Yassers Arafats,
viðurkenndu að hafa komið
fyrir tveimur sprengjum í
Jerúsalem í dag þar sem tveir
menn særðust og hótuðu að láta
frekar til skarar skríða í tilefni
fundarins.
Erfðaeigínleiki kann
að valda drykkjusýki
Varsjá — 5. september — AP
NÝLEGAR vfsindaniðurstöður benda til að meðfæddir lífefnafræði-
legir eiginleikar kunni að gera vissum einstaklingum hættara við
drykkjusýki cn öðrum
Bandarískur vísindamaður frá
háskólanum í Norður-Karólínu,
dr. John A. Ewing, skýrði frá því
á þrítugasta og öðru alþjóðaþingi
um fíkniefna- og áfengisneyzlu í
Varsjá í dag að ákveðnar rann-
sóknir hefðu bent eindregið til að
vissir erfðaeiginleikar skýrðu,
hvers vegna margir einstaklingar
hefðu lítinn viðnámsþrótt gegn
áfengi. Ewing sagði að starfsmenn
áfengisrannsóknarstöðvar há-
skóla síns hefðu komist að því að
tengsl væri að finna milli áhrifa
alkóhóls og styrkleika ákveðins
efnahvata í blóðinu, sem mældur
var áður en áfengis var neytt. Á
máli efnafræðinnar er hvati þessi
nefndur dopamín beta-hydroxy-
lase eða DBH. Hann bætti við að
tilraunir hefðu sýnt að væri
rottum gefiðJyf til að draga úr
verkun DBH forðuðust þær mun
frekar að neyta ethanóls (áfengis).
Vísindamaðurinn tók fram að
lífefnafræðirannsóknir af þessu
tagi kæmu fyllilega heim og
saman við niðurstöður danskra
vísindamanna, sem sýndu að börn
áfengissjúklinga ánetjuðust
áfengi miklu frekar en önnur,
þrátt fyrir að þau hefðu verið
ættleidd og raunverulegir foreldr-
ar hefðu aldrei komið nærri við
uppeldi þeirra. þ. sagð. hann ^
sænskar rannsóknir hefðu sýnt
fram á að áfengishneigð kæmi
frekar fram hjá mönnum á
miðjum fertugsaldri og eldri hefði
afi þeirra veríð áfengissjúklingur.
Ewing vék einnig að því að leidd
hefðu verið lífefnafræðileg rök að
því hvers vegna austurlandabúum
hætti síður við ofdrykkju en
öðrum kynstofnum.